Morgunblaðið - 17.01.1946, Page 5
Fimtudagur 17. jan. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
5
Frá æskulýðsfundinum:
Ungir sjálístæðismenn tryggja Jóhanni
Hafstein örugt sæti í bæjarstjórn
Kommúnistar fara halloka á öllum umræðufundum
Unga fólkið• hópast
í Heimdall
EINS OG SKÝRT var frá í blaðinu í gær sótti geysi-
legur f jöldi æskulýðsfundinn í Sjálfstæðishúsinu í fyrra-
kvöld. Ríkti á fundinum mikill áhugi meðal æsku höfuð-
staðarins fyrir því að gera sigur Sjálfstæðisflokksins
glæsilegan við hæjarstjórnarkosningarnar 27 janúar n.k.
Hafa nær 100 manns gengið í Heimdall í sambandi við
Jtundinn.
KOMMARNIR MÆTA
Æskulýðsfundurinn átti að hefjast kl. 8,30, en ákveðið
var, að húsið skyldi opnað hálfri stundu áður. Þegar
klukkan var rúmlega 7, komu fyrstu KRON-bílarnir með
kommúnistaæskuna, sem átti að vera klapplið kommanna
á fundinum. Bílar kaupfjelagsins voru tæmdir við hús-
dyrnar, en Haraldur Steinþórsson, sem ekki ,,var sama“
hvernig skipað var í salarkynni hússins, raðaði piltunum
upp við dyrnar og gaf þeim skipun um að skipuleggja sig
í salinn 'og helst að taka tvö sæti og geyma þeim, þar
til KRON-bílarnir kæmu úr seinni ferðinni með aukið
Jið sitt.
AUGLÝSINGIN SKÝRIST
Þegar maður fór að athuga klapplið kommanna, kom í ljós,
bð þarna voru komnir blessaðir drengirnir, frá 14—16 ára, sem
auglýst var eftir í Þjóðviljanum á dögunum. Tjáði einn þeirra
mjer, að þeir væru nú ekki allir kommar, heldur hefðu þeir kaup
fyrir að mæta sem klapparar á fundinum.
Fundurinn hefst.
Strax, þegar húsið var opn
að; komu formaður Æskulýðs
fylkingarinnar og formaður
Eambands ungra kommúnista
æðandi inn í salinn til að
íganga úr skugga um; að ekki
,væri hægt að hleypa inn um
aðrar dyr á húsinu en þær,
sem drengirnir þeirra stóðu
yið. Hafa þeir sennilega hald
fð, að ungir Sjálfstæðismenn
mundu nota samskonar að-
ferðir og þeim hafði verið
kendar, um að hafa rangt við
í leik. Var þeim tjáð, að að-
eins einar inngöngudyr væru
Ínn í salinn, og urðu þeir þá
rólegri.
En þrátt fyrir þennan
mikla undirbúning kommún-
istanna, kom í ljós, strax í
fundarbyrjun, þegar Jóhann
Hafstein steig í ræðustólinn,
að mikill meirihluti fundar-
manna, sem í salnum voru,
fagnaði honum með þvílíku
lófataki, að kommúnistunum
þótti meira en nóg um.
Rœða Jóhanns Hafstein.
Jóhann hóf mál sitt með
því að skýra nokkuð frá hin-
iim sögulega uppruna Social
istaflokksins — sameiningar-
flokks alþýðu. Minti hann
menn á, að þessi flokkur væri
arftaki Kommúnistaflokks-
ins, sem var deild úr Alþjóða
sambandi kommúnista, og
þar með tóku þeir allar fyrir
skipanir sínar utanlands frá.
Jóhann minti í þessu sam-
bandi á ýmislegt, sem birst
hefði í Verkalýðsblaðinu á
fyrstu árum flokksins, þsr
sem m. a. Brynjólfur Bjarna
son lýsti því hátíðlega yfir,
að það væri öllum augljóst
mál, að valdataka kommún-
ismans á íslandi mundi að-
eins fyrir tilviljun eina falla
saman við venjulegar kosn-
ingar. Meiri hluti hnefanna;
handaflið, mundi ráða.
Þessu næst vjek Jóhann að
því, hve litlu fylgi þessi
stefna hefði átt að fagna og
því var það ráð tekið að
söðla um, breiða yfir nafn og
númer og sveipa sig lýðræð-
ishjúp. Þetta var í fyrstu
nokkuð óhentugt, þar sem
þeir voru einmitt þá neyddir
til að verja bandalag nasist-
anna í Þýskalandi og komm-
únistanna í Rússlandi. Og
daglega birtust í Þjóðviljan-
um frjettir af gagnkvæmum
kynnisferðum Ribbintrops og
Molotofs, hvors til annars.
En úr þessum byrjunarerf
iðleikum rættist furðu fljótt.
Þegar Hitler sveik Stalin
ÍStalin sveik ekki Hitler) og
Rússar fóru að berjast með
lýðræðisþjóðum heimsins, þá
var það auðveldara að telja
mönnum trú um, að flokkur
Jóhann Hafstein.
Rússa á íslandi væri algjör-
iega lýðræðislegur. Nú væri
það aftur á móti að koma í
Ijós, hvers konar stjórnarfar
væri í Rússlandi, því að þrátt
fyrir nær algjöra lokun Rúss
lands fyrir blaðamönnum,
hefði þá komið í ljós, að ,,hið
austræna lýðræði11 (einræði
kommúnistanna) væri fólgið
í því, að einn flokkur væri
leyfður, ritfrelsi væri bann-
að og fundafrelsi einnig.
Kosningarjettur væri slíkur,
aS eingöngu þeir menn, sem
viðurkendir væru af ríkis-
valdinu, hefðu rjett til að
bjóða sig fram.
Fleira minntist Jóhann á um
ástandið í Rússlandi, sem sann
ar, að þar ríkir fullkomið ein-
ræði. Kvað Jóhann það vera
undarlegt, að nú' kæmi þessi
flokkur, Socíalistaflokkurinn,
sameiningarflokkur alþýðu,
með þessa líka þokkalegu for- [
tíð og forsvari einræði sitt í!
Rússlandi og bæði æskuna um ^
fylgi við bæjarstjórnarkosning
arnar. —
0
Þessu næst sýndi Jóhann
fram á, með sinni alkunnu
mælsku og sterku rökum, hvern
ig þessi bær hefði undir stjórn
Sjálfstæðismannanna, vaxið á
tímabili, sem núlifandi menri
muna glöggt, úr litlu fiskiþorpi
í mikla og myndarlega borg. —
Fór hann all-ýtarlega út í
hvert mál fyrir sig, m. a. hita-
veituna, aukningu rafmagnsveit
unnar og húsnæðismálin. Benti
hann á þá staðreynd, að á síð-
asta kjörtímabili hefði fleira
fólk fluttst í bæinn en var hjer
búandi í bænum um síðustu
aldamót. Þá benti hann og á, að
enginn bær á íslandi og þótt
víðar væri leitað, hefði gjört
jafnmikið og bæjarstjórn Rvík-
ur hefði á síðasta kjörtímabili
gjört til þess að bæta úr hús-
næðisvandræðunum, bæði með
því að byggja glæsileg stór-
hýsi og aðstoða borgarana ó-
beint til að koma upp yfir sig
húsnæði.
Þegar Jóhann hafði lokið
máli sínu, kváðu við húrrahróp
og klöpp. svo mikil, að eins-
dæmi mun vera á kjósenda-
fundi í bænum. 9
0
Aðrir ræðumenn Heimdallar.
I næstu umferð Heimdallar
tók til máls Björgvin Sigurðs-
son. Hóf hann skelegga árás á
hina málefnasnauðu baráttu
kommúnista. Sýndi hann fram
á, að það, sem kommúnistarnir
státa mest af, er stjórnarsamv.
núverandi. En hann bað fundar
menn minnast þess, að stjórn-
in starfar ekki á grundvelli kom
múnismans, heldur hafði for-
manni Sjálfstæðisflokksins, Ól-
afi Thors, tekist að fá sosialist-
ana fil að vinna á grundvelli
Sjálfstæðisstefnunnar í stjórn-
inni.
Þá tók til máls Géir Háll-
grímsson. Vjek hann í upphafi
ræðu sinnar að því, að kommún
istum færist ekki að brigsla
Sjálfstæðismönnum um nasista
dekur, þar þeir hefðu í byrjun
styrjaldarinnar talað um það,
að það væri aðeins smekksat-
riði, hvort menn fylgdu banda-
mönnum' eða nasistum að mál-
um í styrjöldinni. Og þá fór
Þjóðviljinn vinsamlegum orð-
um um ræðu Molotofs, þegar
hann sagði, að það væri um að
gera að hjálpa Þjóðverjum til
að koma á friði.
Síðan vjek Geir að ummælum
Jónasar Haralz, þeim, er hann
neitaði að hafa skrifað í fyrra-
• dag. Las Geir nú orðrjett úr
Þjóðviljanum og rjetti siðan
blaðið að Jónasi með þeim um-
mælum, að nú skyldi hann sjá,
hvað hann hefði sjálfur skrif-
að. Kvað þá við ógurlegur hlát
ur fundarmanna, en Jónas Har
alz roðnaði og reyndi að afsaka
sig með því að grípa fram í
ræðu Geirs, en afsökunin kafn-
aði í hlátri fundarins.
Að lokum bað Geir æsku-
menn og konur að fjölmenna á
kjörstað 27. janúar n. k. og
tryggja með því kosningu hins
glæsilega' fulltrúa ungra Sjálf-
stæðismanna, Jóhann Hafsteins.
Áframhald á undanhaldinu.
Þessi fyrsti æskulýðsfundur
í hinum glæsilegu salarkynnum
Sjálfstæðismanna var skýr og
ótvíræð sönnun þess, að kom-
múnistar eru að tapa fylgi hjá
æskulýð höfuðstaðarins. Enda
hafa ungir Sjálfstæðismenn
hafið skelegga sókn á hendur
þeim, og er nú svo komið, eftir
tvo fundi, sem ungkommúnistar
hafa tekið þátt í, með stuttu
millibili, að tekist hefir að
svipta þá lýðræðishjúpnum, svo
kyrfilega, að æskumenn, sem
við síðustu kosningar ljeðu þeim
fylgi sitt, hafa nú hópum sam-
an gengið í Heimdall, fjelag
ungra Sjálfstæðismanna, og
hafa ásamt öllum ungum Sjálf-
stæðismönnum strengt þess
heit, að tryggja hinum glæsi-
lega fulltrúa sínum, Jóhanni
Hafstein, öruggt sæti i bæjar-
stjórninni.
Kurlmeyer náðaSur
London í gærkveldi:
ÞAÐ VAR tilkynnt í aðal-
stöðvum hernámsliðs Kanada í
Þýskalandi í dag, að þýski hers
höfðinginn Kurtmeyer hefði
Verið náðaður. Hann var. dæmd
ur til lífláts fyrir að hafa átt
þátt í því, að kanadiskir her-
menn voru teknir af lífi, eftir
að þeir voru teknir höndum.
Það kom fram í málinu að Kurt
meyer hafði fengið skipanir um
þessa verknaði frá yfirmönnum
KlHitiiiiiiimiiiHinmiiuiimimiiiiiiiiiimimiiiminm
Bygginyarlóð
1 Hornlóð í Vesturbænum til |
j= sölu. Nánari upplýsingar 1
1 gefur
= Sigurgeir Sigurjónsson |
H hæstarjettarlögmaður |
§ Aðalstræti 8, sími 1043.