Morgunblaðið - 17.01.1946, Blaðsíða 1
16 síður
Þing sameinuðu þjóðanna:
AZERBAIJANMÁLIN VERÐA LÖGÐ
FYRIR BANDALAGIÐ
Uppivöðslur fara
í vöxf í Danmörku
K.höfn í gær. — Einka-
skeyti til Mbl.
MORG Kaupmannahafnav-
blaðanna lýsa andúð þjóðarinn-
ar á þeim atburðum, sem farið
hefir æ fjölgandi upp á síðkast-
ið, sem sje, að einstakir menn
hyggjast sjálfir taka að sjer
rjettarvörsluna í ríkinu. —
Blaðið Berlingske Tidende seg-
ir frá því, að óþektir menn hafi
gert handsprengjuárás á veit-
ingastað einn í Álaborg og stofn
að í hættu lífi 40 manna. Var
árás þessi talin hafa stafað af
því, að sumir v'oru óánægðir
með það, að eiganda veitinga-
hússins, sem grunaður var um
að hafa átt samvinnu við Þjóð-
verja, og því tekinn fastur, var
slept vegna ónógra sannana. —
Verkföllum er hótað vegna
þess, að mönnum þykir sýknu-
dómar í málum manna, sem
teknir voru fastir eftir að her-
náminu lauk, of margir. —
Blaðið segir, að aísakanlegt sje,
að til óeirða hafi komið fyrstu
vikurnar eftir að hernáminu
lauk, en nú, þegar svo langt
sje um liðið, sje það algerlega
óhæft, að einstakir menn eða
samtöjí manna, ætli sjer að taka
lögin í sínar hendur og þver-
skallast gegn löglega uppkveðn
um dómum. — Forsætisráð-
herra Danmerkur hefir varað
menn við þessu atferli, en brýn
ir fyrir þjóðinni að virða vald
dómstólanna og viðurkenna lög
og rjett, því að annars sje lýð-
ræðinu hætt. — Páll.
Viðsklftasambandið
við Gyðinga
Jerusalem í gærkvöldi.
EINS og áður hefir verið frá
skýrt í frjettum, skipaði Araba
*bandalagið svo fyrir, að frá
og'með 1. janúar s. 1. skyldu
Arabar engin viðskifti eiga við
Gyðinga í Palestínu. — Við-
skiftaráð . bandalagsins kom
saman á fund í dag til þess að
skipuleggja viðsgiftabannið.
Var m. a. samþykt að senda
viðskiftanefndir til Arabaland-
anna til þess að semja um inn-
flutning vörutegunda, sem Pal-
estína gæti ekki verið án, en
Gyðin^r hafa framleitt. Þá var
einnig samþykt að skora á Pal-
estínustjórn að afljetta inn-
flutningshömlum, meðal ann-
ars á umræddum vörutegund-
um. — Reuter.
í þessum bíl slasaðis! Paiion
Bandaríkjahermaður skoðar bíl þann, sem Patton hershöfð-
ingi var í, er hann lenti í slysi og meiddist þar svo, að meiðslin
| drógu hann til dauða.
Bretar skifta um sendi
herra í Washington
Sir Archibald Clark-Kerr eftirmaður Halifax
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
Eftir John Kimche.
ERNEST BEVIN, utanríkisráðherra Breta, hefir ákveðið að
skifta um sendiherra í Washington. Halifax lávarður mun láta
af störfum, en við tekur Sir Archibald Clark-Kerr, sem verið
hefir sendiherra Breta í Moskva frá árinu 1942. Hann hefir
I auk þess gegnt sendiherrastörfum í Svíþjóð, Iraq og Kina. Flann
er 64 ára að aldri.
Eftirmaður Sir Archibald
Clark-Kerr.
Ekki mun enn ákveðið, hver
taki við sendiherraembættinu í
Moskva, en líklegt er talið, að
Sir Maurice Petersen, núver-
andi sendiherra Breta í Tyrk-
landi, verði fyrir valinu. Hið f hnefaleikaspekúlantinn í Am-
eina, sem mælir gegn því, að eríku, hefir tilkyní, að þeir Joe
hann verði skipaður í embætt- Louis og Billy Conn muni berj-
ið, er, að hann hefir verið sendi j a&t um heimsmeistaratitilinn í
herra hjá Francostjórninni á hnefaleikum í þungavigt 19.
Spáni, svo að búast má við, að jújií næstkomandi. — Mun kepn
Rússar líti hann ekkr sjerlega in fara fram í „New York
hýru auga. Yankee“-íþróttaliöllinni
Baris! um heims-
meistaraliiilinn
19. júní
New York í gærkvöldi.
MIKE JACOBS, einn helsti
Fyrsti fundur öryggis
ráðsins í dag
London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter.
SÍÐDEGIS í dag tilkynti formælandi fulltrúa Persa
þingheimi á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, að þeir hefðu
fengið fyrirskipanir frá persnesku stjórninni um að leggja
málefni Persíu, með sjerstöku tilliti til Azerbaijan, fyrir
bandalagið. Ekki er enn vitað neitt nánar um efni og
form þessarar fyrirskipunar persnesku stjórnarinnar. —
Ekki hefir verið afráðið, hvort málið verður' lagt fyrir
allsherjarsamkunduna, samkvæmt 14. grein bandalags-
sáttmálans, eða fyrir öryggisráðið skv. 35. gr. Verði málið
lagt fyrir öryggisráðið, getur allsherjarsamkundan engin
afskifti af því haft, meðan þar er um það fjallað.
Rjeiliarhöldum
í Helsingfors lýfcur
um mánaðamótin
London í gærkveldi:
STOKKHÓLMSFREGN herm
ir, að rjettarhöldunum í Helsing
fors í málum manna þeirra,
sem sakaðir eru um að hafa
borið ábyrgð á því,' að Finnar
fóru í stríðið, muni ljúka um
næstu mánaðamót, og sje dóm
ur væntanlegur í byrjun febrú
ar. — Hlje hefir verið á rjett-
arhöldunum, en þau munu
hefjast aftur annan fimtudag
og standa út þá viku. Reuter.
Fundur fulitrúaráðs
Sjálfstæðisfjelag-
anna
í GÆRKVÖLDI var haldinn
fundur í fulltrúaráði Sjálfstæð-
isfjelaganna í Reykjavík í
Sj álfstæðishúsinu.
Formaður fulltrúaráðsins, Jó
hann Hafstein, setti fundinn og
stjórnaði honum.
Rætt var um starfsemi full-
trúanna vegna kosninganna. —
Fyrstur tók til máls Guðmund-
ur Benediktsson og ræddi um
undirbúning og fyrirkomulags-
atriði kosningastarfanna. Fleiri
fulltrúar tóku til máls. A lok-
um mælti borgarstjóri, Bjarni
Benediktsson, hvatningarorð til
fulltrúanna.
Geysimikill áhugi ríkir nú
innan fulltrúaráðsins, sem er
einbeitt í því að liggja ekki á
liði sínu í baráttunni fyrir sigri
Sjálfstæðisflokksins.
Um líkt leyti og fulltrúum
Persa var send þessi fyrirskip-
un, gaf formælandi persnesku
stjórnárinnar skýrslu um á-
standið í norðurhjeruðum lands
ins. Sagði hann, að Rússar
bættu stöðugt við herafla sinn
í Azerbaijan og ljetu þar ófrið-
lega. Lýsti hann framkomu
þeirra, er uppreisnin braust út
í Azerbaijan, og sagði, að hægð
arleikur héfði verið að bæla
uppreisnina niður. ef atbeini
Rússa hefði ekki komið til.
Sagði hann Persa bíða 2. mars
með óþreyju, en þá eiga rúss-
nesku og bresku hersveitirnar
að hverfa brott úr landinu.
Fyrsti fundur öryggis-
ráðsins í dag.
Eftir hádegi á morgun (fimtu
dag) kemur öryggisráðið, sem
kjörið var s. 1. laugardag, sam-
an á fyrsta fund sinn. —Vys-
hinsky, aðstoðarutanríkisráð-
herra Rússa, sem er fulltrúi
þeirra í ráðinu, er væntanlegur
til London í fyrramálið. Enn-
fremur Bidault, utanríkisráð-
herra Frakka, sem einnig situr
í ráðinu.
Bevin talar í dag.
Ernest Bevin, utanríkisráð-
herra Breta, mun flytja ræðu
á þinginu kl. 9.30 í fyrramálið
(fimtudag). Hefir breska stjórn
in samþykt ræðu hans. Stjórn-
málafrjettaritarar búast við, að
ræða Bevins verði berorð og
ítarleg og leiði til allmikilla
umræðna.
Rætt um skýrslu
undirbúningsnefndar.
í dag fóru fram á þinginu
framhaldsumræður um skýrslu
undirbúningsnefndarinnar. •—
Trygve Lie, utanríkisráðherra
Norðmanna, flutti ræðu, sem
mikla eftirtekt vakti. Benti
i'ramh. ft 2. síðu