Morgunblaðið - 29.03.1945, Blaðsíða 2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimtudagur 29. mars 1945,
FRELSISBARÁTTA DANA
ENN ÞÁ einu sinni nálg-
ast 9. apríl og að þessu sinni
táknar hann upphaf sjötta
hernámsársins. Enn þá hvíl-
ir myrkur nasismans og mið
aldaógnir yfir öllu landi
\oru, en það er nú eina
landið í Evrópu, sem enn er
að öllu levti á valdi nasista.
Að tveimur löndum undan-
teknum, þ. e. Póllandi og
Tjekkóslóvakíu, hefir land
vort verið hernumið lengst
allra landa.
Á síðastliðnum tnánuðum
hefir baráttan milli her-
námsþjóðarinnar og dönsku
f relsishrey f ingarinnar
harðnað á báða bóga. Eftir
því sem lok stríðsins nálg-
ast og þar með ósigur Þýska
lands, en hann er nú öllum
Ijós. nema örfáum starblind-
um öfgamönnum, hefir hin
beina styrjaldarþátttaka
dönsku frelsishreyfingarinn
ar orðið áhrifaríkari en áð-
ur, og þá sjer í lagi hin stór-
kostlegu spellvirki gegn
járnbrautunum, en þeim
hefir verið stjórnað af* fá-
dæma dugnaði.
En samtímis hafa ógnar-
aðgerðir Þjóðverja færst svo
í aukana, að slíks munu fá
eða engin dæmi. Það líður
ekki sá dagur, að alsakláus-
ir borgarar sjeu ekki særðir
af handahófsskothríð þýsku
lögreglunnar á götum úti,
þegar hún gerir út hina
vægðarlausu og jafnframt
tilgangslausu leiðangra sína
■— ekki sú vika, að fjöldi
Dana sje ekki kvalinn eða
líflátinn af Gestapolögregl-
unni — og ekki sá mánuður,
að ekki sjeu birtar óhugn-
anlega langar skrár, um
handtökur og brotflutning
úr landi til þýskra fanga-
búða.
[ftir Anker Svart, sendiráðsfulitrúa Dana
Járnbrautarlest sprengd af föðurlandsvinum
Spellvirki.
EN ÞAÐ líður heldur ekki
sú nótt, að ekki kveði við
sprengingar einhvers staðar
á járnbrautunum á Fjóni og
Jótlandi, en járnbrautir
þessar eru Þjóðverjum lífs-
nauðsyn til herflutninga —
ekki sú vika, að verksmiðj-
ur, sem framleiða hernaðar-
nauðsynjar fyrir Þjóðverja,
sjeu ekki sprengdar í loft
upp — og ekki sá mánuður,
að danska frelsisráðið birti
ekki tilkynningar sínar, þar
sem gerð er grein fyrir að-
gerðum síðasta mánaðar
gegn fjandmönnunum, alveg
eins og á sjer stað milli
þjóða, sem eiga í styrjöld.
Sagnfræðingar framtíðar-
innar munu telja, að Danir
hafi sagt Þjóðverjum stríð
á hendur þ. 29. ágúst 1943.
Þegar danska stjórnin neit-
aði afdráttarlaust að verða
við hinum ofstopafullu kröf-
um Þjóðverja og vissi vel
hverjar aíleiðingar yrðu fyr
ir land og þjóð, þegar Dan-
ir buðu hinu volduga Þýska
landi byrginn, vitnað# hinn
þáverandi þýski yfirstjórn-
andi í Danmörku, Hannek-
en hershöfðingi, á þann
klaufalega hátt, sem er svo
einkennandi fyxir Þjóðverja,
í ákvæði Haagsamþyktarinn
ar, um hernám óvinveittra
landsvæða. Þannig komst
Danmörk, án stríðisyfirlýs-
ingar, í styrjöld við Þýska-
land, og síðan hefir barátt-
unni ekki linnt.
Atburðirnir 29. ágúst voru
hin rökrjetta og óhjákvæmi-
lega afleiðing kosninganna,
sem fram fóru vorið áður,
en þá kom vilji þjóðarinn-
ar ljóst fram. Þá vamkom-
inn tími til athafna.
„Hin hlægilega litla þjóð”.
Á ÞVÍ rúmlega hálfu öðru
ari, sem siðan er liðið, hafa
spellvirkin, sem eru eina
vopn lítillar og hernuminn-
ar þjóðar gegn voldugum
fjandmanni, aukist svo stór-
kostlega og verið fram-
kvæmd með slíkum dugn-
aði og nákvæmni, að næst-
um ótrúlegt má virðast, þeg
ar tekið er tillit til hinnar
fálmkendu aðstöðu á ofan-
verðu ári 1941 og öndverðu.
ári 1942. ,.Hin hlægilega
litla þjóð”, eins og dr. Best,
fulltrúi þýska ríkisins, kall-
aði Dani eitt sinn. þegar hon
um var mikið niðri fyrir, læt
ur nú til sín taka. Danmörk
á yfirborðinu, sú Danmörk,
sem hin svínbeygðu blóð
kynna, er ekki sú hin raun-
verulega Danmörk á þess-
um árum. Nú er það hin
„stríðandi Danmörk”. heið-
urstitill, er við getum þakk
að leiðtogum Sovjetríkjanna
sem hefur orðið. Og hin
stríðandi Danmörk er nú
gervöll danska þjóðin. Næst
um hver einasti maður og
kona, taka nú þátt í barátt-
unni hver á sínu sviði. —
Allir eru sammála um mark
mið og leiðir á heimavíg-
stöðvunum. Fólk með sund-
urleitar stjórnmálaskoðanir,
vinnuveitendur og vinnu-
þiggjendur, andans menn og
erfiðismenn, snúa bökum
saman í baráttunni gegn
fjandmönnunum. Christmas
Möller, formaður íhalds-
flokksins og Aksel Larsen,
formaður kommúnista-
flokksins. stofnuðu í sam-
einingu eitt af stærstu og
best metnu frelsisblöðum
okkar. Annað frelsisblað,
„1944”, skrifaði fyrir stuttu
síðan á þessa leið: „Frelsis-,
baráttan gengur fyrir öllu
öðru”.
Frelsisráð Danmerkur
nýtur í dag viðurkenningar
sem yfirstjórn hinnar levni-
legu baráttu. Sakir frábærr-
ar stjórnar á hinni margvís-
legu starfsemi heimavíg-
stöðvanna og þá sjer í lagi
hinar snildarlegu skipulagn
ingar allsherjarverkfallsins
í fyrra sumar, hefir frelsis-
ráðið öðlast slíka viðurkenn
ingu, að einkunnarorðum
þess er hlýtt um gervalla
Danmörku, hvort heldur er
um að ræða verkföll eða
virka spellvirkjastarfsemi.
Lögreglan handtekin.
ÞEGAR Þjóðverjar lj'etu
til skarar skríða gegn
dönsku lögreglunni þ. 19.
sept. s.l., og sendu 1700
danska lögregluþjóna til
fangabúða í Þýskalandi, en
mörgum þúsundum tókst
þó að „hverfa”, varð fyrst
Ijós nauðsyn hinnar skefja-
lausu baráttu. Hin andstæðu
öfl horfðust í augu, en þó
þannig, að frelsishetjurnar
þektu aðferðir og viðhorf
Þjóðverja, en þeir voru ó-
kunnugir afstöðu "hennar. —
Öryggisleysið hjelt innreið
sína í hið danska rjettarríki.
Ef leitað var aðstoðar lög-
reglunnar, voru það Þjóð-
verjar einir, sem urðu fyrir
svörum.
Síðustu mánuði hafa Þjóð
verjar beitt ógnaraðfprðum
sínum í ríkara mæli en
nokkru sinni áður. Að vísu
tekst Þjóðverjum við og við
að höggva skörð í fylkingu
vora, en þeim hefir aldrei
tekist að lama baráttuþrek-
ið, og þegar einn fellur frá.
kemur annar í hans stað. í
bræði sinni reiða nasistar til
höggs gegn alsaklausum
borgurum, í þeirri von, að
nógu fantalegar ógnarað-
gerðir gegn hverjum, sem
er, þannig að enginn sje ör-
uggur. dragi úr andstöðunni
og megni að kúga þjóðina í
heild.
Frelsishreyfingin í Dan-
mörku er öflug, og hún er
sjer þess meðvitandi. Styrk-
ur hennar felst fyrst og
fremst í dugnaði og aga. —
Þjóðverjar hafa viðurkent
að starfskraftar hennar sjeu
frábærir. Þó hefir frelsis-
blað eitt á Jótlandi nýlega
birt það, í viðtali við spell-
virkjaleiðtoga einn. að liðs-
menn hans sjeu aðeins ó-
breyttir borgarar, sem enga
sjerþekkingu hafi á þeim
sviðum, sem þeim er falið að
starfa á.
Svifsprengjuframleiðslan.
ÞÓ ER EKKI að undra,
að Þjóðverjar haldi, að sjer-
fræðingar sjeu hjer að verki.
Hin snildarlegu spellvirki,
sem framin voru gegn Toro-
tor-verksmiðjunni 2. jan. s.l.
en sú verksmiðja framleiðir
hluta í rakettuvopn Þjóð-
verja, og er hennar því gætt
eins og framast er unt,
sanna hvef s ^ danskir spell-
virkjar eru megnugir.
Eins og nú standa sakir,
hafa spellvirkin gegn járn-
brautunum mesta þýðingu.
Á síðustu mánuðum hefir
engin lest, sem flutt hefir
þýska hermenn, komist leið
ar sinnar án mikilla tafa, og
margar hafa alls ekki komið
fram. Það tók heila viku að
flytja 3000 þýska hermenn
frá Nýborg til Litlabeltis-
brúarinnar. Talið er, að 752
spellvirkjaaðgerðir hafi átt
sjer stað gegn járnbrautun-
um frá upphafi hernámsins
og til 1. mars s.l. Þar af 519
á síðustu átta mánuðum. I
janúar og febrúar þ. á. hafa
verið framin 247 skemdar-
verk, þ.e.a.s. fimm á dag að
jafnaði síðan um nýár.
Churchill viðurkennir bar-
áttu frjálsra Dana.
HVAÐ hefði orðið upp á
teningnum, ef Þjóðverjar
hefðu megnað að spilla járn
brautarneti Englendinga um
það bil, sem innrásin var
hafin, þó ekki hefði verið
nema í smáum stíl í sam-
anburði við það, sem átti
sjér stað í Danmörku.
Leiðtogar bandamanna
hafa líka þakkað fyrir
hjálpina. Þegar Churchill
hafði sent hinn persónulega
nýársboðskap sinn til
dönsku heimavígstöðvanna,
barst tilkynning frá yfir-
stjórn bandamanna, þar
sem látið var í ljós, að spell-
virkin gegn dönsku járn-
brautunum hefðu stórvægi-
lega þýðingu. Blaðið Times
í London lagði baráttu
dönsku heimavígstöðvanna
að jöfnu við afrek strand-
varnarliðs breska flughers-
ins og norsku heimavíg-
stöðvanna.
Og síðasta, en vissulega
ekki sísta afrek dönsku
heimavígstöðvanna, er und-
irbúningur árásar breskra
flugvjela á Shell-húsið í
Kaupmannahöfn. en þar var
aðalbækistöð Gestapolög-
reglunnar þýsku. — Fjöldi
þýskra lögreglumanna og
danskra svikara beið bana
þegar stórhýsið hrundi til
grunna. Og skjalasafnið, er
var Þjóðverjum ómissandi,
en Dönum jafnframt stór-
hættulegt, var orðið að ösku
einni.
Fregnir berast frá Svíþjóð.
Danska þjóðfrelsisbarátt-
an er í mörgu tilliti háð á
grundvelli sjerstaks þjóðfje-
lags, sem Þjóðverjar hafa
enga aðstöðu til að fylgjast
með. Leyniblöðin hafa náð
slíkri fullkomnun, að þess
eru fá eða engin dæmi í öðr-
um löndum. Þau eru lesin af
allri þjóðinni og ber hún ó-
skorað traust til þeirra. Á-
reiðanlegar og nýjar fregnir
berast stöðugt, m. a. vegna
frelsis sænsku blaðanna,
sem við höfum samband við.
Fulltrúar dönsku blaðanna
í Stokkhólmi flytja frjettir
frá Danmörku, og berast
þær samdægurs út um heim.
En hverjar eru gagnráð-
stafanir Þjóðverja?
Áróður þeirra um komm-
únistahættu og hinar klaufa
legu tilraunir þeirra til að
sá óeiningu meðal Dana
heima og erlendis, bera eng
an árangur. Hin opinberu
blöð og Ríkisútvarpið eru
þvinguð til að birta ósvífinn
áróður, og nú er talið að út-
varpið eigi að taka að sjer
birtingu áróðursfregna. sem
ætlaðar eru hinum ensku-
mælandi heimi. Áður var
dönskum svikurum beitt til
þess að hafa ,,sefandi“ áhrif
á þjóðina, og hún hvött til
þess að sýna „skynsemi”. Nú
eru Þjóðverjar horfnir frá
slíkum aðferðum, en beita
þess í stað hinum illræmdu
ógnaraðferðum sínum.
Hin þýska ógnarstjórn í
Danmörku virðist nú vera
að ná hámarki.
Fyrir skömmu frömdu
danskir föðurlandsvinir
skemdarverk á járnbraut
Lindemanns hershöfðingja,
er var á leið frá Norður-
Jótlandi til aðalbækistöðv-
anna í Silkiborg.
Hershöfðinginn slapp ó-
meiddur, en hann varð mjög
skelfdur og æstur. og í bræði
sinni ljet hann kveikja í bú-
garði þar í nágrenninu, eftir
að hann hafði fengið lán-
aðan síma hjá bóndanum.
Búgarðurinn brann til
kaldra kola.
Nótt eftir nótt heyrir
dansl^a þjóðin draunurnar
af eyðileggingasprengingum
Schalburgliða og annars ó-
þjóðalýðs. Eina nóttina í
Odense. Það var þriðjudag-
ur. í Aarhus á miðvikudags-
nótt. í Randers á fimtudags-
nótt og föstudagsnótt í
Gienaa.
Þannig var ógnarstarfsem
in skipulögð eina vikuna, erx
markmið hennar er að kæfa
mótspyrnu föðurlandsvin-
anna. Þessar tryltu og brjál-
æðislegu eyðileggingar bitna
á öllum og öllu, lifandi og
dauðu.
HANN VAR HVORUGTi
London: — Nýlega var höfð-
að mál gegn frönskum mannl
í Bretlandi fyrir það, að hann
hefði strokið úr her Ðe Gaulle,
þar sem hann hefði verið und-
ir merkjum í eitt ár. Fyrir rjett
inum sannaðist, að maðurinn
var hvorki hermaður nje lið-
híaupi!