Morgunblaðið - 13.09.1945, Side 6

Morgunblaðið - 13.09.1945, Side 6
e MORGUNBLAÐÍB Fimtudagur 13. sept. 1945 Ótg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgðarm.) Frjettaritstjóri: Ivar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni óla. Ritstjóm, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Askriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlands, kr. 10.00 utanlands. I lausasðlu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Búm annsra unir „MÖRG er búmanns raunin“ segir gamall málsháttur. Hann hefir ævarandi sannleika að geyma eins og mörg þau spakmæli önnur sem geymast mann fram af manni. Þeir, sem stunda landbúnaðinn hjer á landi hafa við marga örðuleika að etja. Svo hefir það verið frá alda öðli og svo verður það vafalaust áfram þó að áukin tækni og vaxandi fyrirhyggja geti þar nokkuð úr dregið. Til skamms tíma hafa flestar búmannsraunir íslenskra bænda verið tengdar við hið óstöðuga og misbresta sama íslenska tíðarfar. Skin og skúrir, logn og stormur, frost og hiti skiftast alltaf á og í okkar landi er óvissan meiri hvort ofan á verður heldur en gerist víðast annars stað- ar. Þess utan hafa önnur náttúrunnar fyrirbrigði oft og einatt ógnað bændum og búaliði, svo sem: eldgos, jarð- skjálftar og hafís. Við alt slíkt hafa þó yngri menn nú- lifandi kynslóðar verið furðulega lausir. Hitt er kunn- ugt að aðrir miklir örðugleikar hafa síðustu árin ógnað bændum þessa lands og valdið slíku afhroði, að engin dæmi er áður til. Má þar einkum til nefna hinar ógnar- legu fénaðarpestir, sem inn í þetta land hafa verið fluttar, og ska.ðað hafa bændur landsins um tugi eða jafnvel hundruð milljó'na króna, þegar allt kemur til alls. Nú þegar líður að göngum og hinn venjulegi hey- skapartími er úti, þá er breytilegt um að lítast í sveitum okkar lands, eins og raunar oft áður. Sumarblíðan hef- ir að vísu brosað blítt við mörgum bændum, sveitum og hjeruðum, en öðrum hefir hún reynst svikul og hverflynd Á Norðurlandi austanverðu og öllu Austurlandi hefir verið eitt hið ágætasta sumar og heyafli í besta lagi. Á vestanverðu Norðurlandi og sumsstaðar vestanlands hef ir verið alt að því meðal sumar. Um túnaslátt ágætt og sæmilegur kafli kring um höfuðd. en all örðugur vot- viðratími þar á milli og .aftur nú síðast. í þessum landshl. mun heyafli sæmilegur að vöxtum, en talsvert af útheyi nokkuð hrakið. Á öðrum svæðum landsins, þ. e. Suðurlandi öllu, Borgarfirði og nokkrum hluta Vestur- lands, hefir sumarið hins vegar verið með afbrigðum örðugt og vott, svo að það eitt hefir náðst af heyjum með sæmilegri verkun, er fyrst var slegið. Alls staðar um land hefir grasvöxtur verið góður og sumarið heitt, svo að alment er jörð með öllu ófallin enn. Þó er það vit- anlega svo, að á óþurkasvæðinu öllu er aðstaða bænda nú hin ömurlegasta. Sumarið hefir reynst þeim raunar- tími. Vinna þeirra og fjármunir hafa farið forgörðum í stórum stíL Við augunum blasir nægtarleysi til bjarg- ræðis þeim bústofni, sem hagurinn veltur á. Brostnar vonir og breyttan hug skilur sumarið eftir. Eitthvað kann úr að_rætast, ef haustið verður gott, en horfur eru ekki góðar. Eins og venjulega ha"fa þeir sloppið best, sem byrjuðu sláttin fyrst og best ræktuðu túnin hafa. Hjá þeim sumum hefir skaðinn máske eigi orðið nema hálfur á móts við flesta hina. Aflabrestur útvegsmanna og sjómanna og heyskapar- leysi bænda eru þungar raunir, sem altaf geta borið að höndum, en örðugt er að mæta. Sumir halda að hægt sé að tryggja atvinnuvegi landsins gegn þess háttar ó- höppum. Ráðin til þess eru ekki fundin og munu seint verða fundin svo að fullu gagni komi. Hitt er sjálfsagt að gera svo gott sem unt er úr slæmu ástandi meðal ann ars með útvegun kjarnfó'ðurs o. fl. Og fyrir framtíðina verður bændu.m altaf helsta tryggingin í góðri ræktun og notkun fullkomnustu tækja, sem hvorutveggja gerir unt að nota sem best hagstæðasta heyskapartímann, sem næstum undantekningarlaust er júlí mánuður.' Sumir gera sjer vonir um mikið gagn af vjelaþurkum og á einstaka stað hefir hún verið reynd á þessu sumri. En arangurinn hefir orðið misjafn, þó að víðast hafi orð- ið nokkuð gagn af. Útheyjaverkun hefir og farið vaxandi á síðari árum, einkum sunnan lands. Hefir það gagnað mikið og má án efa auka þar við. DAGLEGA LÍFINU Hvernig ráðherrann fjekk rjómann. NÚ ER ÞAÐ upplýst mál, hvernig á því stóð, að menta- málaráðherra íslands fjekk rjóma í mjólkurbúðinni á Fram- nesveginum á sunnudagsmorg- uninn eð var, á sama tíma, sem fjöldi viðskiftavina fjekk neit- un um rjómadreitil. Jeg sagði ykkur þessa sögu til fróðleiks og skemtunar í blaðinu í fyrradag. En í gær fjekk jeg brjef frá af- greiðslustúlkunni og segir hún frá á þessa leið: „Kæri Víkverji! Af því að yður leikur forvitni á að vita. hverhig farið var að því að galdra fram rjómalögg handa Brynjólfi Bjarnasyni mentamálaráðherra, skal jeg skýra yður frá leyndarmálinu. Brynjólfur hafði sótt mjólkina á hverjum morgni alla vikuna, ekki vegna þess, hve hann er „góðui' eiginmaður“, heldur af nauðsyn, því kona hans var las- in, en þau hjónin hafa enga hús- hjálp. Alla þessa daga var hon- um neitað um rjóma, utan eiiiu sinni, og það var honum sjálf- um að kenna, vegna þess, að hann kom ekki nógu snemma. Á sunnudagsmorguninn var honum einnig neitað um rjóma, en af því að jeg t>g konan hans erum gamlir kunningjar, sendi jeg henni með honum ofurlitia' lögg af rjóma, sem jeg hafði keypt urn morguninn handa sjálfri mjer fyrir mína eigin peninga og sem jeg þóttist frjálst að komin. Þetta er hinn óttalegi leyndardómur. Afgreiðslukonan í mjólkurbúð- inni á Framnesveginum. Þóra Jónsdóttir, Brattagötu 5“. Gott að eiga góða að. VIÐ ÞETTA brjef hennar Þóru þarf engu að bæta. Hún hefir að sínum dómi gert hreint fyrir sín um dyrum og þó sjerstaklega ráðherrans. Hann var svo sem ekki að trana sjer neitt fram, eða reyna að nota sína aðstöðu. Það væri sannarlega gott, ef allir, sem lasnir eru og þurfa á rjóma að halda til að blanda sam sullið, ættu slíka að eins og hana Þóru. Það eru margir, sem vilja ná sjer í rjóma, einmitt vegna þess, að það er lasleiki á heimilunum, en verða að fara rjómalausir úr mjólkurbúðunum eftir sem áð- ur. Jeg minnist þess, að í fyrra var einu sinni það bóð iátið út ganga, að enginn gæti fengið rjóma, nema handa sjúklingum. Sumir fengu resept hjá læknum fyrir rjóma. Það var einmitt um þetta leyti, sem einhver skollans pest kom upp í nágrenninu, [ »ar sem jeg bý, og allir, sem í mjólk urbúðina komu, þurftu að fá rjóma fyrir sjúkling. Ætli það sje ekki líkt ástatt með aumingjana, sem hafa þau sjerrjettindi að fá mjólkina senda heim. Ætli það sje ekki fótafúi, eða einhver óáran í þessu fólki og það þoli ekki að standa í biðröðum eins og fjöld- inn fyrir framan mjólkurbúð- irnar? • Plága. ÞAÐ ER ANNARS meiri plág- an að vera meðlimur í fjelögum í þessu landi. Bráðsaklausir menn, sem einhverntíma hafa gengið í eitthvað fjelag, annað- hvort af áhuga fyrir fjelagsmál- um, eða til þess að styrkja fje- lagsskapinn með árstillagi, eiga á hættu að fá sent í pósti svo og svo marga happdrættismiða, sem ætlast er til að þeir selji eða kaupi. Nú er það svo, að þó menn hafi gerst fjelagar í einhverju fjelagi, þá hafa þeir ekki )>ar með gengist inn á að gerast sölu- menn happdrættismiða, eða ein- hvern skollans. Það er eins gott að standa í skilum með þessa miða, sem sendir eru fyrirvaralaust og ó- beðið, því miðarnir eru saffia og peningar fyrir fjelagið. • Af sem áður var. EINU SINNI þótti það gott að fá nýja fjelaga í fjelög, þó ekki væri til annars en að greiða árs- tillagið. Nú virðist árstillagið ekki iengur neitt aðalatriði, held ur er lifað á sníkjum. Jeg held, að þetta happdrættis og annað sníkjufargan fjelaga sje ákaflega hættulegt fyrir fjelags- líf í heild. Menn fá leið á þessu og hljóta að segja sig úr fjelög- um umvörpum þegar enginn friður fæst. Kunningi minn einn, sem er í mörgum fjelögum, sennilega fleir um fjelögum en alment gerist, hafði einu sinni 250 happdrætt- ismiða í fórum sínum. Verðmæti þessara miða skifti hundruðum króna. Það var ekki furða þótt maðurinn segði sig úr öllum þess um fjelögum þegar í stað. Það gera ]>að senniiega fleiri. • 100%. LÍTILL kunningi minn, sem nýlega er farinn að læra pró- sentureikning, • hefir gert sjer skrítnar hugmyndir um veðrið þessa dagana. Er jeg spurði hann að því eínn daginn, hvernig hon um litist á veðrið þann daginn, svaraði hann: „Blessaður vertu, það er næst- um 100 prósent vatn!“ !•«■•■■••■■■■■■■■»« ■■■■■■■■■■■■ Á ALÞJÓÐA VETTVANGI SNARPUR, hlýr sunnanvind- ur dreyfði hvítum skýjum um loftið yfir Atsugiflugvelli, þegar Bandaríkjahermennirnir lentu þar. Hávaxið grasið svignaði í skuggum á völlinn. Japanskur frjettaritari frá Do- maifrjettastofunni stóð við flug- völlinn og horfði á. Hann sagði að sig sviði í augun. Jlkki af sólinni, heldur af því, hversu ör- lagaþrungið eitt einasta augna- blik gæti verið. Svo hrærður var hann. Það voiu líka aðrir menn hrærðir, máske á annan hátt þó, liðsmenn 1L loftflutta Banda- ríkjaherfylkisins, þegar þeir lentu á flugvellinum, fyrsta flug velli í Japan, sem Bandaríkja- hermenn höfðu stigið á. Og ekki er vafi á því heldur, að órótt hefir þeim verið innanbrjósts, landgönguliðunum, sem voru að stíga á land við Yoshuka, með alvæpni, sem reynslan skar úr um að ekki þyrfti að nota. Þ^fta var síðasta innrás styrj- aldarinnar, og þeir stigu upp- rjettir á ströndina. Engin skot- hríð glumdi við. Baráttukjark- ur óvinanna var loks þrotinn. Hermennirnir störfu með kuldalegri forvitni á leifar hins keisaralega japanska hers. Hvar vetna sáust fullar járnbrautar- lestir af japönskum hörkulegum, brúr.um hcrmönnum, flestum Síðasta ínnrásin fremur illa búnum. Þeir gengu í fylkingum eftir vegunum, á hinni löngu leið heim úr stríð- inu. Borgarbúar fögnuðu Banda- rikjamönnum, en sveitafólk, sem hafði kynst sprengjum, gretti sig að þeim. Það gat ekki skilið uppgjöfina. Meginherinn japanski var ósigraður, en reynslan frá Leyte, Iwojima, Saipan og Okinawa hafði sann- fært stjórnendurna um það, að ekki var hægt að vinna styrj- öldina. ★ DOUGLAS' MACARTHUR hers höfðingi var gjörbreyttur mað- ur. Þegar hann steig út úr flug- vjel sinni „Bataan“, breiddist bros j’fii' hörkulegt andlit hans. Þessi stórláti maður, sem var vanur því að gleyma, hvernig menn litij út, hann tók nú í hend ur manna, þúaði þá og hrósaði hljómsveitinni, sem Ijek. Síðar mataðist hann með undirmönn- um sínum. Það hafði hann ekki gert síðan 7. desember 1941. Innrásin hjelt áfram með vjel- rænni nákvæmni. Flugvjelarnar lentu í röðum með fjögurra min- útna millibili. Og í löngum röð- um sigldu orustuskip, beitiskip og tundurspillar bandamanna inn gegnum Urgasundið, inn á Tokióflóa. Þetta gekk næstum of vel. Þurlegur Breti, sem horfði á William T. Clement hershöfð- ingja draga Bandaríkjafánann að húni ásamt fáeinum sjóiiðum í flotastöðinni við Yokosuka, sagði: „Jæja, ætli hann fari ekki svo að tilkynna, að basarinn sje opinn“. Margir, sem höfðu barist gegn Japönum, gengu á land haldnir ótta um sviksemi, eða bjuggust að minsta kosti við kuldalegum fjandskap af Japana hálfu. En raunin varð eins og draumur gamals hermanns um sigur. — Farið var með Bandaríkjaliðs- foringjana frá flugvellinum inn í þægilegan borðsal, og þar neyttu þeir skjaldbökusúpu, nautasteikur og eggjaköku. Þeir höfðu búist við að þurfa að sofa undir beru lofti, en var vísað á rúm með tárhreinum lökum. — Harald prins byrjar sfeóiagöngu HARALD prins, sonur Olavs ríkisarfa í Noregi, er nú að hefja skólagöngu í Oslo. Prins- inn er nú 8 ára. Þetta er í fyrsta sinn, sem Harald prins kemur í norskan skóla því ófriðarárin dvaldi hann lengst af í Bandaríkjunum Var móðir hans, Martha prins- essa gestur Roosevelts-hjón- anna í Hvíta húsinu ófriðarárin. vindinum og varpaði dansandi ekki

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.