Morgunblaðið - 13.10.1946, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 13. okt. 1946
Kosning fnstanefndn
á Alþingi
KOSNING í fastanefndir
sameinaðs Alþingis og beggja
deilda fyrir næsta kjörtímabil
fór fram í gær. í sameinuðu
Alþingi voru þessir menn
kosnir:
í fjárveitinganefnd: Pjetur
Ottesen, Gísli Jónsson, Sigurð-
ur Kristjánsson, Ingólfur Jóns-
son, Sigurjón Á. Ólafsson, Ás-
mundur Sigurðsson, Stein-
grímur Aðalsteinsson, Helgi
Jónasson og Halldór Ásgríms-
son.
í utanríkismálanefnd: Bjarni
Benediktsson, Jóhann Þ. Jós-
efsscn, Garðar Þorsteinsson,
Stefán Jóh. Stefánsson, Einar
Olgeirsson, Bjarni Ásgeirsson
og Hermann Jónasson. Vara-
menn: Ólafur Thors, Pjetur
Magnússon, Gunnar Thorodd-
sen, Ásgeir Ásgeirsson, Sigfús
Sigurhjartarson, Eysteinn Jóns-
son og Páll Zóphoniasson.
I allsheijarnefnd: Jóhann Þ.
Jósefsson, Jón Sigurðsson, Sig-
urður Bjarnason, Ásgeir Ás-
geirsson, Sigfús Sigurhjartar-
son, Bjarni Ásgeirsson og Jör-
undur Brynjólfsson.
Þingfarakaupanefnd: Sigurð-
ur Kristjánsson, Sigurður E.
Hlíðar, Hannibal Valdimarsson,
Sigfús Sigurhjartarson og Páll
Zophoniasson.
I neðri deild fóru kosningar
þannig:
Fjárhagsnefnd: Hallgrímur
Benediktsson, Jóhann Hafstein,
Ásgeir Ásgeirsson, Einar Ol-
geirsson og Skúli Guðmunds-
son.
Samgöngumálanefnd: Gísli
Svéinsson, Sigurður Bjarnason,
Barði Guðmundsson, Lúðvík
Jósefsson og Bjarni Ásgeirsson.
Landbúnaðarnefnd: Jón
Pálmason, Jón Sigurðsson, Stef-
án Jóhann Stefánsson, Sigurð-
ur Guðnason og Steingrímur
Steinþórsson.
Sjávarútvegsnefnd: Sigurður
Kristjánsson, Pjetur Ottesen,
Ásgeir Ásgeirsson, Lúðvík Jós-
efsson og Eysteinn Jónsson.
Iðnaðarnefnd: Ingólfur Jóns-
son, Sigurður E. Hlíðar, Gylfi
Þ. Gíslason, Hermann Guð-
mundsson og Halldór Ásgríms-
son.
Heilbrigðis- og fjelagsmála-
nefnd: Sigurður E. Hlíðar,
Garðar Þorsteinsson, Katrín
Thoroddsen, Gylfi Þ. Gíslason
og Helgi Jónasson.
Mentamálanefnd: Gunnar
Thorcddsen, Sigurður Bjarna-
son, Barði Guðmundsson, Sig-
fús Sigurhjartarson og Páll
Þorsteinsson.
Allsherjarnefnd: Garðar Þor-
síeinsson, Jóhann Hafstein,
Stefán Jóh. Stefánsson, Her-
mann Guðmundsson og Jör-
undur Brynjólfsson.
I efri deild fóru kosningar
þannig:
Fjárhagsnefnd: Jóhann Þ.
Jósefsson, Þorsteinn Þorsteins-
son, Guðm. í. Guðmundsson,
Ásmundur Sigurðsson og Bern
harð Stefánsson.
Saingöngumálanefnd: Eirík-
ur Einarsson, Þorsteinn Þor-
steinsson, Hannibal Valdimars-
son, Steingrímur Aðalsteinsson
og Björn Kristjánsson.
Landbúnaðarnefnd: Þorsteinn
Þorsteinsson, Eiríkur Einars-
son, Guðm. í. Guðmundsson,
Ásmundur Sigurðsson og Páll
Zópphoníasson.
Sjávarútvegsnefnd: Gísli
Jónsson, Jóhann Þ. Jósefsson,
Sigurjón Á. Ólafsson, Stein-
grímur Aðalsteinsson og Björn
Kristjánsson.
Iðnaðarnefnd: Bjarni Bene-
diktsson, Gísli Jónsson, Sigur-
jón Á. Ólafsson, Steingrímur
Aðalsteinsson og Páll Zóphon-
iasson.
Heilbrigðis- og fjelagsmála-
nefnd: Lárus Jóhannesson,
Bjarni Benediktsson, Hannibal
Valdimarsson, Steingrímur Að-
alsteinsson og Herinann Jónas-
son.
Mentamálanefnd: Eiríkur
Einarsson, Lárus Jóhannesson,
Hannibal Valdimarsson, Ás-
mundur Sigurðsson og Bern-
harð Stefánsson.
Allsherjarnefnd: Bjarni Bene
diktsson, Lárus Jóhannesson,
Guðm. í. Guðmundsson, Ás-
mundur Sigurðsson og Her-
mann Jónasson.
Fluffi fyrirlesfra
um ísland og Horeg
GUNNAR Akselson var
meðal farþega á Drottning-
unni frá Höfn á dögunum. —
Hann er vel kunnur lesendum
Morgunblaðsins af íþrótta-
frjettum, sem hann hefur
sent blaðinu frá Noregi und-
anfarna mánuði. Gunnar
dvaldi 5 mánuði í Noregi og
Svíþjóð. Hann skrifaði í norsk
blöð um íslenskar íþróttir og
flutti auk þess fyririestra um
ísland og sýndi kvikmyndir
frá íslandi, í íþróttafjelögum
og ferðafjelögum.
Gunnar Akselson segir, að
mikill áhugi sje í Noregi fyr-
ir frjettum frá ísiandi. Þegar
hann kvartaði um það, að
Norðmenn vissu lítið um ís-
iand, var jafnan viðkvæðið:
— Já, það er alveg rjett, en
við viljum vita meira og hvers
vegna gera íslendingar ekkert
til þess að fræða okkur um
málefni Islands?
Fransk-rússnesku
hemámshlufamir
skiplas! é vcrum
London í gærkvöldi.
Hernámsstjórnir rússneku
og frönsku hernámssvæðanna
í Þýskalandi hafa tilkynt, að
samkomulag hafi orðið milli
hinna tveggja hernámshluta
um vöruskipti.
Vöruskiptasa^ningur þessi
mun verða í ^ildi til næst-
komandi áramSta. — Mun
franska hernámlsvæðið meðal
annars fá tilbúfnn áburð frá
rússneska sVæðmu, en Frakk-
ar láta í staðimViandbúnaðar-
tæki af ýmsum^gerðum.
— Reuter.
Vopn finnast hjá Gyðinpm
Gyðingar í Palestínu safna nú að sjer vopnum í ákafa, en breskir
nermenn reyna að finna þau og gera þau upptæk. Hjer sjást
breskir hermenn með all-álitlega hrúgu af vopnum, sem þcir
hafa fundið hjá Gyðingum.
Hætt að berjasi
í Persíu
Teheran í gærkveldi.
EINS og getið hefir verið í
fregnum, hafa bardagar verið
háðið að undanförnu í Norður-
Persíu milli stjórnarhers og
kynflokks eins, sem býr þar í
fjallahjeraði. Fregnir herma nú,
að vopnahlje hafi komist á, og
hafi foringi áðurnefnds kyn-
flokks sent forsætisráðherra
Persíu brjef og beðið hann að
sjá um; að teknir verði upp
samningar milli stjórnarinnar
og ættflokks hans. í brjefinu
segist hann þegar hafa fyrir-
skipað liðsmönnum sínum að
hætta bardögum. Var stjórnar-
hernum þá skipað að gera slíkt
hið sama. — Reuter.
r
Á MIÐVIKUDAGSKVÖLD
var haldinn aðalfundur Bridge
fjelags Reykjavíkur. Á fundin-
um var kosin stjórn fjelagsins
og hlutu þessir kosningu: Árni
M. Jónsson, fulltrúi. var kosinn
formaður, og meðstjórnendur
þeir Gunnar Guðmundsson,
bankaritari og Jón Guðmunds-
son.
Bridgefjelagið hefir nú um
200 meðlimi.
Vilja fiála hermenn
London í gærkveldi.
ALLMARGIR breskir þing-
menn hafa lagt fram á þingi
bænaskrá um það, að 240 bresk-
ir fallhlífahermenn, sem voru
dæmdir til langrar fangavistar
austur á Malakkaskaga fyrir
uppreisn, verði náðaðir. Hefir
þetta mál verið mikið rætt og
virðist mörgum á þingi Breta
sýnast sem dómarnir yfir þess-
um mönnum hafi verið of harð-
ir og ómannúðlegir. Þingið
mun taka þetta til meðferðar
bráðlega. — Reuter.
Knattspymumót
Hafnarijarðar
KNATTSPYRNUMÓTUN-
UM í Hafnarfirði lauk s. L
sunnudag með leik milli F. H.
og Hauka í fyrsta aldursflokki.
F. H. sigraði leikinn með 4
mörkum gegn 2.
Knattspyrnuflokkar F. H.
hafa sýnt sig vera í mikilli
framför í sumar, og sigursæld
þeirra má teljast sjerstæð, þar
sem þeir hafa sigrað vor og
haustmót í 2. og 1. aldursílokki
og haustmót 3. aldursflokks.
Haukar unnu því aðeins vor-
mót 3. aldursflokks.
Auk framangreindra keppna
fór einnig fram keppni í 4.
aldursflokki. Keppt var í tveim
flokkum A og B, og bar F. H.
sigur úr býtum í báðum flokk-
unum. En keppni þessara
flokka er ekki talin fjelögun-
um til stiga.
Knattspyrnumenn F. H. hafa
því með þessari glæsilegu
stöðu sinni fært fjelagi sínu
sæmdarheitið ,,Besta Knatt-
spyrnuíjelag Hafnarfjarðar
1946“. Keppni um þenna titil
hefir farið fram sjö sinnum og
hefir F. H. hlotið hann 4 sinn-
um en Haukar 3 sinnum.
Liðin og leikmenn:
Mitt álit er að bæði liðin eigi
mjög efnilega leikmenn, en aug
sjáanlega háir æfingaleysi og
smæð vallarins því að þeir geta
ekki notið sín sem skyldi.
Sá, er sýndi besta framistöðu
í leiknum, var Magnús Guð-
mundsson, er ljek að þessu
sinni innframherja í F. H.-lið-
inu. Af öðrum F. H.-ingum
fanst mjer bera af Kjartan
Elíasson^ sem sýndi að vanda
mjög góðan og áferðarmikinn
og skemtilegan leik, auk þess
sem hann bygði einna mest upp
það spil er F. H. liðið náði í
leiknum. Bróðir hans Guðvarð-
ur sýndi það, að hann er ekki
við eina fjölina feldur, þar sem
hann ljek nú sem markmaður
Á.
Lundúnaför Sldky
Pasba vekur
athygli
London í gærkvöldi.
SIDKI Pasha, forsætisráð-
herra Egyptalands, er væntan
legur til Bretlands næstkom-
. andi miðvikudag, til viðræðna
við Bevin, utanríkisráðherra,
j um endurskoðun bresk-eg-i
jypska sáttmalans.
Allmiklar umræður hafa
þegar orðið um hina væntám
legu för forsætisráðherrans,
og gera frjettaritarar Lund^
únablaðanna málið að um-
ræðuefni.
Frjettaritari Sunday Times
ritar þannig, að meginerfið-
leikarnir við samningsumleit-
anir Breta og Egypta snúist
um Súdan, væntanlegan heim
flutning breskra herja frá
. Egyptalandi og hvaða skilyrði
verði sett fyrir því, að Bretar
megi setja her á land á eg-
ypskri grund.
Sami frjettaritari segir, að
sendinefnd sú, sem til Bret-
lands fer undir forystu Sidki
Pasha, sje skipuð mönnum,
sem hafi mjög misjafnar skoö
anir á þessum málum, en ná-
ist ekki samkomulag, muní
Bretar að minsta kosti halda
her í Egyptalandi, þar til nú~
verandi samningur er útrunn
inn. Telur frjettaritarinn, að
töluverðar iíkur sjeu fyrir því
að svo fari. — Reuter.
Utvarpið
í DAG.
8.30—8.45 Morgunútvarp.
11.00 Morguntónleikar (plötur:
12.15— 13.15 Hádegisútvarp.
14.00 Messa í Fríkirkjunni —
(sjera Árni Sigurðsson).
15.15— -16.30 Miðdegistónleikar
(plötur).
18.30 Barnatími (Pjetur Pjet-
ursson o. fl.
19.25: Tónleikar: Consertina
pastorale eftir Ireland (plöt-
ur).
20.00 Frjettir.
20.20 Einleikur á píanó (Lan-
sky-Otto): Lög eftir Schu-
bertbert.
20.35 Erindi: Per Albin Hans-
son (Stefán Jóh. Stefánsson
alþingismaður).
21,00 Tónleikar: Sænsk lög
(plötur).
21.15 Lög og ljett hjal (Pjetur
Pjetursson, Jón M. Árnason
o. fl.).
22.05 Danslög (plötur).
Á MORGUN.
8.30—8.45 Morgunútvarp.
12.10—13.15 Hádegisútvarp.
15.30—16.00 Miðdegisútvarp.
18.30 íslenskukensla, 2. flokk-
ur.
19.00 Þýskukensla, 1. flokkur.
19.25 Þingfrjettir.
20.00 Frjettir.
20.30 Þýtt og endursagt (An-
drjes Björnsson).
20.50 Lög leikin á klarinett
(plötur).
21.00 Um daginn og veginn —<
(Sigurður Bjarnason alþing-
ismaður).
21.20 Útvarpshljómsveitin: —<
Norsk alþýðulög. •— Einsöng-
ur (ungfrú Kristín Einars-
dóttir): Lög eftir Árna
Björnsson, Sigfús Einarsson,
Denza, Tschaikowsky og
Grieg.
21.50 Tónleikar: Sónötur eftir
Scarlatti (plötur).