Morgunblaðið - 28.12.1945, Page 12

Morgunblaðið - 28.12.1945, Page 12
/ VEÐURÚTLTTíÐ. Faxaflói: Norð-austan gola cffa kaldi. Úrkornulaust. Föstudagur 28. desember 1945 KOMMÚNISTAR brjóta eig- in stcfnu — sjá grein á bls. 2. — Morðmálið i Framhald af 1. síðu högg á munninn og höfðu brotn að í honum tennur og voru var- irnar bólgnar eftir höggið, sem, þó mikið hafi verið, mun senni lega hafa verið hnefahögg. En mestur var áverkinn við bæði eyrun, einkum þq við hægra eyrað. Stór blóðpollur var kringum höfuð líksins. Ekki sáust nein merki þess, að þarna • hafi átt sjer stað ryskingar. Ekkert blóð var á höndum líks ins, eða áverkar. Vestið hafði verið hætt frá honum og losn- að hafði um flibbann. Líklegast er, að Kristján hafi fallið í öngvit, er hann fjekk höggið á munninn, og aðal- áverkann hafi hann fengið á meðan hann var meðvitundar- laus og að vegandinn hafi sleg- ið-hann með barefli. Ekki fanst 'neitt barefli í bragganum, sem notað hafði verið til þessa. — Bragginn, þar sem lík Krist- jáns fanst, er instur þriggja bragga, sem standa í röð þarna í portinu. Þar er ekkert ljós. Ekki var þar áfengisflaska sú, er Kristján var með, er hann kom á heimili kunningja síns fyr um daginn. Rjettarkrufning fór fram á líkinu í gær, en skýrsla um krufninguna lá ekki fyrir í gær kvöldi. Leitað í vösunum. Leitað hefir verið í vösum á fötum Kristjáná. Hann hefir verið færður úr yfirfrakkánum þannig, að ermarnar urðu rang hverfar. Sá sem leitað hefir í vösunum, hefir verið blóðugur um hendurnar, því blóðrefjar eru kringum vasa á fötum hans. Kristján var ekki með neitt verðmæti á sjer. Peninga var hann ekki með, svo vitað sje, nema í hæsta lagi nokkrar kyón ur í vestisvasa. Ekki bar hann úr nje t. d. lindarpenna. Það eina, sem eftir var í vösunum, var einn vasaklútur. Ætlaði í skemti- göngu. Kristján Guðjónsson var 53 ára, fæddur 3. maí 1892. Hann vann í Ríkisprentsmiðjunni Gutenberg, var giffur og átti uppkominn son. Kona hans, Kristín Guðmundsdóttir, segir svo frá, að hann hafi farið að heiman um 3 leytið ,á annan jóladag. Ætlaði hann að ganga sjer til hressingar, en vera kominn heim aftur fyrir 4, því þau hjónin höfðu ákveð- ið að fara í heimsókn til kunn- ingjafólks síns um það leyti. Segir Kristín, að Kristján hafi verið vanur að ganga niður með höfn er hann fór í stuttar gönguferðir. Þegar Kristján var ókominn heim til sín kl. 4.30, ákvað kona hans að fara til kunningjafólks ins ein. En áður en hún fór, skrifaði hún á miða, hvert hún hefði farið. Frú Kristín kom heim aftur um 6 leytið og hafði ekki haft neinar spurnir af manni sínum. Hún taldi samt víst, að hann myndi hafa komið heim meðan hún var í burtu, því hún telur, að hann hafi sótt hálstrefil, sem hann var ekki með, er hann fór út um 3 leytið. Kom í hús til kunn- ingja síns. Það næsta — og raunar ein- asta — sem vitað er um ferðir Kristjáns heit., eftir að. hann fór að heiman frá sjer, er, að klukkan 3.45 kemur hann heim til starfsbróður síns, Vil- helms Stefánssonar á Berg- staðastræti 6. Vilhelm og kona hans voru ekki heima, en dótt- ir Vilhelms kom til dyra. Krist- ján kvaðst vera kominn til þess að þakka Vilhelm fyrir jóla- kort, er hann hafði sént hon- um og vildi bíða, ef ske kynni að hjónin kæmu heim von bráð ar. Var honum þá boðið inn. Þarna dvaldi Kristján í þrjá stundarfjórðunga eða til klukk an 4.30. Hann hafði meðferðis áfengisflösku, sem eitthvað var á. Sagði hann frá því, að hann hefði hitt þrjá ameríska her- menn og gefið þeim.áfengi. — Ekki var vín að sjá á Kristjáni að neinu ráði, enda var hann jafnan mjög hægur maður og stiltur vel, jafnvel þótt hann hefði bragðað vín. Ennþá hefir enginn gefið sig fram, sem orðið hefir Kristjáns var eftir þetta. En það eru til- mæli rannsóknarlögreglunnar, að ef einhver kann að hafa orð ið hans var á annan í jólum, að hann gefi sig fram og veiti þær upplýsingar, sem hann kann að hafa. Jafnvel hin smávægi- legustu atriði gætu orðið til þess, að mál þetta upplýstist. Einstakt ljúfmenni. Þeir sem þektu Kristján lýsa honum þannig, að hann hafi verið ljúfmenni hið mesta. Sjerstaklega dagfarsgóður mað ur, rólyndur og laus við öll ill- indi. Hann vildi öllum mönn- um vel og vildi engum gera mein. 70 þúsund krónur söfnuðusf !il Vefr- arhjálparinnar VETRARHJÁLPIN er nú um það bil að ljúka störfum. Safn- ast hafa 70 þúsund krónur. Það er heldur meira, en á sama tíma í fyrra. En ókomnir eru enn nokkrir söfnunarlistar frá; fyrirtækjum. Vetrarhjálpin tók til’greina 520 umsóknir. Það er mjög svipað og í fyrra. Það eru vinsamleg tilmæli Vetrarhjálparinnar að þau fyr- irtækí, sem enn hafa í fórum sínum söfnunarlista, skili þeim hið allra fyrsta. Þá hefir Ste- fán A. Pálsson beðið blaðið fyr- ir hönd Vetrarhjálparinnar, að færa bæjarbúum öllum þakkir fyrir góðar gjafir og stuðning við málefnið. KNÚTUR ARNGRÍMSSON skólastjóri Gagnfræðaskóla Reykvíkinga, andaðist að heim- ili sínu iijer í bænum í fyrra- dag. Hann var aðeins 42 ára. Knútur var guðfræðingur að mentun og þjónaði í Húsavík um nokkurra ára skeið, en stundaði síðan landafræði- og sögunám við háskólann í Múnchen. Eftir að hann kom heim frá því námi lagði hann aðallega stund á kenslu og rit- störf. Hefir hann ritað fjölda greina í blöð og tímarit og nokkrar bækur hans eru kunn- ar, bæði frumsamdar og þýdd- ar. — íslenskur læknir kvnnir sier útbúnað nýiísku sjúkrahúsa í Svíþjóð. í RÁÐI ER, að Guðmundur Karl Pjetursson, yfirlaéknir sjúkrahússins á Akureyri, verði sendur til Svíþjóðar ásamt arkitekt til þess að kynna sjer byggingar og útbúnað nýtísku sjúkrahúsa þar. Heilbrigðismálaráðherra hafði stungið upp á því við bygg- ingarnefnd sjúkrahússins á Ak- ureyri, að hún sendi yfirlækni sjúkrahússins ásamt arkitekt, sem ríkið sendi, utan í þessu skyni. Yrði í ferðinni undirbú- inn uppdráttur á sjúkrahúsinu og ýmsar aðrar athuganir í sambandi við það gerðar. Á- kvað nefndin þegar að fara þess á leit við Guðmund Karl, að hann^færi þessa för. Hefir bæjarstjórn Akureyrar staðfest þessar ráðstafanir byggingar- nefndarinnar. Gjaldeyrisörðug- leikar í Danmörku SENDIRÁÐ ÍSLANDS í Kaup mannahöfn hefir bent á það, að samkvæmt núgildandi ákvæð- um sje ekki hægt, vegna gjald- eyrisskorts, að kaupa farmiða frá Danmörku, til Svíþjóðar, nema leyfi danska þjóðbankans komi til og alveg sjerstaklega standi á. Þó eru seldir farmið- ar frá Kaupmannahöfn til Málmeyjar og Helsingborgar. (Frá utanríkisráðuneytinu.) á morgun ÚTFÖR slökkviliðsmannanna tveggja, Ámunda Hjörleifsson- ar og Sigurbjörns Maríussonar, er fórust í slysinu þ. 20. des. s.l., er ákveðin á morgun, laug- ardag. — Athöfnin hefst í Dóm kirkjunni kl. 1 e. h. Þeir slökkviliðsmenn, sem ætla að veráf viðstaddir útför- ina, eru beðnir að hafa tal af Kristni Eyjólfssyni sem allra fyrst. íslenskir sjómenn 2á ekki föi í Eng- landi SENDIRÁÐI ÍSLANDS í London hefir verið tilkynt, að framvegis verði sjómönnum, er til Bretlands sigla, alls eigi út- hlutað skömtunarmiðum fyrir fatnaði, nema fyrir liggi gögn um, að umræddur sjómaður hafi orðið fyrir skaða á fatnaði í siglingu. Getur hann þá feng- ið úthlutaða skömtunarmiða, sem svara til þess fatnaðar, er eyðilagst hefir eða skemst svo, að eigi verði úr bætt, enda fylgi vottorð fulltrúa landsins í Bret landi (sendiherra eða ræðis- manns). (Frá utanríkisráðu- neytinu.). Fljótvirkur þjófur ÞAÐ BAR VIÐ í húsi einu hjer í bænum um eitt leytið í gærdag, að stúlka brá sjer út úr herbergi sínu í nokkrar mín útur — hún heldur, að hún hafi ekki verið í burtu nema 4—5 mínútur. Er hún kom aft- ur inn í herbergi sitt, sá hún að taska, sem átti að vera þar á borði, vdr horfin. Þjófur hafði notað þessa stuttu fjarveru stúlkunnar til að stela töskunni. í henni voru 650 krónur í peningum, tvær brjóstnælur úr gulli, silfur- armbandsúr og ýmislegt annað smávegis. Ný framhaldssaga hefsf í blaðinu í dag í BLAÐINU í dag hefst ný framhaldssaga, mjög spennandi, sem nefnd hefir verið Dular- fulla brjefið. Aðalsöguhetjan er ung stúlka, sem kemur til New York til þess að hitta föður sinn, fulí tilhlökkunar og eftirvæntingar. Hún hefir ekki komið til borg- arinnar í tíu ár, og ætlar nú heldur að skemta sjer vel og skoða sig um. En það fer öðruvísi en á horfðist. Hún lendir þegar í margvíslegum og dularfullum æfintýrum, sem lesendur munu áreiðanlega fylgjast með af miklum spenn- ingi. mWAim var kallað úl f jórum sinnum SLÖKKVILIÐIÐ var kallað út fjórum sinnum frá 23. þ-. m. og þar til í gærkvöldi. Var það fyrst að horni Smiðjustígs og Laugavegs.Hafði eldur kvikn að í bifreiðinni Z-15. Þegar slökkviliðið kom, var búið að slökkva eldinn. Á aðfangadag kl. 14.56 var það kallað inn að Höfðaborg 10. Kviknað hafði í barnarúmi. Búið var að slökkva er slökkviliðið kom. í gærmorgun kl. 10.29, var slökkviliðið kallað upp að braggá 126 í Skólavörðuholti. Þegar slökkviliðið kom, var töluverður eldur í suðurenda braggans. fljótlega tókst að ráða niðurlögum hans. Skemd- ir urðu töluverðar, bæði á bragganum og húsmunum. Þá var slökkviliðið kallað út kl. 21.40 í gærkvöldi. — Hafði kviknað í brjefarusli bak við bókaverslun Sigf Eymundsson ar í Austurstræti. Var þar all- mikið bál, en flpótlega tókst að ráða niðurlögum þess. Lisfi Sjálfstfæðis- mamta við hrepps- nefndarfcosningar í Stykkishólmi Frá frjettaritara vorum í Stykkishólmi. SJÁLFSTÆÐISMENN í Stykk- ishólmi hafa lagt fram lista sinn við hreppsnefndar-, sýslu- nefndar- og skólanefndarkosn- ingar, sem fram eiga að fara hinn 27. jan. n.k. Var hann sam þyktur á fundi í Sjálfstæðis- fjelaginu Skildi 23. des. s.l. —• Þessir menn skipa 7 efstu sæti hreppsnefndar listans. 1. Kristján Bjartmars, hrepps nefndaroddviti. 2. Hildimundur Björnsson, vegaverkstióri, 3. Ólafur Jónsson frá Elliðaey, trúnaðarmaður vérðlagsstjóra. 4. Sigurður Ágústsson, kaupm., 5. Árni Ketilbjarnarson, verka- maður, 6. Sigurður Magnússon, trjesmiður, 7. Kristján Rögn- valdsson, vjelsmíðameistari. Til sýslunefndar: Sigurður Ágústsson, kaupmaður og vara maður hans. Kristján Bjart- mars hreppsnefndaroddviti. Til skólanefndar: Jón Bryn- jólfsson, verslunarmaður og Ingibjörg Jónasdóttir frú. Á sama fundi var ákveðið að halda árshátíð Sjálfstæðisfje- lagsins Skjaldar, laugardags- kvöldið 19. jan. n.k. Sprengingar í Jerú- salem London í gærkvöldi. I DAG urðu sprengingar á níu stöðum í Jerúsalem. Ekki er enn vitað, hve fjártjón hefir orðið mikið, en manntjón hefir talsvert orðið. — Þá urðu tvær allmiklar sprengingar í Telaviv.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.