Morgunblaðið - 20.02.1946, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 20.02.1946, Blaðsíða 7
Miðvikudag'ur 20. febr. 1946 ÍOR8DNBLÍ81B 7 Verklýðsfjelög Bandaríkjanna eru öflug Á aðalbækistöðvum hinna 60 þúsund verklýðsfjelaga Bandaríkjanna er undirbún ingurinn þegar hafinn, til að hefja sóknina, sem auka á hið pólitíska valdsvið verka- lýðsins og koma í gegn fyr- irætlunum um kauphækk-. anir, sem samanlagt nema allt að tíu biljónum dollara. Fjárhagslegan stuðning sóknarinnar fá verklýðsfor- ingjarnir úr miljónasjóðum verklýðsfjelaganna, auk þess sem vel skipulagður á- róður leggur nokkuð til mál- anna. Sannleikurinn er sá, að svo er nú komið, að áhrif verklýðshreyfingarinnar eru orðin geysimikil, og for- ustumennirnir eru bæði hátt launaðir og vel skólaðir á sviði áróðursins. í sjóðum verklýðsfjelaganna er nú yf- ir ein billjón dollara og 26,950,000 dollarar koma inn mánaðarlega frá um 13 milj. gjaldgreiðendum. Mörg stærri verklýðsfjel- aganna eiga skýjakljúfa, banka, dagblöð, útvarps- stöðvar, skemtistaði, sjúkra *hús, sumarbústaði, gamal- mannahæli og trygginga- stofnanir. Þau geta átt í samningum við önnur verk- lýðssamtök á sama hátt og gerist meðal voldugra einka- fyrirtækja. Fyrir nokkrum árum síðan átti fjelag járn- brautaverkamanna í stór- deilum við John L. Lewis, vegna ágreinings um kaup- samninga. Lewis hafði skipu Jagt samtök námumanna í námum, sem fjelag járn- brautaverkamanna átti. Eignir námumannafjelags- ins nema um 30,000,000 doll urum og í sjóðum járn- brautaverkamanna eru rúm lega 41,000,000 dollarar. Slík ir sjóðir eru einkennandi fyrir hin ýmsu samtök járn brautamanna, og hafa ekki lítið gildi, þegar standa verð ur í samningum um kaup- hækkanir. Eignir vagnstjóra fjelags þess, sem Daniel Tobins stendur fyrir, nema um 15,000,000 dollara, og fjelag þetta er í raun og veru áhrifaríkur hluti af flokki demokrata. Verklýðskvenna fjelag það, sem David Dub- insky veitir forstöðu, á sum arhæli í Pennsylvaníu, fyr- verandi Fordhúsið í New York og tattugu og sex hæða heilsuverndarstöð. Annað verklýðsfjelag á um 4,340,000 dollara og rekur banka. í sjóðum námuverka manna, en John L. Lewis er foringi þeirra, eru rúmlega 12,000,000 dolíarar og mán- aðarlega koma inn til við- bótar um 900,000 dollarar. 48,000 dollara árslaun. ÞAÐ er því ekki að furða þó vagnstjórafjelagið geti greitt Dan Tobin 30,000 doll- ara árslaun, auk ferðakostn- aðar fyrir hann og konu hans, að samtök hljómsveit- armanna hafi efni á að greiða framkvæmdarstjóra sínum 48,000 dollara á ári og að fjelagsskapur námu- í sjóðum þeirra er nú rúm bilíjón dollara og tæpar 27,000,000 koma inn mánaðarlega verkamanna geti greitt' Lewis 25,000 dollara á ári. j Það er eftirtektarvert, að , þessir þrír vellaunuðu verk- lýðsforingjar, sem ef til vill eru voldugustu verklýðsfor- ingjarnir í öllum heiminum, annast það að öllu leyti sjálfir, áð hvorki fólkið nje dagblöðin gleymi þeim. Þannig veitir maður því eft- irtekt, að er dagblöðin rjeð- ust á Petrillo, foringja hljómsveitarmanna, greiddi hann 500,000 dollara úr sjóð um fjelagsins, til að halda ókeypis hljómleika í þeim borgum, sem gagnrýnin var hörðust. Þetta er ekki ólíkt því, er forstöðumenn CIO samtak- anna reyna að vinna fylgi almennings með kvikmynd- um og teiknimyndum. Ein- kennandi fyrir þessa starf- semi er litmynd, sem nú er verið að gera í Hollywood, er snýst um samvinnu allra kynþátta. Það er fjelag bif- reiðaiðnaðarmanna, sem kostar þessa mvnd og ætlar að sjá um dreifingu hennar. 1944 Ijet þetta sama fjelag gera teiknimynd til stuðn- ings Roosevelt. Myndin hjet Hell Bent for Election og var sýnd 4,000,000 verka- mönnum. Og nú er verið að vinna að töku kvikmynda, sem sumar hverjar snúast um samningagerðir og nauð sjm þess, að fyrverandi her- mönnum sje sjeð fyrir at- vinnu. Forstöðumenn CIO hafa látið hafa eftirfarandi eftir sjer um kvikmvndaprógram ið: ,,Ein mynd getur haft meiri áhrif en 1000 orð, og fólk hefir ánægju af að fara í kvikmyndahús. Kvikmynd ir geta verið bæði fræðandi og skemtilegar og geta haft sterk áhrif á bíógesti“. Breyttar aðferðir. ÞESSI afstaða er ólík því er var hjer á árunum, þeg- ar hnefarjetturinn var lát- inn ráða. Fyrir skömmu síð- an fundu verkamenn í sam- tökum AFL í Hollywood nýja aðferð, til að koma í veg fvrir það, að fólk færi í kvikmyndahús borgarinn- ar. Sunnudag nokkurn komu fjelagar í verklýðsfjelaginu í stórum bifreiðum að helstu kvikmyndahúsum Los Ange les og buðu fólki, sem ætl- aði í bíó, fríar bílferðir nið- ur á baðströnd. Nokkrum dögum seinna stóðu þessir sönlu menn fyrir utan kvik- mvndahús eitt, sem var að sýna leynilögreglumynd, og hrópuðu: „Ekki fara inn. Við skulum segja ykkur hvernig hún endar“. Hundruð kvik- myndahúsgesta sneru heim. Þegar útvarpsverkfræð- ingar tilkynntu það, að reisa mætti góðar útvarpsstöðv- ar fyrir eina 50,000 dollara, stofnuðu ýms verklýðsfjelög sameiginlegt fjelag og sóttu um leyfi til útvarpsrekst- urs. , Margir forystumenn inn- an verklýðshreyfingarinnar líta svo á, að stofnun einka- útvarpsstöðva sje rjetta svar ið við þeim tilraunum, sem gerðar hafa verið til að koma í veg fyrir það, að verklýðs- f jelögin hefðu aðgang að út- varpi. UAW hefir sótt um leyfi til að starfrækja sex útvarpsstöðvar í Newark, Chicago, Detroit, Flint, Cleveland og Los AngeleS; þar sem meðlimatala þessa verklýðssambands er há. Sidney Hillman hefir lagt fvrir verklýðsfjelag sitt, að sækja um leyfi til starf- rækslu útvarpsstöðva í New York, Chicago, Rochester og Philadelphíu. Og AFL hefir sent samsvarandi umsóknir um útvarpsstöðvar í New York, Boston, Philadelphia og Chattanooga. En á meðan á þessu hefir staðið hafa hin gömlu áróð- urstæki — dagblöðin, dreifi- miðarnir og myndasögurn- ar — ekki gleymst. Það eru um það bil 800 verklýðs- blöð, sem koma út að stað- aldri • í Bandaríkjunum. Lesendaíjöldi þeirra mun vera um 15,000.000 fjölskyld ur. Ef blöð verklýðsins sam- einuðust með eða móti ein- hverju málefni eða manni, mundu þau hafa jafn mikil áhrif og helstu dagblöðin í eigu einstakra manna eða fjelaga, vegna agans innan verklýðsfjelaganna. Og mikil breyting hefir orðið á útgáfu þessara blaða. Þau eru hætt að vera aðal- málgögn einstakra manna. Forstöðumenn þeirra í dag eru vellærðir blaðamenn, sem hafa töluverða reynslu, eftir að hafa unnið við ýms dagblöð. CIO News mun að öllum hkindum bráðlega verða selt á götunum, til að reyna að auka lesendafjöida þess, sem mun vera um 400,000. Síerkur áróður. EIN af myndasögum þeim, sem CIO gefur út, sýnir æfintýri Jim Barry. Þetta er saga um hávaxinn, dökkhærðan verklýðsrit- stjóra, sem vinnur meðal annars að því að leysa morð- gátur, auk þess sem hann berst fvrir málefnum verka- manna. í gamla daga byrj- uðU dreifimiðar verklýðs- samtakanna eitthvað á þessa leið: „Bræður: Þetta og þetta fyrirtæki er að stela hinu daglega brauði okkar.“ í dag styðst CIO við mynda- sögurnar, litskreytir þær, gefur þær út í bókaformi, svo varla er hægt að þekkja þær frá æfintýrum Kjarn- orkumannsins ■—- og hvað sem það kann að vera, að samtökin sjeu að berjast fyr ir í það skiftið, kemst inn í meðvitund manna. Til viðbótar dreifingu dag blaða myndasagna, bóka og bæklinga, sendir CIO út „þungan“ áróður til um 60,000 manna, sem að áliti samtakanna hafa áhrif á skoðanir almennings. Philip Murray, forstjóri CIO, seg- ir að meðal þeirra manna og fyrirtækja sem sendur er þessi áróður sjeu kennarar, prestar, skólanefndir, K. F. U. M og K. F. U. K., sam- vinnufjelög, bókasöfn, bæja og sýsluíjelög, kristileg blöð og verklýðsblöð, blaðamena- og útvarpsfyrirlesarar cg fjölmörg frjálslynd samtök. Forstöðumenn AFL eru einnig byrjaðir að endur- bæta aðferðir sínar, tíl að geta stöðugt verið í sam- bandi við almenning. Byrjuð verður bráðlega útgáfa auka blaða, sem ekki verða ólík sunnudagablöðum dagblað- anna, til að fvlgja hinum 400 dagblöðum AFL sam- bandsins. Þessi blöð eiga að vera eingöngu til skemti- iesturs, algerlega laus við alian áróður, og meðal þeirra. sem rita í þau, murm verða rithöfundar á borð við John Erskine, Channing Pollock og Fannie Hurst. Það, sem liggur að baki aiira þessara nýjunga, er það álit forystumanna verka- lýðsins, að ef til orustu komi milli verkalýðsins annars- vegar og atvinnurekenda hinsvegar, muni almenning- ur styðja þann aðilann, sem beitir bestu auglýsingaher- ferðinni. | ' ^ v— I Happdrætti S. I. B. S. | Dregið var í happdrætti S.I.B.S. 15. febrúar s.l. — Eftirfarandi númer hlutu vinninga: 121477 Flugvjel 32172 1000,00 krónur 107453 Skemtisnekkja 36541 — — 12074 Jeppi eða Ford jr. 71454 — -— 33225 Málverk e. Kjarval 22307 — 96524 Píanó 101023 102143 Radíógrammófónn 5657 — — 70568 Flugf. til New York 43827 — 85537 Skrifborð 89561 • — 9124 Ferð t. Norðurlanda 89415 — — 12104 Golfáhöld 91512 Þeirra vinninga, sem enn hefir ekki verið vitj- að, óskast vitað, sem fyrst i skrifstofu S.I.B.S. Hamarshúsinu við Tryggvagötu, einnig má framvísa vinningsmiðum við umboðsmenn þess út um land. i 4 4 i f 1 4 t f I I X f f f f 4 ? 4 I f 4 f f t f t f •»» Dönsk húsgögn til afgreiðslu beint frá verksmiðjum til kaup- enda. — Myndlistar og verð fyrirliggjandi. Fljót afgreiðsla. Eingöngu til húsgagnaverslana. PER RUNE Hótel Borg. | | | Borðstofuhúsgögn | | lítið notuð en vönduð, úr góðu efni, til sölu. 4 f Til sýnis á skrifstofu H.f. Egill Vilhjálmsson. I I I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.