Morgunblaðið - 19.12.1945, Side 12
12
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 19. des. 1945.
Minning Hóimfríðar
Snorradótfur
Fædd 29. júní 1873.
Dáin 10 desember 1945.
í.|inningar til máls nú vakna,
um margar stundir glaðar hjer.
Lengi mun jeg sárt þín sakna,
sannur vinur hvarf með þjer.
Margur þín að góðu getur.
Gjöfult var þitt hjarta og mund.
Hjá þjer fann oft vor um vetur
vesælt strá, með dapra lund.
Merk þú varst og mikil kona,
mest og best í hljóðri raun.
Öll þín góðu verk jeg vona,
að verði ljós og fái laun.
Börn þín kveðja kæra móður,
kveðjur, er engan skugga ber.
Muni þeirra hlýr og hljóður
horfir löngum eftir þjer.
Hugró þinni og heilum sefa,
haggað fekk hjer engin stund.
Hjá þjer fanstu engan efa
eða geig, við dauðans blund.
Oft. þú leiddir hug að háu,
Heilög ritning var þjer kær.
Hvar, sem þínar leiðir láu,
ljómar stjarna, mild og skær.
Á. H. H.
- Alþj. vettv.
Framkald af bls. 8
Bandaríkjamenn komnir á þá
skoðun að þeir skyldu heldur
borga hernámskostnað sinn sjálf-
ir, en vera að reyna að herja
hann út úr gjaldþrota Þjóðverj-
unum. — Bandaríkjamenn vildu
borga mikið til þess að forðast
hið erfiða val: að svelta Þjóð-
verja, eða endurreisa Þýskaland.
(Time.)
Barclays færir úf
kvíarnar
London í gærkveldi:
HINN kunni enski banki,
Barelays í London, hefir í
hyggju að auka mjög umsetn-
ingu sína á næstunni. — Verð-
ur þetta gert í samráði við
stjórnarvöldin og viðreisn ný-
lendnanna að nokkru leyti. —
Mun bankinn veita lán til fram
kvæmda í nýlendum Breta með
góðum kjörum. — í þessu skyni
verður hlutafje bankans aukið
um fimm miljónir punda, og er
búist við frekari aukningu
snemma á næsta ári. ~
— Reuter.
Arndís Armann
íxá Sandi
HÚN ljest að morgni þess 11.
þ. m. eftir stuttá en þunga legu,
aðeins 54 ára að aldri.
Arndís var fædd að Munað-
arhóli á Sandi þ. 7. apríl 1891,
og voru foreldrar hennar Jón
Jónsson hreppstjóri og kona
hans Jóhanna Jóhannsdóttir,
bæði ættuð úr Breiðafjarðar-
eyjum og af góðu bergi brotin.
Þau fluttu ung undir Jökul,
sem kallað var, og bjuggu rausn
arbúi á Munaðarhóli svo lengi
sem heilsa þeirra leyfði. Var
Jón orðlagður formaður bæði
á árabátum og mótorbátum og
varð aldrei fyrir neinum áföll-
um, þótt oft skylli hurð nærri
hælum. Hann var í miklu áliti
meðal sveitunga sinna og naut
trausts þeirra í ríkum mæli.
Á þessu ágæta heimili ólst
.1
Kaupmenn!
Kaupfjelög!
Sænskur umbúðapappír
væntanlegur næstu daga.
BIRGÖIR TAKMARKAÐAR.
Eggert Kristjánsson & Co. h.f.
^ófab óLin er .^óÍcluclIzcl
víkur. með barnahópinn, og
hepnaðist henni þrátt fyrir
þröngap fjárkost að koma börn
um sínum upp og afla þeim
mentunar. Tengdamóðir henn-
Arndís upp og naut þeirr.ar | ar> frú Katrín Ármann/tók þá
yngstu dótturina, sem hjet í
höfuð hennar, á heimili sitt, og
hefir hún síðan notið ástfósturs
hennar og föðursystkina sinna,
Maríu og' Ágústs. Hin börnin
eru: Unnur, gift Steinþóri heild
sala Marteinssyni (Þorsteins-
sonar á Fáskrúðsfirði), Magnús
verslunarmaður, kvæntur Mar-
grjetu Björnsdóttur, Knútur
rafvirki á Akranesi,. kvæntur
Kristínu Jensdóttur, og Hanna
verslunarmær.
Frú Arndís var prýðilega vel
gefin kona, fríð sýnum, nærgæt
in og ósjerhlífin, enda hvers
manns hugljúfi. Á meðan hún
naut heilsunnar var hún altaf
kát og reif og hrókur alls fagn-
aðar. Þjáningarnar síðustu æfi
dagana bar hún með hugprýði
og naut fylstu umhyggju barna
sinna og tengdabarna, sem
sýndu, að þau kunnu að meta
það, sem hún hafði fyrir þau
gert.
Er nú sár harmur kveðinn að
börnum, barnabörnum, systkin
um, vinum og venslafólki frú
Arndísar, en huggun þeirra má
vera, að góð kona er gengin
og gott er þeim að hvílast, sem
þreyttir eru. Ó. J. P.
mentunar, sem kostur var á.
Aðeins 20 ára að aldri gekk
hún að eiga Valdemar Ármann,
mjög myndarlegan og dugleg-
an mann, sem hafði góða versl-
unarmentun og seinna gjörðist
fjelagi firmans Bræðurnir
Proppé og stýrði verslun þeirra
á Sandi. Stofnuðu þau heimili
þar og var það orðlagt fyrir
myndarskap, rausn og gestrisni.
Má margur minnast margra
hlýrra og ánægjulegra stunda
þar. Var Valdemar drengur
hinn besti og naut fylsta
trausts meðborgara sinna. Sam
búð þeirra hjóna varð styttri
en skyldi, því hann fjell frá ár-
ið 1925 og varð öllum, sem til
hans þektu, harmdauði. Sárast
ur var þó harmur ekkjunnar,
sem stóð uppi með fimm korn-
ung börn. En þá sýndi frú Arn-
dís, hvað bjó með henni. Flutt-
ist hún skömmu eftir andlát
manns síns hingað til Reykja-
| Pelsar
s Verð frá 915—5.300 kr.
Verslun Vík.
iuHuiHníiUiimimimuaflwiBSBBaiiiacöiianai
Steðjar,
25—50 kg.
Vírburstar
fyrir rafmagns-slípi-
vjelar.
Rafmagns-
handsagir
VERZLUN
O. ELLINGSEN h.f.
Barkariitur
nýkominn. g
| VERZLUN
1 O. ELLINGSEN h.f. |
............................1
sflnimiiininmmirancnniimrmnraFmnnminms
3
1 Auglýsendur
1 athugið!
| að ísafold og Vörður er
1 vinsælasta og fjölbreytt-
= asta blaðið í sveitum lands
| ins. — Kemur út einu sinni
í viku — 16 síður.
MllMCTffiM fál PDÁir |mMi í • l.;2[ •
IVIAiiaIIiN uULrljUN IðBSt 1 llVðffi uúg • • i, no og fro imv egis
<4 1 <4 i X Eftir Roberl Storm j
! ’ ' " N) wmr' ’HHmaV' ... ''W i aaapK A tA A X'<
5ET-UP FOR A CELL-i
DRAFT EVA510N WA£
BAD ENOUöH, BUT
NOW I/M - l'M A j
GANGSTER! L
Snjáldri: Varst það þú, sem skaust, Glámur? —
Glámur: — Jú, jú. Það hafði losnað um annan af
þeim. Komum nú, við skulum flýta okkur hjeðan.
Snjáldri: Heldurðu að þú hafir drepið náungann?
— Glámur: Það vona jeg ekki. Það verða nógir af
lögreglunni að leita að þessum hjólbörðum, þó þeir
þurfi ekki að leita að líki í þokkabót — Apinn:
Jæja, Franki, þetta var laglegt. Við höfum náð 100
hjólbörðum. Það verður þægilegur skildingur. —
Franki: Jæja, nú er það ekki aðeins liðhlaup, sem
jeg er sekur um, heldur rán líka.