Morgunblaðið - 19.02.1946, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 19.02.1946, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 19. febr. 1946 Til Rauða Krossins, afh. Mbl. G. S. kr. 55,00, ónefnd 30,00, S. V. 50,00, S. H. 50,00, R. kr. Í00,00, G. B. 50,00, Inga og Óli 50,00, ónefndur 50,00,1. R. 50,00 N. N. 20,00, Halldór 10,00, G. Ö. A. 100,00, S. S. S. 65,00, V. S. G. 50,00, N. N. 100,00, 3 mæðgin 75,00, G. N. 50,00, Hjör dís 20,00, Pjetur og Stebbi kr. 200,00, H. Þ. 50,00, Reynir 10,00 Þ. 50,00, 3 systkin 50,00, afgang ur af skemmtun 200,00, frá verslunarfólki 1100,00, starfsf. Málningarv. Hörpu 6!J0,00, Friðrik og Carl Möller 100,00, Hallgrímur og Ragnheiður kr. 100,00, frá 10 ára bekk A., Mið bæjarskóla 320,00, frá 2. bekk A , Gagnfræðaskóla Reykvík- inga 255,00, Þ. Þ. 100,00, Bak- ara veðmál 55,00, Lúðvík Vign ir 25.00, M. J. 50.00, Á. J. 100,00, S. V. 50,00, T. A. 100,00 Ragnar og Jón Halldórssynir 50,00, Vinnufl. Friðriks Sigurðs sonar 160,00, 6 ára drengur 16,00, Maggi 15,00, Óli litli, 3ja ára 25,00, ónefnd 10,00, starfsf. hjá Sverri Bernhöft h.f. 315,00, K. J. 50,00. Jóhann Reyndal 500 kr. Nokkr ir menn 100 kr. M. K. 60 kr. Agga 50 kr. Gurra 50 kr. Kuni 50 kr. Tómas, Helgi, Einar 300 kr. A. í. K. 1000 kr. U. G. 100 kr. D. G. 50 kr. S. J. 100 kr. Frá 10 ára bekk H. Miðbæjar*- gkólanum 365 kr. Ónefndur 101 kr. J. Þ. 50 kr. Guðlaugur Guðmundss. 100 kr. Bakaríið S. B. Hjartarson, starfsfólk 250 kr. Gísli Guðmundsson Fl. 100 kr. Á. Þ. 50 kr. N. N. 300 kr. Qnéfndur 50 kr. í. Á. 100 kr. G. S. 100 kr. G. B. 50 kr. A. G. 100 kr. S. H. og Ó. B. 100 kr. G. B. og G. G. 50 kr. Kristín Árnadóttir, safnað í sparibauk 36.18. Daníel Arnbjarnarson og Þóra kona hans, Stokkseyri 100 kr. Bjarni og Fríða 50 k.r Þor- steinr. Guðm. 15 kr. Ásbjörn Pjeturs 20 kr. Guðrún Pjeturs 20 kr. Jónía Ólafsd. 20 kr. Kol- brún 15 kr. Hrafnkell 15 kr. Jórunn og Ljótunn 14 kr. G. J. G. 50 kr. G. G. 100 kr. Ó. Ó. 25 kr. H. 25 kr. Lítill drengur ó- skírður 200 kr. S. M. 50 kr. V. J. 20 kr. Kristileg fjel. ungra manna fríkirkjusöfnuðinum 500 kr. Systur 20 kr. Svava Jónsd. Grettisg. 64 50 kr. Ónefndur 20 kr. Kata Sigga 50 kr. Óli og Gunnar 50 kr. Þ. D. 100 kr. tnga 50 kr. Björn Brekkan 30 kr. Ingibjörg Magnúsd. Kópa- 'yogsv. 24 100 kr. Frá Kút 25 kr. Pálína 25 kr. Frá konu 100 kr. G. 50 kr. Ónefnd 70 kr. Magnús, Erla, Esther og Reyn- ir 130 kr. J. B. 100 kr. S. V. 20 Jcr. Lilla 30 kr. Þuríður Jóns- öóttir Hveragerði 25 kr. ína 15 kr. Frá Fróða langa í Stafholts iungum 80 kr. I ^ ^ ’ Eínafræðingur í þjónusfu bæjarins , FYRIR síðasta fundi bæjar- ráðs lá brjef frá rafmagnsstjóra Steingrími Jónssyni, þar sem hann gerir það að tillögu sinni, «ð bærinn ráði í þjónustu sína efnafræSing, til rannsókna- Starfa. — Samþykkti bæjarráð að keimila rafmagnsstjóra að leita eftir manni til slíkra starfa. , Sjómannadagurinu | verður 2. júní í ár Frá aðalfundi sjömannadagsráðsins AÐALFUNDUR Sjómanandagsráðsins í Reykjavík og Hafn- arfirði var haldinn sunnudaginn 17. þ. m. Formaður mintist látinna sjómanna og gat þess, að ekki hefði verið vitað um nema sex íslenska sjómenn, sem hefðu farist frá síðasta Sjómanna- degi og fram til 9. febrúar s.l., en þá hefðu 20 sjómenn farist á einum degi við störf sín á hafinu. Aðalfundurinn samþykti að styðja tillögu þá, er fram hefir komið til Alþingis um fullar stríðsbætur til aðstandenda þessara sjómanna og áskorun um að tryggingarlöggjöfinni verði breytt þannig að dánarbætur verði ekki lægri en þær gerast nú hæstar. Tekjur af sjómannadeginum. Stjórnin gerði grein fyrir starfseminni í sambandi við síð asta sjómannadag, en hreinar tekjur af þeim hátíðahöldum og sjómannadagsblaðinu námu yfir 70 þúsund krónum. Gjald- keri fjársöfnunarnefndar Dval- arheimilis aldraðra sjómanna lýsti yfir að Sjómannadagsráð- ið hefði nú handbært yfir eina miljón króna til byggingar heim ilisins. Af því væru um 800.000 krónur gjafir, en 200 þús. króna væri ágóði af starfsemi Sjó- mannadagsins. Hafliðabúð. Á fundinum var afhent gjafa brjef frá frú Halldóru Helga- dóttur, Hringbraut 148, ásamt sparisjóðsbók með kr. 18.424.40 er gefnar höfðu verið af vinum og starfsbræðrum eiginmanns henjiar Hafliða heit. Jónssonar, er fórst með Goðafossi, ásamt syni þeirra hjóni Pjetri Má, en fje þetta var gefið til minningar um þá. Var það vilji frúarinnar að fje þetta rynni til Dvalar- heimilis aldraðra sjómanna með því skilyrði að eit herbergi í heimilinu verði látið heita Haf- liðabúð og skal yfir dyrum þess letrað á viðeigandi hátt nöfn þeirra feðga og skal herbergið helgað minningu þeirra. For- gangsrjett á herbergi þessu, á sá vistmaður heimilisins er ætt aður er frá Vestureyjum Breiða fjarðar, Flateyjarhreppi eða Austur-Barðastrandarsýslu. — Stjórn Dvalarheimilisins skal sjá um að myndir af þeim feðg- um verði varðveittar í herberg- inu ásamt ættarskrá, er ætt- menn þeirra leggja til. Stjórnarkosnir. Stjórn Sjómannadagsráðsins var endurkjörin fyrir utan Svein Sveinsson ritara, sem fluttur er til Skagastrandar, en hann hafði verið ritari Sjó- mannadagsráðsins frá byrjun. „FJALLFÖSS“ Vörumóttaka fyrir pantaðan flutning til áður auglýstra hafna verður í dag og á morgun. Stjórnina skipa nú: Henry Hálf dansson form., Bjarni Stefáns- son gjaldkeri, Jón Halldórsson, Hafnarfirði, ritari. Varastjórn: Vilhjálmur Árnason skipstjóri, Eymundur Magnússon stýrimað ur og Pálmi Jónsson, Hafnar- firði. Dvalarheimili. Þessar tillögur voru samþykt ar: „Samþykt að fela fjársöfn- unarnefnd ásamt stjórn Sjó- mannadagsráðsins að undirbúa samkepni um fyrirkomulag hins væntanlega Dvalarheimil- is“. „Aðalfundur Sjómannadags- ráðsins vill færa bestu þakkir fyrir allar þær miklu og veg- legu gjafir, er borist hafa til Dvalarheimilis aldraðra sjó- manna, svo og alla fyrirgreiðslu og stuðning við málefni dags- ins“. Aðalfundur Sjómannadags- ráðsins þakkar góðar undirtekt ir bæjarráðs Reykjavíkur, varð andi land undir Dvalarheimili aldraðra sjómanna í Laugar- nesi“. Þá voru og kosnar nefndir til undirbúnings næsta sjómanna- degi, er í þetta skifti verður 2. júní n. k. Söngskemlun Elsu Sigfúss. ELSA SIGFÚSS hjelt nætur tónleika í Gamla Bíó s. 1. fimtu dag fyrir fullu húsi og prýði- lega góðum viðtökum áheyr- enda. Að þessu sinni söng hún eingöngu nýtísku lög, eða dæg- urlög á dönsku, sænsku, ensku og íslensku. Undirleik annaðist Jóhannes Þorsteinsson og Ijek auk þess einleik. Var leik hans tekið af miklum fögnuði. Söngkonan varð að endurtaka mörg lög og að lokum söng hún aukalag, er vakti mikla hrifningu. — Var það Kata í Koti, eftir Sigvalda Kaldalóns. Kaldalóns. Mun það vera í fyrsta skifti, sem þetta lag er sungið opinberlega. Hefir verið ákveðið að hljóm leikar þessi verði endurteknir n. k. fimmtudagskvöld. Verður söngskráin þá í aðalatriðum sú sama og á fimtudag. í fyrradag söng Elsa Sigfúss á Selfossi fyrir fullu húsi á- heyrenda og góðum undirtekt- um. Forskriftabók Grön- dals Ijósprentuð LÁRUS BJARNASON fyr- verandi skólastjóri Flensborg- arskólans hefir látið ljósprenta og gefa út Forskriftabók Bene- díkts Gröndals, sem prentuð var í Kaupmannahöfn 1883. Framan við bókina eru leið- beiningar eftir Gröndal um það, hvernig eigi að halda á penna og ýmislegt, sem að gagní má koma við skriftarkennslu. En aftan við forskriftirnar ritar Lárus Bjarnason nokkur orð um höfundinn og bók hans, og seg- ir meðal annars: „Benedikt Gröndal skáld, sonur Sveinbjarnar Egilssonar rektors, var frábær listaskrif- ari, sem kunnugt er. Getur vart meiri snilling á rit- og drátt- list en hann. Skrift var ein af kennslugreinum Gröndals í Lærðaskólanum, og hefi jeg heyrt lærisveina hans dást að þeirri kennslu. Hann átti og með forskriftarbók sinni ómet- anlegan þátt í því, að vekja og glæða áhuga leikra og lærðra á fagurri skrift. Eigi allfáir, einkum drengir, er eignast höfðu forskriftabók hans, ó- sjaldan fyrir hagalagða sína, urðu snildarskrifarar, þótt engr ar eða lítillar tilsagnar hefðu notið. .. Jeg ætla að forskrift- ir Gröndals eigi erindi til upp- vaxandi kynslóðar sakir sígildr Sfr fegurðar.“ .. . Það má telja víst, að fjöldi fullorðinna manna muni hafa gaman af því að sjá forskriftabók Gröndals, en auk þess er ekki ólíklegt, að skrift- arkennarar og þeir, sem telja fagra rithönd nokkurs virði, vilji eignast forskriftirnar til gagns og gamans. Skíðamót í Kaup- mannahöfn KAUPMANNAHÖFN: Skíða mót var haldið sjer s. 1. sunnu- dag í skíðabrekku við Kaup- mannahöfn, sem nefnd er „Holtekollen“. Nokkrir norskir skíðastökkmenn tóku þátt í mót inu. Sigmund Ruud stóð fyrir mótinu. Um 20,000 áhorfend- ur voru á mótinu, sem fór fram í glaðasólskini. Asbjörn Ruud og danskur skíðamaður opnuðu stökkkepnina með því að stökkva hvor mgð flagg síns lanás fram af pallinum. Vitan- lega voru Norðmenn hlutskarp- astir. Asbjörn Ruud vann'með 35 metra stökki. I B-keppni voru eingöngu Danir og sigur- vegarinn stökk 30,5 metra. í drengjaflokki vakti 16 ára pilt- ur á sjer athygli og töldu Norð- mennirnir að hann ætti fram- tíð fyrir sjer sem skíðamaður. Um kvöldið var haldin skemt un fyrir þátttakendur og þar var „ólöglegu“ norsku skíða- fjelagi (frá stríðsárvnum) af- hent heiðursverðlaun, sem var „snjókúla“ úr silfri. Asbjörn Ruud talaði í danska útvarpið um kvöldið og sagði að það væri skrýtið að stökkva á skíð- um í brekku sem væri um- kringd grænum gróðri. Á laug- ardaginn var rigning í Höfn, en aðfaranótt sunnudagsins gerði frost og heiðskýrt veður. iiinnnnmnimiinmniiiiniiiiimiiiiiiiuiniiimiiiiiiiTi jTakið eftir!l ! Ungur, reglusamur mað- j ur, sem hefir stundað i verslunarstörf í fimm ár, j óskar eftir atvinnu, helst I við verslun. Gæti tekið að H sjer að sjá um matvöru- f| verslun. Tilboð merkt = „Verslun-117 — 111“ send í s ist blaðinu fyrir fimtu- dagskvöld. uimmmiiiiumiimmiiuiiiimauiiuiminnimiiuiiiai mnmiiinnmimiiniinniiiinjiiinmmnnnnnRmiin Tækiíærisverð j Af sjerstökum ástæðum = er til sölu stórt og fallegt s MÁLVERK (Hekla og | Hraunteigur) eftir Finn s Jónsson listmálara. — Til f§ sýnis í Verslun Geirs Kon- s ráðssonar (hornið á Lauga 5 veg og Bergstaðastræti). E nnnmmmmnnmnnnimnmnmnmnmmiiiiiiiiim Góð gleraugu eru fyrir | öllu. Afgreiðum flest gleraugna recept og gerum við gler- augu. • Augun þjer hvílið með gleraugum frá TÝLI H. F. Austurstræti 20. Minningarspjöld bamaspítalasjóSs Hringsina fást í verslun frú Ágústu Svendsen, Aðalstraetl 12.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.