Morgunblaðið - 08.08.1945, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 08.08.1945, Qupperneq 2
2 MORGCNBLAÐIÐ Miðvikudagur 8. ágúst 1943 — Atomkjarnaorkan Framh. af bls. 1. ! ORÐ CHURCHILLS. í sambandi við fregnina um atomsprengjurnar nýju og gereyðingu Japan, ef ekki verður gengið að friðarkostum bandamanna, er mint á orð Churchills, er hann ljet af for- sætisráðherraembættinu á dögunum, en þá sagði hann, að stvrjöldinni við Japana myndi ljúka fyr, en menn hefðu hingað til haft leyfi til að gera sjer vonir um. Það var Churchill fyrv. forsætisráðherra, er tilkynti frá London um uppfyndingu hinna bresku vísindamanna. Breskir vís- indamenn höfðu hafið rannsóknir í byrjun styrjaldarinn- ar, en þeir Roosevelt forseti og Churchill höfðu komið sjer saman um, að rannsóknir allar skyldu fara fram í Amer- íku, þar sem sprengjuflugvjelar Þjóðverja gætu ekki náð að granda tilraunastöðvúnum. Fóru allar tilraunir fram með hinni mestu leynd. Hingað til hafa tilraunir þær, sem farið hafa fram á atomsprengjunum kostað 13 miljarða dollara. NIELS BOHR VANN AÐ RANNSÓKNUNUM Hermálaráðuneyti Bandaríkjanna hefir skýrt frá því, að hinn frægi danski vísindamaður Niels Bohr, sem hefir um margra ára bil fengist við atomrannsóknir og hlotið No- belsverðlaunin 1922, sem viðurkenningu fyrir þær, hafi aðstoðað vísindamenn Breta og Bandaríkja við rannsókn- irnar, sem leiddu til uppfyndingarinnar. Sænska blaðið „Dagens Nyheter“ segir, að Þjc/ðverjar hafi ætlað sjer að fá Bohr til þess að aðstoða þá við rann- sóknir þeirra viðvíkjandi atomsprengjum, en Bohr hafi flúið til Svíþjóðar. Gestapomenn voru á hælunum á hon- um. Danskir frelsisvinir sendu þá sænsku lögreglunni til- mæli þess efnis, að hún bjargaði Bohr undan Gestapo, sem lagði sig í framkróka um að koma í veg fyrir það, að bandamönnum gætu orðið not hæfileika hans. Sænska lögreglan brá við og gat með ýmsum brögðum komið Bohr til breska sendiráðsins í Stokkhólmi. Þaðan fór Bohr með Mosquitoflugvjel til Englands og tók til við að aðstoða bandamenn við atomrannsóknir. - Ummæli Sir John Andersons Framh. af 1. síðn. mannkynið”, hjelt Sir John áfram. „En það má eins vera, að þessi örka verði til þess, að draumar brjálaðra ofstæk- ismanna um gereyðingu og eymd rætist”. Áður hafði Sir John látið svo um mælt við Reuter: „Við verðum að sjá til þess, að þessi gríðarlega frumorka verði notuð í þágu mannkynsins til góðs”. AÐEINS í EYÐILEGGINGARSKYNI „Hingað til”, sagði Sir John ennfremur, „hafa allar rannsóknir í þágu þessarar merkilegu uppgötvunar ver- ið gerðar í eyðileggingarskyni. En rannsóknirnar munu koma að gagni þegar vísindamennirnir snúa sjer að því, að nota orkuna, sem nú er notuð í sprengjur í þágu iðn- aðarins”. OF DÝRT EINS OG ER „Mín skoðun er sú, að það mun taka alllangan tíma þar til atomorkan verður það ódýr í framleiðslu, að hún geti komið í stað kola og olíu, sem orka fyrir vjelarnar. En ef hægt' er að nota hina nýju orku-uppfinningu fyrir vjel- ar, þá verður hvorki meira nje minna en bylting á iðnað- arsviðinu”. Aðrir vísindamenn hafa látið svo um mælt við Reuter, að í þeirra augum sje um óhemjumikla möguleika að ræða og það meiri möguleika, en hægt sje að gera sjer ljóst, á þessu stigi málsins. UMMÆLI HEIMSBLAÐANNA Öll blöð heims ræða hina nýju uppgötvun og segja frjettina með sínum stærstu letrum. Mörg blöð minnast á þá byltingu, sem þessi uppgötvun hljóti að hafa í för með sjer. Mörg benda á þá hættu, sem getur stafað af atomorkunni, sem vopni og velti á mestu hvernig á verði haldið. Washington Post segir til dæmis: „Ef þjóðir heimsins geta ekki nú lifað í sátt og samlyndi, þá verður ekki langt þangað til þær geta alls ekki lifað”. New York Times segir: „Menningin og mannúðin geta nú aðeins átt framtíðar von, að mannkynið gerbreyti um stjórnmálalega stefnu”. New York Herald Tribune skrifar: „Það er ekki neitt annað að gera, en að vona í einlægni, að manninn beri gæfa og vit til að nota þessa orku til annars en sjálfs- qyðingar”. Síldaraflinn helmingi minni en á sama tíma í fyrra SÍÐASTLIÐINN laugardag var bræðslusíldarmagnið orðið samtals 364.570 hektólíti'ar. Er það rúmum 322 þúsund hektó- lítrum minna, en á sama tíma og í fyrra. Aflahæsta síldveiðiskipin er Snæfell frá Akui'eyri, með 5206 mál. Annað hæsta er Dagný frá Siglufirði með 5008 mál og þriðja er Narfi frá Hrísey. með 4859 mál. Japanska borg- in hvarf WASHINGTON í gærkveldi: Flugmennirnir, sem voru í flu- vjelinni er varpaði atomsprengj unni á Hiroshima á mánudag, skýra svo frá, að borgin hafi bókstaflega horfið, þegar sprengingin varð. Flugmennirnir flýttu sjer frá eins fljótt og þeir gátu eftir að þeir höfðu varpað sprengjunni. Voru þeir komnir um 16 km. frá þar sem sprengingin varð, en samt hristist flugvjel þeirra, eins og hún flygi i gegnum harða loftvarnabyssukúlnahríð. Skömmu eftir að sprengjan sprakk, gaus upp reykur í 40.000 feta hæð. „Það er ótrú- legt, að nokkuð sje eftir af þessari borg“, sagði aðalflug- maður vjelarinnar. Hermálaráðuneytið hjer til- kynnir að verið sje að vinna úr ljósmyndum, sem teknar voru af sprengingunni og vérði nán- ari upplýsingar birtar á morg- un (miðvikudag). — Reutér. Ferðalög um versl unarmannahelgina EFTIR því, sém blaðið hefir fregnað hjá Ki'istjáni Skagfjörð gekkst Ferðafjelag íslands fyr- ir tveim ferðum nú um versl- unarmannahelgina. Annar hópurinn, um 70 manns, fór upp að Hvítárvatni, Kerlingarfjöllum og Hveravöll- um. Var lagt af stað á laugar- dag, gist í sæluhúsum Ferða- fjelagsins á þessum stöðum og komið aftur í bæinn á mánu- dagskvöld. Var veður sæmilegt á laugar- dag ög mjög gott á sunnudag, en þá gengu flestir á Kerlingar- fjöll og nutu hins glæsilega út- sýnis í ágætu skygni. Hin ferðin var farin út á Snæfellsnes og Breiðafjarðar- eyjar. Á sunnudaggnóttina var gist í Stykkishólmi, en siglt um Bx-eiðafjörðinn á sunnudag í besta veðri. Þátttakendur í þess ari ferð voru nálægt 50. Þóttu báðar ferðirnar takast með á- gætum. — Þá mun starfsfólk ýmsi’a fyrirtækja einnig hafa farið í ferðalög um helgina. Þá hefir Hjörtur Hansson, form. V. R. skýrt blaðinu svo frá, að hátíðahöld verslunar- manna hafi farið fram samkv. áætlun. Enduðu verslunarmenn hátíðahöld sín með dagskrá í útvarpi, en dansleik að Hótel Borg á mánudagskvöld. Orðsending við- víkjandi Poisdam- álykfunum Madrid í gærkveldi. SPÁNSKA stjórnin hefir sent sendisveitum Breta og Banda- ríkjamanna í Madrid orðsend- ingu viðvíkjandi ályktunum þeim, sem gerðar voru á Pots- dam-ráðstefnunni og snertu Spán. Ekkert hefir enn verið láticí uppi um efni orðsendingarinn- ar. — Reuter. Blaðið fekk í gær skýrslu hjá Fiskifjelagi íslands yfir afla hvers skips og er miðað við mál í bræðslu. Bræðslusíldin skiftist þannig á verksmiðjurnar: H.f. Ingólfur, Tngólfsfirði, 32721. H.f. Djúpavík, Djúpavík, 40742. Ríkisverksmiðjurnar, Siglufirði, 90948. Síldarverk- smiðja Siglufjarðarkaupstaðar 12117. H.f. Kveldúlfur, Hjalt- eyri, 67146. Síldarbræðslustöð- in Dagverðareyri h.f. 9830. Rík- isverksmiðjan, Raufarhöfn, 96795. Ii.f. Síldai'bræðslan, Seyðisfirði 14271.' Samtals 4. ág. 1945 364.570. Þá fer hjer á eftir saman- burður á aflamagni frá árinu 1942: 5. ágúst 1944. 687.366. 7. ág. 1943 860.969. 8. ágúst 1942 1.201.547. íslendingur, Reykjavík, 2539. Ólafur Bjarnason, Akranesi, 3004. Gufuskip: Alden, Dalvík, 2851. Ármann, Rvík, 1634. Bjarki, Siglufj. 2394 Eldey, Hrísey, 2752. Elsa, Rvík, 2374. Huginn, Rvík, 3960. Jök- ull, Hafnarfj., 2569. Sigríður, Garður, 1121. Mótorskip (1 um nót); Álsey, Vestm., 2663. Andey, Hrísey, 2692. Anna, Ólafsfirði, 815. Ársæll, Vestm., 958. Ás- björn, Akranes, 600. Ásgeir, Rvík, 2213. Auðbjörn, ísafirði, 640. Austri, Rvík, 1464. Baldur, Vestm., 1266. Bangsi, Bolung- arvík, 984. Bára, Grindavík, 546. Birkir, Eskifirði, 1179. Bjarni Ólafsson, Keflavík, 204. Björn, Keflavík, 1613. Bragi, Njarðvík, 446. Bris, Akureyri, 994. Dagný, Siglufirði, 5008. Dagsbrún, Reykjavík, 238. Dóra Hafnarfj., 2342. Edda, Hafnarfj. 4573, Edda, Akureyri, 2244. Eg- ill. Ólafsf., 990. Eldborg, Borg- arnesi, 4532. Erlingur II., Vestm 484. Erna, Sigluf., 2429. Ernir, Bolungarvík, 423. Fagriklettur, Hafnarf., 4113. Fiskaklettur, Hafnarf., 3348. Freyja, Rvík, 4590. Friðrik Jónsson, Rvík, 3105. Fróði, Njarðvík, 707. Fylk ir, Akranesi, 1650. Garðar, Garð ur, 294. Geir, Sigluf., 1162. Geir goði, Keflavík, 308. Gestur, Sigluf., 121. Glaður, Þingeyri, 2298. Gotta, Vestm., 8. Grótta, Sigluf., 1538. Grótta, ísafirði, 4531. Guðmundur Þórðarson, Gerðar, 1445. Guðný, Keflavík, 1399. Gulltoppur, Ólafsf., 1648. Gullveig, Vestm., 86. Gunn- björn, ísaf., 1870. Gunnvör, Sigluf., 2799. Gylfi, Rauðavík, 812. Gyllir, Keflavík, 250. Haf- borg, Borgarnes, 1043. Heimir, Vestm., 1351. Hermóður, Akra- nesi, 1064. Hilmir, Keflavík, 981 Hólmsberg, Keflavik, 432, Hrafnkell goði( Vestm., 1730, Hrefna, Akranesi, 531. Hrönn, Sigluf., 548. Hrönn, Sandgerði, 1124. Huginn I., Isaf., 3097. Hug inn II. ísaf., 3455. Huginn III., ísaf., 1510. Jakob, Rvík, 208, Jón Finnsson, Garður?437. Jón Þorlákss., Rvík, 1364. Jökull, Vestm., 790. Kári, Vestm., 2446. Keflvíkingur^ Keflavík, 1474. Keilir, Akranesi, 890. Kristján, Akureyri, 4412. Kristjana, Ól- afsf., 1066. Kári Sölmundarson, Ólafsf., 9. Leo, Vestm., 92. Liv, Akureyri, 982. Magnús, Nes- kaupstað, 2734. Már, Rvík, 425. Meta, Vestm., 658. Milly, Siglu- fj., 1006. Minnie, Litli Árskógs- sandur, 254. Muggur, Vestm., 796. Nanna, Rvík, 23. Narfi, Hrísey, 4859. Njáll, Ólafsfj., 1600. Olivette, Stykkishólmi, 416. Otto, Akureyri, 1260, Reykjaröst, Keflavík, 467. Ric- hard, ísafj., 2681. Rifsnes, Rvík, 3610. Rúna, Akureyri, 3626. Siglunes, Siglufj., 58. Sigur- fari, Akranesi, 1738. Síldin, Hafnarf., 3332. Sjöfn, Akranesi, 876. Sjöfn, Vestm., 506. Sjö- stjarnan, Vestm., 2068. Skála- fell, Rvík. 1514. Skógafoss, Vestm., 758. Sleipnir, Neskaup stað, 3190. Snoriú, Sigluf., 614. Snæfell, Akureyri, 5296. Stella, Neskaupstað, 714. Stuðlafoss, Reyðarf., 138. Súlan, Akureyri, 2298. Svanur, Akranesi, 2326. Sæbjörn, ísaf., 906. Sæfari Rvík, 3499. Sæfinnur, Nes- kaupstað, 3010. Sæhrímnir, Þingeyri, 2981. Særún, Sigluf., 1274. Thurid, Keflavík, 2317. Trausti, Gerðar, 794. Valbjörn, ísaf., 938. Valur, Akxanesi, 150, Villi, Sigluf., 84. Víðir, Garður, 424. Vjebjörn, ísaf., 823. Von II. Vestm., 992. Vöggur, Njarðvík, 746. Þorsteinn, Rvík, 1402. 1 • Mótorskip (2 um nót): Alda/Nói, 580. Baldvin Þor- valdss./Ingólfur, 1142. Barði/ Vísir, 2324. Björn Jörundss./j Leifur Eiríkss., 2043. Bragi/ Gunnar 337. Egill Skallagríms- son/Víkingur 648. Einar Þver- æingur/Gautur 1052. Freyja/ Svanur 1502. Frigg/Guðmund- ur 1336. Fylkir/Grettir 366. Magni/Fylkir 2185. Guðrún/ Kári 562. Gunnar Páls/Jóhann Dagsson 343. Hilmir/Kristján Jónsson 359. Jón Guðmunds- son/Þráinn 604. Vestri/Örn 728 Færeysk skip: Bodasteinur 2373. Borglyn 1248. Fagranes 125. Fugloy 1136. Kyrjasteinur 3981. Mjóa- nes 2074. Nordstjai’nan 2811. Seagull 247. Sudui’oy 1825. Svinoy 132. Von 578. Yvonna 3056.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.