Morgunblaðið - 08.08.1945, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 08.08.1945, Qupperneq 1
ATÖMÖRKAN BEISLUÐ Sprengjur sem þurka út heilar borgir „Getur orðið mam- kyninu til blessun- ur, eðu tortímingur“ London í gærkveldi. Einkaskeyti tii Mbl. frá Reuter. „HIN NÝJA UPPFYNDING VÍSINDA- MANNA bandamanna, aðferðin til að hagnýta orku atomsins, er þýðingarmeiri en uppfynding raforkunnar“, sagði Sir John Anderson í útvarpi í kv.öld. En hann er maðurinn, sem Churchill fól að stjórna og hafa eftirlit með atomrannsóknum visindamannanna. ,,Það er mikið vandamál að stjórna þeirri óhemju orku, sem fundin hefir verið og það þarf alla þá stjórnmálavisku, sem stjórn- málamenn bandamanna ráða yfir. Stjórnmála- ;nenn hinna sameinuðu þjóða geta ekki fengið meira vandamál til að glíma við, þegar þeir setjast að samningaborðinu‘c. TIL GÓÐS EÐA ILLS "„Það má vel vera, að til sjeu stofnanir, sem bíða þess með óþreyju að nota þessa ómælisorku til góðs fyrir Eramh. á 2. síðu Þjóðverjur höiðu - nær fullgert utsm- sprengjur London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgun- blaðsins frá Reuter. ÞAÐ ER lítill efi á, að Þjóðverjar höfðu nær lokið tilraunum sínum við framleiðslu atomsprengna og samkvæmt upplýsingum, sem Reuterfrjettastofan hefir aflað sjer, áttu hinar nýju atom- sprengjur að vera tilbúnar í októbermánuði. Þjóðverjar hjeldu því fram, að sprengjur þær, sem þeir höfðu í undirbúningi myndu eyðileggja allt í 8 kílómetra fjarlægð, þar sem sprengjan kæmi niður. Þýsk tiiraunastöð fanst. Bretar hafa i'undið eina af til raunastöðvum Þjóðverja, sem var í smábæ fyrir norðan Ham- borg'. Fjöldi Lundúnabúa, sem sá litlar sprengjur falla til jarð ar í fallhlífum úr flugvjelum Þjóðverja, eru nú að velta því fyrir sjer, hvort það geti ekki verið, að sprengjur þessar, sem lýstu frá sjer með afar sterku og skæru ljósi, hafi verið tilrauna atomsprengjur Þjóð- Sprengja bandamanna 400 pund? Ekki hefir verið birt nein lýsing á hinni nýju sprengju bandamanna opinberlega, en ástæða er til að halda að hún sje um 400 pund að þyngd. Bæði Lancaster og risaflugvirki gætu flutt tugi slíkra sprengna í einni ferð og sáð þannig dauða og eyðileggingu yfir japanskar borgir á stuttum tíma. Tæki, sem nofað er vfð afom- sprengingar Hjer birtist mynd af einu risa- j tæki Bandaríkjamanna, sem fajörbreyting œ hern- uðaruðferðum Tveir kostir Jupunu: Uppgjöf, eðu eyðing London í gærkveldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. BRESKIR OG BANDARÍSKIR vísindamenn hafa fundið upp aðferð til að hagnýta orku atoms- ins. Er þetta álitin einhver mesta uppfynding, sem nokkru sinni hefir verið gerð, og getur hún haft meiri þýðingu fyrir mannkynið en nokkur önnur vísindaleg uppgötvun, sem kunn er til þessa. AJeð þessari orku hefir tekist að framleiða sprengju sem hefir álíka mikið sprengjumagn og 20.000 þeir hafa notað við atomspreng smálestir af dynamiti, eða sem er á við 2000 tiu ingar og rannsóknir ó kjarna- klofningi. Þetta er háspennu- tæki, sem getur gefið 4 miljón smálesta sprengjur. Hefir þegar einni sprengju verið varpað á japanska borg. slíkri volta rafmagnsspennu. *---------------------—»-f • ' i „Dýrmælara en alt gull jarðar" ÞORBJÖRN SIGUR'- GEIRSSON mag. science, sem um tíma vann við at- omrannsóknir hjá Niels Bohr prófessor og er nú farinn til Ameríku til að vinna við samskonar rann sóknir, skrifaði grein um atomrannsóknir í Lesbók Morgunblaðsins"20. maí s. 1. Greinin er ítarleg grein- argerð um þessar merki- legu rannsóknir. Þar seg- ir m. a.: ,,. . . Ef takast mætti að beisla orku atomukjarn- ans, væri það miklu dýr- mætara en alt gull jarð- arinnar. Þetta myndi koma í veg fyrir þá hættu, sem stafar af, að allar kolanám ur og allar olíulindir heimsins verði tæmdar. Það myndi gera það mögulegt fyrir skip og bíla að ganga árum saman, án þess að bæta á sig elds- neýti . . TRUMAN FORSETI TILKYNNIR UPPFYNDINGUNA Heimurinn fjekk að vita um þessa merkilegustu upp- fyndingu í sögu vísindanna frá Truman forseta Banda- ríkjanna á mánudag er hann skýrði frá loftárás á jap- anska iðnaðarborg, Hiroshimo, með einni atomsprengju. Mönnum varð strax ljóst af tilkynningu forsetans, að hjer var um uppfyndingu að ræða, sem mun gerbreyta öllum hernaðaraðferðum, sem hingað til hefir verið beitt. Sú þjóð, sem hefir slíkar sprengjur getur gereytt heilum borgum á skömmum tíma. JAPAN LAGT í RÚSTIR Það er nú á valdi bandamanna að leggja Japan gersam- lega í rústir, eins og þeir hótuðu að gera, er þeir sendu Japönum friðarkosti og skoruðu á þá að gefast upp áður en til þess kæmi. Áskorun þessi, sem gefin var út frá ráð- stefnunni í Potsdam á dögunum, var virt að vettugi af Japana hálfu. Nú er talið, að Japönum verði gefinn einhver frestur til þess, að gefast upp, áður en hinum nýju atomsprengj- um verður varpað á Japan í stórum stíl og borgum lands- ins gereytt. ÓKUNNUGT UM SKEMDIR í HIROSHIMO Það er ekki vitað hve miklu tjóni atomsprengjan olli, sem varpað var á Hiroshimo. Þegar flugvjelar banda- manna fóru þar yfir á mánudag til að taka myndir af skemmdunum, var öll borgin hulin reyk og eldi. Japanar hafa tilkynt, að bandamenn hafi varpað nýrri gerð sprengná á japanska borg, en forðast að gefa upplýsingar um tjónið. Hinsvegar hefir ráðuneytið í Japan haldið skyndifund, sennilega vegna þessa. Framh. á 2. siðu-

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.