Morgunblaðið - 29.03.1945, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 29.03.1945, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagur 29. mars 1945. Útg.: H.f Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Rltstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettarit&tjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 7.00 á manuði innanlands, kr. 10.00 utanlands. í lausasölu 40 aura eintakið, 50 aura með Lesbók. Ógeðsleg skrif SVO SEM KUNNUGT ER, samþykti síðasta Alþingi lög um framlenging — um tveggja ára skeið — laga nr. 33 1928, en þau lög veita Eimskipafjelagi íslands ívilnun í skattgreiðslu, „enda verji fjelagið tekjuafgangi sínum, þá er það hefir greitt hluthöfum 4% arð, venjuleg sjóðs- tillög og útsvar samkvæmt framangreindum lögum, til kaupa á skipum eða á annan hátt í þágu samgöngumála og láti á yfirstandandi ári fara fram nafnskráningu hluta- brjefa fjelagsins og birtingu hluthafaskrár”, eins og segir í hinum nýsamþyktu lögum. Með þessum lögum er að því stefnt, að gera Eimskipa- f jelaginu kleift að auka skipastól sinn, ekki aðeins til þess að fylla í hið mikla skarð, sem orðið hefir í skipastól fje- lagsins, með missi tveg^ja bestu skipanna sem fjelagið átti, heldur og að afla fleiri skipa, eins og fjelagið hefir hug á að gera við fyrsta tækifæri. Ekki er vafi á, að þessi viðleitni Alþingis til þess að greiða götu Eimskipafjelagsins í því þjóðþrifastarfi, sem það vinnur að, er í fullu samræmi við óskir og vilja þjóð- arinnar, nær undantekningarlaust. En samt hafa þessar sjálfsögðu aðgerðir Alþingis komið af stað svo ógeðsleg- um skrifum í dálkum Tímans, að mann hryllir við til- hugsuninni, að til skuli vera íslendingar, sem geta látið annað eins frá sjer fara, því rætnari og óþjóðlegri skrif er vart hægt að hugsa sjer. ★ Síðasta kveðjan til Eimskipafjelagsins af þessu tagi birtist í Tímanum 23. þ. m. Hún er einstæð og tekur fram öllu öðru. Hjer er beinlínis gefið í skyn, að það hafi verið fjárhagslegur vinningur fyrir Eimskipafjelagið að missa Goðafoss og Dettifoss. Um þetta segir 'Tíminn: „Það er ólíklegt, að missir skipanna feli í sjer nokkurt fjárhagslegt áfall fyrir Eimskipafjelagið, þar eð skipin voru hátt vátrygð og fjelagið hefir önnur skip á hendinni í staðinn, sem hagstæðara er að reka. Hin töpuðu skip voru gamaldags, og hefði hvort sem var bráðlega orðið að farga þeim og fá önnur nýrri og heppilegri, ef fjelagið átti að geta orðið samkepnisfært eftir styrjöldina”. Þannig hljóðar hún, kveðjan frá ritstjóra Tímans til Eimskipafjelagsins, feftir missi tveggja bestu skipa fje- lagsins. Skyldu þeir vera margir, sem taka undir kveðjuna og senda ritstjóranum þakkir fyrir að hafa komið henni á framfæri Ef þeir eru einhverjir, væri gaman að sjá nöfn þeirra birt í Tímanum. ★ Fossarriir, sem fórust. voru gömul og úrelt skip, segir ritstjóri Tímans. Dettifoss var yngsta skip Eimskipafje- lagsins. Ef svo hefir verið með þetta skip, að það hafi ekki getað talist nothæft öllu lengur, hvað mætti þá segja um hin eldri skip, sem nú eru í eigu Eimskipafjelagsins Myndi ekki þörf á að endurnýja þau og fá önnur hentugri í þeirra stað? Og um Goðafoss er það að segja, að það er ekki nema rúmt ár síðan að kostað var 1-'/> milj. króna í allsherjar viðgerð á skipinu og var skipið í prýðilegu -standi og tvímælalaust fneð bestu skipum Eimskips. Og þegar Tíminn segir að vátryggingarfjeð muni bæta að fullu fjárhagstjón Eimskips, gleymir hann því, að skipin voru að miklu leyti í eigin vátryggingu fjelagsins, svo að tjón þess er mjög tilfinnanlegt. En þótt ritstjóri Tímans hirði ekkert um tjón Eimskips, vegna rótgróins haturs í garð fjelagsins, ætti hann að geta komið auga á tjón þjóðarinnar yið missi skipanna. Skipatjónið, Sem þjóðin hefir beðið við missi Fossanna, verður ekki bætt í bráð. Tíminn segir, að Eimskipafje- laginu standi til boða skíp, sem sjeu hentugri en þau er fjelagið misti. Þetta er rangt eins og annað hjá þessu blaði. Eimskipafjelagið hefir haft úti öll spjót til þpss að fá skip, en það hefir ekki.tekist og sáralitlar líkur til að það. hepnist fvrri en þá eftir | stríð. Eins og stendur er ekkert farþegaskipn':.ferðum mjllí íslapds og Ameriku. og þarf ekki að Jýsa því, hversú -bagalegt það er. > 'Uíhuerji á l rijar: ÚR DAGLEGA LÍFINU Páskar. NÚ FER páskahátíðin að hefj- ast. Það er misjafnt, hve páska- vikan er hátíðleg haldin í ýms- um löndum. Sumstaðar í kristn- um löndum er það aðeins föstu- dagurinn langi og páskadagur, sem eru helgidagar, en skírdag- ur og annar í páskum eru ekki hátíðlegir haldnir. Á Norðurlönd um og í þeim löndum, þar sem kaþólskur siður er hafður, er páskavikan mjög hátíðleg. Hin mikla helgi, sem hvílir yfir páska vikunni hjá okkur, mun eiga rót sína að rekja til kaþólskunnar hjer á íandi. En siðurinn er ekki verri fyrir það. Þó draga mætti úr fjölda helgi daga hjer á landi, sem eru fleiri en í flestum öðrum löndum, hygg jeg að páskahátíðin sje sú hátíð ársins, sem þjóðin vildi síst missa. • Gamanbrjef. FYRIR NOKKRUM dögum barst mjer gamanbrjef frá kven- manni, sem segist heita Laufey Lagarfljóts. Ekki verra nafn en hvað annað útaf fyrir sig, en ekki er það að finna í manntals- skránni hjer í Reykjavík og hlýt ur því persónan að vera utan- bæjarmaður. Hjer er hrafl úr brjefinu: ,,Elsku Víkverji. Jeg ætla að segja þjer frá dálitlu atviki, sem kom fyrir mig um daginn, at- viki, sem hefir gjörbreytt lífi mínu. Eins og þú veist, höfum við Snúlli verið trúlofuð í nokkra mánuði, og ætluðum að fara að gifta okkur. Jæja, eitt kvöldið kemur Snúlli heim með aðgöngu- miða í bíó og spyr, hvort jeg geti ekki komið með. Nei, elsku Laufey (það er jeg) gat ekki farið, hún var svo lasin. Alt í lagi, segir Snúlli, jeg sel bara miðana. „Já, gerðu það góði og komdu fljótt aftur“, sagði jeg. Snúlla seinkar. „Nú, SNÚLLI fór og jeg bjóst við honum þá og þegar, en ekki kom Snúlli. Klukkan II var hann ókominn, svo að það fauk í mig og jeg háttaði kl. 10. Morgun- inn eftir kemur vinurinn allur niðurdreginn og þrútinn. — ,,Heyrðu“, segi jeg og set upp svip, sem hefði fengið hvaða loft- vog sem var til að falla. „Hvar hefir drjólinn alið manninn?11 — „Haltu þjer á mottunni“, sagði Snúlli önugur. Það fór heldur að siga í mig. „Hvar hefi jeg ver- ið? Já, gettu, hvað heldur þú svo sem? Þeir settu mig í kjallarann á gamla Pósthúsinu (við hliðina ,á þvi nýja, sem Mka er orðið gamalt). „Já, einmitt. Hvað drakstu?" spyr jeg. „Drakk jeg?“ segir hann. „Og fjárann ekki neitt“. „Nú, því settu þeir þig þá inn?“ „Jú, jeg fór að selja miðana, og þá veit jeg ekki fyr en einn stór og herðabreiður þrífur í öxl- ina á mjer og skipar mjer að koma með sjer á stöðina. Þar var jeg ákærður fyrir kvikmynda- húsaðgöngumiðaokur. Jeg reyndi að koma vitinu fyrir þá (en það var víst ekki fyrir hendi), og þeir sögðu, að jeg væri altof gam ansamur og vísuðu mjer til her- bergis á neðri hæð hússins. — Þetta er alt“, sagði Snúlli. Það fóru að renna á mig nokkrar grímur og ætlaði að fara að vera góð, en þá umsnerist Snúlli og sagði öskuvondur, að þetta væri alt honum Víkverja að kenna. Hann væri altaf að ragast í hinni frjálsu miðasölu“. • Heilræði til Laufeyjar og Snúlla. HAFI LAUFEY þakkir fyrir brjefið. Það sýnir best, hvernig farið getur fyrir mönnum, sem reyna að koma bíómiðunum sín- um í peninga á frjálsa (eða svarta?) markaðnum. Það er ekk ert auðveldara, ef menn vilja losna við miðana sína, en að skila þeim aftur í aðgöngumiðasöl- una. Það er öil kúnstin, kæra Laufey. Segðu Snúlla það og þá er engin hætta á, að hann lendi i kjallaranum. • Óþarfa ótti vegna berklaskoðunar. ÞAÐ HEFIR komið fyrir og kemur sjálfsagt oft fyrir aftur, að fólk, sem röntgenskoðað er vegna berklaskoðunarinnar í Landspítalanum, verður að koma aftur til myndatöku vegna þess, að mynd hefir skemst. Það þarf ekki að vera annað en að nafn viðkomandi manns hafi komið illa út, eða að óhapp komi fyr- if, eins og nýlega átti sjer stað í myrkvastofu þeirri, sem mynd- irnar eru framkallaðar í. Þar varð skammhlaup á rafmagns- leiðslu og kom taisverður blossi, sem olli því, að allar þær mynd- ir, sem voru til framköllunar í það skiftið, eyðilögðust. Við slíkum óhöppum er ekki hægt að gera. Það er reynsla bæði hjer og erlendis, að nokkur hundraðshluti myndanna skemm ist og þessvegna nauðsynlegt, að myndir sjeu teknar af viðkom- andi á ný. Við þessu er bókstaf- lega ekkert að segja. En það er aðeins eitt atriði, sem menn hafa kvartað við mig útaf í þessu sam bandi og það er, að ekki skuli vera getið þess, þegar fólki er stefnt aftur til myndatöku, að fyrri myndin hafi mistekist. Sumir, sem fá slíkar tilkynn- ingar, verða dauðhræddir um, að þeir sjeu boðaðir aftur vegna þess, að þeir sjeu sjúkir. Jeg er viss um, að þetta verður lagað, úr því búið er að benda á það. • Gleðilega páska. VIÐ byrjuðum dálkinn okkar í dag með því að minnast á páska hátíðina, sem fer í hönd og höf- um síðan rabbað saman í gamni og alvöru, eins og vant er. Nú er langt þangað til Morgunblaðið kemur aftur út. Ekki fyrr en á miðvikudag í næstu viku verða gefin út morgunblöð hjer í bæn- um. Jeg vil því nota tækifærið til að bjóða öllum mínum lesendum gleðilega páska og óska þess, að frídagarnir og hátíðisdagarnir megi verða hinir ánægjulegustu. Ykkar \Jí[ v e rji Á INNLENDUM VETTVANGI MÁLTÆKIÐ segir: Segðu mjer, hverja þú umgengst, þá skal jeg segja þjer, hver þú ert. En bækur eru líka fjelagar manna. Og því mætti bæta þessu við: Segðu mjer, hvað þú lest, þá skal jeg segja þjer, hver þú ert. Jafnvel með því að líta í bókaskáp náungans, er hægt að gera sjer hugmynd um áhuga- mál hans, smekk og hugðarefni. Aliir, sem nokkurs hafa aflað sjer af bókum, eiga fleiri eða færri kvæðabækur, eftir þau skáld okkar, sem þeim fellur best í geð. En mjög er það misjafnt, hve oft þær kvæðabækur eru snert- ar. Margir láta sjer nægja að kynna sjer kvæðin meðan bæk- urnar eru nýjar eða nýkomnar í eigu manns. Síðan eru ljóðabæk- urnar settar upp í hillu, og sjald an hreyfðar, nema einu sinni eða tvisvar á ári, þegar aðalhrein- gerningar fara fram og bækurnar eru viðraðar. En þéir sem eiga í bókaSkáp- um ' sínum kvæðabækur margra (■ða flestra góðskálda okkar, æt-tu Að lesa kvæði að venja sig á að leita sjer á- nægju, með því að lesa í þessum jbókum í tómstundum sínum, á sunnudögum eða í öðrum frítím um. Með því móti leita menn í góðan fjelagsskap. ) Flestir kunna ekki nema til- tölulega fá kvæði eftir höfuð- skáld okkar, kannast við fleiri, kunna kannske eitt eða tvö er- indi úr kvæðum, sem þeir hafa lært í söng. En því fer oft fjarri, að það sjeu bestu erindi kvæð- anna, sem oftast eru súngin. Með aldrinum breytist líka smekkur manna á kvæðum. Mörg kvæði, sem manni þóttu lítils virði eða kunni ekki að notfæra sjer á árum áður, standa kannske í alt öðru ljósi, þegar þau eru lesin á ný. Og eftir því sem menn lesa og kynnast fleiri kvæð um eftir sama góðskáldið, fá menn meiri ánægju af ljóðasafni hans, læra að skilja og meta rjett hugsanir og hugsjónir okk- ar bestu ándans manpa. ■ h-m-io ★ ’ f; Nú koma engih b!öð út í- Reykjavík >í 5 daga samfléytt, því ekkert er unnið í prentsmiðj- um á laugardaginn fyrir páska. Jeg er ekki að nefna þetta vegna þess, að mjer detti i hug að það sem dagblöðin flytja, jafn vel á stórhátíðum, gæti á nokk- urn hátt að efni eða formi verið sambærilegt við ljóð skáldanna. En það er nú einu sinni svo, að lestur dagblaðanna er fastur þáttur í lífi nútímamanna. Þeg- ar engin blöð koma út, þá finst mörgum dagarnir vera eitthvað tómiegri. Sumir bera þann sökn- uð þó með mikilli hugprýði og segja, að, þeir sjeu guðslifandi fegnir að sjá engin blöð. Þeir viljí helst aldrei sjá nein blöð. Þetta eru m. a. þeir menn, sem skamma blöðin 360 daga á ári og halda, að það sje alveg sjálfsagður menningarvottur að skamma blöð in. En þeir eru ékki ófúsari en aðrir að ná sjer í frjettablöð, þeg ar þau eru fáanleg.. En sannleikurinn er sá, öð ,,á þéssum umrótstímum", éins og svo fagurlega er oft komist að orði, þá á fólk fult í fangi með Frambald á 8. síðtL

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.