Morgunblaðið - 19.12.1945, Síða 1

Morgunblaðið - 19.12.1945, Síða 1
16 síður 12. árgangur. 287 tbl. — Miðvikudagur 19. desember 1945. Isafoldarprentsmiðja h.f. Konungur í veiðihug ' GUSTAV SVÍAKONUNGUR er mikill íþróttamaður, þó hann sje orðinn 87 ára leikur hann tennis og fer á veiðar við og við. Myndin hjer að ofan var tekin af Svíakonungi, er hann var á veiðum einu sinni í haust. wðarnir samfiykktu láns samningana vil Líka Breffon - Woods sáíbnáiann London í gærkveldi. Einkaskeyti tii Morgunblaðsins frá Reuter. LÁNSSAMNINGURINN við Bandaríkin var staðfestur í lá- varðadeild breska þingsins síðdegis í dag með 90 atkvæðum gegn 8, en 92 menn sátu hjá. Áður höfðu farið fram allharðar rmræSur um samninginn. Keynes lávarður, sem var í samninga- umræðunum af Breta hálfu, flutti ræðu, þar sem hann lýsti tamningunum og hvatti menn til þess að samþykkja þá, þótt hann fyndi líka nokkra galla á þeim. — Bretton Woods sátt- málinn var síðan staðfestur samhljóða. Aðalgallinn: Vextirnir. Keynes sagði, að hann teldi aðalgallana á láninu, að það væri ekki vaxtalaust, og einnig helst til lágt. Hann sagði, að Bandaríkjamenn vildu Bret- land sem öflugast, og skildu vel þarfir Breta í því efni að flytja sem allra mest út. — Keynes sagði að sjer virtist kjörin vel samþærileg við þau kjör, sem aðrir lántakendur hefðu fengið hjá Bandaríkjamönnum. Beaverbrook maldar í móinn. Beaverbrook lávarður var al- gerlega á móti því, að samning urinn væri staðfestur. — Hann sagði, að Bretar þyrftu ekki þetta lán, sem honum fyndist ákaflega óhagstætt. — Einnig sagði hann að sjer fyndist Bret- ar hafa nóg af hráefnum til þess að auka utflutning sinn, og gætu alveg eins verslað við aðr ar þjóðir. Greiddi Beaverbrook atkvæði gegn samþykkt sátt- málans, en sat hjá við atkvæða- greiðsluna um Bretton Woods. Kaupmenn fá appel- sínur í ársbyrjun APPELSÍNUR munu ltoma í matvöruverslanir KRON í dag. Matvörukaupmenn bæjarins munu hinsvegar’ ekki fá nein- ar appelsínur fyrir jól. — Þetta er vegna þess, að appelsínur þær er Innflytjendasambandið gerði pöntuh á í Ameríku náðu ekki í tæka tíð til New York. — En appelsínur þessar munu koma hingað með fyrstu ferð eftir áramótin. Persar ásaka Rússa um að hafa æst til uppreisnar Bevin, Byrnes beimsækja Sfalm London í gærkveldi: UTANRÍKISRÁÐHERRAR þeir, sem nú eru saman komn- ir í Moskva, áttu með sjer fjórða fundinn í dag, en öllu er haldið leyndu, sem þar gerist. Frjetta ritarar telja, af því, sem þeir hafa hlerað, að funairnir gangi mjög að óskum. Bevin og Byrnes munu ein- hyern næstu daga heimsækja Stalin, sem nú er aftur kominn til Moskva og sagður hafa tekið við stjórnarstörfum sínum. — Hann hefir verið suður á Svarta hafsströnd, síðan seint í október til þess að hvíla sig, og telja frjettaritarar að Zodanov hafi gegnt stjórnarstörfum hans á meðan. Reuter. verður hengdur Londoh í gærkveldú LÁVARÐADEILD breska þingsins hefir samþykkt að hafna náðunarumleitun Willi- am Joyce, sem kallaður var Lord Haw Haw, og talaði í út- varp fyrir Þjóðverja á stríðsár- unum. Var þetta samþykkt þannig, að fjórir af hverjúm fimm deildarmönnum voru með. — Áður höfðu all-miklar deilur orðið í deildinni um mál- ið, og hjeldu ýmsir fram að Bretar hefðu ekki vald til þess að dæma Joyce, þar sem hann væri ekki breskur þegn. — Joyce verður nú hengdur. — Reuter. Skora enn á stórveld- in að fara með heri úr landinu London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. FORSÆTISRÁÐHERRA Persa, Ibrahim Haikimi, flutti ræðu a þingi í Teheran í dag, og ræddi afskifti erlendra herja í land- inu af innanríkismálum þess. Ásakaði hann Rússa fyrir að hafa æst til uppreisnar í Azerbeidjan, eða að minsta kosti haldið hlífiskildi yfir uppreisnarmönnunum. Hann lýsti það ósannindi hjá Rússum, er þeir segðu, að þeir hefðu ekkert skift sjer af íerðum persneskra hersveita um landið, og kvað hægt að færa nægar sannanir á það gagnstæða. Sagði hann, sem dæmi, að setuliðsstjórinn í Tábriz, höfuðborg Azerbeidjan, hefði haft herlið nokkurt við ráðhús borgarinnar, en uppreisnarmenn verið oánægðir með það, og hefðu þá Rússar skipað setuliðsstjóran- um að fara tafarlaust með herinn frá ráðhúsinu. um ma sýningu í London London í gærkveldi: SÝNING á málverkum Pic- asso og Matisse, sem nú stend- ur yfir í London, hefir vakið þar meiri deilur en dæmi eru til , um listsýningar, og eru háðar harðar ritdeilur um sýninguna í blöðunum, einkum The Times. I Þar ritar formaður fjelags vatns litamálara grein, þar sem hánn j segir að sýningin sje móðgun bæði við gagnrýnendur og á- horfendur. Annar gagnrýnandi segir að I málarar af flokki Picasso máli aðeins það sem þá langi sjálfa ;til,.en sje algjörlega sama um skoðanir áhorfenda á verkum j sínum, en flestir málarar máli j að mestu leyti vegna skoðana ‘ almennings. — Reuter. Samkomudagur regluiegs Alþingis 1946 verSur 1. ohl. MEIRIHLUTI alsherjanefnd- ar neðri deildar flytur að beiðni forsætisráðherra frv. um sam- komudag reglulegs Alþinþis 1946. Segir svo í 1. gr.: „Reglulegt Alþingi 1946 skal koma saman 1. dag október- mánaðar, hafi forseti Islands eigi tiltekið annan samkomu- dag fyrr á árinu“. I greinargerð segir: ,,-Með því að í ráði er að íresta nú fyrir jólin fundum reglulegs Alþingis 1945 til 1. febrúar n. k., en þess bíða þá allmikil verk efni til úrlausnar og afgreiðslu,' er sýnt, að nýtt reglulegt þing getur ekki komið • saman á venjulegum tíma, 15. febrúar, og þykir ríkisstjórninni því rjett að leggja til, að samkomu- dágur reglulegs Alþingis á næsta ári verði ákveðinn 1. október, nema óhjákvæmilegt reynist að kveðja það saman fyrr“. 5 dagar til jóla. Gerið innkaup tímanlega Skorar enn á stórveldin að flytja herina burt. í dag var fulltrúum stórveld anna í höfuðborg Persíu, Ther- an, enn afhent áskorun stjórn- arinnar um það, að fara úr landi með heri sína, og einnig skorað á Sovjetstjórnina að hætta afskiptum sínum af inn- anríkismálum Persa. — Sagði ráðherrann í þingræðunni, að Rússum kæmi ekki hið minnsta við og hefði aldrei komið, hversu liðsstyrk persneska stjórnin væri í hinum ýmsu hjeruðum síns eigin lands, og myndu Persar geta hafa komið ró og reglu á í Azerbeidjan, ef Rússar hefðu ekki stutt upp- reisnarmenn og hindrað ferðir persnesks liðs. Kvað hann það þverbrot á alþjóðalögum, er löglegri stjórn eins ríkis væri meinað að halda uppi lögum innan landamæra þess. Ætlar að fara til Moskva. Ráðherrann lýsti yfir því í þingræðunni, að hann myndi fara til Moskva og reyna þar hvað hann gæti til þess að Pers ar fengju sjálfir völdin í land- inu sínu á ný. — Hann ságði að blað væri gefið út í Tabriz, sem færi þannig orðum um stjórn landsins, að hvaða stjórn sem væri, myndi banna slíkt málgagn. Þetta kvað ráðherr- ann ekki vera hægt fyrir Rúss- um og yfirleitt ekkert hægt að gera fyrir löglega stjórn lands- ins í þessum lrluta þess. For- sætisráðherrann sagði að stjórn ifini myndi ekki verða skota- skuld úr því að koma á reglu, ef íhlutun erlendra valda hætti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.