Morgunblaðið - 06.04.1946, Blaðsíða 1
Harðar deílur á
leiðtoga slórveld-
anna,
Einkaskeyti til Morgunblaðsins
frá Reuter.
ST J ÓRNMÁL ARITST J ÓRI
Jesúítablaðsins Civilta Catto-
lica, gagnrýnir forráðamenn
stórveldanna í grein í blaðinu
í dag. Hann gagnrýnir Chur-
chill í ákaflega bitrum orð-
um, sem eru liður í langri for
dæmingargrein um stefnu
stórveldanna.
Greinaýhöfundur ásakar
Vesturveldin fyrir það, að
hafa enga þekkingu á sögunni
og að ganga framhjá lærdóm-
um hennar og hafa þá að engu
Segir hann þetta koma best
fram „í hinni hrapalegu und-
anlátsstefnu Vesturveldanna
gagnvart Stalin“.
Höfundur segir um ræðu
Churchills í Fulton á dögun-
um. „Hættur þær, sem Chur-
chill varar við, eru nógu raun
veulegar, en raunsæi hans
rjett aðeins hylur skelfilegan
skort á stjórnmálalegu sið-
gæði“.
Höfundur ásakar Churchill
— og í sömu andránni Roose-
velt forseta, — fyrir það að
hafa verið aðila að samning-
um, sem komið hafi allri Aust
ur-Evrópu undir ok Sovjet-
ríkjanna. Hann segir að árið
1944 hafi Churchill fundist
það bæði hentugt ag þægilegt
að hlaða lofi á erkifjandann í
austri, en nú þegar banda-
mannaþjóð þessi sje farin að
ógna heimsveldinu breska, þá
breyti Churchill allt í einu
um stefnu og fari að verja
frelsi og kristindóm fyrir bol-
sjevismanum.
Enn meir! rjeff-
arhöld!
YFIRDÓMARI breta í Niirn
bergrjettarhöldunum, Sir
Hartley Shorecross, er nýfar-
inn frá London áleiðis til
Nurnberg. Ætlar hann að at-
huga hvort ekki sje tiltækilegt
að setja upp rjettarhöld yfir
enn fleiri nazistaleiðtogum, en
þeim, sem nú eru fyrir rjetti í
Núrnberg og víða um Þýska-
land.
Reuter.
Rafmagnsbihm
TVISVAR sinnum, með
stuttu millibili, eftir hádegi í
gær, varð nokkur hluti Miðbæj-
arins rafmagnslaus. Lágspennu
strengur, sem liggur í hús við
Vallarstræti—Austurstræti að
Pósthússtræti og Pósthússtræti
að Kirkjutorgi urðu við þetta
rafmagnslaus. Orsökin var sú,
að strengurinn þoldi ekki hið
mikla álag.
Tuttugu miljónir burnu í Evrópu
veikur uf fæðuskorti
Vilja konunginn
burtu
London í gær:
GIORGIEFF, hinn kommún-
istiski forsætisráðherra Búlg-
aríu, hefir lýst því yfir, að
hann og stjórn
hans telji ekki
annað koma
til mála, en af
,nema kon-
ungsstjórn í
landinu og
taka upp lýð-
veldisf.vrir-
komulag. Hef
ir þetta í för
með sjer, að
hinn mu ára
gamli konung
ur, Simeon,
sonur Borisar verður að hrökl-
ast frá völdum. Ekki varð úr
því að samsteypustjórn yrði
mynduð í landinu.
—Reuter.
Hoover gefur skýrslu
um rannsóknir sínar
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
HERBERT HOOVER, fyrrum Bandaríkjaforseti og full-
trúi Trumans forseta í matvælamálunum, kom til London
i dag flugleiðis frá Oslo og flutti mjög eftirtektarverða
ræðu á matv.ælaráðstefnu þeirri, sem nú stendur yfir í
London, Sagði hann þar meðal annars, að tuttugu mil-
jónir barna í Evrópu væru haldin allskooar sjúkdómum
eingöngu vegna fæðuskorts þess, sem þau yrðu að búa við.
Væru þetta ógurlegar horfur vegna framtíðar þjóðanna.
Enga samvinnu
LONDON: — Hlutafjelag það
sem á kommúnistablaðið breska
Daily Worker, hefir sótt um Rússlands og vestur að Erm
upptöku í samband breskra
samvinnufjelaga.
vaf hafnað.
Umsókninni
Harðar deilur milli
Indverja innbyrðis
London í gærkveldi.
Einkaskeyti til Morgunblaðsins frá Reuter.
ÖNNUR vika umræðna bresku sendinefndarinnar í Ind-
landi, er nú að líða, og hafa sendimennirnir rætt við for-
ingja flestra indverskra flokka, sem nokkru máli skifta.
Jinnah, foringi Múhamedsmanna, heimtar að sjerstakt
ríki Múhamedsmanna verði stofnað í Pakhistan, en Þjóð-
þingsmenn vilja þetta ekki. Er mikil stífni á báða bóga.
Sjónarmið flokkanna.
Sjónarmið íoringja þessara
tveggja meginflokka Indlands,
eru eins ólík
og vera má. r
Nehru, einn i
af aðalleiðtog
um Þjóðþings- j
flokksins vill!
láta Indverja j
fá sjálfstjórn
strax, og jafna j
síðan deilumál j
sín með samn ! |
ingum inn-
byrðis. Virð-
ast Þjóðþings J MohammC(1 AU
menn vera Ti-„ah ,
andvígír sjálfstæði Pakhistan,
en Jinnah vill ekki slaka hið
mfnsta til frá þeirri kröfu. Er
alt í óvissu um úrslit þessa
þýðingarmikla máls.
Formenn minni flokkanna.
í dag ræddi breska sendi-
nefndin við fulltrúa nokkurra
smáflokka, og virtist fara vel
á með fundarmönnum. Flokkar
Hungurdauði vofir yfir
miljónum
Hoover sagði. að hungur-
dauði vofði yfir miliónum
manna alt frá landamærum
þessir geta að vísu ekki miklu
ráðið um framtíð landsins, en
eru þó allfjölmennir. — Nehru
ræddi við blaðamenn síðdegis
í dag og kom þar glöggt í ljós,
að ekki verið auðvelt að þoka
Þjóðþingsflokknum hið minsta.
Rússar irá olíu-
lindum!
BANDARÍKJAMENN hafa
farið fram á það við Rússa,
að láta sjer í tje aftur olíu-
lindir þær, sem þeir höfðu
rjettindi á í Ungverj alandi,
en Rússar hafa haldið lindun-
um op hefir flogið fyrir, að
tilfæringar við þær hafi all-
mjög fallið í vanhirðu á þeim
tíma. — Ekki er enn vitað
hverju Rússar svara til um
þetta. — Það er ameríska olíu
fjelagið mikla, Standard Oil,
sem hafði umráðarjettinn yf-
ir olíulindum þessum.
arsundi. Á þessu svæði sagði
hann, að aðeins örfáir menn
fengju meira en 1200 hita-
einingar í fæðu sinni dag-
lega, og væri ástandið lang-
verst í iðnaðarborgum og
öðrum bæjum. — Hoover
hvatti til þess, að allt væri
gert, sem mögulegt væri,
til þess að kjma matvælum
fljótt til þessara landa.
Þriggja vikna birgðir.
Sumstaðar í Evrópu, t. d.
í Þýskalandi. sagði Hoover,
að ástandið væri þannig, að
fyrst og fremst væri matar-
skamturinn langt fyrir neð-
an það, sem menn þyrftu
til þess að hrörna ekki af
fæðuskorti, og þar á ofan
bættist, að matarbirgðir
væru ekki fyrir hendi nema
til einna þriggja vikna. Yrði
að útvega þessu fólki björg,
uns uppskeran kæmi því til
góða.
Ömurlegt ástand.
Hoover sagði, að hann
hefði ekki lengi sjeð eins
hryllilegt, eins og' mö-rg
börnin í löndum þeim, sem
hann ferðast um. Þau voru
föl og tærð og veik af nær-
ingarskorti. Hann sagði, að
nú væri mjótt á mununum,
hvort tækist að bjarga fram
tíð Evrópuþjóðanna, börn-
unum ungu, og bætti við að
til þess að þetta tækist, yrði
að bregða við skjótt.
Slysasamt í London
LONDON: — í febrúarmán-
uði síðastliðnum biðu 58 manns
bana í London af völdum um-
ferðaslysa.
Persar og Rússar
semja
PERSAR og Rússar hafa
gert með sjer samninga, og
voru þeir birtir í Teheran í
dag. Lofa Rússar þar að verða
farnir burtu úr landinu með
her sinn fyrir 5. maí n.k.
Ennfemur var svö ákveðið
í samningum þessum, að um-
ræður skuli hefjast í þingi
Persa, er það kemur saman,
um stofnun persnesk-rúss-
nesks olíufjelags.
Loks var ákveðið í samning-
um þessum, að athugað verði
með Azerbeijan síðar, og
skuldbinda Persar sig til þess
að hefna sín ekki á þeim mönn
um, sem uppsteyt hafa gert
gegn stjórn landsins.
— Reuter.
Fá ekki að bera
vitni
London í gærkvöldi.
STJÓRN Júgóslafíu hefir
svarað málaleitun Bandaríkja-
manna viðvíkjandi því, að liðs-
foringjar úr Bandaríkjaher fái
að bera vitni í máli Michailo-
wich, fyrrum hermálaráðherra.
Segist stjórnin ekki geta leyft
það, að þessir menn beri vitni
í málinu. I svari sínu segir jú-
góslafneska stjórnin að hún
hafi engan rjett til þess að
blanda sjer í málefni hersins,
og geti ekki verið samþykk
þeirri skoðun Bandaríkjastjórn
ar, að Michailowich hafi sjer
hið minsta til málsbóta. Hann
sje svikari, og muni fá þau ein
málagjöld, sem svikurum henti.
—Reuter.
Norðmenn heyja
sjö landskappleiki
á þessu ári
FRÁ K.-höfn berast þær
fregnir að Norðmenn muni
heyja 7 landskappleiki í knatt-
spyrnu á yfirstandandi ári, þar
af 5 heima í Noregi. Leikirnir
eru taldir hjer á eftir.
16. júní við Dani í Oslo, 27.
júní við Finna í Bergen, 2. júlí
við Svisslendinga í Oslo, 7. júlí
við Dani í Kaupmannahöfn,
aukaleikur vegna afmælis
danska íþróttasambandsins, 26.
júlí við Luxemburg í Luxem-
burg, 15. september við Svía í
Oslo og 20. október gegn Dön-
um í Kaupmannahöfn. Auk
þessa leikur norska landsliðið
gegn úrvalsliði breska flug-
hersins þann 22. maí í Oslo.
Flugferðir til Spánar
LONDON: — Vikulegar flug
munu byrja snemma í þessum
ferðir til Spánar og Englands
mánuði. Hafa þær legið niðri
síðan í desember.