Morgunblaðið - 12.12.1944, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.12.1944, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 12. des. 1944 £ jtfarogtittMftfrifr Útg-: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: Ivar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Ola. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. —■ Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á mánuði innanlands, kr. 10 00 utanlands. í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Hitaveitan og uppþot Alþýðublaðsins SÍÐASTLIÐINN laugardag var hjer í blaðinu minst á Hitaveitu bæjarins. Tilefnið var umræður þær, er fram fóru um þetta mál á síðasta bæjarstjórnarfundi, þar sem bæjarfulltrúar ræddu ágalla þá, sem komið höfðu í ljós á rekstri fyrirtækisins og úrræði, sem líklegustu væru til úrbóta. Morguntelaðið gat þess, að umræðurnar á bæjar- stjórnarfundinum hefðu verið með þeim hætti, að vænta mætti góðs af þeim. Það óskiljanlega skeður, að þessi Morgunblaðsgrein hefir farið ákaflega í taugar ritstjóra Alþýðublaðsins. I forystugrein síðastliðinn sunnudag eys hann hrakyrðum og svívirðingum yfir Morgunblaðið og sendir síðan Hita- veitunni og verkfræðingunum þessa gömlu og alkunnu kveðju, sem bæjarbúar þekkja af fyrri skrifum Alþýðu- blaðsins. Nú hljóðar kveðjan þannig: ,,Hitaveitan hefir til þessa algerlega mishepnast. Áætlanir verkfræðinganna hafa ekki staðist. ■— Framkvæmd verksins ber vott um flaustur og skort á nægilegum undirbúningi”. Fleira af svipuðu tagi er að finna í þessum reiðilestri Alþýðublaðs- ins. En þar er ekki einn stafur um kjarna málsins, þ. e. hvaða úrræði sjeu líklegust til úrbóta á þeim ágöllum, sem nú eru á rekstri Hitaveitunnar. ★ Það yrði áreiðanlega seint ráðin bót á göllum Hitaveit- unnar, ef andi þeirra, sem skrifa Alþýðublaðið ætti að ríkja í þessu máli. Alþýðublaðið kemst að þeirri furðulegu niðurstöðu, að Morgunblaðið hefði fundið það eitt að rekstri Hitaveit- unnar, að borgararnir eyddu heita vatninu óhóflega; alt annað væri í stakasta lagi. En hvað sagði Morgunblaðið um þetta? Blaðið sagði. að aðalgallinn sem komið hefði í ljós á rekstri Hitaveit- unnar væri sá, að heita vatnið frá Reykjum hefði reynst minna en mælt var, áður en virkjun hófst. Þá mældist vatnið 250—260 sekúndulítrar, en eftir virkjunina í fyrra vetur reyndist vatnið, sem náðist í aðalleiðslurnar ekki nema 170—180 sekúndulítrar. Með því að dæla lofti í hol- urnar hefði tekist að auka heita vatnið, Svo að nú væri það um 225 sekúndulítrar. Allir geta sjeð, að borgararnir í bænum eiga enga sök á þessu. En einmitt þetta, að ekki hefir enn tekist að ná úr borholunum á Reykjum jafnmiklu vatnsmagni og mælt var þar fyrir virkjunina, á sinn mikla þátt í erfið- leikum þeim, sem bæjarbúar eiga nú við að stríða. ★ Vitanlega ber að leggja höfuðáherslu á, að auka heita vatnið á Reykjum. En það getur tekið sinn tíma, að bót verði ráðin á þessu. Þessvegna verður að grípa til annara úrræða, meðan verið er að koma þessu í lag. Morgunblaðið tók vel þeirri uppástungu, sem fram kom á bæjarstjórnarfundinum, að gripið yrði til þeirra úr- ræða, að fá eigendur stórhýsa í bænum til þess að taka upp kolakyndingu í frostum, meðan verið væri að auka vatnsrenslið frá Reykjum. En kæmi hinsvegar í ljós, að þetta nægði ekki, studdi Mbl. tillögu Jóns Axels Pjet- urssonar, að taka heita vatnið alveg af þvottahúsum og fá þannig aukið vatnið til upphitunar húsa. Um hitt þarf ekki að deila, að yfirleitt er ósparlega fai'- ið með heita vatnið. Hitaveitan er að því leyti sjerstæð, að notendur vatnsins skifta þúsundum, en tiltölulega lítil not hjá hverjum einstökum. ,,Það munar ekki um mína eyðslu”, hugsar e. t. v. einstaklingurinn og lætur heita vatnið renna í óhófi. En ef þúsundir einstaklinga hugsa þannig og breyta eftir því, verður heildareyðslan langt fram yfir það, sem hún má vera. ý Þar sem heita vatnið er takmarkað, verður að gæta lítrasta sparnaðar í meðferð þess. Upphitun íbúðarhúsanna 'á að ganga fyrir öllu. Þetta er kjarni málsins. írjesmiðafjeiag Reykjavíkur 45 ára 2500 krónur söfnuðust í afmælishófinu til Norð- manna. TRJESMIÐAFJELAG Reykja víkur var stofnað 10. des. 1899 af 26 trjesmiðum í Reykjavík, í veitingasalnum í Iðnó. Síðast liðið laugardagskvöld hjelt það myndarlegan afmælisfagnað að Hótel Borg. Var saman komið um 150 manns, og þangað boðn ir nokkrir menn frá samtökum iðnaðarmanna með konum sín- um. Hófið var undirbúið af skemtinefnd fjelagsins, en for- maður þess, Tómas Vigfússon húsasmíðameistari, stýrði því. Hann bauð veislugesti vel- komna með snjaRri ræðu, en skrifstofustjóri fjelagsins, Ragn ar Þórarinsson, mintist fjelags- ins, stofnenda þess og helstu áfanga í starfi þessi framfara- ár þjóðarinnar. Guðm. H. Guð- mundsson húsg.-smm. mælli fyrir minni kvenna, en Magnús Jónsson húsasmíðam. flutti frumort kvæoi- öá talaði Helgi H. Eiríksson skólastjóri og flutti vel valin viðurkenning- ar- og hvatningarorð til reyk- vískra trjesmiða. Er hjer var komið borðhald- inu, vappaði Lárus Ingólfsson leikari inn veislusalinn, að hljóðfærapallinum og söng gamankvæði af sinni alkunnu snilli. En þegar sú gleði hafði gagntekið veislugesti, reis Ár- sæll Sigurðsson trjesmiður úr sæti sínu og bað menn í gleð- inni muna hörmungar frænd- anna í Noregi og gefa fje til Noregssöfnunarinnar. Tóku all ir vel undir mál hans og söfn- uðust á svipstundu 2535.00 kr. meðal veislugesta. Mun þetta vera í fyrsta sinn, sem fje er safnað svo myndarlega til Nor- egssöfnunarinnar í veislu. Þá talaði Sveinbjörn Jóns- son, ritstjóri Tímarits iðnaðar- marrrta, um smiðsheitið og bað menn minnast þess og, hafa í heiðri. Guðm. H. Guðmundsson, formaður Iðnaðarmannafjelags ins í Reykjavík flutti kveðju og árnaðaróskir þess til af- mælisbarnsins. Milli ræðanna voru Sungin ættjarðarljóð og hljómsveit ljek. Las svo for- maður mörg heillaskeyti, sem borist höfðu, og sleit borðhald- inu með stuttri ræðu. Á eftir skemtu menn sjer við samræð- ur, hljóðfæraslátt og dans, langt fram eftir nóttu. Ríkti gleði og ánægja hvarvetna. Síðan fjelagið var endurreist, hafa þessir menn verið for- menn þess: Þorlákur Ófeigsson, Guðmundur Eiríksson, Einar Einarsson, Jóhann Ólafsson, Jón Guðnason, Ragnar Þórar- insson, Björn Rögnvaldsson, Guðm. H. Guðmundsson, Sig- mundur Halldórsson, Valdimar Runólfsson og nú Tómas Vig- fússon, en með honum eru í stjórn: Einar Kristjánsson, Guðm. Halldórsson, Gissur Sig- urðsson og Ársæll Sigurðsson. \Jííverjl ólrijar: lyfr Jcujuaja lijinu 3x$xSx$x$xJ*$x$>^xSx£<^$*$"$xS> Jólaútstillingar. ÞAÐ VAR veðrir til að spóka sig og skoða jólaútstillingarnar á sunnudaginn var, enda notuðu sjer það margir. Það var fult af fólki á götum bæjarins allan dag inn og langt fram á kvöld. Börn in skoðuðu í leikfangaverslanirn ar, en hinir fullorðnu voru að leita sjer eftir hentugum gjöfum. Jólaútstillingar kaupmanna virð ast ekki vera eins fjölbreyttar í ár, eins og þær hafa verið oft áð ur, en það mun stafa af því, að enn er eitthvað ókomið af jóla- varningi. Kanske næsti sunnu- dagur verði aðalútstillingardag- rinn. Mjög er daufara yfir sýningum öllum en var. Nú sjest hvergi jólasveinn lengur í búðarglugga, en að slíkum sýningúm bjuggum við krakkarnir hjer í bæpum að í margar vikur í gamlá daga. Nú er það Rafskinna og bóka- sýningar, sem vekja mesta at- hygli. Rafskinna hefir nú komið út í 10 ár og altaf hefir verið eitt hvað nýtt að sjá í henni. Nú er þar heljarmikill fálki, sem horf- um helgina. Svifflugfjelags- og snýr sjer fram og aftur til að fá sem best yfirlit yfir allan.hóp- Sniðug auglýsing. EN ÚR því talað er um auglýs- ingar, sem athygli vekja, verður ekki komist hjá að minnast á tvær auglýsingaraðferðir, sem reyndar voru hjer í bænum um helgina. Sviffl^gfjelags- menn sýndu svifflug á Tjörninni, en sölumenn frá happdrætti Verslunarmannafjelags Reykja- víkur ,,sigldu“ um götur bæjar- ins í hafskipi miklu. Vakti skip- ið hina mestu eftirtekt, einkum unglinganna, sem eltu skipið eins og fætur toguðu. En „skip- ið“ var haganlega gert skipslik- an, sem sett var utan á bíl. Alt þetta setti sinn svip á bæ- inn á sunnudaginn var. Andsvör tóbaksmanns. BRJEF er ,,S“ skrifaði mjer í vikunni, sem leið um tóbaksreyk ingar í almenningsbílum, hefir vakið talsvert umtal í bænum og eru menn ýmist með eða móti þeim skoðunum, sem fram koma í brjefinu. B. J. skrifar mjer um tóbaksreykingar í langferðabíl- um. Þykir rjett að sjónarmið beggja aðila komi fram. Brjef B. J. er á þessa leið: „Sumir menn eru þannig gerð- ir, að þeir telja veröldina eiga að vera að öllu leyti „innrjettaða" eftir sínu höfði og sínum tiktúr- um og láta þetta jafnan óspart í ljós í ræðu og riti. S. sá, sem á föstudaginn var ritaði í Vík- verjadálkinn, er auðsjáanlega af þessu sauðahúsi. Honum líður illa ef hann fer inn í bíl á morgn- anna, eftir að hafa baðað sig og farið í göngu túr, og ef svo eru inni í bílnum einhverjir, sem reykja, þá ffnst honum ]_>eir vera þangað komnir til að hrella sig og kemur auðvitað strax fram með kröfu um að öllum sje bann að að hafa slíkan ,,óþvérra“ um hönd í bílum. Hvernig væri fyrir hann að reyna að spara dálítið við sig böð in og göngurnar, úr því þetta virð ist þó helst vera upptökin að kvillasemi hans? Nei, auðvitað gerir hann það ekki, það eru nú hans venjur. Það eru hinir, sem eiga að láta í minni pokann með sínar venjur. Sx$xSxSxíxJxS*SxSx$xJx$xSxíx$x®. „S-menn“. ALLIR þeir, sem í langferða- bílum hafa ferðast, kannast vel við fólk af þessari S-tegund. Það er satt, að ekki er altaf tekið fult tillit til þess af öðrum farþegum og þó oftast mikið, en hitt er jafn víst, að sjálft tekur það aldrei neitt tillit til annara farþega en sjálfs sín. — Farþegar koúia að morgni á bílstöðina. Bíllinn fyll- ist og „S-fólkið heimtar auðvitað þau sætin sem það heidur að sjeu best, fremst í bílnum. Fær ! þau ætíð, annað væri dónaskap- ur! 4 Síðan er ekið af stað, veðrið er gott og gluggar opnir, því all ir vilja njóta útsýnisins og góða loftsins sem best. En ekki líður á löngu áður en stunur fara að heyrast úr framsætunum og von bráðar rekur einhver höfuðið út um fremsta gluggann og þeysir út úr sjer spýju mikilli, sem auð- vitað fýkur strax aftur með bíln um og inn um næsta glugga og dynur á andliti og fötum sam- ferðafólksins. Nú vilja einhverjir loka glugg unum, en S-fólkið mótmælir, því þá verði loftlaust og því versni, svo úr lokuninni verður ekkert. Bráðlega endurtekur sagan sig og svo koll af kolli. Þegar far- þegarnir í aftursætunum hafa fengið yfir sig hálfmeltan morg- unmat tveggja eða þriggja sam- ferðamanna, fara ef til vill ein- hverjir þeirra að reyna að vinna bug á viðbjóðunum með þyl að kveikja sjer í sígarettu. En það gengur nú ekki alveg hljóða- laust. „Hver ræðan af annari er hald in í S-stíl. Hvernig getur nokkr- um manni dottið í hug að fara að reykja inni hjá veiku fólki? — Þetta ætti að banna með lögum! Svona bölvaðir dónar eru engir nema Islendingar o. s. frv. Vana- lega er ekki annað að gera en að drepa á sígarettunum, láta hríð- ina dynja á sjer áfram og reyna að lifa í voninni um að morgun- matur hinna háttvirtu samferða- manna verði ef til vill búinn ]>eg ar komið er norður í Húnavatns- sýslu eða austur í Mýrdal, eftir því hvert ferðinni kann nú að vera heitið. • Sjálfs dekur. „Talsvert af þessu fargani mun vera hjegóminn einn, sprottið af sjálfsdrekri — og dekri úr öðr- um. Man jeg það, að mjer varð það eitt sinn á, eftir að hafa set- ið góða stund undir stórhríð af þessu tagi, að kalla eitthvað ó- notalegt fram í vagninn. Sá, sem hlut átti að máli, reiddist eflaust en ekki kom frá honum ein ein- asta gusa eftir það, meðan jeg var í bílnum og var það þó all- löng leið. Það fólk sem er til svona „þæg inda“ fyrir aðra, ætti sannarlega frekar að vera þakklátt fyrir þá tillátssemi, sem því að jafnaði er sýnd, en hrópin um ónærgætni og óþverra (!) hjá samferðamönn um sínum og krefjast banns og valdbeitingar gegn þeim“. Sjötíu hafa farist. London: Þýska frjettastofan segir, að farist hafi þegar sjötíu flugmenn úr flugsveit Japana, sem nefnist „Hinn Guðdómlegi Blær“, en flugsveit þessi hefir það hlutverk, að granda skip- um bandamanna með þeim hætti, að flugmennirnir steypa flugvjelum sínum á skipin.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.