Morgunblaðið - 07.06.1944, Page 2

Morgunblaðið - 07.06.1944, Page 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudag’ur 7. júní 1944, „Skilaðu hveðju til Eyjannnai“ Þjóðræknisstarfið vestonhafs Frásögn Richards Beck Dr. RICHARD BECK, full- trúi Vestur-íslendinga á þjóð- háítðinni, kom hingað loftleið- is í fyrrinótt. Hann er gestur rikisstjórnarinnar og verður hjer í 1 Vz mánuð. Hann kallaði blaðamenn á sinn fund að Hótel Borg í gær, Óg skýrði þeim m. a. frá starf- áemi Þjóðræknisfjelagsins yestra, frá líðan Vestur-íslend inga og hve mikil er ræktarsemi þeirra til ættlandsins, frá frama þeim, sem landar hafa þar hlot] íð og vaxandi viðkynning Vest ur-íslendinga við heimaþjóð-] ina. Hann komst m. a. að orði á þessa leið: Jeg verð fyrst og fremsl að láta í ljós fögnuð okkar Vestur-íslendinga yfir )«eim hlýhug og vináttu, sem l:om fram í islensku blöðunum og á annan hátl í sambandi við 25 ára afmæli Þjóðræknisfje- lagsins í vetur. Þetta hlýjaði okkur um hjartarætur, því öll hugsum við til ættlandsins. Allir Vestur-íslendingar nefna það að koma „heim“, til íslands, það jafn hvort þeir em fæddir vestra eða ekki. Allir hugsa til ,,beim“ferðar eins og slíkt væri fagur draumur, sem því miður rætist fyrir fáum. Jeg segi fyrir mig, að jeg er nærri því ekki farinn að trúa því enn, að hann hafi ræst fyrir mjer, eftir 22 ára fjarveru frá ættjörðinni. Jeg vil ennfremur grípa tæki ■' færið tíl þess að þakka fyrir það, að ríkisstjórnin sendi jafn mætan fulltrúa á afmælisþing okkar vestra, sem herra bisk- upinn Sigurgeir Sigurðsson. Með aðlaðandi framkomu sinni og snjöllum ræðum laðaði hann hugi okkar Vestur-íslendinga. Og för hans varð, það get jeg fullyrt, óslitin sigurför, sem varð honum til ánægju, en þjóð inni til gagns og sóma. Það er mjer vitanlega sjer- stök ánægja, að vera kominn lungað til þess að vera viðstadd ur hinn mikla og sögulega at- fourð, stofnun .lýðveldisins. Get jeg fullvissað ykkur um, að margir hefðu komið að vestan nú, ekki síður en 1930, ef stríðs- ástæður hefðu ekki hamlað því. Þá vjek hann að starfsemi Þjóðræknisfjelags Veslur-ís- lendinga. Talið er, sagði hann, að 30— 40 þús. íslendingar sjeu nú í Vesturheimi. Af þeim er innan Við Vz í Bandaríkjunum. Þjóðræknisfjelagið heldur vel 1 horfinu, þó það eigi við ramm- an reip að draga, á ýmsan hátt. A síðustu árum hefir það fært úl kvíarnar, nýjar deildir stofn aðar á Gimli og í Argylebygð. I’jelagsmönnum hefir fjölgað. Únglingafræðslan í laugardags skólunum hefir aukist. Að Gímli sækja t. d. á 2. hundrað börn skólann. Fjelögum, sem eru sambandsfjelög Þjóðræknis fjelagsins, hefir líka fjölgað. Jsiendingafjelögin í Nevv York tíg Chicago eru meðal sam- handsfjelaganna, Starfsemi Þjóðræknisfjelagsins hjer b; ima hefir á ýmsan .hátt verið Þjóðræknisfjelagi okkar til styrktar og uppörvunar. Heim- .".óknir manna hjeðan og heim- sóknir Vestur-íslendinga hing- að styrkja vináttuböndin og auka viðkynninguna. Sama er að segja um námsdvöl ísiend- inga vestra. Dr. Beck sagði að íslending- um vestan hafs liði yfirleitt vel. Þeir bæru vitaskuld byrðar ófriðarins sem aðrir Vestur- heims menn. En gengi þeirra færi vaxandi. Það er, nú orðið, meðmæli vestra, að vera íslend- ingur. Dr. Beck nefndi marga landa vestra, sem hlotið hefðu mik- inn frama og væru í miklu áliti. Þrír íslendingar eiga t. d. sæti á þingi Manitobafylkis, Páll Bárdal, Skúli Sigfússon og G. S. Thorvaldsson. Victor Ander- son er í bæjarstjórn Winnipeg. Þar hafa nokkrir íslendingar verið á undan honum. í fræðslu ráði borgarinnar er sr. Philip M. Pjetursson. Hjálmar Berg- mann er nýlega skipaður yfir- rjettardómari. í Manitoba. Wal- ter Líndal er þar hjeraðsdóm- ari. Allir kannast við Guðm. Grímsson. Jósep Thorson er nú dómstjóri í fjármálarjetti Can- ada, en hinn kunni læknir dr. Br. Brandson hcfir nýiega ver- ið útnefndur dr. juris. Þeir dr. Hjörtur Thordarson og Árni Helgason hafa nýlega verið heiðraðir af Bandaríkjastjórn fyrir afrek'í verksmiðjurekstri í þágu slríðssóknarinnar. - Margt annað mætti nefna, er sýnir álit og frama íslenska.kyn stofnsins vestra. Þá mintist dr. Beck á hin mörgu vinsamlegu ummæli am- erískra blaða í garð íslendinga í sambandi við lýðveldisstofn- unina, er væri V.-íslendingum mikið gleðiefni. Lýsti hinu mikla þjóðnytja starfi, sem unnið er í sendiráðinu íslenska í Washington. Það vita engir sem ekki koma þangað og sjá, hve þar er mikið starfað. En sendiherrann og frú hans njóta mikils áliís og virðingar í Was- hington. Hann sagði og að á ræðismannsskrifstofunni í New York væri unnið mikið og gagnlegt starf. Að endingu þetta; Þið megið vera vissir um, að í brjósli hvers Islendings vest- an hafs bærast einlægar vonir um bjarla framtíð íslands á þessum límamótum. Löndum okkar vestra þykir vænt bæði um þjóðina og landið, eins og kom fram hjá einum kunningja mínum er hann kvaddi mig á brautarstöðinni og bætti við kveðjuna að lokum: „Gleymdu ekki að skilja kveðju til Esjunn Leiðrjetting í grein minni um leikritið Paul Lange og Tora Parsberg J Morgunblaðinu á sunnudag- inn var, hafa orðið línubrengl og fallið niður málsgrein. Þar sem talað er um væntanlegan leikhússtjóra við Þjóðleikhúsið átti að standa: ,,. . . mikilsverl að vel takist um val á manni í þessa vandasömu og ábyrgðar- miklu slöðu og vildi jeg mega beina þeirri ósk til hlulaðeig- andi stjórnarvatda, að þau taki þetta atriði sem fyrst til athug- unar og úrlausnar“. Þar sem talað er um leik frú Grieg, hefir orðið linubrengl. Rjett er málsgreinin svona: — „Mælti frúin þó. á norsku, en aldreí varð jeg þess var, að það kæmi að sök eða illg færi á því I samleik“. Þá varð ennfremur tilfærsla á línum í umsögn minni um Gest Pálsson í hlut- verki Arne Kraft, niðurlaginu. Það er rjett þannig: ,,En höfuðið á Arne Kraft er of gamalt miðað við Paul Lange. Þeir éru því sem -næst jafnaldrar (Kraft þó 4 árum yngri). Er Paul Lange að sjá sem miðaldra maður en Arne Kraft hvítur á hár og skegg og gæti vel verið yfir sextugt“. Þá hefir og upphafs- línan á umsögn minni um Kammerherrann (Brynjólf Jó- hannesson) flulst lil, en þar álti að standa: „Kammerherrann leikur Brynjólfur Jóhannesson vel og skemtilega“. Bið jeg les- endur að athuga þetta og af- saka mistökin. Sigurður Grímsson. Vestmannakór væntanlegur í kvöld BLANDAÐURKÓR Vest- manneyinga, Vestmannakór, er væntanlegur hingað til bæj arins í kvöld. — Kórinn ltem- ur hingað í simgför og-mun bann syngja að minsta kosti dag. — 1 kórnum eru 40 til 50 manns. Ef veður leyfir munu kórar bæjarins taka á móti kórnum, er þeir stiga úr bifreiðum við Miðbæjarskólan, um klukkan 11. í gærmorgui iyrir Frakklandsströudum London í gærkveldi: Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. Eftir Desmond Thighe, sjerstak an frjettaritara Reuters með innrásarhernum. Þetta er ritað í dögun á bresk um tundurspilli fyrir Frakk- landsströndum. Skipið er statt nokkuð undan bænum Bérniéra sur mer. Fallbyssur meir en 600 herskipa spúa eldi. Þúsund ir af flugvjelum fara yfir. Þykk ir svartir reykjarmekkir eru vf ir ströndinni fyrir suðaustan Le Havre. Þetta er ótrúleg sjón, enda er árásin á meginland Ev- rópu að byrja. Jeg hefi aldrei sjeð þvílíkt. Við erum ekki langt undan landi. Frá stjórn- palli þessa litla tundurspillis get jeg sjeð ótrúlegan fjölda skipa víðsvegar. Það er stöðugur titringur í lofti af skotdrunum herskip- anna og logar gjósa upp á ströndinni, er sprengikúlurnar falla til jarðar og springa. Það er skotið af fallbyssum af öll- um stærðum og öllum gerðum. Á síðustu 10 mínútum hafa meira en 2000 smálestir af sprengikúlum fallið á strand- virki Þjóðverja. Klukkan er ná kvæmlega 25 mínútur yfir 7 og' jeg get sjeð fyrstu landgöngu- bátana renna upp að ströndinni, en stöðugt bruna orustuskipin og beitiskipin fram og aftur og skjóta og skjóta. Stóru skipin hafa dregið úr ferðinni, en láta nú bátana síga í sjó niður og stefna þeir beint upp að ströndinni, fullir af her mönnum, skriðdrekum og skot færum. I einum innrásarbátn- um sje ^eg skriðdreka og er á- höfn hans þegar komin í hann. Foringinn glottir þegar bátur- inn fer fram hjá okkur. Veðrið er ekki sem best. Það er talsverður sjógangur og skýjað loft. Dimm ský þjóta um himininn og milli þeirra, grillir maður í sprengjuflugvjela- flokka stundum. Einnig getur maður sjeð sprengingar í landi, þar sem flugvjelarnar varpa niður sprengjum sínum á stöðv ar Þjóðverja. Orustuflugvjelar okkar sveima yfir skipunum, en ennþá hefir ekki orðið vart við mótspyrnu í lofti. Nú taka Þýsku slrandvirkin tiL að skjóta á skipin. Fyrir aft an okkar skip er annar tundur- spilli, sem á í einvígi við þýskt strandvirki. Vatnssúlurnar gjósa upp umhverfis tundur- spillirinn. Maður er löngu orð- inn' næstum heyrnarlaus af öll um þessum óskaplega hávaða, Það er Vian flotaforingi, sem stjórnaði Cossac í Alt'enfirði við Noreg, sem ræðnr fyrir þessum herskipaflota, og það er enginn smáfloti. Það virðist vera að versna í sjóinn, .og það gefur heldur á skriðdrekaferjurnár. Það geng ur bókstaflega yfir þær. Þær eiga líka í erfiðleikum vegna lendingavarna Þjóðverja. Þeir hafa lagt net, sem sprengjui’ eru festar við, út a-fströndinni, Jeg lít aftijr í kringum mig, Og aðeins eitt get jeg sagt, þetta er ótrúleg sjón, sem jeg sje. Siöðug áhlaup við Jassy London í gærkveldi: — I herstjórnartilkynningu Rússa í kvöld er frá því sagt, að Þjóðverjar og Rúmenar linni ekki áhlaupum sínum við Jassy og geri þau með miklu liði. Rúss ar kveðast hafa hrundið áhlaup unum og unnið andstæðingun- um mikið tjón. — Annarsstað- ar á vígstöðvunum er kyrt að kalla, en þó hafa nokkrir bar- dagar blossað upp á Vitebsk- svæðinu. — Á Kirjálabotni er allmikið um viðureignir á sjó, — Reuter. Montgomery hershöfðingi stjórnar hersveitum, sem komn- ar er,u á land í Frakklandi. Hann sjest hjer á myndinni cií vinsri með Ecsenhower, yfirhershöfðingja alls her afla banda- manna í Vestur- Evrópu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.