Morgunblaðið - 19.03.1946, Síða 4

Morgunblaðið - 19.03.1946, Síða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 19. marz 1946 MinrLLng Þorsteinn Guð- mundsson frá Helga Jónssonar sjómans Mig setti hljóðan er jeg heyrði, að hann Helgi væri dá- inn. Þó vissi jeg að hann var lagður inn á spítala undir upp- skurð og að það var óumflýj- anleg aðgerð sem gera átti, en jeg áleit ekki mikla hættu á ferðinni, þar sem hann var hraustur að öðru leyti. Helgi er dáinn og hann var borinn til hinstu hvíldar í gær í Fossvogskirkjugarð. Helgi var fædaur 24. apríl 1910 að Reykjanesi í Hafnar- hreppi og var því tæplega 36 ára, er hann dó, 8, mars 1946. Foreídrar hans voru merkis- hjónin Jón Helgason vitavörð- ur á Reykjanesi og kona hans Agnes Gamalíusardóttir. Þau hjónin eru fyrir stuttu dáin. Einnig eru tvö systkini Helga dáin áður. Tvö systkini hans búa á suðurnesjum, bróðir á Akureyri og Vilborg Ijósmóðir hjer í bænum. Helgi fluttist 4 ára til Grindavíkur með for- eldrum sínum og ólst þar upp í glaðværum systkinahópi. Snemma mun Helgi hafa farið að stunda glímu við ægisdæt- ur, því áhuginn til sjálfsbjarg- ar var honum í blóð borinn. Formaður varð hann innan við tvítugt og þar rísa. Til Reykja- víkur fluttist Helgi árið 1936. 6. maí 1937 kvæntist hann eft- irlifandi konu sinni, Fanneyju Gunnarsdóttur, ættaðri frá Fellsaxlarkoti innan við Akra- nes, hinni ágætustu konu. Þau eignuðust tvo drengi, sem báð- ir eru börn að aldri, og er því þungur harmur á heimili ungu konunnar að missir sins ástríka förunauts. Helgi átti mikið þrek og hann átti svo mikið eftir að gera, við hann voru svo margar óskir tengdar í framtíðinni af konu hans og nánustu skyldmenn- mennum, sem var kunnugt um það, að hann hafði markað spor í þá átt að bæta hag heimilis- ins, en hann var ávalt sístarf- andi í þágu heimilisins, enda voru hjónin samhent í þeim efnum sem öðrum. Helgi var kyrlátur maður,' en kátur var hann í vina hópi, en ágæti manns verður aldrei rjett mælt við það, hvað þeim tókst að láta bera mikið á sér í þjóð- fjelaginu, heldur við hið raun- verulega manngildi þeirra. Helgi verður mjer lengi minn isstæður sem öðrum er honum kyntust, hvort sem þeir voru á sjó eða landi. En á sjónum kyntist hann flestum sam- verkamönnum sínum. Þar var hans lífsstaða, enda hefir móðir náttúra ætíð sent sína hraust- ustu sonu út á sjóinn. Helgi var stór og þrekinn maður að vallarsýn sem fleiri hans systkini. Jeg var tíður gestur á heimili þeirra hjóna, Njálsgötu 33 A. Það var svo með Helga sem aðra sjómenn, að tími þeirra verður ævinlega lítill, er þeir fá að njóta sín heima. Þeir eru ævinlega á sjónum. Helgi sigldi á togara öll stríðsárin. Jeg minnist hins látna vinar fyrir hans miklu ljúfmensku og prúðmensku, er jeg ævinlega varð var við í fari hans, en þá sjerstaklega hans miklu tryggð, en tryggð- in er allra mannkosta göfug- ust. Guð varðveiti konu þína og drengina, sem eru svo ungir, og leiði þau inn á hamingju- brautir. Blessuð veri minningin um góðan dreng. S. G. Júlíana Svelnsdóttir fær ferSasfyrk Einkaskeyti til Mbl. frá K.-höfn. JÚLÍANA Sveinsdóttir hefir fengið ferðast/rk Tage Brandts Hefir þetta glatt Júlíönu stór- um, og hún látið svo um mælt við mig, að hún ætli að nota styrk þenna til Frakklands- ferðar, þegar ástæðurnar leyfi. Verður það varla fyrr en snemma á næ.ta ári, en í sum- ar mun hún koma hingað til íslands. — Styrkur þessi er veittur fjórum framúrskarandi konum, 10.000 kr. hverri. —Páll. Skíðanámskeið á Siglufirði Frá írjettaritara Mbl. á Siglufirði. Á VEGUM íþróttabandalags Siglufjarðar, stendur yfir skíðanámskeið. og er sænski skíðakennarinn Bergfors kenn- ari. Auk meðlimanna í skíða- fjelögunum, njóta kennslu hans barnaskólanemendur og gagnfræðaskólinn. — Búist er við, að Bergfors dvelji hjer til 7. apríl á vegum íþróttabanda- lagsins. Hjer er mikill snjór og mjög góður og veður dásam- legt, með sól og hita um miðj- an daginn. Á landsmóti skíðamanna, sem hefst á Akureyri 22. þ. m., munu verða 12 þátttakendur frá íþróttabandalagi Siglu- fjarðar, þar á meðal Jón Steins son og Ásgeir Stefánsson, Óvanalegt er það hjer á þess um tíma árs, að róið hefir ver- ið 18 daga í röð og altaf blíðu- sjóveður og ágætur afli. Skaffafelli Þorsteinn Guðmundsson frá Skaftafelli var jarðaður að Krossi í Landeyjum s. 1. laug- ardag. Fyrir fáum árum hafði hann flutt búferlum að Gulárási þar í sveit, frá Leiðvelli í Meðal landi í Vestur-Skaftafellssýslu, en sú jörð gerðist óbyggileg af sandágangi. Þarsteinn Guðmunndsson var meðal yfirbragðsmestu skaft- fellinga síðustu hálfrar aldar, og enda lengur: Kempulegur, drengilegur, hægur og fríður. Hann var mestan sinn aldur svo að segja á hvers manns vör- um í Skaftafellssýslu sem ferða og vátnamaðui; mikill bóndi og alla tíð með hjeraðsstólpum talinn; gestrisinn með afbrigð- um og fylgdi fleirum yfir stór- vötn en e. t. v/ nokkur sinna samtíðarmanna, og býst jeg við, að sjerstakiega hafi þurft að standa á til þess, að hann tæki við greiðslu fyrir greiðana. Á- hugamaður var hann um al- menn mál, þó að hann hefði sig lítt í frammi og einlægur trúmaður, enda kirkjurækinn. Þorsteinn var fæddur á Maríu bakka í Fljótshverfi, austustu sveit Vestur-Skaftafellssýslu og var af kyni, er stundum hefir verið kennt við nafnið Sverris- sen. Þar ólst hann upp og stóð um hríð fyrir búinu með móð- ur sinni, eftjr fráfall- bóndans. Eftir það fluttist hann að Skafta felli í Öræfum, setti þar upp eigið bú, kvæntist og eignaðist fjögur börn, er ávallt hafa ver- ið með föður sínum. Skaftafell er næsti bær við Skeiðará, vest- asti bær í Öræfum, og átti Þor- steinn þá fleiri ferðir ‘yfir Skeiðará og Núpsvötn en aðrir menn, e. t. v. að póstinum und- anskildum. Þá fór hann og æfin týralega Vatnajökulsferð með Koch höfuðsmanni og landmæl- ingamanni, á vegum herfor- ingjaráðsins danska. Eftir fráfall húsfreyjunnar flutti Þorsteinn að Mýrum í Álftaveri og tók þá Kúðafljót við af Skeiðará. Á Mýrum vegn aði Þorsteini mjög vel, enda er jörðin fjölskrúðug og var það Þorsteini mjög að skapi. Þó varð það úr, að hann flutti það- an að Leiðvelli, sem þá var mjög fögur og sjerkennileg jörð, en erfið. Og erfiðleikarnir uxu ár frá ári vegna sandá- gangs, unz frátök voru að vera þar lengur. Á Gulárási vegnaði honum vel. Á Mýrum og úr því naut Þor- steinn aðstoðar hinnar ágæt- ustu bústýru, Þuríðar Odds- dóttur, en börn hans hafa jafn- an verið einvalalið. Björn O. Björnsson. Mínningarsjóður STOFNAÐUR hefir verið sjóður til minningar um Har- ald Viggó Björnsson, banka- stjóra í Vestmannaeyjum. Það er ósk aðstandenda, að í stað blóma við útför hans, verði gefar-minningargjafir í þenna sjóð. I Reykjavík fást minn- ingarkortin í þessu skyni í Bókaverslun Sigfúsar Eymunds sonar. Th. Thomsen, verkfræðingur. Lýðveldishugvekjan i Andvara „LÝÐVELDISHUGVEKJ A um íslenskt mál“ nefnist grein, sem birtist í síðasta árgangi tímaritsins Andvara. Höfundur er „Meistari H. H.“. Grein þessi er þannig rituð, að ætla mætti að hún væri kofnin frá' pénna þess H. H., sem Reykvíkingar hafa undanfarið sýnt mikla að- dáun vegna sjónleiks, sem þar var sýndur eftir hann. Þó benda nokkrar líkur til þess að svo sje ekki. Enn það var ekki um höfundinn, sem jeg ætlaði að rita. Eins og nafn greinarinnar ber með sjer, er hún rituð um íslenskt mál. Stíllinn á henni er ljettur og látlaus, glettinn og jafnvel gamansamur með köflum. Hvergi er hann þving- aður af tilgerðarlegri orðmælgi. En allstaðar gætir festu og ein- beittni. Sums staðar bregður fyrir alvöruþunga, en öfgar komast ekki að. Þessi hug- vekja er læsileg og aðgengileg jafnt lærðum mönnum, sem leikmönnum á sviði islensks máls. Hún á því sannarlega er- indi til allra íslendinga, sem á annað borð hirða nokkuð um íslenskt mál. Tvær, mjög athyglisverðar spurningar setur höf. þarna fram. Fyrri spurningin er þessi: „Eigum vjer að hætta að vera íslendingar?11 Síðari spurning- in er: „Eigum vjer að halda áfram að vera íslendingar?“ Þessar spurningar eru svo al- varlegar, að fram hjá þeim ætti enginn íslendingur að ganga. Það virðist þó svo, fljótt á lit- ið, að spurningar þessar sjeu þarflausar, þar eð flestallir at- kvæðisbærir íslendingar hafi sýnt það við þjóðaratkvæða- greiðsluna, að þeir vildu einir ráða sínu eigin landi. En höf. lætur ekki staðar numið við þá atkvæðagreiðslu. Hann tví- hendir málshjör sinn og ræðst gegn ýmsum þessara atkvæða- greiðenda- Þegar hann vegur að þeim með þessu vopni, virðast margir þeirra hafa heldur hald- litlar verjur. Mállýti eru ósómi, hvar sem þeirra verður vart. Aðfengin orðskrýpi, sem tekin eru inn í íslenskt talmál og ritmál, eru eins og aðflutt meindýr eða hættulegur sjúkdómur. En að dómi höf. hefir íslenskt mál ekki farið varhluta af þessum „innflutningi“. Þar úir og grú- ir þessi ósómi, eins og hættu- legir sýklar sjeu þar á vörum manna. Höf. bendir á þá hættu, Sem af þessu geti stafað, en bendir einnig á ýmis konar varnarlyf. En takist sýklum þessum að halda áfram, án þess að nokkuð sje að gert, telur hann mál vort í hættu statt. Vjer íslendingar höfum nú skilað Dönum konungi þeirra, væri því sjálfsagt og eðlilegt, að vjer, sem fyrst, skiluðum þeim orðum þeim og orðskrýp- um, sem vjer höfum jafnvel enn að láni frá þeim. Vjer eig- um hægt með það, þar eð mál vort er svo auðugt, að það get- ur veitt oss gnægð orða í stað þeirra, sem vjer ljetum frá oss. En vjer gætum að sjálfsögðu greitt Dönum vexti af lánsorð- unum, sem vjer höfum svo lengi notað, með því að nema hreina dönsku og fráskilja hana íslenskunni. Það myndi þeim vera kærara, en vita oss mis- nota mál þeirra svo herfilega sem vjer nú gerum. Vjer viljum engin afskifti erlendra þjóða af landi voru. —• „Islendingar viljum vjer allir vera“. Þetta er svar við hvers konar tilraunum, sem gerðar eru til þess að ná yfirráðum lands vors. Þetta hlýtur að vera svar hvers íslendings við spurn ingum þeim, sem meistari H. H. setur fram í hugvekju sinni. —• Og það ætti að vera oss auð- veldara, en verja land vort fyr ir ásælni hervelda. „Lýðveldishugvekja um ís- lenskt mál“ á erindi til allra Is lendinga. Þess vegna vildi jeg mælast til þess við höfund hennar, ef hann les þessi fáu orð mín, að hann flytji hana í hljóðnema útvarps íslensku, þjóðarinnar, eða annað henni líkt. En verði því ekki við komið, einhverra orsaka vegna, vil jeg eindregið benda öllum á að lesa hana — öllum, sem með atkvæði sínu greiddu fyrir því, að vjer íslendingar erum nú frálsir menn í frjálsu landi. Vil jeg áð lokum þakka meist ara H. H. fyrir hugvekjuna, bæði vegna mín og þeirra, sem jeg veit að njóta hennar á sama hátt. Jón Kr. ísfeld. Ný þingmál Hveraorkan á Reykjanesi við Djúp. Sigurður Bjarnason o. fl. flytja svohlj. þál.till. í Sþ.: „Alþingi ályktar að skora á samgöngumálaráðherra að láta á næsta sumri fara fram rannsókn jarðhitasvæðanna á Reykjanesi við ísafjarðar- djúp, með það fyrir augum, að staðreynt verði, hvort unt sje að framleiða þar rafmagn fyrir nærliggjandi kaupstaði, kauptún og sveitir11. í greinargerð segir m. a.: I Reykjanesi við ísafjarðar- djúp eru ein mestu jarðhita- svæði á íslandi. Hefði jarð- hiti um langt skeið verið hag nýttur þar til íþróttastarf- semi, upphitunar skólahúsa, gróðurhúsa og fyrr á tímum til saltvinnslu. Nauðsyn ber til þess, að ýtarleg rannsókn fari fram á þeim möguleikum, sem hinir heitu uppsprettur þessa heitu staða fela í sjer til orkufram- leiðslu. Sveitirnar við ísa- fjarðardjúp, ísafjarðarkaup- staður og kauptúnin í Norður ísafjarðarsýslu og norðan- verðri Vestur-ísafjarðarsýslu vantar raforku. Enn þá hefir ekki fengist endanlega úr því skorið, hvaða leiðir sjeu heppilegastar fyrir þessi bygð arlög til þess að fá nægilega raforku.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.