Morgunblaðið - 17.01.1946, Side 11
Fimtudagur 17. jan. 1946
MORGUNBLAÐIÐ
11
^3j)ró ttci á í Ja ^ll j i
orcýU n
[ ía (fj i
nó
Hvernig verður danska landsliðið, sem
keppir hjer á sumri komandi?
NU, ÞEGAR ákveðið hefir
verið, að danska landsliðið í
knattspyrnu komi hingað næsta
sumar og við heyjum okkar
fyrsta (eða fyrstu) reglulegu
millilandakappleik, þá væri
ekki úr vegi að segja nokkuð
frá þeim mönnum, sem allar
líkur eru til að verði í þessu
liði. Jeg hefi í sumar og haust
Hugleiðingar eftir J. Bn.
Karl Aage Hansen (A.B.)
kynt mjer eftir fögum danska
knattspyrnu síðari hluta sum-
arsins, með það fyrir augum, að
geta gefið íslenskum áhuga-
mönnum um knattspyrnu
nokkra mynd af tiI,vonandi mót
stöðumönnum oltkar í sumar
sem kemur.
Skipað í liðin fyrir leiki.
AÐ VÍSU er það svo, að Dan
ir skipa aldrei landslið sín fyrr
en skömmu fyrir hvern einstak
an millilandakappleik. Fer þá
i sumar, verði sú sama og í þeim
j liðum, sem háðu þessa þrjá
landsleiki í haust. Að vísu
munu Danir leika einn eða tvo
landsleiki í sumar, áður en þeir
koma hingað upp, og verður þá
betri kostur til þess að fullvissa
sig um lið það, sem sent verð-
ur hingað til kepni við okkar
menn.
Mun jeg nú að nokkru leit-
ast við að rekja knattspyrnu-
getu og íþróttaorðstír þeirra
manna, sem hafa verið í danska
landsliðinu á þrem síðustu
kappleikjum, og sem þessvegna
eru líklegir til að skipa lið það,
sem teflt hefir verið fram gegn
okkur Islendingum.
Egon Sörensen frá Frem hef-
ir verið markmaður í danska
landsliðinu um mörg ár og þyk
ir ágætur. Nú er hann í banni,;
en í sað hans hefir Ove Jensen
frá B. 93 verið í marki ’og þótt
standa sig vel. Aðrir, sem geta
komið til greina í marki, eins
og er, eru þeir Egild Nielsen
frá K. B. og Werncr Nistrup-
Madsen í A. B. — Hinn fyrri
hefir verið í landsliðinu, én
hinn síðarnefndi er upprenn-
andi ,,stjarna“. En að öllum lík
indum verður markmaður þó
Ove Jensen frá B. 93 ,og sá
maður, sem skytturnar okkar
hjer heima eiga að glíma við.
Hann er sagður mjög snar og
góður markmaður;*líklega eru
I
sjerstök nefnd frá stjórn knatt- j úthlaupin hans veika hlið enn
spyrnusambandsins danska um
landið og horfir á þýðingar-
mestú kappleiki í „Danmarks-
turneringen“ — Danmerkur-
kepninni í knattspyrnu og eft-
ir að nefnd þessi hefir fylgst
með frammistöðu leikmanna,
— bæði þeirra, sem verið^hafa
í landsliðinu síðast og einnig
annarra góðra knattspyrnu-
mánna, er skipað í
Eins og getið hefir verið
um hjer í blaðinu áður,
eru sex af bestu knattspyrnu-
mönnum Dana nú útilokaðir
frá þátttöku í kappleikjum
fram til ágústloka þessa árs, og
er ekki sýnilegt, að þeirri á-
kvörðun verði breytt.. — í haust
sem leið háðu Danir þrjá lands
leiki, einn við Svía, sem voru
mjög sterkir í knattspyrnu í
sumar sem leið, og tvo við Norð
menn, sem enn hafa 'ekki, —
sem varla er von, náð því stigi
í íþróttinni, sem þeir stóðu á
fyrir stríð, Danir töpuðu leikn-
um við Svía 3—*4, en unnu báða
leikina gegn Norðmönnum; í
Khöfn með 4—2 og í Osló með
5—1.
Uppistaðan sú sama.
ÞAÐ ERU miklar líkur til
þess, að uppistaðan í liðinu
danska, sem kemur hingað í
sem komið er.
Traust vörn.
HÆGRI bakvörður hefir ver
ið Edmund Sörensen frá Aar-
hus Gymnastikforening. Þetta
er traustur og sterkur leikmað
ur, en hefir aldrei þótt neitt
einstakur, en aftur á móti er
vinstri bakvorðurinn Knud
liðið. j Bastrup Birk frá A. B. ákaf-
lega mikill leikmaður, sjerstak
lega duglegur og svo fljótur
sagður, að hann getur gripið
inn í skyndi, þótt meðverjend-
um hans bregðist bogalistin.
Hann hefir nú leikið í fimm
landsleikjum í röð.
Framverðirnir eru langt frá
„vissir“ í stöðurnar, þótt þeir
hafi leikið nokkra landsleiki.
Er þetta sjerstaklega að segja
um miðframvörðinn, en í þá
stöðu eiga Danir ekki neinn
ungan og reglulega efnilegan
mann. Oscar Jörgensen frá K.
B., sem kominn er talsvert yf-
ir þrítugt, hefir leikið í þessarri
stöðu síðustu leikina, en áður
var hann búinn að víkja sæti
fyrir Arne Sörensen frá B. 93,
sem leikið hefir um tvö eða
þrjú ár. En hann er nú útilok-
aður frá kepni, — einn af þeim
sex, — og hefir Oscar Jörgen-
sen síðan ieikið miðframvörð.
Hann er mjög traustur leik-
maður og var lengi talinn besti
miðframvörður á Norðurlönd-
um, en mun nú vera farinn að
gefa sig nokkuð fyrir aldurs
sakir.
Snillingur frá Esbjerg.
ÞAÐ ER áreiðanlegt, að
Viggo Jensen frá Esbjerg leik-
ur framvörð öðru hvoru megin
Viggo Jensen (E.F.B.)
Carl Aage Præst (Ö.B.)
í landsliðinu, ef hann verður
við heilsu. Hann er af mjörg
mörgum á Norðurlöndum álit-
inn einhver besti leikmaður,
sem nú er þar uppi, og var svo
sagt, að hann hefði verið eini
maðurinn úr liði Dananna, sem
bætt hefði getað sænska liðið,
sem vann Dani í Stokkhólmi í
vor sem leið með 4—1. Það var
rjett eftir að hinir 6 voru gerð-
ir útlægir af vellinum, og komu
því ýmsir nýir menn inn 1 lið-
ið. — Það er ekki hægt að segja
um það með neinni vissu, hver
leika . muni framvörð öðrum
megin. Þar geta komið til mála
mjög -góðir knattspyrnumenn,
sem leikið hafa með landslið-
inu, eins og hinn reyndi og
duglegi leikmaður Knud Börge
Overgaard frá Aarhus*og B.
93 og hinn ungi og efnilegi leik
maður Jörn Jegsen frá K. B.,
sem að vísu virtist ekki í sem
bestri æfingu í haust. Þar að
auki er Orla Pouísen frá Aal-
borg Boldklub. Verði þessir
menn í góðri æfingu í sumar,
kemur áreiðanlega einhver
þeirra hingað upp að gera inn-
herjum okkar heitt í hamsi.
Hinn fyrstnefndi, snillingurinn
frá Esbjerg, er einnig mjög
hættulegur í sókn, og þykir
sleip skytta af löngu færi. Hann
skoraði t. d. móti Norðmönn-
um af 20 metra færi í leiknum
í Osló.
Nóg af framherjum.
í FRAMLÍNUNA hafa Dan-
ir nóg af mönnum nú, en hún
hefir oft verið þeim erfið.
Margir ágætir nýir menn eru
að komast í sóknina og mátti
glögt sjá það í síðasta leikn-
um á móti Norðmönnum. Blöð
in kölluðu Karl Aage Hansen
frá A. B. „aðalmanninn“ í fram
línunni. Hann leikur hægri
innherja og er alveg framúr-
skarandi leikmaður að öllu
leyti. Ágætis skytta, enda var
hann í fyrra hæstur að marka-
tölu í sinni deild Danmerkur-
kepninnar og mun hafa átt
drjúgan þátt í sigri fjelags síns
ásamt bakverðinum Bastrup-
Birk, sem áður er nefndur. Síð-
ari hluta sumarsins sem leið
var Karl Aage Hansen meidd-
úr um tíma, en verður vonan'di
jafngóður orðinn í sumar.
Þetta var aðalmaðurinn, en
hann hefir engin smámenni
með sjer. Danir eiga nefnilega
heiia tvo alveg ágæta miðfram
herja, Carl Aage Præst frá Ö.
B. og Esben Donnerborg frá
Næstved Boldklub. Hinn fyrr-
nefndi hefir leikið miðfram-
herja í landsliðinu í nokkur
skifti, en hinum síðarnefnda
hefir ekki enn auðnast að kom-
ast í landsliðið, enda mun hann
ekki vera nema rjett tvítugur
að aldri. Hann skoraði í sumar
3 mörk gegn Norrköbing-
Kammeraterna, sænsku meist-
urunum, er það lið kepti við
úrvalslið frá Sjálandi utan
Kaupmannahafnar (úrslit 4-4)
og voru Svíarnir hrifnir af hon
um, kölluðu hann „kanoncent-
er“ og fleira slíkt. — Carl Aage
Præst er ákaflega mikil skytta
og einnig sjerfræðingur í að
taka horn. Hefir hann gert
nokkur mörk beint úr horni.
Þar sem Danir virðast vera í
nokkrum vandræðum með
vinstri kantmann, er Kaj Han-
sen, einhver besti framspilari
Dana um mörg ár, er útilokað-
ur frá leik (einn af þeim sex),
hafa komið upp raddir um það
í dönskum blöðum, að Donner-
Fí:Vx"í
Oscar Jörgensen (K.B.)
Edmund Sörensen (A.G.F.)
borg beri að leika miðfram-
herja, er hann hafi fengið næga
reynslu, en Præst þá aftur
vinstri útherja.
Þeir líklegustu.
AÐRIR, sem líklegir eru í
framlínuna, éru þessir: Svo að
segja viss sem vinstri innherji
er Helge Broneé frá Ö. B., á-
kaflega hættuleg skytta. — Það
er talicS þeim tveim að þakka
að mestu, Præst og Broheé, sem
leika hlið við hlið i Ö.B., að það*
fjelag er nú langhæst í annarri
deild, hefir engum leik tapað í
haust og er svo að segja vist
með að komast upp í fyrstu
deild í sumar. Þeir Præst og
Broneé hafa gert mörg mörlr í
hverjum leik, og hefir verjend-
um reýnst erfitt að halda þeim
í skefjum.
Líklegastur sem hægri út-
herji er Johannes Plöger frá
Frem. Hann er feikna fljótur
og skotharður. Aðrir, sem til
mála geta kornið i framlínuna,
eru Lesly Sörensen, mesta
skytta B. 93 og Niels Bennike,
ungur, snarpur innherji frá K.
B. — En að öllu óbreyttu er lík
legast að framlínan verði þann
ig skipuð: Plöger, Karl Aage
Hansen, Carl Aage Præst (eða.
Donnerborg), Helge Broneé og
Hilmar Staalgard frá Köge (eða
Carl Aage Præst).
Þá hefi jeg nú örlítið bolla-
lagt um liðið, sem líklegt er að
komi hingað. ' Það er ekkert
lamb að leika sjer við, ekki síst
sóknin. Megum við því vel
vanda til vamarinnar og liðs-
ins alls hjá okkur, ef duga skal
gegn þessum, tjalda öllu til,
sem við eigum best. Mikið þætti
mjer vanta á íslenska landslið-
ið, ef Albert Guðmundsson
vantaði, því að hann er nú einn
af þeim fáu leikmönnum, sem
Framhald á bls. 12