Morgunblaðið - 19.03.1946, Blaðsíða 1
33. árgangur.
64. tbl. — Þriðjudagur 19. mars 1946
ísafoldarprentsmiðja h.f.
PáfastóllÍRn ákærir
Sovjestjórnina
London í gærkveldi:
PÁFASTÓLLINN hefir svar
að tilkynningu sem birtist í
Moskvaútvarpinu í gær, þess
efnis að kirkja Vestur-Ukrainu
hefði ákveðið að skiljast við
Páfastólinn og taka upp sam-
band við rússnesku kirkjuna.
Segir í fregnum Páfastólsins
um. þetta mál, að Rússar hafi
tekið biskupa á þessu svæði
fyrir nokkru síðan og varpa
þeim í fangelsi.
Þá segir í yfirlýsingu Páfa-
stólsins, að prestastjett vestur-
Ukrainu hafi verið sett í þá
aðstöðu af Sovjetstjórninni, að
þeim sje gert ókleyft að rækja
embætti sín. — Þá segir í til-
kynningunni, að að áskorun
hafí komið frá einhverjum á
fyrrnefndu svæði til Stalins,
um að kirkja Ukrainu samein-
aðist rússnesku rjetttrúnaðar-
kirkjunni, en engar sannanir
sjeu fyrir því, að neinn af þeim
sem undirritað hafi skjal þetta,
sje embættismaður kirkju þess
arar, sem hafi verið rómversk-
kaþólsk síðan 1596. Reuter.
ByrjaS að gera
friðarsamninga við
Rúmeníu
London í gærkveldi:
FULLTRÚAR utanríkisráð-
herra stórveldanna, sem sitja í
London, munu á morgun hefj-
ast handa um það að gera
friðarsamninga við Rúmena.
— Er talið að það verk muni
ganga allfljótt. — Enn dregst
að fullgera uppkastið að frið-
arsamningum við ítali, og
kemur það af því, að enn er
verið að rannsaka kröfur ítala
og Júgóslafa til Trieste og
svæðisins umhverfis þá borg.
\
Rússar taka 2000
bændabýli í Ausf-
urríki
Londen í gærkvöldi.
HERNÁMSLIÐ Rússa í Aust
urríki hefir tekið á sitt vald
um 200 bændabýli þar í land-
inu, alls um 60.000 ekrur að
stærð, en stjórnin neitaði
hernum um land. Vildi hann
fyrst fá 100.000 ekrur. — Aust
urríkismönnum líkar ekki
þeíta og telja, að Rússar ætli
að nota sjer þetta, til þess að
hafa samyrkjubúskap á býlum
þessum og breiða út kommún-
isma hjá bændunum. Rússar
segjast þurfa að fá þetta vel
ræktaða land, til þess að her-
námsliðið geti fengið meiri
matvæli. — Málið mun verða
rætt á fundi hernámsstjórnar-
innar, sem kemur saman bráð-
lega. — Reuter.
Talið víst að Persíumálin komi
fyrir Öryggisráðið
Forsetinn skoðar Truæaít-bratiS
Truman Bandaríkjaforseti og búnaðarmálaráðherra hans,
Clinton P. Anderson sjást hjer á myndinni vera að skoða hin
svonefndu „Truman-brauð“, en það er brauð, sem gerð eru af
sjerstakri blöndu grófs hveitis og er það gert til 'þess að hægt
.sjc að senda hveiti frá Bandaríkjunum til hinna hungruðu
þjóða Evrópu. — Forsetinn gaí þess er hann bragðaði brauðið,
að hann gæti varla fundið neinn mismun á þessum nýju brauð-
um og hinum gömlu og hvaðst ekki trúa öðru en að Banda-
ríkjamenn legðu það á sig að borða þessi brauð, þó efnið í
þau væri ekki eins gott og þeir væru vanir að fá, þar scm um
væri að ræða hvort hægt væri að metta 8 miljónir hungraðra
manna í Evrópu.
Bevin verður.
ekki á fundum
þess
STJÓRNMÁAFRJETTA-
RITARA telja bað víst, að
Persíumálin verði lögð fyriú
Öryggisráðið, og geri Banda
ríkjamenn það, ef Persar
gera það ekki sjálfir, sem
ekki hefir enn verið ákveð-
ið. — Blaðamenn í Teher-
an ætluðu að spyrja þorsæt-
isráðherrann að þessu í dag,
en fengu þau svör, að ráð-
herrann væri svo önnum kaf
inn, að hann mætti alls ekki
vera að því, að tala við þá.
Það er talið að Rússar sjeu
því ákaflega andvígir, að
Persar skjóti málunum til
Öryggisráðsins. Persar hafa
ekki sagt neitt opinberlega
um þá fregn, að Bandaríkja
menn muni leggja málin fyr
ir Örvggisráð, ef þeir geri
það ekki sjálfir,
• Kommúnistar setjast í borgir
Hanchuriu
London í gærkvöldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
FREGNIR frá Chungking í dag herma. að þegar herir
Rússa fari úr borgum Manchuriu, setjist kommúnistar í þær.
Ilafi kommúnistarnir tekið borgirnar Tiehling, Naiylan og
Changto fyrir norðaustan Mukden, í suðurhluta Manchuriu.
Þá segir í fregn þessari að
kommúnistar sjeu nú að slá
hring um borgina Szepingkai,
þýðingarmikinn stað á járn-
brautinni milli Chungchun og
Mukden. Talið er að þeir hafi
náð á sitt vald flugvelli við
Szepingkai, og símasamband
hefir verið slitið milli borgar
þessarar og Mukden.
Kínverska stjórnin hefir
sent hersveitir frá Mukden til
Szepingkai. Blað kínverskra
kommúnista segir, að stjórn-
arhersveitirnar kínversku
auki nú árásir sínar á sveitir
kommúnista nærri Kwang-
tung í suður Kína.
NEW YORK: — í Phila-
delfía kvartaði uppgjafaher-
maður einn yfir því, að hús-
eigandinn, sem hann leigði hjó,
hefði tekið af honum trjefót í
veð fyrir 28 dollara leiguskuld.
Brefar keppa yIS
Frakka og Imm-
burgmenn
London í gærkvöldi.
ÚRVALS knattspyrnulið breska
hersins mun keppa í París þ, 28.
þ. m. við úrvalslið franska hers
ins og -í Luxemburg þann 31.
sama mánaðar við landslið Lux
emburg. — í breska liðinu
verða margir af kunnustu knatt
spyrnumönnum Breta. Tommy
Lawton frá Chelsea mun verða
miðframherji. og hinn bráðefni
legi ungi leikmaður Pve frá
Notts County mun leika inn-
herja.
■— Reuter.
Bevin ekki vestur.
Það er talið víst hjer í Lon-
don, að Ernest Bevin muni ekki
fara vestur um haf til þess að
sitja fundi Öryggisráðsins, sem
hefjast eftir viku, nema því að
eins að einhverjar stórvægileg-
ar breytingar hafi orðið á að-
stöðunni áður. Verður þá Al-
exander Cadogan fulltrúi Breta
á fundum ráðsins, en hann er
aðstoðar-utanríkisráðherra.
Reyna enn að fá svar.
Sendifulltrúi Breta í Moskva
hefir enn lagt að rússnesku
stjórnmni í dag um að svara
Bretum viðvíkjandi veru hers
Rússa í Iran, en svo sem kunn-
ugt er, sendu bæði Bretar og
Bandaríkjamenn Sovjetstjórn-
inni fyrirspurnir um ástæðuna
til þess að þeir færu ekki með
herinn burtu úr Persíu, en
hvorugri fyrirspurninni hefir
hefir enn verið svarað. Hafa
sttjórnir beggja ríkjanna þó
iðulega beðist svafs, síðan fyrir
spurnirnar voru sendar.
Jarðskjálfli í Mess-
Éiia
‘ London í gærkveldi:
ALLMIKLAR jarðsjálfta-
hræringar hafa í dag orðið í
borginni Messina á Sikiley, að
því er útvarpið í Rómaborg
skýrir frá. Það var í Messina,
sem skelfilegust tjón varð af
jarðskjálftum árið 1908.
Annarí uppástimgu
Frakka hafnað
London í gærkveldi:
HAROLD KING, frjettarit-
ari vor í París, fregnaði í
kvöld, að Bretar muni hafa
hafnað annari uppástungu
frönsku stjórnarinnar um það,
að Spánarmálin verði lögð fyr
ir Öryggisráðið. Er það talið
vera af fjórum ástæðum.
1) Vegna þess að stjórn
Spánar er innanríkismál, og
yrði það hættulegt fordæmi, að
blanda sjer í slík mál fullvalda
ríkis. 2) Ef Spánverjar hafa
unnið með Öxulríkjunum í
styrjöldinni, þá hafa viss önn-
ur riki gert það líka, og er ekk-
ert um það rætt, að breyta
stjórnarfari þeirra. 3) Ástand-
ið á Spáni er ekki talið vera
hættulegt fyrir heimsfriðinn
og 4) Það er ekki álitið að
refsiaðgerðir þær, sem Frakk-
ar stinga upp á myndu reynast
öruggar. Talið er að Banda-
ríkjamenn muni svara Frökk-
um því sama og Bretar. Reuter.
Vafasaml um kosn-
ingar í Grikklandi
London í gærkvöldi.
TALIÐ er að vafasamt sje,
að kosningarnar í Grikklandi
muni fara fram á tilsettum
tíma, eða 31. mars. Hefir for-
sætisráðherra Grikkja látið svo
um mælt, að hann geti búist
við, að truflanir verði á kosn-
ihgunum, eins og það er orðað.
Frjettamenn í London hafa
tekið það fram, að ekki sje lík-
legt að Bevin muni fara til
Grikklands, en sá kvittur hafði
komist upp, að hann myndi
bregða sjer suður á bóginn, til
þess að semja um það, að kosn
ingarnar færu fram, eða yrði
frestað, allt eftir því, hvernig
honum litist á ástandið í land-
inu. — Reuter.
(hurchill lil Hol-
lands
WINSTON CHURCHILL fyrv.
forsætisráðherra mun verða
gestur Wilhelmínu Hollands-
drottningar nokkra daga í maí-
mánuði næstkomandi. Við það
tækifæri verður hann gerður
að heiðursdoktor í lögum við
háskólann í Leyden og ýms
annar sómi verður honum sýnd
ur af Hollendingum.
Pjefur Benedikisson
sHtendlr skilríkí sín
PJETUR BENEDIKTSSON
sendiherra gekk á laugardag á
fund herra Felix Jouin Frakk-
landsforseta og afhenti honum
embættisskilríki sín.
Skrifstofa sendiráðs Islands
í París er í Hotel Bristol, Rue
de Faubourg St. Honoré, París.