Morgunblaðið - 10.03.1946, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 10.03.1946, Blaðsíða 5
Sunnudagur 10. marz 1946 MORQDNBLABIÖ K Milli hafs og heiða Fengnir til. BJARNI ÁSGEIRSSON getur þess í Frey, að Árni Eylands hafi fengið 19 bún- aðarþingfulltrúa til að und- irskrifa áskorun til stjórnar Búnaðarfjelagsins um að ráða Árna sem ritstjóra Freys áfram. Auðvitað er það rangt, að Árni hafi pantað slíkar und- irskriftir. Til þess er hann of \andur að virðingu sinni. En þetta sýnir álit formdfins Búnaðarfjelags íslands á full trúunum. Það sje hægt að fá þá til þessa eða hins. Virð- ingin fyrir sjálfstæði þessara manna segir til sín. Fram- sóknarsvipurinn á umsögn- inni leynir sjer ekki. Nýr ósómi. í BRJEFI úr Vestur-Húna- vatnssýslu er þess getið, að á búnaðarfjelagsfundi hafi komið brjef frá einhverri milliþinganefnd, sem starfar á vegum Búnaðarfjelags ís- lands, þar sem leitað er á- lits búnaðarfjelagsins um það hver ráð sjeu heppilegust til að koma í veg fyrir að jarð- ir hækki í verði. Á fundinum var samþykt með samhljóða 28 atkvæðum svohljóðandi tillaga: „Útaf brjefi milliþinganefnd ar í jarðeignamálum um til- ( lögur er miða að því að; hindra varhugaverða verð- hækkun á jörðum, lítur fund urinn svo á, að þar sem víða í sveitum landsins er svo á- statt, að jarðir eru að fara í eyði, jafnvel þó að vel sjeu hýstar, og vel í sveit settar, sje nú ekki ástæða til að hlynna að frekari eyðingu jarða með sjerstökum laga- fyrirmælum, heldur væri minna gert af hinu opinbera til að íta undir þá upplausn sem þegar er orðin í sveitum landsins“. Brjefritarinn bætir því við, að fundarmönnum hafi talist! svo til, að á árunum 1930 til 1945, hafi ein jörð af hverj- um 6 farið í eyði í Vestur- Húnavatnssýslu. Og ennfrem ur: Svo er gert háð að manni með þessum fyrirspurnum um ábendingar til að hindra óhæfilega hátt jarðaverð“. Er ekki von að mönnum of bjóði. Þegar slíkt vandræða ástand sem er. hefir orðið í sveitum landsins eftir 17 ára Framsóknarstjórn yfir bún- aðarmálum, og þegar búið er að meta jarðirnar svo lágt í fasteignabók, að fullkomna fyrirlitningu sýnir á bændum | og sveitalífi, þá skuli því ( bætt við, að biðja bændur| um tillögur til að koma í veg; fyrir hærra jarðaverð. Meiri ósvífni er tæplega hægt að. bjóða sveitaniönnum. Og svo' telja sömu menn nauðsyn-; legra en alt annað, að byggja | hótel í Reykjavík fyrir fje bændanna hin tuddalega andstaða þeirra við nýsköpun atvinnuveg- anna ogj framsækni þjóðar- innar muni ekki duga flokki þeirra lengi til fylgis hjá þjóðinni. Á Akureyri hafa fulltrúar þeirra í bæjarstjórn nú gengið til samstarfs við stjórnarflokkana um ýms framfaramál kaupstaðarins. Hafa þeir samið um að hrinda í framkvæmd mikilli aukn- ingu hafnarmannvirkja stuðla að aukningu útgerðarinnar í bænum o. fl. Verður fram- kvæmd þessa samnings, ef vel tekst, mikið spor í sömu átt og ríkisstjórnin er nú að vinna. Er það nú sjeð að Framsóknarmenn á Akureyri hafa virt að vettugi skipanir yfirmanna flokksins í Reykja vík, og hyggjast taka upp samstarf við stjórnarflokk- ana og nýbyggingarráð um nýsköpun og framfarir í at- vinnumálum. Er vonandi, að Framsóknarmenn á fleiri stöð um komi á eftir í sömu átt, hvernig sem flokksforust- unni í Reykjavík kann að líka það. 'ul“, berjast við hlið Tímans ■ gegn allri framfaraviðleitni stjórnarinnar og þeirra flokka er að henni standa. Og svo langt gengur þessi alþýðu- foringi ísfirðinga í fylgd sinni við Framsókn, að hann er nú farinn að iðka mjög hinar sömu bardagaðferðir og Her- mann sjálfur, þótt lítt hafi honum dugað þær til sigurs. Og það ætti Tíminn að hafa lært af framkomu Hannibals þessa á atkvæðagreiðslunni um sjálfstæðismálíð, að ekki hefur það mikla gæfu í för með sjer að binda trúss við 'hann. Má því segja að ekki halli á um forustu og fylgis- mann Austrœna lýörœðið í algleymingi. SAGT hefur verið frá því í frjettum (að því er virðist í alvöru), að fram hafi farið kosningar í Sovjetríkjunum. Var svo skýrt frá, að alls hefðu kosið 99,7% af mánn- skapnum og af þeim hefði Kommúnistafl. ráðsfjórnar- ríkjanna fengið 99,18%. Ekki er þess g'etið, hver fjekk mis- muninn. Það hefir líklega ekki þótt skifta máli því munurinn er aðeins 0,18% af kjósendum. Sjest á þessum ,,kosninga“-úrslitum, að það er rjett, sem Jóhannes úr Kötlum sagði: Rússum hefir tekist að halda sjer hreinum af „spillingu hins borgara- lega lýðræðis". En það má mikið vera ef þetta minnir engan á „kosningarnar“ hjá Hitler á mesta valdatíma hans. Kosningar i vor. ALLLÖNGU áður en aðrir flokkar voru farnir að hefja nokkurn undirbúning að bæj arstjórnarkosningunum, voru sósíalistar farnir að þeyta kosningalúðra sína og kvað við hátt. Úrslit bæjarstjórnar kosninganna í Reykjavík og víðar sýndu, að ekki bar sá langi og mikli viðbúnaður þann árangur, sem til var ætlast. Einn flokkur virðist ætla að feta í fótspor sósíal- ista hvað viðvíkur alþingis- (kosningunum á vori komanda Tíminn er þegar tekinn að hafa „kosningarnar í vor“ á orði í hverri grein. En ekki er nú hátt risið á öllu því, sem Framsókn ætlar að g'era að kosningamálum sínum eins t. d. lítilsháttar hækkun ýmsra opinberra styrkja, þingsalyktun um innflutning erlendra flekahúsa o. fl. Ef dæma á eftir framkomu Fram sóknarfl. í stjóri^arandstöð- unni, má búast við að yfir- menn flokksins láti eins og óðir menn í þeirri kosninga- baráttu, sem háð verður í vor víðsvegar um land. En þá er gott að minnast þess,. að hingað til hefir þjóðin látið sjer fátt finnast til uni geip og gaspur í pólitískum umræð um og að oft verður lítið úr því högg'inu, sem hátt er reitt. esl^aab >óh Fimtugsafmæli á í dag Ólaf- ur Pálsson frá Húsavík, á mb. ,.Gaut“, Hafnarfirði. Skipafrjettir. Brúarfoss er í Keflavík. Fjallfoss kom til Reykjavíkur í gærmorgun frá Isafirði. Lagarfoss væntanleg- ur í dag frá Kaupmannahöfn. Selfoss er í Leith. Reykjafoss er í Hull. Buntline Hitch er í New York. Acron Knot hleður í Halifax síðast í mars, Salmon Knot hleður í New York í byrj un apríl. Sinnet hleður í New York um miðjan mars. Empire Gallop fór frá New York 6. mars til Reykjavíkur með við- komu í St. Johns. Anne er í Kaupmannahöfn. Lech kom til Reykjavíkur kl. 11 í gærmorg- un frá Leith. Lublin hleður í Leith um miðjan mars. Björn Björnsson stórkaup- maður frá London kom hingað til bæjarins í gær flugleiðis. — Hann mun dvelja hjer í versl- unarerindum eina til tvær vik- ur. ASalfundur Fjelags ísl. hljóð færaleikara verður n.k. sunnu- dag, 17. mars, í Tónlistardeild. Fundurinn hefst kl. 2 e. h. Borgfirðingafjelagið, sem ný lega er stofnað (Mýra- og Borgarfjarðarsýsla), hygst að koma á stofn söngfjelagi karla og kvenna. Formaðurinn, Eyj- ólfur Jóhannsson, lýsti þessari hugmynd sinni á fyrsta fundi fjelagsins við einróma undir- tektir. — Stjórnin hefir trygt sjer söngstjóra, Hallgrím Helgason tónskáld. Morgun- blaðið hefir átt tal við undir- búningsdeild þessara mála, sem telur horfurnar góðar, því á- gætt söngfólk, þrjátíu eða fleiri, hafi þegar tjáð sig reiðubúið. Verð veiðarfæra. I tilkynn- ingu frá Verslunarráði íslands, sem birtist í blaðinu í gær, fjell úr eftirfarandi setning í prent- un: Á dragnætur, stálvír. man- illa og vörpugarn (í 2. fl.) má legg'ja 12% í heildsölu, en 25— 35% í smásölu. Þingið V. K. F. „Framsékn rr Er Framsókn gamla að sjá að sjer? SVO lítur út fyrir, að sum- staðar á landinu sjeu Tíma- Tnenn komnir að raun um, að Bandamenn Tímans. TÍMINN veit, að honum mun verða lítið ágengt í stjórnarandstöðunni, ef hann getur ekki aflað sjer neinna bandamanna. Hingað til hafa flestir þeir fylgismenn,, sem Tíminn gerði sjer rtlestar von ir um, gersamelga brugðust honum. Hann vænti þess, að aflabréstur og óþurkur, skip- tapar og markaðsörðugleikar myndu ganga í lið með sjer og hrunstefnuliði hans, draga kjark og framfarahug úr landsmönnum og veikja trú þeirra á umsköpun og efl- ingu atvinnuveganna. Ennþá hefur alt þetta brugðist von- um Tímans. Meira að segja ketverðið, sem Tíminn vænti fastlega að yrði ekki nema tæpar sex krónur kílóið, lítur út fyrir að muni verða hærra. Þó er það einn bandamaður, sem aldrei bregst Tímanum bg hyski hans. Það er sjálf- stæðishetjan á ísafirði, krata- broddurinn Hannibal, sem stöðugt lætur blað sitt „Skut- Er landbúnaðurinn hornreka. YFIRMENN Framsóknarfl. klifa jafnan á því, að stjórn- arflokkarnir meti landbúnað- inn lítils og vilji veg hans og þeirra sem að honum Udnna sem minstan. Ef svo ó- jlíklega vildi til að einhver hefði lagt trúnað á þennan íg * róður hefði sá hinn sami gott jaf að kynna sjer 16. gr. fjár- |laganna. Hún fjallar um fjár ^veitlngar til atvinnumála og (skiftist í þrent, þannig: Landbúnaðarmál kr. 10,5 milj [sjávarútv.mál kr. 0/898 milj. Inðuaðarmál kr. 1 milj. Eftir að ,bændaflokkurinn‘ 'Framsókn hafði ráðið hjer í j 17 ár, stóð landbúnaðurinn mjög höllum fæti gagnvart öðrum atvinnugreinum, en svo vel hafa stjórnarflokk- arnir skilið þörf hans, að hann nýtur nú firftmfalt hærri ríkisstyrks heldur en báðir hinir höfuðatvinnuveg- irnir til samans og veitir vissulega ekki af. semur um kaup SAMKVÆMT breytingu, sem gerð var á gildandi samn ingum við Vinnuveitendafje lag íslands þ, 7. þéssa mán. hækkar tímakaup verka- kvenna í venjulegri dagvinnu í kr. 1,77 frá og með mánu- d.eginum 11. marz næstk. Sú breyting verður á að 12. grein gildandi samnings að allur 17. júní telst helgi- dagur, en 1. desember fellur burtu, og ennfremur að á aðfangadag jóla og gamlárs- dag skal dagvinnu lokið kl. 12 á hádegi. Samkvæmt samn ingi við bæjarstjórn Reykja- víkurbæjar og ríkisstjórn gildir sama kaup í tímavinnu og ákveðið er í samningum fjelagsins við Vinnuveitenda- fjelag íslands FRUMVARPIÐ um heimild fyrir ríkisstjórnina til ráðstaf- ana vegna útflutnings á afurð- um bátaútvegsins var til 1. umr. í Nd. í gær. Efni frv. er rð ríkisstjórninni heimilast að ábyrgjast hraðfrystihúsunum allt að 5 aura á innvegið kg. miðað við slægðan fisk með haus. Er þetta gert vegna hækkunar þeirrar, sem varð á lágmarksverði á nýjum þorskií og ýsu í vetur. Einnig er rík- isstjórninni heimilt að kaupa til útflutnings eða ábyrgjast sölu á allt að 5 þús. tn. af salt- fiski, er miðast við kr. 1,70 hvert kg. af I. fl. þorski. Atvinnumálaráðherra, Áki Jakobsson, fylgdi frv. úr hlaði. Gat hann þess, að þar sem ó- samið var um sölu á hraðfrysta fiskinum, bæri nauðsyn að tryggja hraðfrystihúsin fyrir tapi, sem kynni að leiða a£ hækkun lámarksverðsins. Eysteinn spurði hvort sann- ar væru þær fregnir, sem bor- izt hafa, um mikla erfiðleika við löndun í höfnum Bretlands og markaðshorfur yfirleitt. Einnig spurðist hann fyrir uní saltbirgðir í landinu. Akvinnumálaráðherra kvað ástandið á enska markaðnunr þannig, að mjög miklar tafir væru þar við löndun, vegna vöntunar á vinnuafli, auk flutningaerfiðleikanna. Þegar fiskurinn væri korninn á land, óskemdur, seldist hann ávait iyrir hámarksverð. Reynt væri að afla nýrra markaða á meg- inlandinu. En það væri örðug- leikum bundið. Ráðherra upplýsti að í land- inu væru 8 þús. tn. af salti, en nauðsyn bæri til að fá meira. Alt útlit væri fyrir að auka þyrfti söltun í landinu mjög mikið á næstunni. Umr. var frestað. Búnaðarráð. I Ed. var frv. um verðlagn- ingu landbúnaðarafurða (stofn un búnaðarráðs) samþ. með 8 : 4 ásamt breytingartillögu meiri hl. um að endurskoða lögin fyrir árslok 1946. Fundur í Sþ. Fundur var í Sþ. seinna urn. daginn. Var þar samþ. þings- ályktunartillaga um 400 þús. kr. lán fyrir Slysavarnafélag íslands. Nokkrar deilur urðu um þáltill. um afnotagjald útvarps notenda. Meirihl. fjárvn. (Sig. Kr., P. Ottesen, B. Kr. Guðm. í. Guðm., Skúli Guðm., Helgi Jónasson) lagði til, að- ekki verði innheimt hærra afnota- gjald á árinu 1946 en gert var 1945. Minni hl. (Gísli Jónsson, Þórður Benediktsson, Steingr. Aðalsteinss.) lagði til að mál- inu yrði vísað frá á þeim grundvelli, að ráðherra rjeði gjaldinu. Umr. frestað. ♦•♦ ij* ♦XMoH*MI'4MM*4í*4****M«^*,'w'****MXH*t *•* ♦t**I**I**I*****t**t'' '•**!*♦*♦*«* s 2-3 lagtientir menn geta fengið langa og góða vinnu hjá okkur. x- y Nýja Blikksmiðjan % t t »*• I y Höfðatúni 6. i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.