Morgunblaðið - 09.04.1946, Side 7

Morgunblaðið - 09.04.1946, Side 7
Þriðjudgaur 9. apríl 1946 MORGUNBLAÐIÐ 7 Loðdýrabúskapurinn og hagnýting fisk- úrgangs frd hraðfrystihúsunum NOKKUÐ hafa verið ræddir möguleikar þess, að gera markaðshæfann þann fiskúr- gang, sem víða verður hjer hjá sjávarútveginum, og þá fyrst og fremst hjá hraðfrystihús- unum. Við flökun hjá hraðfrysti- húsunum verður eftir um 60% af hráefninu, og hefir þessum hluta fiskjarins víða verið fleygt í sjóinr. aftur og virðist það mjög frumstæður atvinnu- rekstur á þessari öld tækninn- ar, en kannske hægara um að vanda en úr að bæta, og vona jeg að mjer verði ekki tekið illa upp þó jeg bendi hjer á lausn, sem virðist ekki hafa hlotið þá athygli í seinni tíð sem henni þó óefað ber. Þær leiðir sem ræddar hafa verið eru meðal annars niður- suða og mjölvinnsla. Fiskimjþl hefir lengi verið framleitt hjer og er því ekki nýtt fyrirbrigði. í raun og veru er það aðeins breyting á hrá- efninu í geymslu og flutnings- hæft ástand. Þetta mjöl hefir meðal ann- ars verið notað sem fóður fyrir loðdýr, bæði hjer og erlendis og er ástæða til að benda á í því sambandi að mjölið er miklu óheppilegra fóður fyrir loðdýr heldur en fiskbeinin ný eða fryst, og kostnaður við vinsluna því aukaútgjöld í þessu sambandi. Virðast því möguleikar á framleiðslu loð- skinna í sambandi við hrað- frystihúsin vera mun hagstæð- ari, en hjá þeim sem byggja verða sinn loðdýrabúskap á þessu mjöli, •— einnig er loð- skinnaframleiðsla miklu full- komnari vinsla á þessu hráefni en fiskimjöli. Nú er svo ástatt að loðdýra- stofninn er svo lítill í landinu að á næstu árum mun hann ekki geta jetið upp 1/10 þess fiskúrgangs sem til fellur, mun því mjölvinsla vera ein af aðal- leiðunum til að gera þennan fiskúrgang markaðshæfan og þá fyrst og fremst þar sem mikið fellur til af beinum. En aftur á móti ættu þau hraðfrystihús sem standa á afskektum stöð- um og litla möguleika hafa til vinslu á þessum úrgangi, að ganga fyrir með að fá loðdýra- stofn, þar sem það mun reynast auðveldasta lausnin fyrir þau í þessu vandamáli. Þá hefir einnig verið minnst á niðursuðu sem fullkomnari vinslu á fiskúrganginum. og má vera að sú aðferð eigi sjer einhverja möguleika, en það er ekki endaníeg vinsla á bein- unum, þar sem þá yrði eftir sjálfsagt 40% og mætti nota þann afgang sem loðdyrafóður með góðum árangri. Tilefni þes.sarar greinar er að benda á möguleika bess að framleiða loðskinn úr fiskúr- ganginum. Engum mun þó ljós- ara en mjer hversu tilgangs- laust virðist að tala í því máli, ef dæma skal út frá þeim skiln- ingi sem þessi atvinnuvegur hefir átt að mæta meðal þjóð- arinnar yfirleitt; og verður þetta þá kannske unnið fyrir Eftir Leif Jónasson frá Öxney Fyrri grein gíg, — en það virðist nú ekki seinna vænna fyrir menn að rumska í þessu máli, ef vel á að farn. Upphaf loðdýra- búskaparins. Loðskinn hafa frá ómunatíð verið eftirsótt vara í flestum löndum heims. Upphaflega voru það skinn af viltum dýr- um sem fylltu þennan markað, en fyrir gengdarlausa veiði með sífellt fullkomnari veiði- tækjum hefir mjög sorfið að stofni veiðidýra og sumum teg- undum verið útrýmt að mestu. En .með aukinni menningu og velmegun þjóðanna hefir eftirspurnin eftir grávöru auk- ist jafnt og þjett, en vegna þurrðar veiðidýra, fóru.menn að reyna aðrar leiðir til fram- leiðslu á þessari vöru, og verða Kanada-menn fyrstir til að reyna f ramleiðslu loðskinna \ með því að rækta þessi dýr í búrum, — og þaðan hefir svo þekking á þessum atvinnuvegi flutst til annara landa. Erfitt mun að segja fyrir víst hvenær tilramir í þessa átt hafa byrjað, en nokkru fyrir 1920 höfðu þessar tilraunir bor ið þann árangur að sýnt þótti að þessi búskapur myndi eiga miklá mögnleika, enda hefir hann hefir tekið risaskref fram á við á fáum árum þrátt fyrir þá óvild og skilningsleysi, sem honum hafa mætt í hverju landi, þar sem hann hefir rutt sjer til rúms. Þessi atvinnuvegur er því mjög ungur, þegar miðað er við ræktun annara dýra og því ekki til um hann nein gömul fræði sem styðjast mætti við; hafa menn þvi orðið að þreifa sig fram, — hver eftir því sem hann hefir haft hugkvæmni til, og af þeim völdum hefir marg- ur lærdómur:nr\ verið dýru verði keyptur, en fyrir ósleiti- legt starf slíkra manna hefir nú áunnist sú þekking að ekki er lengur nauðsynlegt að byggja á tilviljunum, heldur er nú þekking fyrir hendi sem gerir afkomu trygga frá ári til árs. Þær tegundir loðdýra sem mest hafa verið aldar í búrum eru minkar og refir, — og mun aðeins um þá fjallað hjer. Hagstæð skilyrði norðlægra landa til ioðskinns framleiðslu. Eftir því sem nær di'egur norðUrhveli jarðar eru þau dýr sem þar lifa búin dýpri og oft- ast fegurri feldi en frændur þeirra sem heimkynni sín eiga sunnar á hnettinum. Þetta orsakast fyrst og fremst af kaldara loftslagi, sem gerir dýrunum nauðsynlegt að búa sig betur. og á þeim tíma þegar feldur tlýranna er að ná fullum þroska gætir minnst sólar á norðurhveli jarðar, — en sólin hefir mjög eyðileggj- andi áhrif á hinn hreina blæ feldsins, en hunn er hið fyrsta skilyrði þess að loðskinn geti talist gallalaus. Þessi atriði hafa geisi mikla þýðingu þeg- ar um loðdýrabúskap er að ræða. Enda hefir reynslan sýnt að hin norðlægari lönd skila miklu betri skinnaframleiðslu en suðlæg lönd, — meira að segja hefir Noregur betri skinnaframleiðslu en Svíþjóð, og mun kaldara loftslag ráða þar mestu um. Noregur stóð mjög framar- lega á þessu sviði fyrir stríð, og síðustu árin fyrir stríð fluttu þeir út loðskinn fyrir 40—50 miljónir króna. Enda hafði þessi atvinnuvegur hlotið meiri viðurkenningu þar en í nokkru öðru landi. ísland er eitt þeirra landa sem helir mjög hagstæð skilyrði með tilliti til loftslags, og því vel samkeppnisfært við hvaða land sem er — um fram- leiðslu loðskinna. En það sem sker úr um mögu leika til að keppa um markað- inn er gæði skinnanna og lág- ur framleiðslukostnaður, en fóðrið er stærsti liðunnn af framleiðslukostnaðinum ef bú- in eru rekin á hagkvæman hátt að öllu leyti — og þar sem þessi dýr nota mest eggjahvítu fóður úr dýraríkinu, og eggja- hvítufóður úr dýraríkinu er það sem norðlæg lönd fram- leiða mest af, þá viðast mögu- leikar þessa atvinnuvegar hjer mjög glæsilegir. En búast má við að sum lönd styðji sinn loðdýrabúskap, með tilliti til þess gjaldeyris sem hann skaff- ar, þótt hann sje ekki sam- keppnisfær við framleiðslu annara landa verður fitumagnið í fóður- blöndunni of lítið fyrir refi, — og er þá til sá möguleiki að nota síld sem fitugjafa þar sem síld er mjög ódýrt fóður á venjulegum tímum. Síldina yrði að geyma frysta og þá helst svo að hún nái ekki að þrána. Heppilegust yrði því síld með 10—15% fitumagni, en auðvelt mun þó að nota hvaða síld sem er. Ef sú raunin yrði á að fisk- úrgangur og síld sem eggja- hvítufóður gæfu að öllu leyti jafngóða útkomu og kjöt, þá er erfitt að hugsa sjer annað land sem gæti keppt við ís- lendinga í þessari grein. Gota er sjerstaklega vita- mínauðugt og eggjahvíturíkt fóður, sem geymist alveg sjer- staklega vel, og yrði hún mjög mikilsverður stuðningur við fóðurblönduna. Ef það sýndi sig að vera nauðsynlegt að nota kjöt þó ekki væri nema að vetrinum, þá er það kjöt sem landbúnaðurinn framleiðir og fáanlegt væri til afnota fyrir loðdýr, bæði dýrt og þar að auki svo lítið, að það myndi ekki endast á 'móti meira en 2/10 þess fiskúrgangs sem fyrir fjell, sje miðað við síð- asta á>\ Sú leið sem fara yrði ef kjöt reyndist nauðsynlegt, er að reka hjer hvalveiðistöð sem gefa myndi nóg kjöt og miklu ódýrara en frá landbúnaðin- um, — eiftnig er hægt að nota selkjöt, ef selveiðar væru stundaðar hjeðan, og er sel- kjöt sæmilega gott fóður. ÍBÚÐ í Faxaskjóli til sölu. Nánari upplýsingar gefur Málfluttningsskrifstofa EINARS B. GUÐMUNDSSONAR og GUÐLAUGS ÞORLÁKSSONAR Austurstræti 7 — Símar: 2202 og 3202 Lóðarstokkar, 2 lengdir. Lóðarönglar, no 7-8-9 ex.ex long. Hamp fiskilínur, allar stærðir,- fyrirliggjandi. Geysir h.f. höfuð eggjahvítu- úr dýraríkinu sem Fóður. Þau tvö fóðurefni mest hafa verið 'notuð fyrir loð dýr — er kjöt og fiskur. Kjöt hefir verið mest notað sem loðdýrafoður og fvrst í stað talið það eina fóður sem hæft væri til að ná góðum ár- angri, bæði hvað snertir gæði feldanna og frjósemi dýranna, en kjöt, er mjög dýrt fóður þar sem alltaf er kostnaðarsamt að framleiða kjöt í norðlægum löndum og hafa menn því reypt aðrar leiðir og þá fyrst og fremst fisk í ýmsu formj, og hefir reynslan sannað að nýr fiskur eða fiskúrgangur getur komið að mestu í stað kjöts, og gefið svipaða raun. Enn í dag byggist þessi at- vinnuvegur hjá flestum þjóðum sem hann stnuda á kjöti sem aðal fóðri og virðast möguleik- ar þeirra ekki svipað því eins hagstæðir til loðskinnafram- leiðslu. Ef notaður er fiskúrgangur eingöngu sem eggjahvítufóður Veiðarfæradsildin. Rafmagnsverkfæri Rafmagnsborvjelar fyrir 220 volt A. C. og D. C. y4”, 5/i6”, y2”, %”, nýkomnar. Ludvig Storr SPÓNN Eikarspónn Fuglsaugaspónn Hnotuspónn Sycamore New Guineaspónn. Ludvig Storr

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.