Morgunblaðið - 08.11.1945, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 08.11.1945, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIB ■mnnmmimiimiininnnnnnnmininnnnnnimiink II 1 S t ú 1 k a 11 Dagsfo!uhúsgögn 1 1 fullorðin, óskar eftir ár- j§ | degisvist á fámennt heim- § | ili. Sjerherbergi áskilið. 1 = Tilboð merkt „Austurbær 1 — 95“, sendist Morgun- 1 blaðinu. : I «ammmmmHCTirei»tram«mimironnnnnnHHi Skápur með plötuspilara, ottoman o. fl., er til sölu. Ennfremur vandað gólf- teppi. Uppl. í síma 3973, kl. 6—7 í kvöld. * Góð kjallaraíbúð í nýju stemhÚNÍ við Iláteigsv. er til sölu. Laus til íbúð ar nú þegar, 4 herbergi og eldhús, með öllum þægind- um. Nánari upplýsingar gefur Jaóteicjnaóafan (Brandur Brynjólfsson) Bankastræti 7 — Sími 6063 : x v X Stýrimaður eða vjeistjóri óskast sem meðeigandi að kaupa nýjan 55 tonna mót- orbát, sem er tilbúinn til veiða nú þegar. Lysthafend- ur sendi nöfn sín og heimilisfang til afgr. blaðsins, merkt: „Meðeigandi' ‘. TIL SÖLU af sjerstökum ástæðum: 1 stk. þvottavjeþ 45 kg. 36 kw. m/mótor og rofum. 1 stk. strauvjel 2 m. 7 kw. með mótor og rofum. Báðar vjelarnar sem nýjar. Tilboð sendist afgreiðslu blaðsins fyrir 15. þ. m. merkt: „Þvottavjel-113 ”. Sc ndisveisB óskast strax. ^Jl. J. (Sertdóen & Co. k.f. Hafnarstræti 11. ASvinna óskast Ungur maður með verslunarskólaprófi, sem undanfar- in ár hefir unnið við allskonar skrifstofustörf, óskar eftir atvinnu. Tilboð merkt: „S.I.II..” sendist afgr. blaðsins fyrir 13. þ. m. ^♦•'♦♦Í***Mj*«***t»4*«**M**»%»*»A«***jMj«*J*»J*****J«»*««J*«J-»*«^<*«*J«*’44j»****J«**M*wJ»*J»*J**J*»J**J*«J*»J»«***J***»»J*«*»»^«J« XBUÐ Er kaupandi að 4—5 hebergja nýtísku íbúð á hita- veitusvæðinu. Til mála gæti komið skipti á nýju ein- býlishúsi, sem er á hitaveitusvæðinu. Alt laus til íbúð ar ekki síðar en 14. maí 1946. Þeir, ^em óska að at- huga þetta leggi nöfn sín inn á afgr. Morgunblaðsins fyrir 11. þ. m. merkt: „íbúð”. Sjötugur: Þórður Þórðarson símstjóri í Súganda - íirði MJER er ljós í minni fyrsti róðurinn, er jeg fór sem full- gengur vertíðarmaður á mót- orbát. Það var um páskaleytið, kalsalegt veðurlag, enda vetur énn í landi og Grænlandsís á reki með ströndum fram. Við hjeldum út úr Súgandafirði og bátnum var stefnt út og norður djúpt af Straumnesi,- En ekki hafði verið stímað lengi, þegar Grænlendingurinn fór að verða á leið okkar, fyrst jaki og jaki á stangli, síðan þjettar breið- ur, en aðra studina auður sjór. Norðaustan slampandi hafði verið þá um nóttina og nú með morgninum dreyfðist golan, en bárugutlandi varð því meiri, sem lengra dró út á miðin. Há- setar höfðust við á framþiljum og skygndust eftir jökum, en við stýrið sat miðaldra maður, dökkur á hár og skegg, góð- leitur og hýreygur og reykti pípu og söng. Milli vjelaskell- anna mátti greina orð og setn- ingar, því að söngmaðurinn var í dillandi skapi, þótt hann yrði að renna vökulum augum að hættunni og sveigja hrað- fara í ýmsa króka og beygjur innan um ísinn. Það var Kol- beinslag eftir Stephan G. Step- hansson, er hann söng og var þar í flokknum er Kölski og Kolbeinn kváðust á. Ef er gálaust af að má eins manns blóð úr lífsins sjóð. Hvað mun þá að hyggja á heillar þjóðar erfiljóð? Þessi syngjandi bátsformaður var Þórður hreppstjóri, er svo var þá jafnan nefndur. — Við vorum á lóðaveiðum þetta vor, en um sumarið á færaveiðum. Lágum við þá úti og ljetum reka á straumunum með fjörð- um fram. Þórður var jafnan hinn sami, — glaður og reifur, syngjandi og reykjandi, — og lesandi, þegar stund gafst. — Hann hafði bækur undir olíu- stakknum á bekknum í lúk- arnum og las, þegar við lágum í vari og gátum ekki aðhafst við veiðarnar. Og meðan við dorguðum eða drógum þann gula úti á miðunum var talað um bækur og skáldskap. sagna persónur ræddar og gagnrýnd- ar, ljóð þulin og kveðin. Guð- mundur Friðjónsson, Stephan G. Stephansson og Haraldur Níelsson voru Þórðar menn. — Þetta lýsti honum vel. Hann var vaxinn af kyngóðum stofni og þjóðrækni í blóð borin. — Þórður kenndi mjer að meta þessa öndvegismenn. Þannig var gott fyrir ungling að vera samvistum við hann, og í sjó- ferðunum hvarflaði hugurinn frá striti og bjástri. Þórður Þórðarson er nú sjö- tugur. Hann fæddist í Vatnadal í Súgandafirði 8. nóvember 1875, og á ættir þar í sveitinni. Fór hann ungur til Helga skip- stjóra Andrjessonar í Önund- arfirði og lærði hjá honum sjó mannafræði, en Helgi var einn af hinum fyrstu skipstjóralærðu mönnum á Vestfjörðum. — Hóf Þórður sjómennsku 14 ára að aldri og lagði þá í hákarlalegu á þilskipi. Var hánn upp frá því sjómaður milli 30—40 ár, þar af formaður yfir 25 ár. Gerð- ist hann ungur skiþstjóri á þil- skipinu Gunnari, sem var í flota Ásgeirsverslunar á ísafirði. — Þegar vjelbátar tóku að tíðkast, ljet hann smíða vjelbátinn „Frey“, sem hann stjórnaði jafnan, þangað til hann Ijet af sjómensku um 1925. Jafnframt sjósókninni frá Suðureyri, hafði Þórður með höndum margvís- leg ábyrgðarstörf. Hann var hreppstjóri Suðureyrarhrepps um 20 ár, og rak bókaverslun, var stofnandi Sparisjóðs Súg- firðinga og hefur alltaf verið í stjórn hans. Og símstjóri hef- ur hann verið um 27 ár. Þórður er kvæntur Sigríði Einarsdóttur, ágætri konu, sem einnig er alin upp í Súganda- firði og á þar til ætta að telja. Heimili þeirra Þórðar og Sig- ríðar á Suðureyri hefur verið vettvangur gestrisninnar. Þar hafa staðið opnar dyr fyrir gest og gangandi hvaðan sem að hef ur borið. Virðist það hafa verið ein lífsnautn Sigríðar að láta, sem flesta njóta greiðasemi sinnar og góðmensku. Þórður og Sigríður eignuð- ust 7 börn, af þsim eru þessi 5 á lífi: Ágústa gift Gísla Mar- íassyni vjelstjóra í Súganda- firði, Helga, gift Kristjáni B. Eiríkssyni trjesmið í Súfanda- firði, Óskar, húsgagnasmiður í Reykjavík, kvæntur Laufeyju Guðmundsdóttur, Einar verka- maður í Súgandafirði, kvæntur Kristínu Jespersdóttur og Ásta símamær á Suðuieyri. Þórður hefir notið almennra vinsælda í hjeraði sínu. Þegar jeg sá hann seinast, fyrir fjór- um árum, var hann í flestu lík- ur því, er jeg kyntist honum fyrst. Hann gekk syngjandi um plássið á Suðureyri, tók glaðlega upp umræður, áhuga- samur um landsmál og fróð- leiksfús, óádeilinn, en þó fast- ur í skoðunum og fylgisamur þeim málstað, er hann hefur valið sjer. Hann er einn af þeim mönnum, sem bæta um- hverfi sitt með heilbrigðum lífs viðhorfum og ljettu geði. Fimmtuda^ur 8. hóv. 1945. S MIPAUTCCno Eirrgszo 998uðri66 Tekið á móti flutningi til Bíldu dals og Þingeyrar fram til há- degis í dag. 0 • “ „ðverrir Tekið á móti flutningi til Sands, Olafsvíkur, Grundarfjarðar, — Stykkishólms, Búðardals og Flateyjar í dag. raiiiniiiiiiiiimiiimiimiimiuuuimmimunamuini 1 CsrdínuSitur I (ecrue). Fæst víða. mi<iiiimiiiiiiiiiHiiiimniiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiimmi:ii(ii vtaiaJiuuiingt- skrífstofa Gmar B <>uðmunds5oa. irtiaugu oorl&kssoa. teti 7. Uma< 02, 2002. ' >- f utími í 1—ð. Ali á sama stað Höfum fyrirliggjandi í heild- sölu hið vel þekta blettavatn, vaxbón og fljótandi bón. G. M. M. H.f. Egill Vilhjálmsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.