Morgunblaðið - 19.09.1945, Blaðsíða 5
iMiðvikudagur 19. sept. 1945
MOEGUNBLADIÐ
HIINi MYJA IJTGAFA Í8LENDIMGA8AGMA
Fjelag rnánna Hjer í bæ hefir hafist handa um útgáfu íslendinga-
sagna. Verður þetta vönduð og mjög ódýr útgáfa. Lögð verður megin-
áhersla á vandaðan pappír og skýrt letur. Einn kunnasti fornritafræð-
ingur landsins, hr. magister Guðni Jónsson, hefir verið ráðinn ritstjóri
útgáfunnar. Þótt skamt sje síðan að málum þessum var ráðið til lykta,
hafa undirtektir manna verið með eindæmum góðar og sýna best, sem
raunar var kunnugt, að síðustu árin hefir verið illmögulegt að ná í ís-
lendingasögur sem heild, jafnvel þó að of fjár hafi verið í boði Þessi
útgáfa telur, sem fyr er getið, það vera meginskyldu sína, og setur
metnað sinn í það, að inna útgáfustarfið sem allra best af hendi.
Ósmekklegar úlgáfur íslendingasagna ætti að banna með lögum.
Hver vill eiga slíkan f jársjóð prentaðan á hinn ólíkasta pappír eða inn-
bundinn sitt með hverju móti. Slík sker ætlar þessi nýja útgáfa að
forðast.
Um það verður ekki deilt, að einmitt í þessar gömlu sögur hefir þjóð
vor sótt þrek sitt, merg og manndáð. Og þeim eigum við fyrst og fremst
að þakka sjálfstæði vort og íslenskt mál.
12 verða bindin í hinni nýju útgáfu. Eru þar ekki aðeins allar þær ís-
lendingasögur, er birst hafa í eldri heildarútgáfum, heldur að auki um 25
sögur og þættir, sem öllum þorra manna hljóta að vera nýir og ókunnir. Verður ritinu að forfallalausu skilað til kaupenda fyrir
lok næsta árs, fyrir aðeins 300 krónur. Efni og niðurröðun bindanna verður sem hjer segir:
Islend s nqasöq u r
I. BINDI
LANDSSAGA OG
LANDNÁM
íslendingabók
Landnámabók
Kristni saga
Hænsa-Þóris saga
Eiríks saga rauða
(■Þorfinns saga karlSefnis)
Grænlendinga saga
(Eiríks saga rauða og
Grænl þáttr)
Grænlendinga þáttr
(Einars þáttr Sokkasönar)
II. BINDI
Borgfirðinga sögur
Egils saga Skalla-Gríms-
sonar
Gunnlaugs saga ormstungu
Gísls þáttr Illugasonar
Einars þáttr Skúlasonar
Sigurðar þáttr borgfirzka
Hellismanna saga
III. BINDI
Snsefellinga sögur og Borg-
firðinga
Eyrbyggja saga
Ævi Snorra goða
Bárðar saga Snæfellsáss
Víglundar saga
Bjarnar saga Hítdælakappa
Skáld-Helga saga
IV. BINDI
Breiðfirðinga sögur*
Laxdæla saga
Halldórs þáttr Snorrasonar I
Halldórs þáttr Snorrasonar II
Þórodds þáttr Snorrasonar
Stúfs þáttr
Geirmundar þáttr
Þorskfirðinga saga
(Gull-Þóris saga)
Króka-Refs saga
Kumlbúa þáftr
Bergbúa þáttr
Atla saga Ótryggssonar
V. . BINDI
Vestfirðinga sögur
Gísla saga Súrssonar
Hávarðar saga Isfirðings
Fóstbræðra saga
Þormóðs þáttr
Völsa þáttr
Brands þáttr örva
Auðunar þáttr vestfirzka
ÞorvarðS þáttr krákunefs
VI. BINDI
Húnvetninga sögur I.
Grettis saga Asmundarsonar
Bandamanna saga
Odds þáttr Ófeigssonar
Hrafns þáttr Hrútfirðings
Hrómundar þáttr halta
Þorsteins þáttr skelks
VII. BINDI
Húnvetninga sögur II.
Heiðarvíga saga
Kormáks saga
Vatnsdæla saga
Hallfreðar saga
Þorvarlds þáttr viðförla
Jökuls þáttr Bárðarsonar
VIII. BINDI
Eyfirðinga sögur og Skag-
firðinga
Víga-Glúms saga
Ögmundar þáttr dytts ok
Gunnars helmings
Þorvalds þáttr tasalda
Svarfdæla saga
Valla-Ljóts saga
Þorleifs þáttr jarlsskálds
Sneglu-Ilalla þáttr
Hreiðars þáttr heimska
' Þórarins þáttr ofsa
Þórðar saga hreðu
Svaða þáttr ok Arnórs kerl-
ingarnefs
Þorgríms þáttr Hallasonar
ok Bjarna Gullbrárskálds
ÞórhalLs þáttr knapps
Þóris þáttr hasts ok Bárðar
birtu
IX. BINDI
Þingeyinga sögur
Ljósvetninga saga
Ófeigs þáttr
Vöðu-Brands þáttr
Reykdæla saga ok Víga-
Skútu
Finnboga saga ramma
Þórarins þáttr Nefjólfssonar
Stjörnu-Odda draumr
Hrana saga hrings
X. BINDI
Austfirðinga sögur
ÞorsteinS saga hvíta
Vápnfirðinga saga
Sörla þáttr Brodd-Helgasonar
Þorsteins saga stangarhöggs
Þorsteins þáttr uxafóts
Hrafiíkels saga Freysgoðá
Droplaugarsona saga
Fljótsdæla saga
Brandkrossa þáttr
GunnaFs saga Þiðrandabana
Þorsteins saga Síðu-Halls-
sonar
Þorsteins þáttr Síðu-Halls-
sona
Draumr Þorsteins Síðu-
Hallssonar
Þiðranda þáttr ok Þórhalls
Egils þáttr Síðu-Hallssonar
Gull-Ásu-Þórðar .þúttr
Þorsteins þáttr Austfirðings
Þorsteins þáttr forvitna
Gunnars saga Keldugnúps-
fífls
XI. BINDI
Sunnlendínga sögur I.
Njáls saga
XII. BINDI
Sunnlendinga sögur II.
Flóamanna saga
Þorsteins þáttr tjaldstæðings
Orms þáttr Stórólfssonar
Stefnis þáttr Þorgilssonar
Harðar saga ok Hólmverja
Haukdæla þáttr
ísleifs þáttr
Steins þáttr Skaftasonar
Sighvats þáttr skálds
íslendings þáttr sögufróða
Ivars þáttr Ingimundarsonar
Þórarins þáttr stuttfeldar
Mána þáttr skálds
Ölkofra þáttr
Kjalnesinga saga
Jökuls þáttr Búasonar
Holta-Þóris saga
Ármanns saga
Er hjsr a!!s um 110 rií aS ræ3a, ots kostar hver! rit því að meðal-
tali rúmlep kr. 2,70, og hefir ekkerl úlgáfufjelag hjor á landí getað
boðið slík kosiakjör, miðað við núgíldandi verðlag.
Mikil tíðindi og einstæð má telja, að útgefendum hefir tekist að útvega, þeim sem kynnu að óska, tilboð frá einni kunn-
ustu bókbandsstofu Norðurlanda fvrir kr. 6.00 ísl., hvert bindi í skinnbandi, og geta kaupendur þá snúið sjer beint til bók-
bandsstofunnar, ef þeim sýnist. Mun þetta verða nánar auglýst síðar.
Notið tækifærið til að eignast dýrmætasta bókamentafjársjóð vom í fallegri, ódýrri útgáfu.
TAKMARKIÐ ER: Hin nýja útgáfa íslendingasagna innáhvert
heimili á landinu. — Hún á að verða fyrsta gjöfin til barns-
ins yðar og besta vinargjöfin.
Sendið pantanir yðar í pósthólf 523, Reykjavík
~3síenxhn
CfClóClCý
na
-útcjájan
Jeg undirrit.v...... gerist hjer með áskrifandi að
hinni nýju útgáfu Islendinga sagna.
Nafn ...............................................
Heimili...........................................i
Póststöð ...................í.......................
Hr. iv g Guðni Jónsson, .
JPósthólf 523, Reykjavík.