Morgunblaðið - 20.09.1945, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 20.09.1945, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudagxir 20. sept. 1045 11 FYRST ER AÐ FERÐBÚA SKIPIN TVENNT er það, sem efst er á baugi í daglegu lífi Norð manna um þessar mundir: málaferlin gegn nasistum og endurreisarmálin. Og þó að undarlegt megi virðast, hið fyrrnefnda ætlar að verða erfiðara viðfangs en hið síðara. Og þó ekki udar- legt. Friðarsamningar eru stundum erfiðari en ófriður inn sjálfur, og eftir þessa styrjöld er ekki aðeins um friðarsamninga að ræða milli hinna sameinuðu þjóða og öxulveldanna, heldur og innan a-Ilra þeirra ríkja, sem verið hafa undir hernámi Þjóðverja. Þar hefir í raun- inni verið borgarastyrjöld, og eftir borgarastyrjöld þarf friðarsamninga. En það er stundum ranghermi að tala um samninga milli sigurveg arans og hins sigraða, hvern ig sem það reynist nú. En það var endurreisar- starfið í Noregi, sem hjer verður vikið að, einkum á sjónum. Norðmenn hafa að vísu mist mikið og þurfa að endurreisa á þurru landi. Til dæmis heilt amt, sem er um 40.000 ferkílómetra stórt, en að vísu afar strjálbygt, nfl. Finnmörkina. Þar þarf ekki aðeins að endurbyggja hvert einstakt hús heldur líka að útvega nýja áhöfn á hvert býli, því að það var eigin- lega alt drepið, nema fólkið sem flýði suður í land, og svo mýflugan. Grafningur- inn er eins og sól hjá Finn mörk hvað mývarginn snert ir. Svo þarf að^byggja upp heila bæi, sem brunnið hafa að miklu eða öllu leyti. Les- endurnir kannast við nöfn- in: Narvik, Bodö, Kiristjáns- sand, Molde o. s. frv. — auk smærri bæja, sem ekki hefir þótt taka að nefna.Og svo er hitt, að þeir bæir, sem ekki hafa orðið fyrir tilfinnan- legum skemdum hafa ekki fengið neinar viðbætur eða viðhald undanfarin fimm ár. í Oslo er gert ráð fyrir að 25000 nýjar íbúðir þurfi að bætast við á ári, til þess að fullnægjá íbúðarþörfinni á venjulegum árum. Þar vant ar því 12.500 íbúðir núna, enda má heita ógerningur að fá húsnæði í höfuðborg- inni. Sömu söguna hafa aðr- ir bæir að segja. Þegar á alt er litið hafa furðu litlar skemdir orðið á öðrum mannvirkjum, t. d. j verksmiðjum og þess háttar, hvorki af hálfu Þjóðverja nje vegna spellvirkja „skóg- armanr.anna*. Það er „þak yfir höfuðið“, sem fyrst og fremst vantar , — á landi. .-----En á sjónum er öðru máli að gegna. Norðmenn hafa mist nærfelt helming af skipaflota sínum. Og Norð- ‘ menn voru hlutfalslega mesta siglingaþjóð heimsins — og eru það meira að segja enn, þrátt fyrir allan miss- irinn. En þeir ætla sjer auð sjáanlega áð ná fyrra sæti sínu í alþjóðaröð, sem sigl- ingaþjóð, alveg eins og þeir gerðu eftir fyrri heimsstyrj- öldina og skipatjónið þá. — Það verður hörgull á skipum eftir stríðið, segir Tor Skjönsberg, siglinga- málaráðherraann norski. — En við vitum ekki enn hvað gerist á næstunni, vitum ekki hvaða brautir siglinga- málin snúast inn á. Vitum ekki hvað Ameríkumenn ■ gera, hvort þeir bræða upp | eitthvað af skipunum sínum ; eða selja þau eða fara að ' reka siglingar í stórum stíl og keppa um flutninga, sem • þeir höfðu áður. Fyrstu sex ' mánuðma frá uppgjöf Jap- ana verða siglingar hinna sameinuðu þjóða undir yfir umsjón hins nýstofnaða als- herjarsambans, UMA, Unit- ed Maritimo Adminjstration | Það mun ekki standa á flutn ingum, heldur er meinið það 1 að við eigum ekki meiri vör ! ur til að flytja heim. j ---- Norðmenn virðast ekki ætla að kaupa skip af Ameríkumönnum til að fylla í skarðið, sem höggvið hefir verið í flota þeirra. Þegar útgerðarf jelag hefir mist skip hefir það jafnan gert ( samning um smíði á nýju, skipi í staðinn, svo framar- lega sem það hefir verið hægt. Þannig eiga þeir um hálfa milljón smálesta í smíðum í Svíþjóð, og líka hafa þeir pantað skip hjá dönskum skipasmíðastöðv- um, svo sem Burmeister & Wain og fleirum. Einnig í Bretlandi, en það er þó hlut fallslega lítið. En norsku skipasmíða- stöðvarnar munu menn spyrja. Norðmenn eiga all- mikið af skipasmíðastöðv- um sjálfir, t. d. Nyelands- stöðina og Akers mekaniske Verksted, auk margra smærri. Sumar hinna smærri smíðastöðva hafa ný skip í smíðum, en hinar stærri hafa öðru að sinna. — Þær eru að gera við gömlu skipin. Fyrir tæpum tuttugu ár- um var ömurlegt að lítast um á stóiru skipasmíðastöðv unum í Osló. Þar var alt dautt. Norðmenn, siglinga- þjóðin mikla sjálf, var ekki samkepnisfær í skipasmíð- um, en ljetu nágrannana, Dani og Svía, smíða fyrir sig — og jafnvel ítali og Þjóðverja. Oslofjord, glæsi- legasta og stærsta skip Norð manna, sem fórst á tundur- dufli við Newcastle, var í Þýskalandi, Venus og Vega hin fögru skip Bergenske, sem nú liggja í fjöru í Norð- ur-Þýskalandi, voru bygð í Italíu. En nú hafa norsku smíða- stöðvarnar nóg að gera. Það má heyra „hamars og axar- högg“ úti á Akers Mekan- iske núna, ekki síður en þeg ar musteri Salómons var bygt. Og þar er ýmist verið að gera við eða fullgera skip er legið hafa hálfsmíðuð öll stríðsárin. En þau skipin sitja fyrir, sem fljótlegast er að gera sjófær. Nýbygging- arnar sem stytst eru komnar eru látnar sitja á hakanum. Siglingamálastjórnin hefir skipuð nefnd, til að sjá um þetta, sú nefnd skiftir líka efninu niður á smíðastöðv- arnar. Fyrir stríðið unnu 1700 mann á Akers Mekaniske Verksted. Nú eru þar ekki nema 1500, því að hjer er skortur á vinnuafli, meðal annars eru margir í her- skyldu, sem liðsmenn heima varnarliðsins, en nú er ver- ið að leysa þá af hólmi, svo að bráðum fær stöðin fullan vinnukraft. Þarna eru skip af öllum stærðum, smáir Hljómleikar Sunnukórsins ÞAÐ MUN MÖRGUM þykja vafasöm háttvísi að gagnrýna „kollega“ sinn á opinberum vettvangi, enda hefir undirrit- aður hikað við að rita þessar línur, þangað til hann sá, að enginn myndi koma í hans stað að þessu sinni, á meðan aðaltón listardómari blaðsins, Páll ís- ólfsson, er fjarverandi. (í þessu sambandi skal bent á. hversu óheppileg aðstaða þeirra er, sem teljast. tónlistargagnrýnend ur hjer í Reykjavík, en þessir menn eru flestir starfandi söngstjórar eða hljóðfæraleik- arar, sem munu oft og einatt eiga erfitt með að varðveita það sjálfsagða hlutleysi, sem starf dómarans heimtar. Bráða birgðalausn á þessu vandamáli væri, ef til vill, að láta okkur músíkantana aðeins rita um það, sem er ekki okkar aðal starfsgx-ein, þangað til ný at- vinnusjett hefir skapast' stjett gagnrýnenda, sem eru „fag- lærðir“, en í senn algerlega ó- háðir störfum og viðskiftum tónlistarmannanna sjálfra). Sunnukórinn frá ísafirði hjelt þrjá hljómleika hjer í Reykjavík. Tveir þeirra voru almenns eðlis, en hinir síðustu voru helgaðir kirkjutónlist, og fóru þeir fram í dómkirkjunni. Söngstjóri kórsins er Jónas Tómasson, en dr. Urbantscitsch aðstoðaði með uhdirleik. Það skal strax tekið fram, að fárir — ef nokkrir — kórar hjer á landi munu geta flutt eins fagran piano-söng og Sunnukórinn frá Isafirði. I forte-söng reyndist hljómur- inn víða nokkuð ‘ gisinn og lit- vana, og skorti einkum basS- ana þá fyllingu, sem æskileg hefði verið á stöku stað. Tón- myndin var einkar samfeld og laus við ofreynslu, enda radd- irnar óvenju þýðar, og mun kensla Sigurðar Birkis og frú Jóhönnu Johnsen hafa átt sinn þátt í hinni ágætu þjálfun söng fólksins. Hæfileiki frú Jóhönnu að veita kvenröddum hinn eft- irsótta höfuð-resonanz mun sjaldgæfur hjer á landi og væri mikill fengur að fá frúna suður til lengri dvalar og tilsagnar á vegurh Landsambands bland aðra kóra. Söngskráin var fjölbreytileg mjög, en sneiddi þó fram hjá mjög erfiðum viðfangsefnum. Sum laganna voru klædd nýj- um búningi, og má þar nefna raddsetningar söngstjórans: „Ave Maria“ eftir Cesar Frank, „Vórljoð“ Méndélssohns og „Gígjan“ eftir Sigfús Einars- son, sem vakti mikla hrifningu meðal áheyrenda. Um lagið „Næturbæn" eftir Beethoven, sem er, sém kunnúgt kafli úr sónötu op. 57, má hins vegar segja: „Gjaldið Beethoven það sem Beethovens er. .. .“, þ. e. a. s. flytjið kórsöngva hans sem kórsöngva, en píanóverk hans sem píanóverk. — (Þess skal getið, að hið vinsæla vöggulag: „Sonur minn, sofðu í ró“, sem oftast er eignað Mozart — einnig í þessari söngskrá — hefir þegar árið 1892 reynzt vera eftir þýskan lækni, Bern- hard Flies, sem samdi það 1796, eða 5 árum eítir dauða Moz- arts). Hinir þrír einsöngvarar — Margrjet Finnbjarnardóttir og Jón Hjörtur Finnbjarnar- son auk frú Jóhönnu Johnsen — leystu hlutverk sín framúr- skarandi vel af hendi, og vakti hinn italski raddhreimur frú Margrjetar furðu áheyi'end- anna. . Á kirkjuhljómleikunum heyi'ðist auk söngvanna fei’sk og glaðvær pai’títa fyrir orgel eftírPál Halldórsson, sem mun sgirnin undir umsjá dr. Urbant- schitsch, og ber hún vitni um kontrapunktakunnáttu höfund arins. Dr. Urbantschitsch Ijek yerkið með. áhrifaríkri regist- ur-skiptingu, enda var öll frammistaða hans — bæði við píanóið og orgelið — kórnum og söngstjóranum hinn mesti styrkur. Jónas Tómasson fer sínar eigin leiðir í stjórn kórs- ins, en með ljúfmensku sinni og hljedrægni virðist hann öi’va sönggleði og sönghæfni kórsins betur en mörgum „routineruðum“ söngstjóra hef ir tekist. Róbert Abrahani. og Tyrkja Irakmanna London í gærkvöldi. í GÆR kom þjóðhöfðingi Irak manna til Ankara, til þess að í-æða við Inonu Tyrklandsfor- seta og ráðherra hans um ýms sameiginleg mál ríkjanna. Var þjóðhöfðingjanum fagnað ákaf lega á járnbrautastöðinni, en einkalest Tyrklandsforseta hafði verið send eftir honum til landamæranna. — Kom þegar fram í viðræðunum hin mikla vinátta, sem ríkir milli hinni tveggja þjóða. — Reuter. vjelbátar, hvalaveiðabátar, strandferðaskip og tankskip, en ,,Stavangerfjord“ norskú Ameríkulínunnar er stærsta skipið sem er statt þar nua. En það er tilfinnanleg vöntun á efni. Byrðingsplöt um er að vísu nægilegt af, en flest annað er af svó skornum skamti, að viðgerð in verður stundum að bíða, þangað til næsta sending kemur frá útlöndum. Flest innanstokks kemur frá Eng- landi og alt verður að spara, svo að skipin, sem nú sigla út frá smíðastöðinni hafa als ekki sambærilegan útbúnað við það, sem var fyrir stríð. Það er margt að sjá þarna á Akers Mekaniske. Þarna er stór ryðgaður skrokkur í smíðum, skipafjelagið Fred Olsen átti að fá skipið, en smíðin var stöðvuð þegar Þjóðverjar komu. Samt hef- ir smávegis verið unnið að !því á stríðsárunum. Annað ' nýtt skip er svo langt komið að það er á floti og búið að skíra það „Bolivar". Það gat verið tilbúið fyrir löngu, en smiðirnir kærðu sig ekki um að láta Þjóðverja nota það. „Bretagne“ heitir eitt stóra skipið, sem þarna ligg ur, það hefir fengið viðgerð og á að sigla til Newcastle. Það er ein tegund skipa, sem sjerstaklega er hraðað, nfl. hvalbátarnir. Þeir voru úti þegar Noregur var her- numinn, og hafa flestir ver- ið notaðir til að slæða tund urdufl á stríðsárunum, jafn vel suður í Súezskurði. Yer- öldina vantar feiti og hval- bátarnir verða að komast af stað um miðjan september. Og áður verður að taka af þeim „duflaplóginn“ (para- vaninn) og kanónpallinn, en koma fyrir skutulbyss- unni oð öðrum tilfæringum, því að það eru ekki sömu veiðarfærln, sem notuð eru á tundurdufl og á hval. Þarna liggur skip, sem heitir „Aústanger", 15.000 smálestir. Það var smíðað Þ Odense 1943 og Þjóðverjar tóku það, en nutu þess skamma stund, því að flug- vjel dreif sprengju á aftan- vert þilfarið og gerði skipið ósjófært. Það var dregið til Osló og komst til Akers Mekaniske Verksted, en þegar spellvirkin voru gerð á smíðastöðinni, 28. nóv. í. fyrra kviknaði í því og það skemdist enn meira. Annað skip, „Troma“ sökk í kví- mynninu í sama skifti, svo að erfitt er að koma skipum inn og út, framhjá því. En nú er verið að ná því upp. --------Þetta eru aðeins nokkrar augnabliksmyndir úr einum stað. En alsstaðar er verið að smíða og -gera við. í árslok 1948 gera Norð menn ráð fyrir að hafa bvgt í verstu skörðin, en í fult lag verða siglingar þeirra varla komnar fyrr en eftir tíu ár. Skttfi Skúlason.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.