Morgunblaðið - 19.09.1945, Side 2

Morgunblaðið - 19.09.1945, Side 2
KORQ ONBLAÐI0 Miðvikudagur 19. sept. 19451 Samvinna Norðurlanda um sameiginlegan vinnumarkað Óviðunandi aðbúnaður I farþega á Keflavíkur- a flugvellinum i FINNUR JÓNSSON dóms- og fjelagsmálaráðherra er ný- kominn úr ferðalagi til Norð- í urlanda, en þangað fór hann til að sitja fund norrænna'fje- lagsmálaráðherra, er haldinn var í Kaupmannahöfn. í gær hafði ráðherrann fund með blaðamönnum og skýrði þeim í stuttu máli frá för sinni. Sagð- ist honum svo frá: Fcrðin út. — Fyrir stríð voru haldnir nokkrir fundir fjelagsmálaráð- herfa á Norðurlöndum. En fyrsti fundurinn, sem haldinn var eftir stríð, var haldinn í Kaupmannahöfn dagana 10.— 11. september í boði Hedtoft Hansen fjelagsmálaráðherra Dana. A fundinum mættu fjelags- ■ málaráðherrar allra Norður- landanna. Frá Finnlandi mætti jEino Kilpi, frá Noregi Sven | Oftedal, frá Svíþjóð Gustav jMöller, frá Danmörku mætti I fundarboðandinn og jeg frá Is- :landi. Auk þess mættu á fund.-j jinum skrifstofustjórinn í finska jfjelagsmálaráðuneytinu, skrif- jstofustjórar tveggja ráðuneyta í Noregi, tveir aðrir ráðherrar frá Sviþjóð og ennfremur tveir starfsmenn í fjelagsmálaráðu- íneytinu þar og frá Danmörku voru 10 starfsmenn fjelags- málaráðuneytisins mættir á t jfundinum. — Jeg fór hjeðan, segir ráð- ;herrann, með Silaflugvjelínni á föstudagsmorgun þann 7. og jtók ferðin til Svíþjóðar um 7 tklukkustundir. Silaflugvjelin 'flýgur yfir Noreg nokkuð norð- jarlega. Við fengum ágætis veð- jur, svo að við sáum háfjöllin ;í Noregi í allri sinni dýrð. Frá Stokkhólmi fór jeg á laugar- dagskvöld með næturlest og kom til Kaupmannahafnar kl. tíu morguninri eftir. í>ar tóku þeir á móti rríjer Jakob Möller sendiherra og Stefán Jóhann Stefánsson, en þeir tóku báðir þátt í fundinum af íslands hálfu ásamt mjer. Ðagskrá fundarins og ályktanir. — A dagskrá fundarins var jm. a. samvinna Norðurland- anna um vinnumarkað, orlof jverkamanna og,samræming á jhagskýrslum norrænu land- anna um fjelagsmál og launa- fnál. Samþyktir voru gerðar í öllum þessum málum og er merkasta samþyktin, sem gerð var á fundinum, uppkast að samningi milli Norðurlanda um að koma á sameiginlegum vinnumarkaði á þá lund, að sett verði á fót stofnun eða nefnd, er fylgist með atvinnuháttum á Norðurlöndum, þannig, að unt verði að miðla vinnuafli milli landanna, ef þörf krefur. Verði atvinnuleysi í einhverju landanna, getur hlutaðeigandi land snúið sjer til annara aðila samkomulagsins og spurst fyr- ir um, hvort þörf sje fyrir vinnuafl í því landi. Sama gild ir, ef skortur er á vinnuafli í einhverju landanna. Mun jeg skýra nánar frá samningsupp- T oledo-vogirnar ^ — —._ komnar, sem vigta allt að 1 kg. Einnig 12 kg. (f. ^JJefgaíon, & WjeLteJ h.f. Svíþjóðarbát hleypt af stokkunum. kasti þessu og öðrum samþykt- um, er gerðar voru, eftir að jeg hefi gefið ríkisstjórninni skýrslu. Á fundinum ríkti ákaflega mikill samhugur og vilji til að koma á öflugri samvinnu milli Norðurlandanna var mikill. Viðtökurnar voru með miklum ágætum. Á miðvikudag var, í boði fjelagsmálaráðuneytisins danska, farið í skemtiför út á Sjáland og skoðaðir þar ýmsir fallegir staðir. Auk þess sátu fundarmenn boð hjá forsætis- ráðherra Dana og borgarstjórn Kaupmannahafnar. Áður en við lögðum upp í Sjálandsferð- ina komum við að gröfum 106 Dana, sem Þjóðverjar höfðu skotið á Ryvanden. Upphaflega höfðu fundist þarna lík 210 Dana, aðallega ungra manna. Flestir höfðu verið skotnir í hnakkann. 104 hafa verið flutt- ir til heimkynna sinna víðsveg- ar um Danmörku, en ætlunin er að byggja minningargrafreit og kirkju þarna á staðnum í virðingarskyni við þá, sem eft- ir hvíla. Skoðaðir Svíþjóðarbátarnir. — Á fimtudagsmorgun fór jeg til Gautaborgar í flugvjel, en þaðan skr.app jeg í bifreið t.il Skredsvik og skoðaði nokkra af Svíþjóðarbátunum, sem þar eru í smíðum. Smíði bátanna gengur vel og mjer líst vel á þá, en ekki er að öllu leyti bú- ið að ganga frá því, hvers kon- ar skrúfuútbúnaður verði hafð ur við vjelarnar, og er ekki ó- sennilegt, að þetta geti eitthvað tafið afhendinguna. Á fimtudagskvöld hjelt jeg svo áfram með næturlest til Stokkhólms og skoðaði á föstu- dag Södra Sjukhuset þar í borg inni. Það er nýtt sjúkrahús, bygt af Stokkhólmsborg og kostaði um 52 miljónir sænskra króna. Þetta sjúkrahús er tal- ið eitt hið fullkomnasta í Ev- rópu og alveg einstakt í sinni röð að öllum útbúnaði. Á sunnudagsmorgun var lagt af stað heimleiðis í einni af flugvjelum ameríska hersins. Ferðin tók um 7 klukkustund- ir. — Oviðunantli aðbúnaður farþcga. Þá skýrði ráðherrann frá því, að mjög ljelegur aðbúnaður væri hjá farþegum þeim, sem fara hjeðan frá Keflavíkurflug vellinum eða lenda á honum. Skýrði hann m. a. svo frá: \ — í flugvjelum þeim, sem notaðar eru til farþegaflutninga á norðurleiðinni, hvort sem þær eru frá Sila eða á vegum am- eríska hersins, er í alla staði vel að farþegunum búið. Þeir, sem ferðast milli Evrópu og Ameríku, gista sennilega á Hótel de Gink, en aðbúnaður þeirra farþega, sem koma eða fara frá flugvellinum í Kefla- vík, er algjörlega óviðunandi. Hvorki Sila nje ameríska her- stjórnin sjer um flutning far- þeganna til flugvallarins eða frá og hefir því ríkisstjó&nin tekið að sjer sem bráðabirgða- ráðstöfun eða neyðarúrræcji að sjá um þessa farþegaflutninga, enda þótt málið sje henni í raun og veru algjörlega óviðkom- andi. Hefir hún falið lögregl- unni í Reykjavík að annast flutningana og gerir nú alt, sem auðið er til að leysa það starf vel af hendi. Herstjórnin hefir látið reisa skála nokkra mjög óvistlega fyrir farþegana, og þar verða þeir að hýrast, þeg- ar þeir koma eða fara, án þess að fá vott nje þurt, hversu löng sem biðin kann að verða. I 1 ? ! I t .! Udærðar sauma- stúlkur og aðstoðarstúlkur geta komist að nú þegar eða 1. október. — Ekki svarað í síma, Henny Ottósson Kirkjuhvoli. m V s v ? I I V I i ^♦♦^♦♦•♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦^♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦'^'♦^♦♦♦•♦♦•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^'♦♦♦•♦♦♦♦♦♦♦**M'****M****M'*'M£***M’***t***M*M*M’*M*M’*M*********3ll — BELSEN. Pramhald af 1. síðu yfirfangavörður hefði ekki sýnt nein iðrunarmerki, eða látið í ljósi vanþóknun sína á ástand- inu í fangabúðunum, eða af- sakað það, svaraði Huges: ,,Síð- ur en svo“. Rjettarhöldunum heldur á- fram næstu daga. >*♦ ♦*« ♦*♦ ♦*♦♦** »*• ♦*♦ ♦*♦ ♦*♦ vvvvv ♦*♦♦•♦♦*♦♦•♦♦• Gagnfræðaskólinn í Reykjavík verður settur. í Iðnó, fimmtudaginn 20. sept. kl. 2 eftir hádegi. Væntanlega verður hægt að taka alla nemend- ' ur, sem skráðir hafa verið nú, en ekki fleiri. INGIMAR JÓNSSON. •:4 V "? ? ? | ? ? S 4 ? ? i ? *♦< •>x-x-x-x-x-x-x-:-x-x*x-x-x-x-x-x-x-x-:-x-x-x-x-:-xí Höfum verið beðnir að útvega 4 herbergja íbúð | sem allra fyrst. FRIÐRIK BERTELSEN & Co. h.f. HAPNARIIVOLI. Símar 1858 og 2872. SENDISVEINN óskast nú þegar eða 1. október. £A BLJon&Co., Lf. HEILDVERZLUN Ilamarshúsinu. i * í I i : t i AUGLYSING ER GULLS ÍGILDI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.