Morgunblaðið - 17.11.1944, Síða 10
MORÖUNBLAÐIÐ
Föstudagur 17. nóv. 1944
1*
75. dagur
, y\
mmiwr
y VI:
eítii—J
ANYA Sm
„Nei“, svaraði Jeff og brosti
við. „Ástæðan er önnur. Það er
best jeg haldi nú áfram, þar
sem jeg var byrjaður áðan“.
— Jeff talaði samfleytt í
heila klukkustund. Eftir fyrstu
setningarnar setti gamli maður
inn sherry-glasið frá sjer, hall-
aði sjer áfram í sætinu og hlust
aði nieð ákafa. Hann sagði ekki
orð, fyrr en Jeff hafði lokið
máli sínu. Þá tók hann rauð-
röndóttan tóbaksklút upp úr
vasa sínum og snýtti sjer hraust
lega.
„Fari það nú í sótsvart! — Ef
einhver annar en þú hefðir sagt
mjer þetta, Jeff, hefði jeg ekki
trúað einu orði“.
„Jeg veit það“.
„En sú guðs mildi, að þú
skyldir aldrei komast til fylkis
stjórans í Albany! Hann hefði
áreiðanlega haldið, að þú værir
ekki með öllum mjalla — sjer
í lagi þegar Van Ryn dó nú
eins og hver önnur hetja“.
„Já“, svaraði Jeff. „Hann
bjargaði þrem manneskjum í
stað þeirra tveggja, sem hann
myrti af ásettu ráði — Jó-
hönnu og drengsins við Astor-
leikhúsið. En annars virðist
Bronck ætla, að slysið sje ó-
beinlínis Nikulási að kenna“.
Qamli maðurinn kinkaði
kolli. „Jeg geri ráð fyrir því,
drengurinn minn, að öll slys,
— allar hörmungar veraldar-
innar orsakist að nokkru leyti
af eigingirni annara. En við
skulum þakka guði fyrir, að
Nikulás Van Ryn á ekki marga
sína líka“. ’
Báðir þögðu stundarkorn. Þá
leit Francis upp, og spurði ró-
lega: „Kærirðu þig ennþá um
stúlkuna, Jeff?“«
„Já, meira en nokkufS annað
í heiminum — ef hún vill mig
þá“.
„Hún vill þig, vertu viss. —
Gefðu henni aðeins tíma til
þess að átta sig,fyrst“.
★
Spádómur gamla mannsins
rættist í desember. i
Jeff og Miranda giftu sig
tveim dögum fyrir jól — í
gömlu kirkjunni í Greenwich.
En hvað þessi gifting er ólík
þeirri fyrri, hugsaði Abigail, og
þakkaði sínum sæla fyrir. Hún
tók í handlegginn á Ephraim,
sem stóð við hlið hennar, og
þrýsti hann ástúðlega. Honum
var ekki kunnugt um nema að-
alatriðin í fyrra hjónabandi
dóttur sinnar. Hann hafði í
fyrstunni mótmælt, þegar hann
komst að því, að hún ætlaði að
afsala sjer öllum eigum sínum.
Hann var altof hagsýnn til þess
að geta fallist á svoleiðis vit-
leysu. En Abigaij tókst loks að
koma honum í skilning um, að
Miranda hafði aldrei verið
hamingjusöm með Nikulási, og.
kærði sig því ekki um neitt af
eigum hans.
Þegar Ephraim var sagt frá
því, að Jeff og Miranda óskuðu
eftir því að giftast, gaf hann
fúslega samþykki sitt. „Það
var leitt, að hún skyldi ekki
giftast honum í stað þessa Van
Ryn. En það hefir altaf verið
einhver hringlandi í stúlkukind
inni,“ var það eina, sem hann
sagði. '
En Miranda var ekki lengur
hviklynd. Jafnvel faðir hennar
varð að viðurkenna það. Fram-
koma hennar hafði nú öðlast ró
og öryggi. Hún hjálpaði móður
sinni við húsverkin, án þess að
mögla, og losaði hana meira að
segja við verstu óþrifaverkin.
Og sjá hvað hún hefir gert fyrir
þessa stúlku, hugsaði Ephraim,
og leit á Peggy, sem stóð bak-
við húsmóður sína og grjet í
vasaklút sinn.
í júlí hafði Jeff skorið upp
fótinn á Peggy, og hafði aðgerð
in heppnast prýðilega.
Það var vikurnar eftir upp-
skurðinn, meðan Peggy var að
ná sjer og Jeff og Miranda
hjúkruðu henni, að þau komust
'að því, hvernig framtíðarlíf
þeirra skyldi vera.
Það var eitt yndislegt sumar
kvöld, að þau höfðu reikað út,
og skilið Abigail eftir til þess
að gæta sjúklingsins.
„Gætirðu farið frá Hudson,
Jeff?“ spurði Miranda alt í
einu.
Hann sneri sjer við til þess
að horfa á hana, meðan hann
braut heilann um, hvað hún
ætti við, með spurningu þess-
ari. Honum fanst hún nú feg-
urri, en nokkru sinni áður, þótt
hún væri mjög grönn, og hár
hennar, sem nú náði niður á
axlir, væri ekki lengur gyllt,
heldur jarpt.
„Jeg get farið hvert á land,
s';m er, ef þú kemur með mjer“,
sagði hann. „Þú ert það eina
sem jeg þrái“.
„En starf þitt?“
„Já, og starf mitt“.
Húifbrosti við honum. „Mjer
vai að detta í hug, að jeg gæti
ef til vill hjálpað þjer. Það er
hörgull á læknum*í Kaliforníu.
Jeg------“. Hún hikaði andar-
tak, en hjelt síðan áfram. „Jeg
get aldrei farið upp eftir aftur,
þótt það sje ef til vill heimsku
iegt“.
„Nei, væna mín. Það er ekki
heimskulegt“. Hann hugsaði
um Dragonwyck-höll, eins og
hann hafði sjeð hana fyrir viku
síðan. Skipunum Miröndu hafði
verið framfylgt. Ajlir innan-
stokksmunir höfðu verið seldir
á uppboði, og andvirði þeirra
gefið sjúkrahúsum í borginni.
Prestur nokkur í Killarney
hafði einnig fengið senda stóra
peningaupphæð, ásamt fyrir-
skipunum um að senda fjöl-
skyldu Peggy þegar til Banda-
ríkjanna.
Peggy og Hans Klopberg ætl
uðu að gifta sig að vori og hafði
Miranda þegar ákveðið brúðar
gjöf þeirra. En það voru hinar
frjósömu ekrur, þar sem gróð-
urhús Nikulásar höfðu staðið.
Þær áttu að tilheyra Peggy og
afkomendum hennar um alla
eilífð. En af Dragonwyck-höll
var ekkert eftir. Hún hafði ver
ið rifin til grunna.
„Nei“, sagði Jeff. „Þú mátt
aldrei fara þangað aftur. Og þú
mátt aldrei líta aftur, Miranda
Ef þú vilt fara til Kaliforníu,
þá förum við þangað“.
Hann lagði handlegginn utan
um hana og dró hana blíðlega
að sjer. En hann fann, að hún
streyttist á móti, og sjer til mik
illar skelfingar sá hann, að hún
sneri höfðinu frá honum.
„Aldrei að líta aftur“. Hún
gaf frá sjer hálfkæft hljóð, og
Jeff fann til nístandi afbrýði,
þegar hann sá, að augu hennar
fylltust tárum.
Stendur hann ennþá á milli
okkar? hugsaði hann. Losnar
hún aldrei við hann?
Það var eins og hún læsi hugs
anir hans, því að hún hristi
höfuðið og sagði: „Nei, Jeff, það
er ekki það. Hann var aðeins
— svo hræðilega einmana".
Þau sátu bæði þögul andar-
tak og horfðu á rauðglóandi
sólina hverfa niður fyrir sjón-
deildarhringinn. Hann skildi
hana. Hún hefir rjett fyrir sjer,
hugsaði hann. Grimdin og ást-
ríðurnar hljóta að brenna til
ösku — og ekkert verður eftit
nema meðaumkvun.
Hún tók hönd hans, og dásam
leg öryggistilfinning greip
hana, þegar hún fann hið sterka
trausta handtak hans.Hún hall
aði höfðinu að öxl hans og lok-
aði augunum.
ENDIR.
ALDREI
sterk hægðalyf.
ALLTAF
þessa ljúffengu,
náttúrlegu fæðu.
Hið stökka ALL BRAN bætir
úr harðlífi.
• Stöðug notkun sterkra hægða
lyfja getur eigi aðeins aukið
harðlífi, heldur einnig valdið
veikindúm.
Auðvelt ráð til að bæta úr
harðlífi er að borða Kellogg’s
All-Bran reglulega. Þessi nátt-
úrlega fæða hjálpar melting-
unni á annari fæðu.
Yður mun líka þetta ljúf-
fenga kornmeti. Nærandi og
bragðgott með sykri og mjólk
eða ávöxtum. Kaupið Kellogg’s
.All-Bran í dag — (3935 E.).
Djákninn og drekinn
Æfintýr eftir Frank R. Stockton.
5.
líkneskið, að djákninn sá, að ekki var um annað fyrir hann
að gera en að vera þarna á varðbergi alla nóttina, til þess
að vernda það. Og hann stóð fyrir kirkjudyrum alla nótt-
ina og gætti þess að enginn reisti þar upp stiga, sem hann
svo gæti farið upp í og byrjað að lumbra á líkneskinu.
Að lokum varð fólkið þreytt á þessum leik og tók að hafa
sig heim í rúmið, en djákninn var á sínum stað, uns hann
lagði á leið, til þess að sækja drekann.
Hann var nývaknaður, þegar djákninn kom, og var að
teygja sig allan, og þegar honum fanst nóg vera af því
komið, sagði hann sig reiðubúinn að fara inn í borgina.
Lagði nú djákninn af stað til baka, en drekinn flaug
hægt, rjett fyrir ofan höfuðið á leiðsögumarmi sínum.
Ekki sást nokkur sála á strætunum og þeir hjeldu rak-
leitt til kirkjunnar, þar sem djákninn benti á drekalík-
neskið.
Hinn raunverulegi dreki settist niður á torginu fyrir
framan kirkjudyrnar og horfði alvarlegur á höggmynd-
ina. Lengi virti hann hana fyrir sjer. Fyrst lagði hann
undir flatt. Svo lokaði hann hægra auganu, lagði aftur
undir flatt og glápti með hinu vinstra. Síðan lokaði hann
vinstra auganu og horfði lengi með því hægra. Svo gekk
hann dálítið til hliðar og leit á líkneskið þaðan, svo til
hinnar hliðarinnar. Eftir alllanga stund sagði hann við
djáknann, sem hafði staðið þar allan tímann:
„Jeg held þetta hljóti að vera mjög líkt. Breiddin milli
augnanna, þetta hvelfda enni, þessir miklu kjálkar. Jeg
finn að myndin hlýtur að vera mjög lík mjer. Ef nokkuð
er að, er hálsinn kannske helst til stirðlegur. En það er
ekkert. Þetta er ágætasta mynd. — aðdáunarverð.
Drekinn sat og horfði á myndina af sjer allan morgun-
inn. Djákninn hafði verið smeykur við að fara burtu og
skilja hann einan eftir og hafði altaf vonað, að hann Ivki
við myndskoðunina og flýtti sjer heim. En undir kvöld
var veslings djákninn orðinn svo svangur og þyrstur, að
hann bókstaflega varð að fá sjer einhvern bita. Hamj,
sagði drekanum þetta hreinskilnislega og spurði hann,
hvort hann væri ekki svangur líka. Þetta sagði hann auð-
vitað af eintómri kurteisi, en um leið og hann hafði slept
orðinu, varð hann gripinn ótta um það, að ófreskjan
mynda heimta minst eina tylft af börnum eða eitthvað
á|íka til matar sjer.
„Nei, nei“, sagði drekinn, „jeg borða aldrei milli jafn-
dægra. Um jafndægur á vori og jafndægur á vetri fæ jeg
Ameríski fræðimaðurinn og
rithöfundurinn William Lyon
Phelps (f. 1865) sagði eitt sinn:
Jeg varð að halda ræðu í
fjölmennu miðdegisverðarboði
í Chicago. Jeg var kominn að
þeim bölvaða stað, ræðupallin-
um, þegar jeg kom auga á vel
búinn mann, sem jeg hafði ekki,
sjeð áður. Með allri þeirri alúð,
sem mjer var unt að láta’í tje,
gaf jeg mig á tal við hann og
sagði honum nafn mitt.
„Jeg er yfirþjónninn“, svar-
aði maðurinn.
Jeg þreif hönd hans aftur,
hristi hana enn meir en nokkru
sinni áður og hrópaði: „Þjer
vitið ekki, hve jeg öfunda yður
mikið“.
+
Þegar dr. Walter Williams
talaði í kínverskum háskóla,
var það túlkur, sem átti að þýða
á kínversku, það sem hann
segði og skrifaði það með krít
á svarta töflu. Dr. Williams tók
eftir því, að túlkurinn skrifaði
nær því ekkert af því, sem hann
sagði á töfluna og spurði hann
að því að ræðunni lokintii,
hverju þetta sætti.
„Við skrifum aðeins, þegar
ræðumaðurinn segir eitthvað“,
svaraði Kínverjinn.
★
Herflokkur einn hjelt veislu,
þar sem nokkrum mönnum,
sem voru þar í heimsókn, var
boðið. Veislustjórinn tók það
fram í upphafi, að allir gestirn
ir hefði lofað að halda stuttar
ræður. Það vildi svo til að fyrsti
maðurinn, sem kallaður var
upp, var hnefaleikameistarinn
heimsfrægi, Joe Louis. Hann
stóð upp og sagði:
„Veislustjórinn hlýtur að
hfa kannast við hraða minn“.
Síðan settist hann niður.
★
De Valera, forsætisráðherra
írlands (f. 1882) var eitt sinn
handtekinn í Ennis í miðri
stjórnmálaræðu, sem hann var
að halda. Að ári liðnu var hann
látinn laus. Hann fór undireins
til Ennis, boðaði til fundar og
hóf mál sitt á þessa leið: „Eins
og jeg tók fram áður en jeg var
truflaður ....“; ,