Morgunblaðið - 29.03.1944, Page 1

Morgunblaðið - 29.03.1944, Page 1
„Island órjúf- andi hlekkur * Rússar komnir yfir Pruth og byrja sókn að Jassi i norrænu keðjunni“ — Segir sænskt blað Stokkhólmi 16. mars: — „Stockholms Tidningen" gerir að umræðuefni ákvörð un. Alþingis um lýðveldis- stofnun á íslandi og segir: „Vjer skiljum tilgang og sjónarmið íslendinga eins vel og Ðanir. Þarna fer fram skilnaður, sem er báðum að- ilum fullnægjandi, og sem gerðúr er án nokkurrar béiskjú. Þetta þýðir samt sem áð- ur það, að stjórnmálalega fjarlægjast , Norðurlöndin hvert annað meira og meira, en samt sem áður erum vjer sannfærðir um það, að menn ingarlega sjeð verður ísland eftir sem áður órjúfandi hlekkur í hinni norrænu keðju. —- Hlekkur sem ávalt hefir verið þýðingarmikill og sem altaf verður það'\ Jopanir sækja nú inn í Assamhjerað London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Japanar herða sókn sína í Manipurfylki, og eru þar ákaf- legar orustur, en nú eru þeir einnig komnir inn yfir landa- mæri Indlands norðar, eða inn í Assamfylki. Er einnig mikið barist á þessum slóðum, og segj ast Japanar hafa innikróað eitt bceskt herfylki, svo því sje eograr undankomu von. .Eykst einnig sóknarþungi Japana á þessum slóðum að því er, fregnir frá Indlandi herma í dag, og hefir víða komið til mjög snarpra bardaga nokkru innan landamærin. Það er þó enn aðallega á svæðinu umhverfis Impal, sem barist er, og reyna hvorir um sig' einkum að rjúfa samgöngu- leiðir hinna. Suður í Chind-hæð unum hefir komið til snarpra návígisbardaga og biðu Japanar þar allmikið manntjón, en flug- vjelar bandamanna hafa ráðist á járnbrautir í Burma og Siam. Komu tvær þeirra ekki aftur. Sunnar, á Arakansvæðinu hefir heldur dreg'ið úr bardög- um að undanförnu, og af hin- um tíðu viðureignum norður á Hukonsvæðinu hafa engar fi'egn ir borist í dag. SÍBS fær sférgjöf SAM15AND íslenskra berkla sjúklinga hofir ennþá borist stórgjöf — 10 þús krónur. —< (ijöf ]>essi er frá fyrirtæki, seui ekki vill láta nafns síhá gstið. De Fonienay kominn ti! London SENDIHERRA Dana hjer, F. le Sage de Fontenaey, er kom- inn til London. Ekki hefir þó sendiráð Dana hjer gefið út tilkynningu um för sendiherrans. — Líklegt er þó talið ,að hann hafi farið til viðræðufundar við stjórnarvöld frjálsra Dana þar í landi, og geta menn sjer til að viðræður muni fara fram á milli sendi- herrans, Reventow, greifa og Kaufmanns, sendiherra frjálsra Dana í Bandaríkjunum, en hann er einnig ný kominn til London. K. R. happdræitið: 2050 I gærkvöldi var dregið í happdrætti Knattspyrnufjelags Reykjavíkur. Upp kom nr. 27750. — Handhafi þessa miða er því orðinn eigandi af því er nýi tíminn krefur, ísskáp, þvottavjel og strhuvjel. Vinningsins sje vitjað hið fyrsta til formanns K. R„ Er- lendar Ó. Pjeturssonar í skrif- stofu Sameinaða við Tryggva- götu. Fyrir nokkru skiítu Banda- ríkjamenn um sendiherra í Moskva. Stanley flotaforingi Ijet af störfum, en Averill Harri- man tók við. Sjest hann hjer á mvndinni að oían. Breska sijórn In sii Breska stjórnin, sú er nú fer með völd, beið fyrsta ósigur sinn við atkvæðagreiðslu í neðri málstofunni í dag, er frumvarp, sem hún lagði á móti var sam- þykt með 117 atkvæðum gegn 116. Frumvarp þetta var varðandi mentamál. Fjallaði það um það, að konur og' karlar, sem væru kennarar, skyldu hafa jafnhátt kaup. Þetta vildi stjórnin ekki fallast á og lagðist mentamála- ráðherrann fast gegn frumvarp inu fyrir hönd stjórnarinnar. Urðu umræður fnjög miklar. Sagði mentamálaráðherrann m. a., að það væri alvarlegt mál að gréiða atkvæði gegn stjórn- inni. Er atkvæði höfðu verið tal in, varð mikill fögnuður meðal fylgismanna þess, en tekið yar fram af þeim, að ekki bæri að skoða úrslit atkvæðagreiðslu þessarar, sem vantraust á But- ler mentamálaráðherra. Stjórn in mun endurskoða afstöðu sína í málinu áður en það verð- ur tekið til næstu umræðu. — Reuter. Þeirtóku Nikolajevígær og nálgast Chernauti London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. Seint i kvöld sögðu Þjóðverjar að Rússar hefðu gert atlögur að borginni Jassi, hinni mestu borg Austur- Rúmeniu, en hún stendur vestan Pruthfljótsins. Eru því rússneskir herir nú komnir inn í sjálfa Rúmeníu. Fregn- inni fylgdi það, að þýskar og rúmenskar hersveitir hefðu hrundið árásimii á Jassi. ____________________________ Rússar tilkyntu í dag, að þeir hefðu tekið hafnarbæ- inn Nikolajev við Svartahaf, en Þjóðverjar sögðu þar frá hörðum orustum. Einnig verður sjeð af herstjórnar- tilkynningu Rússa, að fram- sveitir Zukovs nálgast nú landamæri Ungverjalands og eru aðeins um 10 km. frá hinni mikilvægu borg Cer- nauti, eh hún er um 80 km. frá ungversku landamærun- um. Sjest þaðan glögt til Karpataf jallanna. Það svæði af Ungverjalandi, sem Rúss ar eru komnir næst, fengu Ungverjar frá Tjekkum ár- ið 1939. Þjóðverjar Róm óvíggirfa borg London í gærkveldiw Þýska herstjórnin hefir gefið út yfirlýsingu þess efn- is, að Róm beri að skoða sem óvíggirta borg. llafi ekkért] herlið bækistöðvar þa.r og engar hersveitir sjeu fluttar gegnum borgina. Einnig er sagt í yfirlýsingu þessari, að svo verði um sjeð í framtíð- hmi, að ekkert verði látiði fram fara í horginni, sem til hernaðarútbúnaðar megi telj- ast. — Reuter. Roosevelt með bronchitis "VVashington í gærkveldi. Roosevelt forseti sagði blaðamönnum í dag, að hann hefði verið með snert af bron- chittis í þrjár vikur, og hefði síðast í dag farið í liersjúkra- hús, til þess að láta taka af sjer röntgenmynd. Forsetinu sagði, og hóstaði um leið, að engin hætta væri á að hann fengi lungnabolgu. — Reuter. Greta Garbo í stríðs- kvikmynd. Washington: — Norska sendi ráðið í Washington hefir tilkynt að Greta Garbo muni leika að- alhlutverk í kvikmynd, sem gera á um afrek norskra kvenna sem starfa í verslunarflota Norð manna í styrjöldinni. Það var að tilmælum norska sendiherr- ans í Bandaríkjunum, Wilhelm Morgenstjerne, að Garbo tókst þetta hlutverk á hendur, en hann sagði að hún væri „sem sköpuð í hlutverk þetta“. Taka Nikolajev. Hafnarbærinn Nikolajev, sem herir Malinovskis tóku. var áður mikil útflutnings- borg og eru þar einnig all- miklar skipasmíðastöðvar. íbúar voru um 160.000 fyrir styrjöldina. Bærinn stend- ur á tanga einum, og sóttu Rússar beint framan að vörnum borgarinnar. Fregn ritarar segja, að bardagarn- ir hafi verið feiknalega skæð ir. Þá hafa Rússar komist y£- ir Bugfljótið milli Nikopol og Vosnesensk. sem þeir tóku á dögunum. Er víglín- an mjög ójöfn þarna og yf- irleitt ekki gott að henda ná- kvæmar reiður á aðstöð- unni. Sókn Zukovs. Zukov marskálkur hefir, að sögn nersíjórnartilkynn- ingar Rússa, einkum beint sókn sinni síðasta sólarhring að Chernauti og ungversku landamærunum. Segir her- stjórnartilkvnningin, að mörg þorp hafi verið tekin í vesturátt frá Kamenetsk- Podolsk. Þjóðverjar greina frá mjög hörðum varnaror- ustum á þessum slóðum og einnig nálægt Tarnopol, en við Kovel segjast þeir hafa vísað áhlaupum Rússa á bug Framh. á 2. síðu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.