Morgunblaðið - 29.03.1944, Síða 6

Morgunblaðið - 29.03.1944, Síða 6
MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagur 29. mars 1944. Útg.: H.f. Arvakur, Reykjavík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðann.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstrseti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlandi, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Leabók. Áburðarverksmiðjan 'ÞAÐ VAR í desember 1942 sem borgarstjórinn í Reykja vík skrifaði atvinnumálaráðherranum brjef varðandi byggingu áburðarverksmiðju hjer í nágrenni Reykja- víkur. Fylgdi brjefi borgarstjóra skýrsla verkfræðing- anna Ásgeirs Þorsteinssonar og Steingríms Jónssonar, um málið. Það var Ásgeir Þorsteinsson sem átti hug- myndina að þeirri lausn, er stungið var upp á í skýrslu verkfræðinganna. En hugmynd hans var, að Reykjavík- urbær og ríkissjóður reistu áburðar\rerksmiðju í sam- einingu hjer í nágrenni bæjarins. Verksmiðjunni skyldi trygt mjög ódýrt rafmagn frá Sogsstöðinni að næturlagi, en slíkar verksmiðjur þurfa mikið rafmagn. Borgarstjórinn fór fram á í brjefi sínu, að ríkisstjórn- in og bæjarstjórnin ljetu í sameiningu athuga möguleik- ana á því að hrinda málinu í framkvæmd. Þáverandi atvinnumálaráðherra, Ólafur Thors, svaraði borgarstjóra með brjefi dags. 15. des. 1942. Tók hann málaleitan borg- arstjóra vel og kvað ríkisstjómina fúsa til að ræða þetta mál nánar. Myndi stjórnin tilnefna menn af sinni hálfu til viðræðna um málið og yrði borgarstjóra nánar tilkynt um það. En nú urðu stjórnarskifti (16. des. ’42). Nýr atvinnu- málaráðherra, Vilhjálmur Þór, tók við af Ólafi Thors. Leið nú hver mánuðurinn af öðrum og ekkert heyrðist frá V. Þór um þetta mál. Loks 19. júlí 1943 skrifar borg- arstjóri ráðherranum á ný um málið, þar sem hann minn- ir á fyrra brjef sitt og svar fyrv. atvinnumálaráðherra ■við því. Getur svo borgarrstjóri þess, að síðan hafi hann ekkert heyrt frá ráðuneytinu um málið. En með því að hjer sje um mikilsvarðandi stórmál að ræða, væri æski- legt að fá að vita, hvort atvinnumálaráðherrann víldi sinna því. Hinn 4. ágúst 1943 kemur svo loks svar frá Vilhjálmi Þór. Þar skýrir ráðherrann frá því, að hann hafi þá all- löngu áður gert ráðstöfun til að fá hingað sjerfræðing frá Ameríku, til þess að rannsaka þetta mál. Kvaðst ráðherrann enga ákvörðun taka í málinu, þar til álit hins ameríska sjerfræðings lægi fyrir. Síðan hefir atvinnumálaráðherra ekkert látið frá sjer heyra um málið. Hinn ameríski sjerfræðingur kom hingað á s. 1. hausti. Sigurður Jónasson varð leiðsögumaður hans, er hingað kom. Athugaðir voru staðhættir fyrir áburðarverksmiðju hjer í grend við Reykjavík og einnig nálægt Akureyri. Að sjálfsögðu hefir sjerfræðingurinn látið atvinnumála- ráðherra í tje álit um málið. En frá ráðherranum hefir hinsvegar ekkert heyrst um tillögur eða álit hins erlenda sjerfræðings. Sje það svo, að atvinnumálaráðherra (V. Þór) hafi gert þessu mikla hagsmunamáli íslensks landbúnaðar gagn með því að hindra tillögur íslensku verkfræðinganna og hafna samstarfstilboði Reykjavíkurbæjar við að koma áburðarverksmiðjunni upp og starfrækja hana, er ekkert við því að segja, þótt framkoma ráðherrans öll í garð þessara innlendu aðilja hafi verið ókurteis og hrokafull í hæsta máta. En atvinnumálaráðherrann getur verið þess fullviss, að málið verður ekki leyst með þögninni einni. Ráðherr- ann á eftir að gera alþjóð grein fyrir því, hvað unnist hefir fyrir málið með afskiftum hans af því. Háværar raddir eru uppi um það, að hefja beri nýtt landnám í sveitum landsins að stríðinu loknu. Þetta land- nám verður að koma, og það fyrr en síðar. En þá er það eitt ekki nóg, að plægja jörðina og búa hana undir ræktun. Frumskilyrði þess, að nýtt landnám geti orðið í stórum stíl, er, að nýbyggjendur eigi kost á ódýrum tilbúnum áburði. En þetta er ekki sjermál nýbyggjenda. Framtíð íslensks landbúnaðar byggist á því, að megin hluti hey- aflans geti farið fram á ræktuðu landi. Þess vegna er innlend áburðarverksmiðja mál, sem pólitískir oflátungar geta ekki þagað í hel. Tónlistarfjelagsins TÓNLISTARF JEL AGIÐ og \Jílverjl ólripar: ^l/jr ílctaíegci Ííjinu | dr. Urbantschitsch, hinn stór- hugi tónlistarstjóri þess, hafa lengi haft hug á því að koma á fót föstum blönduðum kór tif þess að annast hin mörgu viðfangse'fni af því tagi, er fje- lagið tekst á hendur. Hefir þetta lengi verið allmiklum örðugleikum bundið, og skulu orsakir þess eigi greindar hjer. Nú héfir þetta loks tekist. Á 5. tónieikurh fjelagsins á þessum vetri kom „Samkór Tónlistar- fjelagsíns" fram í fyrsta sinn með efnisskrá, sem bar enn á ný vott úm þá merku viðleitni Tónlistarfjelagsins, að kynna almonnirfgi merkari tónlist en hánn hefir áður haft kost á að þekkja hjer. Um samsetningu kórsins er aðeíns hið besta að segja. Flest ar kvenraddirnar munu hafa sungið á fyrri tónleikum fje- lagsins og má því telja, að þar sje um allsamæfða heild að ræða, enda eru þarna saman komnar margar af bestu kven- röddum þessa bæjar. En kór- jnn hefir einnig prýðilegum karlaröddum á að skipa, bæði mjúkum og hljómmiklum, enda þótt þar hafi ekki verið um auðugri garð að gresja en svo, að npkkrir raddmenn eru — samkvæmt söngskránni — fengnir að láni hjá einum karlakór bæjarins. Er þetta ein kennilegt ástand í bæ, þar sem margfalt fleiri karlmenn iðka kórsöng en konur. Á efnisskránni voru lög eftir tvö rómantísk tónskáld, Schu- bert og Brahms. Eftir hinn fyr- nefnda var hinn dáfagri „Man- söngur“ fyrir kvennakór, og söng Anny Þórðarson einsöng í því verki mjög vel og smekk- lega. Virtist þetta verkefni liggja henni sjerstaklega vel. I hinu Schubert-verkinu „Sig- urhrós Mirjam“ söng Davína Sigurðsson sópranhlutverkið Er þetta allmikil kantata með klassisku sniði. Var meðferð þess ágæt, bæði hjá einsöngv- ara og kór, en við fyrstu heyrn virðist það þó ekki vera eitt af gildustu nje hugnæmustu verkum meistarans. Af Brahms-lögunum söng kórinn allur hið alkunna „Nánie“ við texta Schillers. Þá voru fimm þýsk þjóðlög fyrir minni kór með forsöngvurum, en það voru þau Svava Einars- dóttir, Svava Þorbjarnardóttir, Sigfús Halldórsson og Gunnar Kristinsson. Skiluðu þau öll hlutverkum sinum með prýði, en þess skal þó getið hjer — án þess að það eigi frekar við þessa söngvara en fjölda ann- ara — hversu ábótíjvant er tekstameðferð flestra hjá- virkra söngvara hjer (ógreini- legir samhljóðar og afbakaðir sjerhljóðar). „Ástarvalsana“ söng tvöfaldur kvartett með fjórhentum undirleik, og var þessi liour efnisskránnar sístur og ójafnastur að útfærslu allri, og er þó ekki átt við hendan- legt óhapp einnar söngkonunn- ar. Menn furðar á því, í hversu Framhald á 8. síðu. Greiðvikni á víða- vangi. NOKKUÐ er það misjafnt, hve menn eru greiðviknir í garð hvers annars, þegar vandræði eða erfiðleikar steðja að. Svo er það t. d. á þjóðvegum úti, ef eitthvert óhapp kemur fyrir farartæki, þau fara út af vegi, eða festast í torfærum. Margir eru þannig gerðir, að þeim finst, að þeim komi ekki við óhöpp annara. Þeir nema kanske stað- ar til að skemta sjer yfir óhapp- inu, láta falla nokkur hæðnisorð. um klaufaskap. og heimsku og renná síðan síná leið með glotti. Aðrir eru hjálpsemin sjálf og skilja ekki við þann, sem fyrir óhappinu varð, fyr en það hefir verið leiðrjett. Léggja menn oft á sjg mikla og erfiða. yinnu til að hjálpa illa stöddum meðbræðr: um sínum. Nú getur slys hent a)la menn og allskonar fárartæki. Það ætti því að vera óskrifuð lög, að á vegum úti hjálpi menn hver öðr- um eftir bestu föngum. Bílstjór- ar og aðrir ferðalangar vita ekki nema að þeir þurfi síðar á að- stoð að halda. Þeir, sem mikið hafa ferðast hjer á landi hin síðari árin, hafa veitt því eftirtekt, að eflendu setuliðsmennirnir eru sjerstak- lega hjálpsamir, ef þeir komá að, þar sem slys eða óhapp hefir komið fyrir. Það kemur víst varla fyrir, að erlendir setuliðs- menn komi að, þar sem óhapp hefir skeð, án þess að þeir bjóði fram aðstoð sína. Jeg var sjón- arvottur að einu slíku atviki hjer á dögunUm. • Bíllinn í forinni. ÞAÐ KOM fyrir hjer á Suður- landsveginum, að kafli úr veg- inum hafði skolast burt í leys- ingum. Vegagerðarmenn voru rjett að byrja að gera við veg- inn og höfðu lokað honum á með an. Fjöldi bíla, sem var á leið að austan, kom að, þar sem veg- inum hafði verið lokað. Bílstjóri fyrsta bílsins hætti á að komast yfir torfæruna heldur en að bíða, þar til viðgerð væri lokið. Bíll- inn festist og sat í torfærunni stundarkorn. Annar bílstjóri í hópnum, sem einnig vildi áfram, hugðist að komast leiðar sinnar með því að aka fyrir utan veg- inn. Það hepnaðist ekki og sat sá bíll fastur í forinni. Brátt tókst að ná upp bílnum, sem festst hafði á veginum. Vega- vinnumenn komu á staðinn og settu „búkk“ í torfæruna. Gátu nú allir bílar, sem þarna höfðu stöðvast, komist leiðar sinnar, nema sá, sem farið hafði út af veginum. Var nú leitað aðstoð- ar hjá bílstjórumm hinna bíl- anna. En enginn hafði spotta og flestir töldu öll tormerki á, að hægt væri að ná bílnum upp. Að- eins einn maður, bílstjóri á vegagerðarbíi, gaf sig fram. Gerði hann nokkrar tilraunir til að draga bíiinn upp á veginn, en það tókst ekki, m. a. vegna þess, að ekki var hægt að fá nógu ör- uggar dráttartaugar. í þessu bar þarna að tvo amer- íska bíla. Og þá stóð ekki á hjálp inni. Þeir höfðu með sjer ágætis tæki og taugar. Leið nú ekki á löngu, þar til íslenski bíllinn var kominn upp á veginn aftur og gat haldið leiðar sinnar. Mjer er kunnugt um, að mörg slík dæmi eru íil úm greiðasémi erl. setuliðs manna á vegum úti. Þessa er sjaldan getið opinberlega. En þakkir ejga þessir menn skilið og við gætum lært af þeim að sýna meiri hjálpsemi við náung- ann heldur en alment er hjer gert Það ætti að skamta smjörið. SMJÖRLEYSIÐ er aiment undrunarefni margra manna. Mikið er um það rætt og sögurn- ar ganga um það, hvernig þessi eða hinn hafi ávalt nóg smjör. Það sje kunningsskapur; sem ráði mestu um það, hvort menn geta fengið smjörklípu eða ekki. í brjefum frá lesendum mínum um smjörmálið kennir margrá grasa. Sumir brjefritarar full- yrða, að vikulega komi mikið sthjör til Reykjavíkur úr nær- ; sVéitunitm, en það kómi aldxei á opinberan márkað.' Afleiðingin sje'sú, að þeir, sem aðstöðu hafa, t. d. með vináttu eða kunnings.- skap við þá, er ömjörið fá í hend ur, hafi ávalt nægjanlegt smjör., en allur' almenningur verði að vera smjörlaus. Það er aðeins ein lausn á þessu máli og hún er sú, að tekin verði upp ströng skömtun á íslensku smjöri. Það er t. d. mikið meiri ástæða .til að skamta smjör, og jafnvel egg líka, heldur en t. d. syktu- og kaffi, sem hægt hefir verið að fá nóg af til landsins. Það er dýrt að de.vja. ÞAÐ ER DÝRT að lifa á ís- landi um þessar mundir, ert ekki er það heldur ódýrt að deyja, ef trúa má því, sem „Jóhann“ skrif ar mjer um útfararkostnaðinn hjer í bænum. Jóhann segir: „Kunningi minn misti nákominn ættingja fyrir nokkrum vikum. Honum brá heldur í brún þegar honum var sýndur. reikningurinn fyrir útfar- arkostnaðinum, sem hann hafði tekið að sjer að sjá um. Útförin var ekki neitt sjerlega íburðar- mikil, en í slíkum tilfellum vilja menn ekki skera um of við nögl sjer, ef þeir hafa einhver aura- ráð. En reikningurinn var líka hvorki meira nje minna en 4.800 krónur — fjögur þúsund og átta hundruð krónur—“. Þetta segtr brjefritarinn og vill hann nú vita, hvort nokkuð verð- lagseftirlit sje á útfararkostnaði hjer á landi. Það er rjett að mörgum blöskr- ar hinn hái útfararkostnaður hjer í bænum. Kemur þar margt til, t. d. siðir og venjur, sem mættu missa sig. Quhling hræddur LONDON: — Frá Noregi ber ast þær fregnir, að andstaoa Norðmanna gegn vinnuskyld- unni hafi gengið svo vel, að Quisling sje orðinn hræddur. . Quisling gaf því út tilkyrm- ingu þann 23. mars, þar sem lofað er, að norsk æska verði ekki sett í herþjónustu í gegn- um skráningu til vinnuskyld- unnar. Fn það er enginn mað^ ur, sem trúir orðum svikarans, því menn vita að hann er verk- færi í höndum Þjóðverja og þess vegna óttast menn að skrá setningin sje aðeins grímu- klædd aðferð til að fá norska menn í herþjónustu hjá Þjóð- verjum. (Frá norska blaðafull- trúanum).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.