Morgunblaðið - 07.06.1944, Page 8

Morgunblaðið - 07.06.1944, Page 8
8 MORGUNBLAÐIÐ Miðvikudagnr 7. júní 1944. mtUU Útg.: H.f. Árvakur, Reykj'avík Framkv.stj.: Sigfús Jónsson Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson Auglýsingar: Árni Óla Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Viðurkenningin ÍSLENSKA ÞJÓÐIN hefir nú fengið fylstu staðfest ingu á því, að treysta mátti í einu og öllu loforðum þeim, sem stórveldin tvö, Bandaríkin og Bretland höfðu gefið, varðandi fullveldi landsins. Bæði þessi stórveldi hafa nú tilkynt opinberlega, að sendiherrar þeirra hjer í Reykja- vík hafi verið útnefndir ambassadorar dagana, sem þjóð- hátíðin, vegna lýðveldisstofnunarinnar stendur yfir. • Meiri sóma var ekki unt að sýna hinu íslenska lýðveldi, enda felst í þessu hin fylsta viðurkenning lýðveldisins. Svo sem kunnugt er, gáfu bæði þessi stórveldi, Banda- ríkin og Bretland, í sambandi við herverndarsamninginn 1941, alveg ótvíræð loforð um að viðurkenna fullveldi íslands. Bandaríkin staðfestu og þetta loforð haustið 1942, er því var yfirlýst af hálfu stjórnar Bandaríkjanna, að hún sæi ékkert því til fyrirstöðu, að Island stofnaði lýð- veldi eftir árslok 1943. Islendingar voru aldrei í vafa um, að þessi loforð yrðu haldin. En það er íslendingum mikið ánægjuefni, að þessar vinaþjóðir okkar skuli hafa valið fyrsta tækifærið til þess á svo hátíðlegan og virðulegan hátt að efna hin gefnu fyrirheit. Þessi skýlausa viðurkenning beggja þessara stórvelda, ásamt með hinni vinsamlegu kveðju, er sendiherra Sov- jetríkjanna nýlega afhenti ríkisstjórninni og sem einnig verður að skiljast sem viðurkenning þess stórveldis, eru sögulegir, merkir og ánægjulegir viðburðir, sem íslend- ingar munu lengi með þakklæti minnast. Noregur hefir nú fetað í fótspor stórveldanna og orðið fyrst hinna smærri ríkja til að viðurkenna lýðveldi okkar. Er íslendingum sjerstakt ánægjuefni, að fá þessa vinar- kveðju frá hinni hraustu og hugdjörfu bræðraþjóð. Innrásin INNRÁS BANDAMANNA, sem svo lengi hefir verið beðið eftir, hófst í gærmorgun. í því sambandi munu eiga við þau orð Churchills forsætisráðherra Breta, er hann viðhafði er innrásin var gerð í Norður-Afríku, að nú sje hafin „byrjunin á endinum“, því væntanlega verða hin miklu átök, sem nú eiga sjer stað, til þess að heimsstyrj- öldin verði til lykta leidd áður en langt um líður. Enginn veit þó á þessu stigi málsins, hve hin nýbyrjuðu átök verða löng, en hitt er vitað, að þau verða hörð. Ann- arsvegar berjast Þjóðverjar fyrir tilveru sinni, eða öllu heldur fyrir yfirráðum sínum á meginlandi Evrópu, en hinsvegar berjast hinar sameinuðu þjóðir fyrir endur- heimtu frelsi sínu. Leiðtogar bandamanna hafa ekki farið dult með það, að hersveitir bandamanna eigi erfitt hlutverk fyrir hönd- um. Þjóðverjar eru enn gráir fyrir járnum, þó þeim hafi verið veitt þung högg og stór undanfarna mánuði. En þjóðir bandamanna hafa lagt hart að sjer til undirbúnings innrásarinnar og enginn er í vafa um, að hin langa bið, sem orðið hefir á því að bandamenn rjeðustu inn í Vest- ur-Evrópu, hefir verið notuð út í ystu æsar. Þegar Churchill tók við embætti forsætisráðherra Bretaveldis, fyrir rúmlega fjórum árum sagðist hann ekki hafa lofað þjóðinni nema blóði, tárum, svita og striti. En margt hefir breyst á þeim fjórum árum, sem síðan eru liðin. Það er eins og Eisenhower yfirhershöfðingi sagði í dag- skipan sinni í gærmorgun, áður en innrásin hófst: „nú er gangi málanna breytt“. „Okkur ætti ekki að verða skotaskuld úr því að vinna þenna leik“, mælti Montgomery hershöfðingi við blaða- menn, áður en hann lagði til atlögu. Þessir menn tala hvorugur út í hött. Þeir vita hvað þeir eru að segja. En innrásin er aðeins hafin. Nú er búist við einhverjum ægilegustu og mannskæðustu orustum veraldarsögunnar næstu vikurnar. Churchill gerði það ljóst í ræðu sinni í þinginu í gær, að innrásin í Frakkland í gærmorgun væri aðeins byrjunarstig. Ávarp Hákonar Noregskonungs innrásar morouninn Frá norska blaðafull- trúanum: Hjer birtist ávarp Hákonar Noregskonungs, er hann flutti í Lundúnarútvarpið að morgni þess 6. júní, í tilefni af fnnrás bandamanna í Frakkland: „Norðmenn! • Sem þáttur í miklum hern- aðaráformum til að frelsa und- irokaðar þjóðir álfunnar, eru byrjaðar nýjar hernaðaraðgerð- ir í Vestur-Evrópu. Við fögnum allir þessum tíð- indum, því með þessu er stigið mikilvægt skref á leið til sig- urs og frelsis. Þó þetta sje mikil uppörfun, þá mega engir láta hana verða til þess að þeir leiðist út í óvar- kárni eða óyfirvegaðar aðgerð- ir. Framvegis verður það ennþá þýðingarmeira en nokkru sinni fyrr, að tefja og torvelda að- gerðir óvinanna með öllum ráð- um, án þess þó að menn setji sig eða aðra í hættu. o Fyrirmæli þessi eiga ekki við skipulagða flokka þá, sem eru í sambandi við herstjórn. Þeir fá nú ákveðin fyrirmæli, og munu fá sín fyrirmæli fram- vegis. Þessum fyrirmælum munu þeir fylgja, í þeirri vísu von, að ef þeir eru í vandræð- um með felustaði eða matvæli, þá mun þeim verða hjálpað. Á þenna hátt munu margir ykkar fá tækifæri til að taka þátt 1 frelsisbaráttunni, svo lítið beri á. Jeg og stjórn mín hylla af einlægu hjarta alla föðurlands- vini er standa staðfastir í stöðu sinni, og líta fram á veginn til ennþá meiri hlutverka í bar- áttunni, meiri fórna og treysta framtíðinni. Yfirstjórn bandamanna mun framvegis segja til um það, hvers krafist er af hverjum ykk ar, í útvarpi og á annan hátt munu þið fá fregnir frá hinni löglegu norsku stjórn. Við treystum hermönnum þeim, sem nú taka þátt í sókn- inni, og fylgjum þeim í hug- anum með einlægum óskum okkar. Við vitum að þeir munu 2kki bregðast, og þeir munu ekki bregðast okkur. Norðmenn! Haldið saman, og verið viðbúnir. Lengi lifi bandamenn og hugsjónir þeirra! Haakon R. Johan Nygaardsvold“. verji óhripc % Á f Y Sjómannadagurinn í Húsavík Frá frjeltaritara vorum á Húsavík. VEGNA óhagstæðs veðurs á Sjómannadaginn varð ekki mik ið úr hátíðahöldum sjómanna hjer. Þau hófust kl. 10 f. h. með sjómannamessu. Síðar um dag- inn fór fram kappstím mótor- báta og um kvöldið inniskemt- un. Þar flutti Júlíus Havsteen, sýslumaður, ræðu. Sýnd var kvikmynd og síðan dansað. f Y «*♦ ♦t*****«* *** „Ilún er byrjuð . . . .“ „JÆJA, þá er hún byrjuð“. „Þeir eru komnir af stað“. „Þar kom hún loksins11. Þessar setn- ingar kváðu við um allan bæinn í gær. Menn hringdu í kunningj- ana og sögðu: „Hefirðu sjeð Morgunblaðið? Hún er byrjuð. Það er komið út aukablað". Og allir vissu, hver „hún“ var, því engin „hún“ hefir verið meira umtöluð undanfarnar vik- ur. Það var vitanlega innrásin sjálf, sem menn áttu við. En þó flestir hefðu búist við innrásinni svo að segja á hverri stundu síð- an í byrjun maí, var eins og menn væru hissa. Margir höfðu búist við, að innrásin myndi verða gerð einhvern minningar- dag bandamanna. Fyrst hjeldu menn, að innrásin yrði gerð 10. maí, 'sama mánaðardaginn, sem Þjóðverjar hófu innrás sína í Frakkland og Niðurlönd fyrir 4 árum. Síðast bjuggust menn við innrásinni 4. þ. m., en það var mánaðardagurinn, sem Bretar luku við að koma liði sínu frá Dunkerque 1940. En það fór eins og maðurinn sagði: „Verið þið bara rólegir. Hún kemur yfir mann eins og hnerri einhvern daginn“. • Fyrstu fregnirnar. FYRSTU FREGNIRNAR komu eins og búist var við frá Þjóð- verjum. Það var skömmu áður en staðfesting fjekst frá banda- mönnum. En það er nú svo, að fæstum þykir það nóg að heyra slíka frjett frá þýska útvarpinu. Það hafði áður, og það ekki fyr- ir löngu síðan birt falsfregn um sama efni. Það var ]yví beðið eft- ir hvað breska útvarpið segði. Ekkert var um innrásina sagt í fyrstu fregnum breska heimaút- varpsins kl. 5 í gærmorgun, eða klukkan 7 eftir breskum tíma. Það var ekki fyr en um 7-leytið eftir okkar tíma, að fyrsta her- stjórnartilkynningin barst frá aðalherstöðvum Eisenhowers. Og þá var ekki eftir neinu að bíða lengur. Vitanlega gat fregnin um inn- rásina ekki komist í fyrstu út- gafu Morgunblaðsins, því nokk- uð af upplagi blaðsins var þegar komið af stað til kaupenda, þeg- ar innrásin var að hefjast og stað festing fjekst ekki á innrásar- fregninni fyr en um það leyti, sem blaðið er venjulega komið af stað í bæinn. En þegar staðfestingin kom frá bandamönnum var ekki beðið boðanna, og um 9-leytið var kom ið út nýtt Morgunblað með þeim frjettum, sem þá vorU kunnar, og auk þess stóru, greiriilegu landabrjefi af ströndum Norður- Frakklands, Hollandi og Belgíu. • Ungir og gamlir blaðalesendur. ÞAÐ VAR ekki lengi að fljúga fiskisagan, eftir að aukablað Morgunblaðsins var komið út á götuna með innrásarfregnirnar. Fólkið þyrptist á afgreiðsluna til að ná sjer í blað og blaðasalarn- ir höfðu nóg að gera. Alstaðar í Austurstræti mátti líta fólk með Morgunblaðið, það voru jafnt ungir sem gamlir. Sendi- sveinar stöðvuðu hjólhestana sína og lásu innrásarfregnir, verslúnarstúlkur komu þjótandi út úr búðunum. Virðulegir bankastjórar og embættismenn gátu ekki beðið eftir að komast inn á skrifstofurnar sínar, . en hölluðu sjer upp að húsvegg og lásu blaðið. CKjieCjCL Ííii tnu I ............... £ ♦•♦‘-♦♦-♦♦.**.mI,*X*,1**X**X**H**^ Og nú byrjuðu hinar venjulegu símahringingar til Morgunblaðs- ins. Altaf þegar eitthvað er um að vera, er hringt til Morgun- blaðsins til að fá staðfestingu á þessu eða hinu. • Nýtt aukablað. EN EKKI VAR nóg að gefa fólki „reykinn af rjettunum“, því nú fóru smátt og smátt að berast nákvæmari fregnir af inn- rásinni. Það var ]>ví ákveðið að gera það, sem ekki hefir verið áður gert í íslenskri blaða- mensku, að gefa út annað auka- blað, sama morguninn. Það var tilkynt, að ný útgáfa af Morg- unblaðinu kæmi út rjett fyrir kl. 12. Skörftmu fyrir klukkan 12 fór að safnast saman múgur og margmenni fyrir framan af- greiðslu Morgunblaðsins. Sjálf afgreiðslan fyltist brátt. Blaða- sölupiltarnir sáu, að hjer var þeirra tækifæri komið og þeir reyndu-að koma sjer að og verða fyrstir. „Jeg ætla að fá 500 til að byrja með“, sagði einn. „Nú er það svart, maður“, sagði örlítill snáði, „get jeg fengið 200?“ Og um leið og þeir fengu bloðin, þustu þeir út á götuna. „Nýi Mogginn“, kölluðu strákarnir. — „Nýi Moggipn“. „Þriðja útgáfan í morgun, maður“. „Viltu einn?“ Og allir vegfarendur „vildu einn“ Prentvjelin gekk með fullum hraða, en þó hún skilaði frá sjer fullprentuðu eintaki á sekúndu hverri, ætlaði það ekki að duga til. En flestir fengu einhverja úr- lausn, enda gat enginn, sem um götuna gekk, farið svo heim í matinn, að hann hefði ekki Morg unblaðið með sjer með síðustu fregnum af innrásinni. © Þannig var innrásar- morguninn. ÞANNIG leið innrásarmorg- uninn í miðbænum í Reykjavík. Ekki var talað um neitt annað meira en innrásina. Margir voru orðnir vantrúaðir á, að banda- menn myndu gera nokkra inn- rás á meginlandið. Aðrir sögð- ust altaf hafa vitað, að hún kæmi og nokkrir voru íbygnir á svipinn og sögðu frá því, „að þeir hefðu fundið þetta á sjer“. Nokkrir bentu á spámennina og mintu á, að einn hafði sagt þetta og annar hitt. Á kaffihúsunum var nóg af sjálfboðaliðum, sem vissu alt hvernig fara myndi og sem gátu útskýrt út í ægar hversvegna bandamenn gerðu þetta eða hitt og hver væri tilgangur Eisen- howers, og vissulega myndi Hitler og Rommel ekki vera í vanda staddir, ef þeir hefðu hin- ar auðveldu tillögur „kaffihúsa- herfræðinganna" okkar. • Alvarleg stund. " INNRÁSIN er vissulega ekki þess eðlis, að hægt sje að hafa hana í flimtingum. Mestu hernaðarátök, sem sagan greinir, eru haíin. Hundruð þúsunda og jafnvel .miljónir manna munu láta lífið, eða verða örkumla alt sitt líf. Næstu vikur og næstu mánuðir munu verða hinir ör- laga ríkustq, sem yfir mannkyn- ið hafa gengið. En þrátt fyrir þær fórnir, sem færa verður, ýékur innrásarfregnin fögnuð og von í brjóstum miljóna manna, sém beðið hafa í fjögur ár eftir frelsi sínu. Teningunum hefir verið kast- að. 1 ;

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.