Alþýðublaðið - 15.06.1920, Side 1
Greiið íit af A.IþýÖuflokknum.
1920
'Alþbl. er blað allrar alþýðu!
€rlenð símskeyli.
Khöfn 14. júní.
Nýtt forsetacfni.
Símað er frá Chicago, að fund-
ur lýðveldismanna (republikana)
hafi útnefnt Harding þingmann
sem Jýðveldisforseta við næstu for-
setakosningar.
Frá Fýzkalandi.
Frá Berlín er símað, að foringi
þýzkra íhaldsmanna hafi gefist upp
við að mynda ráðuneyti, vegna
þesS að meirihiuta jafnaðarmenn
neituðu að ganga í samband við
þá.
Trimborn foringi kaþólska flokks-
ins (centrum) reynir nú að mynda
:stjórn.
Essad Paseha myrtnr.
Símað er frá París, að albanski
alræðismaðurinn Essad Pascha,
formaður friðarsendinefndarinnar,
hafi verið myrtur í París af Albaria.
jHann var foringi Albana í sjáif-
stæðisbaráttu þeirra, en varð þó
til þess, að prinsinn af Wied var
rekinn frá völdum í Albaníu. En
þá gerðist hann sjálfur alræðis-
maður.]
LitYÍnoff
hefir ekki ennþá sest að í Kristi-
anfu.
mynt.
Khöfn 13, júní.
Sænskar krónur (100) kr. 129,12
Norskar krónur (100) — 105,50
Frankar (100) — 45,25
Pund sterling (1) — 23,36
Dollar (1) — 5.93
Þriðjudaginn 15. júní
133. tölubl.
Spa-jBBÍBriim.
Hvers krefjast Þjóðverjar?
Fyrir nokkru fór Millerand. for-
sætisráðherra Frakka ásamt fjár-
málaráðherra sínum Marsal til
fundar við LIoyd-George í Hythe
á Engiandi. Munu viðræður þeirra
aðailega hafa snúist um skaðabæt-
ur þær er Þjóðverjar eiga að
greiða samkvæmt friðarsamning-
unum. Síðan er búist við að Miíle-
rand og Lloyd-George talist við í
Ostende í Belgíu áður Spa-fundur-
inn verður haldinn þ. 22. júní.
Að hvaða niðurstöðu fransk-
enska fjármálanefndin er nú fjall-
ar um skaðabæturnar kemst, er
ekki gott að segja, en líklegt að
það verði f samræmi við það, sem
Bandamenn hafa áður stungið upp
á, sem sé 120 miljarðar marka.
Búist er við að Þjóðverjnr muni
stinga upp á því að skaðabæturn-
ar verði eigi nema 100 miljarðar
marka. Sömuleiðis að þeir bjóðist
til að greiða þegar í stað 5 milj-
arða marka í gulli, sem fyrstu af-
borgun. „Chicago Tribune" Parfs-
ar útgáfan væntir þess að Þjóð-
verjar muni einnig krefjast þess
að Bandamenn flytji burt her sinn
úr Rínarlöndunum og styðja þessa
kröfu með því að kostnaður sá er
þeir hafi af hernum á ári, séu 3
miljarðar marka, en herinn á að
standa þar í 15 ár, og allur kostn-
aðurinn þvf 45 miljarðar marka;
sem þeir segja að verja mætti til
afborgunar á skaðabótunum að
öðrum kosti. Þjóðverjar þykjast
þess fullvissir að Frakkar verði
kröfum þeirra mótfallnir, en vonast
eftir tilstyrk Ameríkumanna og
Englendinga.
Þjóðverjar benda á það að Banda-
menn geti á ýmsan hátt annan
haft hönd f bagga með málum
Þjóðverja, þótt þeir hafi eigi her
standandi í landinu. Til dæmis
þurfi Englendingar eigi annað en
setja á þá hafnbann, ef þeir óhlýðn-
Aígreidsla
bíaðsins er í Alþýðuhúsinu við
ícagólfsstræti og Hverfisgötu.
Sími 088.
Auglýsingum sé skilað þangað
eða í Gutenberg í sfðasta íagi kl.
10, ' þann dag, sem þær eiga að
koma í blaðið.
ast. Einnig benda þeir á það að
Frakkar losi með þvf vinnukraft
lil að endurreisa eyðilögð héruð
og borgir í Norður-Frakklandi.
Aftur á móti ætla þeir að bjóðast
til að eyðileggja sem fyrst herút-
búnað sinn og morðvélar sínar og
falla frá kröfunni um 200 þús.
manna her.
Þess var áður getið f skeytum
að Poincaré hafi sagt af sér starfi
sínu í endurreisnarnefndinni og
mun það stafa af því, að tillögur
hennar um skaðabótamálið hafa
eigi náð fram að ganga og nefnd-
in með því mist þýðingu sfna að
mestu. í stað nefndar þessarar
kemur nefnd, er á sæti í Berlín
og á að hafa eftirlit með hvernig
Þjóðverjar verja lánsfé því, er þeir
fá hjá Bandamönnum. Nefnd þessi
mun verða svipuð og nefnd sú er
samkvæmt tyrknesku friðarskilmál-
unum er sett til höfuðs Tyrkjan-
um í Constantinopel.
Þær tillögur sem hér er áður
talið að Þjóðverjar muni gera á
Spa-fundinum, virðast mjög sjálf-
sagðar og sanngjarnar, en þó er
búist við að Bandamenn muni eigi
ganga að þeim, en halda fast við
120 miíjarða skaðabæturnar og
setuliðið í Rínlöndunum. En veður
getur breyzt í lofti áður en varir.
X
Skrífstofustjóri borgarstjóra
er Sveinn S'gurðsson cand. theol.
orðinn nýlega. Hann er fyrsti skrif-
stofustjóri er borgarstjóri hefir haffe,
áður hefir hann gegnt því starfi
sjálfur.