Morgunblaðið - 03.05.1944, Qupperneq 12
12
Herðiö sóknina
í atkvæða-
greiðslunni!
í GÆRKVÖLDI höfðu 368
atkvæði verið greidd hjer í
bsenSra, utan kjörstaðar.
Borgarfógeti hefir nú tvær
kjÖr.stofur, þar sem atkvæðum
er veitt móttaka. Er önnur i
Góðffemplarahúsinu ,opin kl. 10
—12 árd., og kL' 1—4 aiðd. Hin
er í Amarhváli og opin kl. 5—
7 síðd. og kl. 8—10 á kvöldin.
Kjósemdur utan af iandi, sem
dvelja hjer í bænum, mega
ekki draga það til síðustu
stundar að greiða atkvæði. —
Með því getur auðveldlega svo
farið, að atkvæði þeirra ónýtist.
Samgöngur út um lands-
bygðina eru um þessar mundir
erfiðar og strjálar. i»ess vegna
ríður á, að utanbæjarmenn
greiði atkvæði.
Og þeir reykvískir kjósend-
ur, sem af einhverjuftt ástæð-
um gera ráð fyrir að verá fjar-
verandi kjördagana, ættu sem
fyrst að greiða atkvæði.
Skyldan kalíar, Islendingar!
Nú dugar ekki að sýna tóm-
tæti eða hirðuleysi.
Kosningaskrifstofa Reykja-
víkurbæjar er í Hótel Heklu
(sími 1521) og er opin allan
daginn. Þar geta menn fengið
allar upplýsingar og leiðbein-
ingar varðandi atkveeðagreiðsl-
una _
Keykvíkingar! Gangið til
'starfa, allir, konur sem karlar.
Bf f>iö vitið um utanbæjar-
•nann, þá láttð hann engan frið
hafa fyrr en hann hefir leyst
af hendi þegnskyldustarf siti.
Stigið úr flugvje! í Valn agörðum
■ ■ 'm;::
Farþegar frá ísafirði stíg'a út úr flngvjel Lcftleiða li.f. við Vatnag'arða.
H.F. Loftleiðir ætlar ú auka flugvjeiakost sinn
Erfiður fhriningur
inel skiphrois-
mm
ÞRÍR ERLENDIR skípbröts-
tMr:, sem. urðu eftir austur
á Bíðu i vetur (af skipunum,
sem ströndufiu á Fossfjöiu)
hafa nú verið fluttir hingað. —
Þeir hafa legið rúmfastir síðan
fpeir lentu í hrakningunum í
vetur og eru ekki heilir enn;
höfðú kalið á fótum ög hlotíð
önnur meiðsl.
Flutningur mannann að aust-
an var erfiður og tafsamur,
vegna þess, að vegir eru slæm-
ir og torfærjur margar. Voru
þeir fluttir í bíl fyrsta áfang-
arm; svo á kerrum yfir Skaft-
ártungu, síðan í bíl yfir Mýr-
dalssand og loks í sjúkrabíl frá
Vík.
áilogur Japana að
Smpa!
FRÁ miðvígstöðvunum í
Burma berast fregnir um það,
að Japanar hafi nú aftur hert
að rmklum mun áhlaup sín fyr
ir sunann og austan Impal, og
virðist svo, sem þeir ætli að
gera mikla tilraun til þess að
ná borginni áður en staðvinda-
tíminn byrjar. Bardagar eru
mjög harðir á þessum slóðum,
en annarsstaðar í Burma er
fremur.lítið um að vera
, „LOFTLEIÐIR h.f.“ hefit nú
fyrir nokkru tekið til starfa.
Hefir hin nýja flugvjel fjelags-
ins verið að undanfömu í ferð-
um milli ísafjarðar og annara
hafna á Norðvesturlandi. Einn-
ig hefir fjelagið í hyggju að
kaupa aðra flugvjel frá Am-
eríku.
Tíðindamaður bláðsins hitti
flugmennina All'reð Elíasson
og Kristinn Olsen að máli í
gær.
— Eruð þið áð kaupa nýja
flugvjel?
— Um það er ekki hægt að
segja að svo stöddu, en fjelagið
hefir í hyggju að auka flug-
vjelakost sinn og er Sigurður
Ólafsson flugmaður farinn vest
ur í því skyni. Ekki getum við
sagt um, af hvaða gerð hún
verður.
— Hvernig miðar flugvall-
argerðinni í Vestmannaeyjum?
— Fyrir skömmu síðan flug-
um við, eftir beiðni bæjár-
stjórnar Vestmannaeyja, athug
unarflug þangað. Var flogið
jlágt yfir hinu fyrirhugaða flug
.vallarstæði, fram og aftur. Að
visu var lítill vindur, en skil-
yrði til lendingar virtust vera
þar ágæt (flugvjelin var á bát-
um).
Búið er að mæla og gera
kostnaðaráætlun fyrir flugvöll-
inn. en fyrirhugað er að hann
verði í svonefndu Ofanleitis-
landi, seni er uppi á há eynni.
Brautirnar eru tvær, er önnur
þeirra 450 metra löng, en hin
350, breidd þeirra er 35 metr-
ar. Liggur önnur þeirra frá NA
til SV. en hin frá SA til NV.
Vestmannaeyingar sýna þessu
mikla framfaramáli mikinn
skilning og er unnið að því af
fullum krafti.
— Hvað getið þið sagt um
sjúkraflutninga í lofti?
— Við höfum farið í nokkra
sjúkraflutninga til Norður- og
Vesturlandsins og hafa þær
ferðii> sem og aðrar, .gengið
mjög að óskum. Einnig hafa
flugvjelar Flugfjelags íslands
farið í margar slíkar ferðir, um
land alt.
En það var nú annað. sem: þú
Samtal við flugmennina Álfreð
og Krisiinn
varst að spyrja um.
Til sjúkraflugs væri langsam
lega heppilegast að hafa flug-
bát, en þeir eru að mestu leyti
óháðir sjógangi og veðrum.
Að sjálfsögðu væri slíkur bát
ur dýrari i rekstri en vjel eins
og af þeirri gerð, sem við eig-
um nú. Svo er önnur hlið á
þessu máli. Það eru hin miklu
útgjöid einstaklinga, er þurfa
að leigja flugvjel til slíkra flutn
inga og er það mjög nauðsyn-
legt að hið opinbera hlaupi und
ir bagga með því fólki.
— Hvernig flugvjel væri
heppilegust með í'lugsamgöng-
ur við Vestfirði fyrir agum?
— Svo sem kunnugt er, hafa
Vestfirðir haft mjög lítið af
flugsamgöngum að segja, og
þar litt mögulegt að gera flug-
velli.
Við álítum að stór sjóflug-
vjel eða flugbátur væri heppi-
legastur til þeirra ferða.
— Fyrir er eitt aðalatriði
ffyrir bættum flugsamgöngum?
— Fullkomnari og fleiri veð-
urathuganastöðvar. Það er eitt
sem ekki má dragast miklu
lengur. — Það þarf að fá mann
til þess að skipuleggja þær og
koma þeim í gott kerfi. Nú eru
það aðeins sárafáar stöðvar er
gefa upplýsingar um ræður fyr
ir flugvjelar.
Mann til að skipuleggja slíkt
kerfi þarf ekki að fá frá út-
löndum „því hæg er heima-
tekin veiði“. — Á sinum tíma
byrjaði Sigurður Jónsson flug-
maður á þessu starfi og var það
mjög góð hugmynd, en svo var
hann látinn hætta.
En svona má það ekki vera
til lengdar þareð flugsam^ong-
ur eru óðum að færa meira og
meira út kvíarnar og það er
nærri því stcrmerkilegt hve
lítið er gert fyrir þetta viður-
kenda framfaramál. Þeir er
mestan áhuga hafa sýnt, eru
einstakir menn og hafa þeir
ekki látið sinn hlut eftir liggja.
Stjórn, Loftleiðir h.f. skipa
Kristján Jóhann Kristjánsson,
forstj., formaður, Ólafur Bjarna
son, verslm., varaform., og
meðstjórnendur flugmennirnir
þrír Alfreð Elíasson, Kristinn
Ólsen og Sigurður Ólafsson, þá
er einn varamaður í stjórn, er
það Bögeskov garðyrkjumaður
í Mosfellssveit.
Flugmenn eru þeir Alfreð og
Kristinn, en flugvjelin er
geymd í flugskýlinu við Vatna
garða, sem er eign Hafnarsjóðs
Reykjavikur.
S.
Þjóðverjar iaka ivo
Dani ai lífi
ÚTVARP Þjóðverja í Dan-
mörku tilkynti i gærhiorgun að
tveir Danir hefðu nýlega verið
teknir af lífi.
Annar þeirra hjet Carl Erik
Abel. Var hann dæmdur fyrir
að hafa unnið skemdarverk
gegn Þjóðverjum.
Hinn hjet Lars Svane, dæmd
ur fyrir að hafa hjálpað óvina-
þjóð Þjóðverja.
Killerich ritstjóri skýrði
blaðinu frá þessu í gær. Hann
vissi ekki deili á C. E.’Abel.
En hann kannaðist við Lars
Svane. Svane var bróðursonur
apótekarans Svane í Stykkis-
hólmi. — Hann var bakari í
Höfn. Hann hafoi verði hálft ár
í fangelsi Þjóðverja.
Faðir hans er skipstjóri, og
kom hingað til lands ekki alls
fyrir löngu.
ÞJÓÐVERJAR gerðu áhlaup
við Anzio í gær og tókst að ná
á vald sitt nokkru landsvæði.
Bandamenn gerðu ioftárásir á
ýmsa staði á nætui’þeli, meðal
annars Genúa, Alessandria á
Norður-Ítalíu og fleiri borgir.
Á Cassinosvjeðinu var ekkert
um að yera. . — Reuter.
Miðvikudagur 3. maí 1944
Landliðskepni
í skák:
Ásmundnr og Árni
jafnir
SJCÍUNDA og síðasta um-
ferð í landskeppniimi hófst á
sumiudaginn og er nú lokið.
Úrslit urðu þau að Ásmundur
vann Steingrím, en jafntefli
varð milli Árna og Eggerts
og Einars og Magnú_sai“. I>ið-
skák Einars og Steingríms úr
sjöttu umferð lauk svo, að
Steingrímur vann.
Ileildar úrslit inótsins urðu
þessi: 1.—2. Ásmundur Ás-
geirsson og Árni Snævárr. i1/^
viiming hror. 3.—4. Magnús
G. Jónsson og Óli Valdimars-
son, 3 vinninga hvor. 5.—G.
Eggert Gilfer og Einar Þor-
valdsson, 2% vinniiig Iivor.
7. Steingrímur Guðmundssoon.
I viiming. Ásmundur Ásgeirs-
son og Ámi Snævarr keppa
nú um 1. sætið á þessu móti
og verður tcfit þar til annár
hefir fengið þr,já vinninga,
.jafntefli ekki talin. "
Sá þeirra sem vinnur, teflir
um íslandsmeistaratitilinii við
I’aldur Möller og fér sú
keppni væntanlega ekki fram
fyr en í haust.
Landslið Skáksambands ts-
hyids er nú þannig skij>að:
1. Ealdur Möller, 2. og •>. Ás-
mundur Ásgeirsson og Árni
Snævarr, 4. Magnús G. Jóns-
son, 5. Óli Yaldima rsson, 6.
•Tón Guðmundsson, 7. Eggert
Gilfer og 8. Einar Þorvaldsson.
. r r
MB Arni Ama
son sfrandar
og sekkur
í SVARTA myrkri aðfara-
nótt þriðjudags strandaði og
sökk mb. Árni Árnason frá
Gerðum í Garði.
Báturinn var á leið til fiskj-
ar er hann strandaði undir
Krýsuvíkurbjargi.
Mb. Jón Dan frá Vogum kom
nokkru seinna á strandstaðinn,
var mb. Ami Árnason þá far-
inn að sökkva nokkuð. Skip-
verjum á Júni Dan tókst að
koma línu í mb. Áma Árnason,
en skipverjar á honum, fimm
að tölu, settu á sig björgunar-
belti og vöru þeir síðan dregnir
yfir í mb. Jón Dan.
Mb. Árni Ámason (áður Pat-
rekur) GK 70, var bygður úr
eik og furu árið 1916, stærð
hans var 42 smálestir. Eigandi
Kristinn Ámason o. fl., Gerð-
um.
Tveir ráðherrafundir
í dag
líOndon í gærkveldi.
— FORSÆTISRÁÐHERRAR
samveldislandanna bresku sátu
tvo fundi í London í dag, og
var Churchill í forsæti. Voru
\
þar rædd ýms mikilvæg mál,
styrjaldarmál og samveldismál.
Mckenzie King mun bráðlega
flytja ræðu í breska útvarpið.
—Reuter.