Morgunblaðið - 25.04.1946, Síða 14

Morgunblaðið - 25.04.1946, Síða 14
14 íoegunblaðið Fimtudagur 25. apríl 1946 THEODOSIfl €»ftír ýínya $eton 22. dagur En þegar hann sá ólundar- svipinn á tilvonandi tengdasyni sínum, rankaði hann við sjer. ,,Þú ert ekki beinlínis hýr í bragði, Alston“, sagði hann vingjarnlega. ,,Þú þarft ekki að hafa neinar áhyggjur af Theo. Hún verður ekki lengi að hress ast aftur“. „Má jeg ekki einu sinni kveðja hana áður en jeg fer?“ spurði Jósep, með nokkrum þjósti. „Auðvitað, kæri vinur — þó það nú væri. Jeg ætla að skreppa upp fyrst — og svo sendi jeg eftir þjer“. Það hýrnaði yfir Jósep. „Mjer þykir mjög fyrir því, að þurfa að fara frá henni — og vera í burtu svona lengi. Það getur meira en vel verið. að hún gleymi mjer á meðan“. „Vitleysa", sagði Aaron. — „Auðvitað gleymir hún þjer ekki. Skrifaðu henni ástarbrjef. Konur elska munnklökk ástar- brjef. Vitnaðu í ástarljóð. Segðu henni frá því, hve þú fáir á- kafan hjartslátt, er þú hugsar um hana. Segðu henni að þú brennir af óþolinmæði eftir þeirri stundu, þegar þú getir kallað hana eiginkonu þína. Hvernig er það annars —- hafið þið ekki ákveðið brúðkaups- daginn?“ „Nei. Jeg hefi reynt að fitja upp á því við hana, en hún segist ekki vera á því, að heppi- legt sje að giftast ungur, og vitnar hún í Aristoteles, máli sínu til sönnunar“. Aaron fór að hlægja. Drott- inn minn — hvílíkur elskhugi, sem lætur kúgast af Aristo- teles! Ekki að furða, þó að barninu sje ekki áfram um að giftast honum. En það var samt sem áður brýn nauðsyn á því, að þau giftust eins fljótt og unnt var. Lánardrottnarnir urðu sifelt óþolinmóðari, og hann gat ekki fengið meira lán- að hjá Jósep í bráð. Það myndi einnig hafa mikil áhrif á kosningarnar að mægj- ast við eina valdamestu fjöl- skylduna í Suður-Karólína. En það, sem mestu máli skifti, var þó Theo sjálf. Hið litla ástar- æfintýri hennar og unga manns ins í skóginum hafði fært hon um heim sanninn um, að tími væri kominn til þess að hún færi að giftast — og hið hneykslanlega atvik í Vaux- hallgörðunum hafði vissulega styrkt hann í þeirri trú. Hún varð þegar í stað að komast í örugga höfn, þar sem ástríðan náði ekki til hennar. Hann var ekki í nokkrum vafa um, að þessi ákvörðun væri rjettmæt. „Skrifaðu henni með hverri ferð“, hjelt hann áfram, þar eð hann vissi, að Jósep myndi líklegri til þess að hafa áhrif á hana skriflega en munnlega. „Það er oft, sem mönnum læt- ur betur, að tjá hugsanir sínar skriflega og Theo er ágætlega ritfær“. „Það er jeg ekki“, sagði Jósep ólundarlega. „Hvaða vitleysa! Það ertu einmitt!“ sagði Aaron einlæg- lega. Theo bar ekki fram nein mótmæli, þegar henni var sagt, að Jósep æskti þess, að fá að kveðja hana. Þessa daga, sem hún var veik, hafði henni tek- ist að gleyma Jósep algjörlega. En þegar henni var bent á, hver skylda hennar væri, við- urkendi hún þegar í stað, að hann hefði fullan rjett á því, að fá að kveðja hana. Nathalía ætlaði að koma með einhverjar mótbárur, en Aaron sagði: „Jeg dáist mjög að því, hve þú hefir sterka siðferðis- kend — en hjer er það jeg, sem ræð“. Natalía svaraði engu. Hún burstaði hár Theo, og fljettaði, dró sæng hennar upp að höku, svo að ekki sæ- ist votta fyrir hvítum nátt- kjólnum. Siðan tók hún sjer stöðu úti í horni, ásamt Aaron. Það var sent eftir Jósep, og hann stóð nú við rúm unnustu sinnar, rauður og vandræða- legur, og braut heilann um það, hvað hann ætti að segja. Theo varð snortin, þegar hún sá kvíðasvipinn á andliti hans. „Mjer líður miklu betur núna“, sagði hún vingjarnlega. Hann roðnaði enn meir, þeg- ar hann heyrði blíðlega rödd hennar. Hún virtist svo ótrú- lega ung og varnarlaus, þar sem hún lá í stóru rúminu. „Mjer þykir leitt, að þú skul ir fara á morgun. Jeg mun sakna þín mikið“, bætti hún við, af einskærri kurteisi. En henni varð um leið ljóst, að henni var nú hlýrra til hans en nokkru sinni áður. „Jeg kem aftur eins fljótt og unt er. Heldurðu að það gleðji þig nokkuð, að sjá mig aftur?“ Hún brosti. „Já auðvitað". Það var satt. Hún hlaut að verða glöð, þegar hún hitti hann aftur — eftir þrjá mán- uði — heila eilífð. „Við skrifum hvort öðru oft“, sagði hann. „Já — vitanlega gerum við það“. Hann tvístje vandræðalega. Rauðar, mjúkar varir hennar freistuðu hans, sem og fagur- skapaður líkami hennar, sem sást greinilega móta fyrir und- ir sænginni, þrátt fyrir um- önnun Natalíu. Hann gaut aug- unum flóttalega til Natalíu og Aarons, sem ræddust við í hálfum hljóðum, og missti kjarkinn. Hann beygði sig niður, og kysti Theo á ennið. „Vertu sæl, Theo“. Hún snart kinn hans laust með höndinni. „Vertu sæll, Jósep“. Hann var eitthvað svo skelfing vesældarlegur á svip- inn, að hún bætti við: „Jeg mun telja dagana, þangað til jeg fæ fyrsta brjefið frá þjer“. Og við það varð hann að sætta sig. Það var ekki til- hlýðilegt að láta í ljós ákafar tilfinningar í nærveru sjúkl- ings. Hvorugt þeirra grunaði, að á þessu andartaki höfðu þau markað allt sitt hjúskapar- líf. Theodosia hafði uppgötvað, hve máttugt vopn sjúkdómur- inn gat verið — hann gat los- að konuna við ýmsar hvim- leiðar skyldur. ★ Hún fjekk brjef frá Jósep mánuði síðar. Eins og Aaron hafði búist við, vakti það undr- un hennar, hve mælskur hann var í brjefinu. Og margt sem hann sk’úfaði, bar vott um sanna tilfinningu. — EfUr því sem lengra leið frá brottför hans, tók mynd hans á sig rómantískari blæ í augum hennar. Þegar hann var farinn, tók hún að uppgötva ýmsa góða eiginleika, er prýddu hann, og hún hafði ekki komið auga á áður. Aaron átti sjálf- sagt sinn þátt í því, þar eð aldrei leið sá dagur, að hann ekki hældi Jósep á hvert reipi. Hann talaði um, hve hann væri glæsilegur reiðmaður, hve hann væri höfðinglegur í fasi, hve hann myndi verða mikill á- hrifamaður í stjórnmálum, er fram liðu stundir. — „Trúðu mjer“, sagði Aaron. „Hann verð ur fylkisstjóri áður en langt líður — ef jeg get þá ekki lát- ið honum í tje enn glæsilegra embætti. Og það er meira að segja mjög sennilegt, að mjer takist það“. Annars mintist Aaron aldrei á það, hvað hann ætlaði sjer í stjórnmálunum — jafnvel ekki við Theo. Hann háði nú hættu- lega baráttu, er honum þótti hyggilegast að tala sem minnst um. Það braut ekki í bága við lögin, að reyna að notfæra sjer núverandi kosningafyrirkomu- lag. I kjörmannaráðinu var kosið á milli forseta- og vara- forsetaefnis, en sá, sem fjekk fleiri atkvæði, varð forseti. Ef varaforsetaefnið fengi, ein- hverra hluta vegna, fleiri at- kvæði en forsetaefnið, þá myndu þeir Jefferson og Aaron skifta um hlutverk af sjálfu sjer. Atkvæðin hjeldu áfram að berast allan nóvember og des- ember mánuð. Þau töfðust vegna veðurs og ekki var held ur sami kosningadagurinn í öllum fylkjunum, Það kom smám saman í ljós, að úrslit- myndu verða jafn óljós, og baráttan hafði verið hörð. Það leit út fyrir, að Jefferson og Burr myndu bera jafn mörg atkvæði úr býtum. Aaron beið rólegur átekta, og gætti þess vel, að vera var- kár í ræðu og riti, en flest öll blöðin, með New York Even- ing Post, undir ritstjórn Hamil- tons, í broddi fylkingar, birtu svæsnar og svívirðilegar rit- stjórnargreinar. MALFLUTNINiiS- SKRIFSTOFA Ifiinaj B Guðmundsson, Guðlaugui Þorláksson Austurstræti 7 5ímaj 3202. 2002 Skrifstofutími -' in. v , ,e i —& intf' >kki Lóa langsokkur Eftir Astrid Lindgren. 35. Þá heyrðu þau til Lóu, en ekki kom rödd hennar að ofan, heldur einhversstaðar langt að neðan, það var eins og hún kæmi neðan úr jörðinni. — Jeg er inni í trjenu. Það er holt alla leið niður að rótum. Og jeg sje hjerna út um litla rifu, jeg get sjeð kaffi- könnuna úti á grasinu. — Ó, og hvernig kemstu upp, sagði Anna skelkuð. — Jeg kemst aldrei upp, sagði Lóa. Jeg verð hjer þang- að til jeg fæ ellistyrk. Og þið verðið að kasta til mín mat gegnum gatið þarna uppi. Svona fimm-sex sinnum á dag. Nú fór Anna að gráta. — Ekki gráta, ekki kveina! sagði Lóa. Komið þið held- ur hjerna niður, og svo skulum við leika okkur saman, við skulum láta sem við sjeum í hryllilegum fangaklefa. — Það geri jeg aldrei, sagði Anna. Og til þess að vera alveg örugg, klifraðist hún niður úr trjenu. — Anna, jeg sje þig gegnum rifuna, æpti Lóa. Gakktu ekki ofan á kaffikönnuna. Þetta er gömul og góð kaffi- kanna, sem aldrei hefir gert kvikindi mein. Og ekki er það henni að kenna að hún skuli vera orðin túðulaus. Anna gekk nú að stofninum, og gegnum rifu sá hún rjett á fingurgóminn á Lóu. Þetta huggaði hana svolítið, en samt var hún enn óróleg. — Lóa, kemstu alls ekki upp? spurði hún. Fingurinn á Lóu hvarf nú, og ekki leið á löngu þangað til andlitið á henni sást í gatinu uppi í trjenu. — Kannske jeg gæti það, ef jeg reyni almennilega, sagði hún og hjelt laufinu frá með höndunum. — Er svona auðvelt að komast upp, sagði Tumi, sem enn var uppi í trjenu? Ef það er, þá vil jeg líka fara niður og sjá hvernig er í fangelsinu. — Ja, sagði Lóa, jeg held við sækjum stiga. Hún klifraði nú upp úr trjenu og flýtti sjer niður til þess að sækja stigann. Honum tróð hún svo gegnum hol- unaí trjábolnum. Tumi vildi nú endilega fá að fara niður. Það var þó Bóndinn: „Það er stórmerki- legt, en samt staðreynd, að við höfum komist að því, að hvítu hestarnir okkar borða meira en þeir svörtu“. Bæjarbúinn: „Það er skrítið. Hver ætli ástæðan sje?“ Bóndinn: „Ætli það sje ekki sökum þess, að við eigum fleiri hvíta en svarta“. ★ „Hvernig vandirðu manninn 'þinn af því, að vera svona seint úti á kvöldin?" „Þegar hann kom seint heim um daginn kallaði jeg: „Ert þetta þú, Jón?“ en eins og þú veist heitir maðurinn minn Pjetur“. ÍT Lögregluþjónn kemur hlaup- andi inn í verslunina. Hann er á hælunum á náunga, sem taka á úr umferð. Lögregluþjónninn — „Kom nokkur hingað inn“. Afgreiðslustúlkan —„Nei“. Lögregluþjóninn — „Hvað er í þessum poka?“ Afgreiðslustúlkan — Kopar- krúsir“. Lögregluþjónninn sparkar í pokann. Rödd úr pokanum — „Klang, klang“. ★ „Jeg hefi ekkert á móti sak- lausum skemtunum“, sagði for- stjórinn, „en þetta er farið að ganga of langt. Fáið mjer bux- urnar mínar, jeg ætla að fara“. ★ Móðirin — „Hvað er að þjer núna, Nonni minn?“ Nonni — „Pabbi sló á putt- ann á sjer með hamri“. Móðirin — „Það er engin á- stæða til að gráta. Hvers vegna hlóstu ekki bara?“ Nonni — „Jeg gerði það“. ★ Móðirin spurði Svenna litla hvernig honum hefði fallið við fyrsta daginn í skólanum. „Hvað lærðirðu í dag?“ —■ spurði hún. „Ekkert“. „En þú hlýtur að hafa eitt- hvað. Kenndi kennarinn ykk- ur ekkert?“ „Jæja, ef þú vilt endilega vita það, mamma, get jeg svo sem sagt þjer eins og er, að mjer líst ekkert á skólann. Þó kenn- arinn sje orðinn stór, veit hann ekkert í sinn haus. Hann þurfti meira að segja að spyrja okkur, hvernig ætti að stafa „hund- ur“ og „köttur“. ★ — „Jæja, Stína mín, farðu nú með bænirnar þínar og beiddu guð að láta þjer batna“. — „En, amma, er ekki lækn- irinn til þess?“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.