Morgunblaðið - 07.06.1944, Síða 1
81. árgangur.
122. tbl. — Miðvikudagur 7. júní 1944.
IsafðldarprentsmiSja hX
BAAIi
BREI
Sassrás samkvæmi áætlun
IM GEIMGI) Á LAIMO Á
ÆÐI VIÐ SIGIMIJFLÓA
Sí^Uiii
u frfcttir:
Þjóðverjar seyjast si
sveitir bandamanna nyrst
á Cherbourghskaga
London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun-
blaðsins frá Reuter.
Þjcðverjar gáfu út aukatilkynningu seiut í kvöld, og fjall—
ar hún aðallega um viðureign þýsks liðs • við fallhlífalið
bandamanna. Segjast Þjóðverjar í þessari tilkynningu sinni.
hafa gjöreytt eða hrakið í sjóinn allrar þær sveitir handar
manna, sem gengu á land á Cherbottrghskaganum norðan-
verðum, -að j)ví er virðist til þcss að koma til aðstoðar meg-
in-fallhlífaher bandamanna, sem er á miðjum skaganum og
hefir ]»ir mikilvægan veg á sínu valdi. Sunnar á skaganum
segja Þjóðverjar handamenn bérjast við sjóinn.
Segja Þjóðverjar frá harðvítugum bardöguin, við fallhlífalið,
sém hafi fengið liðsauka síðari hluta dags í dag. Allmarga
í'anga kveðast Þjóðverjar hafa tekið þarna, flesta úr 101.
fallhlífalierfylki Bandaríkjamanha. Þá kveðast Þjóðverjar
hafa gjöreytt fallhlífasveitum áustan ITavro. 4
Aðrir f allhlíf aherflokkar
bandamanna voru að sögn Þjóð
verja látnir svífa til jarðar nokk
uð upp með ánni Urne, en þá
segjast Þjóðverjar nú hafa gjör
sigrað og afmáð og eins aðrar
fallhlífa- og svifflugsveitir, sem
niður voru settar nærr'i bæn-
um Barfleur yst á Cherbourgh-
skaganum.
toks segir tilkynningin, að
bandamenn hafi nú fótfestu á
tveim svæðum, öðru allstóru í
námunda við Caen, en neita
hinsvegar að barist sje í þeirri
borg. Hitt svæðið er vestar og
kveða Þjóðverjar þar Banda-
ríkjamenn, sem sjeu að reyna
að ná sambandi við hitt liðið.
Segja Þjóðverjar orustur þarna
afar harðar og berjist banda-
menn eins og ljón, gegn hinum
þaulþjálfuðu varðsveitum At-
lantshafsvirkjanna og varaliði,
setn síðan hefir komið á vett-
vang.
Þessi sijómar
Myitkima að falla.
London í gærkveldi: — Her-
sveitir Stillwells í borginni
Myitkina í Norður-Burma, hafa
tekið nokkuð af norðurhverf-
um borgarinnar, og er búist við
að Japanar verjist ekki rnikið
Jengur, þar sem þeir eru því-
nær innikróaðir í miðri borg-
inni. — Reuteri
Rundstedt
Barist um bæinn CMEN
i kílómetrn inni í lnndi
Tjón minna en búist var við
FREGNIR BANDAMANNA í KVÖLD HERMA, að innrásin í Frakk-
land, sem hófst í morgun, gangi enn sem komið er að óskum og sam-
kvæmt áætlun. Hafa herir Montgomerys gengið á land á breiðu svæði
við Signuflóa og sumsstaðar sótt fram allmarga kílómetra inn í land,
lengst munu þeir komnir um 15 km. og er barist í borginni CAEN, sem
er um það bil svo langt frá ströndinni. — Þjóðverjar neita þó þessu. Eng-
an annan stað hafa bandamenn nefnt í frjettum sínum, en Þjóðverjar
hafa sagt frá allmörgum stöðum, þar sem bandamenn hafi lent, eða ráð-
ist á með fallhlífaliði og herliði, sem flutt var í svifflugum. — Tjón
bandamanna er talið miklu minna en búist var við, bæði á mönnum og her
skipum. Nokkrum brúm hafa bandamenn náð óskemdum og mótspyrna
Þóðverja er talin miklu minni en við var búist. En áhersla er á það lögð,
að þetta sje aðeins byrjun hinna ógurlegustu v ðureigna, og bardagar
þegar harðir. Þá hafa bandamenn sett niður fallhlífalið á eyjarnar Guerns
ey og Jersey í Ermarsundi og er þar barist.
□-
-□
Veðrið á Ermarsundi
London í gærkveldi.
Seint í kvöl'd bárust eftir-
farandi frjettir um veðrið á
Ermasundi: „Er kvölda tók,
fór að gerast skýjað og tók
uokkuð að hvessa. Loft gerð-
i.st mjög þykt og loftvogin
fjell. Sjór var enn sljettur".
□-------------------------n
Rooseveif biður fyrir
herjum banda-
manna
Síðan innrásin hófst, hefir
Rommel ekki verið nefndur og
leggja Þjóðverjar áherslu á, að
það sje von Rundstedt mar-
slcálkur, sem hafi með höndum
yfirstjórn varnarherjanna.
Washington í gærkveldi:
I kvöld mun Roosevelt, for-
seti lesa í útvarp bæn fyrir inn
rásarherjum bandamanna er
hann hefir sjálfur samið Aður
hefir bænin verið kynt hlust-
endum í Bandaríkjunum, þann
ig að þeir geti sjálfir fylg*st með
og lesið með forsetanum. Eæn-
ina ritaði forsetinn í gærkveldi.
Christmas Möller talar.
London í gærkveldi: Christ-
mas Möller, foringi frjálsra
Dana, flutti útvarpsávarp til
Danmerkur í dag og kvað nú þá
stund nálgast, er Danir og aðr-
ar þjóðir Evrópu losnuðu und-
an oki Þjóðverja. — Reuter.
NYJASTA TILKYNNINGIN
Seint í kvöld var gefin út tiikynning frá aðalstöðvum
innrásarhers bandamanna í Bretlandi. Yar þar rakið það
sem gerst hafði í dag, en að lokum sagt, að fyrstu lend-
ingar herliðsins hefðu tekist að óskum, og að flugvjelar
bandamanna hefðu í allan dag haldið uppi mjög hörðum
loftárásum á varnarstöðvar Þjóðverja á Frakklandsströnd
um, auk þess sem líkur benda til, að herskipin sjeu enn
að verki.
CHURCHILL SEGIR FRJETTIRNAR
Churchilí forsætisráðherra hefir tvisvar tekið til máls
í neðri málstofunni í dag, til þess að segja frjettirnar af
innrásinni. í síðara skiftið er hann talaði, sagði hann í
aðalatriðum helstú frjettir, sem enn liggja fyrir um átök
þau hin miklu, sem hjer eru hafin. Minti ráðh^rrann
menn á það, að innrásin væri enn á frumstigi, og taldi að
orusturnar myndu fara harðnandi vikum saman. —•
Churchill kvað bandamenn hafa 1.000 flugvjelar til taks,
til þess að beita í innrásinni.
Saga viðburðanna.
Innrásin, sem hófst í morg-
un, álli að hefiast í gærmorg-
un, en var frestað, sökum ó-
hagsiæðs veðurs. í nótt sem
leið hjelt breski flugherinn uppi
mjög hörðum árásum á strand-
virki Þjóðverja á Frakklands-
ströndum. Voru það um 1300
sprengjuflugvjelar, sem að
verki voru. Ekki höfðu flug-
mennirnir hugmynd um, að
þeir væru að undirþúa innrás-
ina þannig, sem raun varð á.
Flotinn leggur úr höfn.
Það voru hvorki meira nje
minna en 4000 stórskip og mörg
þúsund smærri, cem ljetu úr
höfnum í Bretlandi um nóltina
og sigldu áleiðis til Frakklands
stranda. Fylgdi þeim stórkost-
legur herskipafloti, orustuskip,'
beitiskip, tundurspillar og'
smærri skip. Alla nóttina unnu
lundurduflaslæðarar ao því að
slæða upp tundurdufl Þjóð-
verja fyrir ströndunum, en er
því var lokið, sigldi flctinn nær
landi. Herskipin, sem voru bæðj
bresk og amerísk og frá fleiri
þjóðum bandamanna, byrjuðu
Fraxuh. á bls. 12