Morgunblaðið - 19.12.1945, Side 15
Miðvikudagur 19. des. 1945.
MORGUNBLAÐIÐ
15
Fjelagslíf
Kvenskátar!
Jólakortin eru
komin. Fást í
versl. Áhöld,
Lækjarg. 6.
Stjórnin.
R.S. yngri,
halda fund n. k.
föstud.kvöld,
kl. 9,30 í Odd-
fellowh., uppi.
Kl. 7—8
— 8—9
Armenningar!
Æfingar í kvöld.
I sóra salnum:
Handknattl. karla.
Glímuæfing.
—• 9—10 Fiml., I. fl. karla.
I minni salnum:
Kl. 8—9 Handknattl. drengir.
— 9—10 Hnefaleikar.
I Sundhöllinni:
Kl. 8,40—10,00 Sundæfing.
— 10,00—10,40 Sundknattl.
Skrifstofan
verður opin kl. 8—10.
Stjórnin.
I.O. G.T.
STÚKAN MÍNERVA
Fundur í kvöld. Inntaka. Skýrsla
frá húsráðsfundi.
St. Einingin
Fundur í kvöld, kl, 8,30. Venju-
leg fundarstörf. Á eftir fundi
spilakvöld (fjelagsvist). Verð-
laun veitt. Góðu stúkufjelagar,
þið sem hafið happdrættisblokk
ir, verið ötulir til jóla. 26. þ. m.
verður að afhenda þær. Æ.T.
Tapað
PAKKI,
með hálfsaumuðum gluggatjöld-
um tapaðist í gærkvöldi í mið-
bænum. — Uppl. í síma 2553.
TAPAÐ — FUNDIÐ
Stúlkan, sem tók í ógáti pakk-
ann, með maskínubróderuðu
silki, í versl. Ásgeirs Gunnlaugs
sonar í gær, vinsamlega skili
því aftur í verslunina.
Vinna
HREIN GERNIN GAR.
Vanir menn til hreingerninga.
Sími 5271.
GLUGGAHREINSUN
Sími 4727.
Anton og Nói.
. HREIN'GERNIN G AR
Pantið í síma 3249.
Ægtf3 Birgir og Bachmann.
Tökum að okkur
HREINGERNINGAR
Áhersla lögð á vandvirkni. —
Sími 5932. — Bjarni.
HREIN GERNIN G AR
Guðni Guðmundsson, sími 5572.
HREINGERNINGAR
Magnús Guðmunds.
Teppa- og husgagnahreinsu'.
Sími 6290.
Eggerf Claessen
Einar Ásnwndsson
hæstrjettarlögmenn,
OddfellowhúsiO. — Sími 117L
Allskonar lögfrœöistörf
352. dagur ársins.
Sæluvika.
Sólarupprás kr. 10.26.
Sólarlag kl. 14.24.
Árdegisflæði kl. 17.47.
Ljósatími ökutækja frá kl.
14.55 til kl. 9.50.
Næturlæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunni.
Næturakstur annast Bifröst,
sími 1508.
□ Edda 594512197 — jólabl.
Veðrið: Klukkan 5 í gærkveldi
var yfirleitt NA-svassviðri hjer á
landi, veður-
hæðin 6—8
vindstig. Þurt
veður og frost
laust sunnan
lands, en snjó-
koma og 1—2
stiga frost norð
vestan lands.
Á austurlandi
er hiti um
frostmark og
snjókoma á Norðausturlandi. —
Djúp lægð var á milli Skotlands
og íslands á hreyfingu norðvest-
ur eftir í stefnu á suðurströnd
íslands.
Hjónaband. S. 1. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
ungfrú Sigrún Stígsdóttir og
Hörður Davíðsson, rafvirki. —
Heimili ungu hjónanna er í
Skála 33 í Þóroddstaðahverfi.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband ungfrú Svan
fríður Örnólfsdóttir frá Súg-
andafirði og Óskar Þórðarson
frá Haga.
Það skal tekið fram, að þeim
peningum sem gefnir eru til
Vetrarhjálparinnar, er ekki
skipt niður á milli þeirra sem
óska aðstoðar Vetrarhjálpar-
innar, heldur er þeim varið til
matar- og fatnaðarkaupa.
Háskólastúdentar! Með tilvís
un til fyrri tilkynningar varð-
andi áramótadansleik stúdenta,
skal það tekið fram að stúdenta
skírteini verða afhent háskóla-
stúdentum í herbergi Stúdenta-
ráðs frá kl. 4.30—6.30 síðd. í
dag. Menn hafi með sjer smá-
mynd. — Það er brýnt fyrir
stúdentum að sækja skírteini.
Skipafrjettir: Brúarfoss er á
Sauðárkrók. Fjallfoss fór frá
Reykjavík í gær vestur og norð
ur. Lagarfoss fór frá Reykjavík
15. des. til Kaupmannahafnar
og Gautaborgar. Selfoss fór frá
Reykjavík í gær til Leith. —
Reykjafoss fór frá Rvík kl. 8.00
í fyrrakvöld til Leith. Buntline
Hitch fór frá New York 9. des.
Mooring Hitch fór frá Rvík í
fyrrakvöld til New York. Span
Splice var væntanleg í fyrra-
dag frá Halifax, hefir tafist
vegna óveðurs, kemur sennilega
í dag. Long Splice og Balteako
eru í Reykjavík. Anne fór frá
Gautaborg. Baltara fór frá
Rvík 15. des. til London. Lech
fór frá Rvík í fyrrakvöld til
Grimsby.
Jamboreeklúbbur Islands
heldur fund næstkomandi föstu
dagskvöld kl. 8.00 í Oddfellow-
húsinu, uppi.
Skrifstofa Maéðrastyrksnefnd
ar er í Þingholtsstræti 18. Þar
er tekið á móti gjöfum til fá-
tækra kvenna og barna þeirra.
I frásögn af skákkeppni
Kjósaringa og Keflvíkinga í
blaðinu í gær var sagt að Kefl
víkingár hefðu unnið bikárinn
þrisvar, en átti að vera tvisvar.
Útvarpstíðindi, jólablað er
komið út, fjölbreytt að efni. Á
forsíðu er mynd af jólaþvotti
lítils snáða. Grein er þarna sem
heitir Barátta mannsins. — Þá
er grein um Björnstjerne Björns
son, eftir systurson skáldsins
Per Björnson, Soot. Ferðasaga
um ferðalag, sem ekki gekk sam
kvæmt áætlun. Smásaga eftir
Elías Mar. Þá er jólaleikrit og
jólasveina-vísur, sem sungnar
verða í útvarpið á annan í jól-
um. Skemmtileg myndasaga um
kisu og dúfuna, ljósmyndir, er
Halldór Arnórsson tók. Nokkr-
ar smásögur og loks jólaskráin
með myndum af mörgum þeim,
sem sjá um dagskrárliði á jólun
um. Hefir verið vel til útgáfunn
ar vandað og virðist vera að
koma nýtt'snið á þetta tímarit.
Munið eftir Vetrarhjálpinni.
Skrifstofan er í Bankastræti 6,
sími 4966.
Gjafir til Finnlands. Kennara
fjelagið, Hússtjórn og Hús-
mæðrakennarafjelag íslands
hefir beðið blaðið að færa öll-
um innilegt þakklæti, sem
sendu fatnað og annað til nem-
enda og húsmæðrakennara í
Finnlandi.
Til bágstöddu hjónanna. — Á.
H. kr. 60,00, N. N. kr. 30,00, Ad.
og Ed. kr. 100,00.
ÚTVARP í DAG:
8.30 Morgunútvarp.
12.10 Hádegisútvarp.
15.30 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 1. flokkur.
19.00 Þýskukensla, 2. flokkur.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Kvöldvaka:
a) Gils Guðmundsson ritstjóri:
Þáttur um Vatnsfjörð og Vatns
firðinga.
b) Kvæði kvöldvökunnar.
c) Olafur Jónsson framkvæmda
stjóri, Akureyri: Frá Fjalla-
Bensa. Bókarkafli (dr. Broddi
Jóhannesson).
21.50 Frjettir.
22.00 Endurvarp frá Danmörku:
Jólakveðjur til Grænlands.
Jólagjafírnar eru
„Vítf sé eg land
og fagurt"
Skrautb. 100 kr.
Ævisaga sjera Jóns
Steingrímssonar
í skrautbandi 110 kr.
J/./,*/.//
_istrœti 18
KAÐLAR
fyrír nýskipun
Vjer höfum nú fengið leyfi til þess að flytja út víra og getum
því tekið á móti hóflegum pöntunum, til afgreiðslu í október—
desember 1945. Um leið og þjer gerið pantanir yðar, þá skýrið
oss frá hvað þjer hafið mikið innflutningsleyfi, og gefið oss enn
fremur allar nauðsynlegar upplýsingar, viðvíkjandi innflutn-
ingsskilyrðum, svo að komist verði hjá óþarfa töfum.
BRITISH ROPES
LIMITED
Framleiðendur vírkaðla, víra,
hampkaðla og striga.
Aðalskrifstofa: Doncaster, England.
Skrifstofur og verksmiðjur um alt Bretland.
B. R. 18.
Skrif stof ur okkar verða
lokaðar í dag vegna
farðarfarar frá kl. 1—4
H. Benediktsson & Co.
Maðurinn minn,
ÁRNI SIGURÐSSON, skipstjóri,
frá Ási,
andaðist af slysförum aðfaranótt 11. þ. m. — Fyrir mína
hönd og annara vandamanna,
Súsanna Jónasdóttir.
Hjer með tilkynnist að konan mín,
GUÐRÚN HELGA HARALDSDÓTTIR,
andaðist að Vífilsstöðum 17. þ. m. — Jarðarförin ákveðin
siðar.
Sigurður Sigbjörnsson.
Konan mín, móðir okkar og systir,
HREFNA GUÐRÚN JÓHANNSDÓTTIR,
frá Brekku, Vestmannaeyjum, verður jarðsunginn frá Frí-
kirkjunni, fimmtudaginn 20. þ. m.
Athöfnin hefst kl. 1 e. h. á heimili hinnar látnu.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað.
Fyrir mína liönd og annara vandamanna,
Einar Dagbjartsson.