Morgunblaðið - 30.03.1946, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 30.03.1946, Blaðsíða 1
16 síður 33. árgangur. 74. tbl. — Laugardagur 30. mars 1946 ísafoldarprentsmiðja h.f. Fulltrúi Persa í Öryggisráðin u segir: 99 EKKERT SJEIi ÞESS AÐ RUSSAR OTTFLUTNING66 Viija werla kóngur og droSning ÞETTA eru Don Juan og kona hans, en þau vilja verða kóngur og drottning á Spáni, eins og oft hefir verið minst á í frjettum undanfarna mánuði. Stuðningsmenn þeirra vinna að því öllum árum að koma Don Juan til valda. Þau eru nú stödd í Portugal. Rjeffarhöldin í Nurnberg: Hitler ætlaði til Bret- lands árið 1936 Núrnberg í gærkvöldi. RIBBENTROP hjelt áfram vörn sinni í rjettinum í Niirnberg í dag. Hjelt hann því fram, að hann hefði jafn- an barist fyrir aukinni vináttu Breta og Þjóðverja, og sagðist meðal annars hafa undirbúið fyrirhugaða ferð Hitlers til Bretlands árið 1936. Var ætlunin, að Hitler ræddi við Baldwin, þáverandi forsætisráðherra Bret- lands, en úr þessu varð ekki, er Baldwin dró sig til baka á síðustu stundu. Öryggisráðið krefur Rússa og Persa upp- iýsinga um Iransmálin London í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter. SENDIFULLTRÚI Persa, sem boðið var að taka til máls á fundi Öryggisráðsins í kvöld kl. átta (eítir ísl. tíma), upplýsti það, að hann hefði ekki fengið neinar fregnir frá stjórn sinni, sem bentu til þess, að Rússar hefðu byrjað að flytja her sinn heim. Persneki fulltrúinn talaði áður en Öryggisráðið hafði sam þykt þá tillögu Byrnes, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, að gefa Trygve Lie, aðalritara Sameinuðu þjóðanna, fyrirmæli um, að hann fari þess á leit við stjórnir Persíu og Sovjetríkj- anna, að þær gefi ráðinu upplýsingar um samningaumleit- anir þeirra að undanförnu, áður en það kemur saman á ný á miðvikudaginn. Bardagi milli Gyð- inga og iögreglu í Þýskaiandi. Berlín í gærkvöldi. TIL óeirða kom í Þýska- landi í gær, er 1800 heimilis- lausir Gyðingar, sem komið hafði verið fyrir í bráða- birgðahúsnæði nálægt borg- inni Stuttgart, reyndu að koma í veg fyrir það, að þýsk og amerísk lögregla gerði hjá þeim húsrannsókn. Lögreglu mennirnir munu hafa verið að leita að fölsuðum skömt- unarseðlum og ýmsum varn- irigi, sem selja átti á svörtum markaði. Gvðingarnir tóku á móti Icgreglunni með grjótkasti og bareflum og urðu leitarmenn að lokum að fá brynvarða bifreið sjer til aðstoðar. Einn Gyðingur ljet lífið í óeirðum þessum, amerískur hermaður særðist og fjórir þýskir lög- teglumenn hurfu. Kosningar í Grikk- iandi á morgun London í gærkvöldi. ÞINGKOSNINGAR fara fram í Grikklandi á sunnudag í fyrsta skifti í tíu ár. Bretar, Frakkar og Bandaríkjamenn munu hafa eftirlit með kosn- ingunum, en eins og kunnugt er, hafa verið miklar deilur uppi um það að undanförnu, hvort oinar fyrirhuguðu kosn- ingar ættu að fara fram, eða hvort fresta bæri þeim um ó- ákveðinn tíma. Til nokkurra óeirða kom í Aþenu í dag og gengu menn um göcurnar og skoruðu á fólk að greiða ekki atkvæði. í frjett um frá London er talið, að það hafi einkum verið kommún- istar,*sem stóðu fyrir þessu. Aðsfoðarutanríkisráðherra Breta hefir’ haldið ræðu í til- efni hinna fyrirhuguðu kosn- ’ inga. Skorgði hann a G: jkki að neyta atkvæðisrjettar síns, svo að friður og regla mætti kom- ast á sem fyrst í landinu. Gráðugir í álftir. LONDON: Álftir verða hjer eftir alfriðað'ar í Ulster. Er þetta gert vegna þess að veiði- menn hafa gert mikinn usla í álftunum nýlega og hafa selt skrokkana til London. Ribbentrop hjelt því fram, að hann hefði ekkert vitað um för þýrka hersins inn í Aust- urríki, fyr en Göring hefði sagt sjer það. Eins og kunn- ugt er, hefur Ribbentrop þeg- ar tjáð sig reiðubúinn að taka á sig ábyrgð allra gerða sinna. Hávaðasamt hefir verið í rjettinum að undanförnu og hafa dómararnir orðið að þagga niður í þeim Göring og Ribbentrop, en milli þeirra hafa o:ðið harðar orðasennur. Því hefir verið lýst yfir af rjettarins hálfu, að sakborn- ingunum verði framvegis ekki leyft að fara rð dæmi Görings og -rekja alla sögu nasismans sjer til varnar. Verður þeim aðeins leyft að koma við sögu þeirra viðburða og leggja fram skjöl, sem talið er að viðkomi vörn þeirra. Úfvarpstruflansr LONDON: — Norðurljós hafa að undanförnu truflað L.jög allar útvarpssendingar ? norðurhveli jarðar. Þrátc íyrir góðviðrið hefir reynst erfitt að heyra í útvarps- stöðvum í Ameríku og víðar. — Reuter. Indónesar skjóta á breskar flugvjelar London í gærkvöldi. TIL nokkurra smábardaga hefir komið milli breskra varðsveita og öfgamanna úr liði Indónesa á Java. Skutu uppreistarmenn meðal annars úr lof tvarnabyssum á bresk- ar flugvjelar, er voru á eftir- litsflugi. Flugmenn flugvjel- anna snerust gegn árásinni og tókst þeim að þagga niður 1 einni loftvarnabyssu. Ekki er talið ósennilegt, að þetta standi í sambandi við liðsflutninga Hollendinga til Java. —Reuter. Frakkar viija framkvæmd Allantshafs- sáffmálans New York í gærkveldi: FULLTRÚI Frakka í Ör- yggisráði Sameinuðu þjóð- anna hefur skýrt svo frá, að ríkisstjórn Frakklands hafi lagt fyrir hann að taka ekki í neinu máli, sem fyrir örygg isráðið kynni að koma, af- stöðu, sem fari í bága við Atlantshafssáttmálann varð- andi frelsi og sjálfsákvörðun arrjett smáþjóðanna. — Reuter. Breski fulltrúinn sammála Byrnes. Allmiklar umræður spunn ust út af tillögu Byrnes. Aðal fulltrúi Breta í Öryggisráð- inu, að þessu sinni, Sir Alex- ander Cadoga, studdi tillög- una. Sagði hann það mikils virði, að ráðið fengi vitneskju um, hvað farið hefði milli Rússa og Persa og hvort sagð ur brottflutningur hinna fyr- nefndu á liði sínu frá Persíu bygðist á samkomulagi beggja deiluaðila. Fulltrúar Mexico og Frakklands tóku í sama streng. ViII lengri frest. Fulltrúi Ástralíu í ráðinu var einnig fygjandi tillögunni í öllum megnatriðum. Þó taldi hann deiluaðilum vera gefinn of stuttur tími, ef ætl- ast væri til þess, að .svör þeirra bærust á þriðjudag, eins og Byrnes fór fram á. Taldi hann hóflegt, að báðum þjóðunum yirði veittur frest ur til fjórða eða fimta apríl, cg benti í því sambandi á slæm skilyrði til útvarps- og skeytasendinga. Meðlimir Örvggisráðsins virtust þó yfirleitt vera all bjartsýnir um, að takast mætti að leysa deiluna án þess, að til verulegra átaka þvrfti að koma innan ráðs- ins. Fftir að tillaga Byrnes hafði verið samþykt, var fundum ráðsins frestað til miðvikudags.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.