Morgunblaðið - 29.08.1946, Síða 6

Morgunblaðið - 29.08.1946, Síða 6
6 morgönbííadis Fimtudagur 29. ágúst 1946 Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík. Framkv.stj.: Sigfús Jónsson. Ritstjórar: Jón Kjartansson, Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.). Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson. Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla, Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 8.00 á mánuði innanlanda, kr. 12.00 utanlands. 1 lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók. Upphrópanir Tímans í HVERT sinn sem einhver tekur sjer penna í hönd og bendir á nauðsyn þeSs„ að við íslendingar sitjum ekki jengur aðgerðalausir í dýrtíðarmálunum heldur hefjumst handa um að ráða niðurlögum á þessum vá- gesti, ríkur Tíminn upp með miklum offorsi og hrópar: Hjer sjáið þið svart á hvítu, hvort Framsóknarmenn hafa ekki rjett að mæla! ★ í skýrslu Landsbankans um afkomu s. 1. árs, sem kom út fyrir skömmu, var m. a. vikið að stefnu þeirri, er upp var tekin við myndun núverandi ríkisstjórnar, að auka framleiðslutækin sem mest og bæta framleiðslu- hættina, og reyna með þessum hætti að koma í veg fyrir afkomurýrnun fólksins við verðfall útflutnings- afurðanna. í skýrslunni eru þessar aðgerðir að sjálf- sögðu taldar nauðsynlegar og sjálfsagðar. Hinsvegar er þar bent á, að ekki dugi að einskorða við þær einar. „Samhliða þeim þarf í tíma að gera ráðstafanir til að koma verðlagi og tekjum manna hjer í jafnvægi við verðlag og tekjur í viðskiftalöndum okkar, bæði til þess að íslensk framleiðsla verði samkepnisfær á erlendum markaði, og eins til þess að unt verði að halda greiðslu- viðskiftunum við útlönd í jafnvægi“, segir í skýrslu Landsbankans. „Hvorum trúið þið?“ Morgunblaðinu eða Landsbank- anum, spyr svo Tíminn í einfeldni sinni! Nýlega birtist í Morgunblaðinu grein eftir Pjetur Björnsson skipstjóra, þar sem vakin var athygli á hinni erfiðu aðstöðu sem biði Eimskipafjelags íslands, þegar fjelagið misti leiguskipin, sem það hefir haft að undan- förnu. Sýndi Pjetur fram á með tölum, að samkepni Eimskips við erlend siglingafjelög væri útilokuð, ef ekki yrði dregið stórlega úr reksturskostnaði íslensku skip- anna. Þessi grein Pjeturs skipstjóra kom nýrri upphrópun af stað í Tímanum. Ef til vill má skoða þetta sem vott þess, að Tíminn ætli framvegis að hætta ofsóknum gegn Eimskip, og væri það vissulega framför. *ar: Vá ar sltiifa ÚR DAGLEGA LÍFINU Minnismerki, sem verður að rísa. FYRIR nokkrum dögum gat jeg hjerna 1 dálkunum um hið fallega og eigulega merki, sem nú er selt víða um land, til þess að hægt verði að Ijúka við minnismerki það um Jón bisk- up Arason, sem rísa á fullbúið að Hólum í Hjaltadal á 400 ára dánardegi þessa biskups og þjóðhetju, — þann 7. nóvem- ber 1950. Minnisvarðinn verð- ur fagur, og hann þarf að rísa á tilsettum tíma, og gerir það líka, ef menn athuga sinn gang. Því raun og veru eru mjög fáir látnir Islendingar meira tignaðir af þjóðinni allri, en einmitt hetjubiskupinn Jón Arason, sem frækilegast við- nám veitti erlendri kúgun. — Trú hans kemur þessu máli ekki við og enginn hefir, held jeg haft horn í síðu Jóns bisk- ups fyrir það að hann var ka- þólskur. Enda var það í raun- inni ekki trúin, sem barist var aðallega um í þeim sorglegu átökum, sepn lauk með lífláti biskups og sona hans tveggja. • Lofsunginn af skáldunum. SÁ er háttur góðskálda okk- ar að lofsyngja mikla syni þjóð arinnar og er það vel. En um fáa eina af sonum Islands hef ir verið ort og ritað eins mikið og Jón biskup Arason. Nýtt leikrit um hann er í uppsigl- ingu, annað hafði Matthías Jachumsson áður ort. — Og margir kannast við hina stór- fenglegu og frumlegu skáld- sögu Gunnars Gunnarssonar um biskupinn og samtíðarmenn hans. Og með þessu hafa skáld in aukið á þekkingu okkar á þessari miklu trúar- og frels- ishetju, sem vel getur verið tákn fyrir innri einingu Is- lendinga. Þess vegna verðum við líka að halda minningu hans á lofti í verkinu til þess að prýða biskupssetur hans og gera ljómann af minningu hans sem bjartastan um þann stað. Þessvegna kaupum við líka öll Jóns Arasonar merkið og berum það hreykin. Þess- vegna verður líka að vera til gnægð fjár til þess að fullgera minnisvarða hans. Hólanefnd hefir unnig mikið og gott starf og Hólar eru staður, sem allir geta heimsótt með stolti og gleði. En til er annar staður. HJER fyrr á öldum, áður en nokkrir bæir voru risnir upp hjer á landi, mátti segja að tveir væru höfuðstaðir lands- ins, bæði í trúarlegum og mentalegum og stundum líka í veraldlegum efnum, Skálholt og Hólar. Annar þessi staður er óðum að hefjast til síns gamla vegs og virðingar, þótt ennþá vanti þar biskupinn, en hinn, Skálholt, hið sögufræga stórbýli, biskupsstóll og skóla- setur, það er í hinni megnustu niðurlægingu, snautt að minjum með kirkju, sem er orðin opin vindum og veðrum. Um þetta hefir mikið verið ritað á síð- ustu árum, og flestir Islend- ingar sem í Skálholt koma, fara þaðan í drungalegu skapi, jafnvel með hrolli yfir því, hvernig búið er nú að þessum merka sögustað af þjóðinni. — Raddirnar um að hjer þyrfti að bæta úr, hafa verið margar, eins og jeg sagði áðan, en hvar er árangurinn? Árangurinn er enginn. ÁRANGURINN af öllum skrifunum, sem birt hafa verið um viðreisn Skálholts á undan förnum árum, og af hinum ýmsu samþyktum, sem gerðar hafa verið viðvíkjandi endur- bótum á staðnum, er enginn enn sem komið er. En hann verður að koma og það sem fyrst. Ekkert við því að segja þó byrjað sje smátt, bara að hafist sje handa. Flestir þeir útlendingar, sem eitthvað reyna að kynna sjer sögu lands ins, hljóta að kynnast Skálholti af ritum og sjá þá jafnskjótt, hvérsu mikla þýðingu þessi staður hefir haft fyrir sögu þjóðarinnar. Komi þeir til ís- lands, er ekki nema eðlilegt að þeir vilji gjarna sjá staðinn. En þá bregður þeim heldur bet ur í brún. Ekki er þetta land- kynning, heldur þvert á móti. — Að setja búnaðarskóla að Skálholti, hefir verið á prjón- unum. Það er góð hugmynd, því fyrsta skilyrðið til þess að viðreisn bæjarins hefjist fyrir alvöru, er að þar sje starfandi lífræn sftofnun, að staðurinn fái aftur til sín fjölmennan hóp starfandi fólks, að þar verði sem forðum líf og fjör og kæti. Þá væri fyrsta sporið stigið til alhliða viðreisnar þessa merki lega staðar. Máske að það verði ekki eins langt og við höldum þangað til íslendingar ganga með fagurt merki 1 barminum, merki, sem selt er til ágóða fyrir minnismerki um einhvern þeirra, sem áður gerðu garðinn frægan í Skálholti. Við skulum vona það. MEÐAL ANNARA ORÐA . . . . iiiiiimtiiiiiiiimMiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiim Þingræður og þingtfðindi ★ Ef skilja á þessar þrálátu dýrtíðar-upphrópanir Tím- ans þannig, að Framsóknarmenn einir hafi komið auga á háskann, sem atvinnuvegum þjóðarinnar stafar af dýrtíðinni í landinu og þeir hafi á takteinum úrræði til úrbóta, þá eru það vitanlega hin mestu öfugmæli. Sannleikurinn er sá, að allir flokkar viðurkenna í orði skaðsemi dýrtíðarinnar. En þeir hafa aldrei getað komið sjer saman um úrræði, til þess að lækna mein- semdina. Þessvegna var sú leið farin við síðustu stjórnar- myndun, að fresta um skeið virkum aðgerðum í dýr- tíðarmálunum. Var í þess stað horfið að nýsköpuninni, þ. e. að auka í stórum stíl framleiðslutækin og bæta framleiðsluhættina. Sjá allir nú, að hjer var hyggilega ráðið. Það hefði orðið óbætanlegt tjón fyrir þjóðarbúið í heild, ef ekki hefði verið hafist handa í nýsköpuninni haustið 1944. Það verður ekki með tölum talið verðmætið, sem tókst að bjarga með stjórnarmynduninni og nýsköp- uninni. En þetta sáu ekki Framsóknarm'enn. Þeir skár- ust einir úr leik. Þeir vildu enga nýsköpun. Þeir vildu stöðvun atvinnuveganna, meðan afkoma þeirra var sæmilega góð og hefja styrjöld innanlands, til þess að fá kaupgjaldið lækkað. ★ En þótt stjórnarflokkarnir hafi vafalaust gert rjett haustið 1944, er þeir frestuðu aðgerðum í dýrtíðarmál- unum, en hrundu nýsköpuninni í framkvæmd, er ekki þar með sagt, að lausn dýrtíðarmálanna geti beðið leng- ur. Lausn þessara mála er nú einmitt svo aðkallandi, að j lengri frestur getur riðið atvinnuvegunum að fullu. J Þessvegna ber stjórnarflokkunum að hefja nú þegar' samninga um róttækar aðgerðir í dýrtíðarmálunum. ! ÞEIR, sem vilja fylgjast greinilega með í stjórnmálun- um, og einkum því, sem er að gerast á Alþingi, þykir það bæði leitt og bagalegt, hversu seint það hefir gengið, að koma út þingtíðindunum. Þegar það dregst í ein tvö, þrjú ár, að þingræðurnar komist á prent, verða það ekki nema tiltölu- lega fáir grúskarar, sem kæra sig um að kynna sjer þær. Þvi þá er svo mikið og margt skeð í millitíðinni, sem menn hafa um að hugsa. ★ Á þetta er ekki minst hjer, vegna þess, að ástæða þyki til, að kenna einum nje neinum um það, hve ‘útgáfa þing- ræðanna hefir dregist. Hinir almennu erfiðleikar á því, að fá bækur prentaðar valda þess um töfum. En úr því út í þess- ar tafir er komið, fara menn að hugleiða, hvort ekki sje hægt að breyta til með útg. þingtíð. svo hægt verði í framtíðinni að gera hana auðveldari, með það fyrir augum, að ræðupartur þingtíðindanna komi að meiri notum, en hann gerir, þegar menn þurfa að bíða eftir þeim árum saman. ★ Oft hefir verið 'að því fundið að ræður þingmannanna eins og þær birtast í þingtíðindurrum, sjeu ekki orðrjettar eins og þingmennirnir flytja þær. — ★ Síðan þingin eru orðin mun lengri en þau að jafnaði áður voru, og annríki margra þing- manna hefir margfaldast, þá munu ýmsir þingmenn leiða hjá sjer að leiðrjetta ræðurnar áður en þær eru prentaðar. Og þá er gildi ræðanna, sem prent aðar eru að verða ennþá vafa- samara en áður. Þvf lesendur þingtíðindanna hafa enga tryggingu fyrir því, að skrif- ararnir fari í öllum atriðum rjett með ræður þingmann- anna, þó þeir sjeu allir af vilja gerðir, og samviskusamir menn í starfi sínu. Menn hafa ekki viljað að- hyllast þá uppástungu, að láta prenta ræðurnar eftir hraðrit- uðu handriti, þar sem skrifað yrði niður hvert orð sem ræðu- menn segðu, m. a. vegna þess, að með því yrði ræðukafli þing tíðindanna óþarflega langur og ræðurnar yrðu alls ekki læsi- legri með því móti en þær eru eftir handritum æfðra og at- hugulla skrifara. ★ En manni gæti dottið í hug, að gerðir yrðu tvennskonar ræðupartar þingtíðindanna. Að þingmenn tölúðu í hljóðnema, og ræður þeirra yrðu vjelritað- ar eftir Upptöku hljóðnemans og fjölrituð nokkur eintök af þessari útgáfu ræðanna, til þess að ræðurnar orðrjettar gætu komið í hendur þingmanna jafnóðum og þingstörfum mið- ar áfram. En svo yrðu æfðir menn, og kunnugir þingmálum fengnir til þess að semja glöggan útdrátt úr öllum ræðunum. Og hann yrði prentaður jafnóðum, svo ræðupartur þessi í styttu formi, væ'ri jafnan fullprentaður mjög skömmu eftir að hverju þingi er slitið. ★ Hinar orðrjettu ræður lægju fyrir í þinginu á bókasöfnum og í vörslum þingmanna. En hin stytta útgáfa kæmist í hendur almennings, svo fljótt að út- gáfan kæmi að fullum notum. Það gæti jafnvel komið til mála, að samið yrði við ein- hvern duglegan bókaútgefanda að annast þessa alþýðu-útgáfu þingræðanna og sú útgáfa gæti borið sig fjárhagslega, ef út- gefandi safnaði áskrifendum, og trygði það, að ræðurnar kæmu út í hendur áskrifenda tiltölu- lega skömmu eftir að þær eru haldnar. LONDON: Þrír breskir menn biðu nýlega bana við spreng- ingu; er þeir voru að hreinsa burtu jarðsprengjur af svæði einu á súðufströndinni.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.