Morgunblaðið - 06.06.1945, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.06.1945, Qupperneq 1
82. firgangur. 123. tbl. — Miðvikudagur 6. júní 1945 ísafoldarprentsmiðja h.f.* Somningur gerður um f yrirkomulug hernúms Þýskulunds Rússar ekki samvinnu- ■ r >%*■ pyoir London í gærkveldi: TILKYNNING hefir verið gefin út af brésku nefndinni í San Francisco um misklíð þá, sem orðið hefir þar út af neit- unarrjetti stórveldanna í örygg isráðinu svonefnda. Eins og kunnugt er, vilja Rússar einir, að stórveldi geti haft rjett til þess að neita því, að mál verði tekin fyrir í ráðinu, en það vilja hin stórveldin ekki, og segir í tilkynningu. Breta, að ef þetta kæmist á, væri það sama og stórveldin sætu méð fjötraðar hendur í i’áðinu. Samveldislöndin bresku hafa skorað á Breta, að slaka ekki frekar til fyrir Rússum í máli þessu, og gera ekki málamiðl- un. I tilkynningu bresku nefnd arinnar segir, að Rússar hafi verið allra manna ófúsastir á að slaka nokkurn skapaðan hlut til i nokkru máli, og verði því ó- mögulegt að láta undan þeim. Málamiðlun og samkomulag geti það als ekki kallast, að ann ar aðilinn, eða nokkrir aðilanna láti altaf undan, en einn aldrei. — ReUter. Hamsun rekinn úr sambandi listamanna K.-höfn í gær : Norska listamannasambandið hefir strikað Knut Hamsun út sem heiðursmeðlim, Hamsun er stöðugt í stofufangelsi. Ekkert er. enn afráðið um málshöfðun á hendur honum. — Páll Jónsson. Hundrað þúsund læra landbúnaðar- síörf London í gærkveldi: BRESKA landbúnaðarráðu- neytið hefir ákveðið, að 100.000 manns læri landbúnaðarstörf ýmis á næstunni. Verða þetta bæði karlár og konur, aðallega þó menn úr hernum. Kennt verð ur hver grein, sem fólkið helst æskir að læra, en það fær inni í bóndabæjum, eða í sjerstökum bækistöðvum. Bændur munu greiða þessu fólki nokkuð af kaupinu, en ríkisjóður nokkuð. Retta mun gert, til þess að ,.ala upp“ aukinn mannafla í land- búnaðinum breska. — Reuter. Virðing votluð iátnum Biskupinn yfir íslandi minnist á Siómannadaginn hinna 58 manna, er farist höfðu í hafið á s. 1. ári. Fánabcrar votta hinum látnu virðingu sína. Rússar heiðra hershöfðingja *London í gærkvéldi. í ÚTVARPI frá Moskva í kvöld var skýrt frá því. að hers höfðmgjarnir Eisenhower og Montgomerv hefðu verið sæmd ir æðsta heiðursmerki Sovjet- ríkjanna, sigurorðunni svo- nefndu. Suvorovorðunni svokölluðu var de Tassigny hershöfðingi sæmdur. Sigurorðan er setl demönt- um, og er virði hennar áætlað um 3.750 sterlingspund. Reuler. Kosningabarállan í Bretfandi hafin • London í gærkvöldi. Kosningabaráttan í Bretlandi er nú byrjuð. Verða fluttar ræð ur í útvarpið af fulltrúum stærstu flokkanna þriggja, og byfjaði þetta í gær með. því að Churchill forsætisráðherra flutti útvarpsræðu. Talaði hann um það, að hann hefði ekki ver ið hlyntur þessum kosningum. Hann deildi mjög fast á ríkis- fyrirkomulag sósíalista, ríkis- rekstur og hömlum þeim, sem því fylgdi. Sagði Churchill að slíku ríki væri ekki hægt að stjórna, nema með ríkislögreglu, og yrði þá frelsi einstaklingsins að fullu afnumið. Sagði hann, að íhaldsflokkurinn vildi berj- ast gegn öllum óeðlilegum hömlum á framtaki einstakl- ingsins. Hann sagðist ekki frem ur en fyrr geta nje vilja lofa þjóðinni gulli og grænum skóg um. — Reuter. (hurchi!! Gauiie London í gærkveldi: Churchill ræddi Sýrlandsmál in í neðri málstofu breska þings ins í dag. Rakti hann sögu mál- anna, en kvaðst ekki svara þeirri staðhæfingu De Gaulle, að allar óspektirnar hefðu ver- ið því að kenna, að Bretar skár ust í leikinn. Churchill sagði, að óánægja hefði byrjað í Sýr- landi, þegar vitnast hefði þar, að Frakkkar væru að flytja þangað her, þótt samningaum- leitanir stæðu yfir, en þessar samningaumleitanir — sagði Churchill — að hefði verið Bret um að þakka, að voru teknar upp. Fullyrti ráðherrann, að Bretar hefðu enga landvinninga í huga austur þar, en vildu hins vegar tryggja samgönguleiðir sínar austur á hernaðarsvæðið, þar sem barist er við Japana. Churchill kvað það hryggja sig, að áskorun sín um að Frakk ar legðu niður vopnin í Sýrlandi hefði ekki borist De Gaulle fyrr en eftir að hún hafði verið lesin af Eden i breska þinginu, sagði hann þetta vera sprottið af mis tökum, en ekki af ókurteisi. — Reuter. Landamæri Þýska- lands tilgreind London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. FJÓRIR ÆÐSTU herforingjar bandamanna, sem sæti eiga í hernámsstjórninni í Þýskalandi, hafa undirritað samning í Berlín um fyrirkomulag hernáms Þýskalands. Hershöfðingjarnir eru Montgomery, Eisenhower, Zhukov og de Tassigny. . 1 * í samningnum eru landamæri Þýskalands tilgreind. Skuli þau vera hin sömu og þau voru, áður en Þjóðverjar her- tóku Tjekkóslóvakíu og Aust- urríki. Þá er og í samningnum því formlega lýst yfir, að banda menn hafi tekið í sínar hendur stjórn allra mála í Þýskalandi. Allsherjarstjórn, skipuð fulltrú um Bandaríkjamanna. Breta, Frakka og Rússa, með sjerfræð inga sjer til aðstoðar, mun taka til alls landsins, sem annars er skift í sjerstök hernáms- svæði milli þessara aðilja. Niemoller vildi fara í herinn Neapel í gærkvöldi. ÞÝSKI presturiim Niemöll- er, sem var kafhátsforingi í fyrra stríðinu og sat mörg ár í fangelsi í Þýskatandi, ját- aði hjer í dag, að hann hefði, boðið ,sig frani til her]>jónustu í septemt)er 1939. „Ef styrjöld er skollin á“, sagði hann. ,,þá spyr enginn' Þjóðverji, livort hún s.je rjett- lætanleg eða ckki, heldur finst honum hann verða að bjóða sig fram til herþjónustu. Jeg sá elstu syni mína fara í her- inn. Jeg gat ekki setið í fang- elsi. meðan synir mínir útheltu blóði sínu í styrjöld fyrir land sitt. Jeg varð að gera alt sem jeg gat, til þess aö kom- ast í herinn“. Niemölter kvaðst hafa beð- ið Keitel marskálk að koma s.jer í herinn, en hann hefði neitað um viðtal. — Reuter. S, S.-menn berjasf t Austurríki Ziirich í gærkveldi: HINGAÐ hafa borist þær frjettir frá Innsbruck, höfuð- borg Tyrol, að um 300 SS-menn berjist við amerískar hersveitir i Austurríki. Eru í fangabúðum. LONDON: í einum af illræmd sutu fangabúðum Norður-Þýska lands, eru nú 8000 SS-menn, sem Bretar hafa sett þangað. — Haga þeir sjer yfirleitt vel, en sumir eru að vísu all-baldstýr- ugir. — Reuter. Tito vill berjast fil landa n.ondon i gærkveldi. Tito marskálkur flutli ný- lega ræðu í Belgrad, og sagði þar, að Jugoslafar hefðu sjálf- ir frelsað bæði hjeraðið Kránten í Austurríki og skagann, sem Trieste stendur á, og bæri þeim rjetlur til þessara landa. Sagði Tito, að Jugoslafar hefðu verið neyddir til þess að fara með her sinn frá Kránten, en þetta væi’i hjerað, sem þeim til heyrði. og myndu þeir berjast um það, ef þörf kræfi. Hernámssvæðin. Samkvæmt samningum er Þýskalandi skift í hernáms- svæði, og hafa Bretar, Banda- ríkjamenn, Frakkar og Rússar hverjir um sig ákveðið her- námssvæði. Hernámssvæði Rússa er austurhluti landsins, noi’ðvesturhlutinn Breta, suð- vesturhlutinn Bandaríkja- manna og vesturhlutinn Frakka. Að því er Berlín snert- ir, verður fyrirkomulagið þann ig, að Bretar, Bandaríkjamenn, Frakkar og Rússar ráða borg- inni í sameiningu, en skiftast á um að eiga yfirmann her- námsstjórnarinnar þar. Mörk hernámssvæðanna hafa ekki verið nákvæmlega tilgreind ennþá. Aðstæðurnar. Fyrirkomulag þetta er rök- rjett afleiðing af skilyrðislausri uppgjöf Þjóðverja. Þegar Þjóð- verjar gáfust upp, skuldbundu þeir sig um leið til þess að verða við öllum þeim kröfum, sem bandamenn kynnu að gera á hendur þeim. Þýskaland hefir enga alsherjarstjórn, sem hald- ið getur uppi reglu í landinu eða ábyrgst, að við kröfum bandamanna sje orðið. Banda- menn verða því sjálfir að sjá svo um, að við kröfum þeirra sje orðið og jafnframt að skapa slíkt ástand í Þýskalandi, ‘að þjóðin geti fullnægt kröfum þeirra. Sænskt hjúkrunarlið til N.-Noregs. I Stokkhólmsfregnum segir frá því, að sænskri læknar og hjúkrunarkonur sjeu faíin til Norður-Noregs til þess að veita fólki þar aðstoð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.