Morgunblaðið - 18.10.1946, Page 1

Morgunblaðið - 18.10.1946, Page 1
33. árgangur. 236. tbl. — Föstudaginn 18. október 1946 ísafoláarprentsmiðja h.f. „Óskiljanlegt var Göring fjekk eitrið“ Núrnberg í gærkvöldi.' Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. Eftir Mac- fee Near. IHNAií ótrúlegustu æsi- frengir ganga nú um Þýskaland og fjalla þær um hina 10 nasistaforingja sem teknir voru af lífi þ. 16. þ. m. Eru fregnirnar á þá leið, að í raun og veru hafi enginn hinna dauða- dæmdu verið tekinn af lífi, heldur liafi úttroðin föt þeirra verið hengd. I fregnum þessum er ennfremur sagt að Keitel marskálkur hafi verið fluttur til hernámssvæð- is Rússa og gerður hern- aðarráðgjafi þeirra, en Jodl eigi að hafa sama embætti á höndum á ame- íska hernámssvæðinu. Hinir nasistaleiðtogarnir eiga að hafa verið ráðnir á laun til þess að gegna mismunandi stjórnarstörf- um á hinum ýmsu her- námssvæðum Þýskalarids fyrir bandamenn. Fvlgir það frjettinni, að bandamenn hafi verið neyddir til þess að gera þessar ráðstafanir vegna þess í hve miklum ólestri hernámsstjórnin fari nú hjá þeim. Sumir segja, að Göring hafi alls ekki framið sjálfs morð, heldur hafi Banda- ríkjamenn drepið hann, vegna þess, að hann hafi neitað þeim um hjálp til þess að ráða fram úr þeim vandræðum, sem hernám- ið hafi valdið þeim. Grikklandi London í gærkveldi. ÚTVARPSFYRIRLES- ARINN Michail Michailow ful'lyrti það í Moskvaútvarp- inu í kvöld, að breskar her- sveitir í Grikklandi væru stöðugt auknar og elfdar. — Einnig staðhæfði hann að Bretar sæju hinum nýju grísku herflokkum fyrir vopn um, flokkum þeim, „sem hafa það eitt með höndum að und- iroka lýðræðissinna í Grikk- landi.“ — Sagði hann að Grikkland væri í þann veginn að fara út í borgarastyrjöld og væri það Bretum einum að kenna. — Reuter. Á ANNAÐ hundrað þýsk börn af hinum eyddu svæðum kringum Köln og Dússeidorf, eru komin til írlands, þar sem þau hafa verið tekin í fóstur. Er það írska ríkið og írski rauði krossinn, sem hefir tekið börn- in og kosta þessir aðilar dvöl þeirra í landinu og uppeldi. — Börnin búa í höll einni mikilli í Glencree uppi í Wicklow hæð unum. Börnin voru öll ákaflega hrifin af að vera komin til ír- lands. Þau voru ákaflega illa klædd og flest mjög mögur. I Hermann Göring. stækkun Revkiavíkyrfluuvaliar nu legmr a§ nais rihIi- Á BÆJARSTJÓRNARFUNDI í gær las borgarstjóri upp brjef frá flugmálastjóra, sem dagsett er 28. sept. s.l. Þar er gerð nokk- ur grein fyrir tillögum, er breskur verkfræðingur hefir gert, um stækkun flugvallarins hjer í Reykjavík í samráði við flug- málastjóra. En í brjefi þessu, sem borgarstjóri las upp á fundinum er gerð grein fyrir því, hve mörg hús þyrfti að rífa, ef stækkun vallar- ins kæmi til framkvæmda, og hverjar takmarkanir þyrfti að gera, á hæð húsa i nágrenni vallarins. Alls gæti komið til mála að rífa þyrfti um 60 hús. Er borgarstjóri hafði lesið brjef - flugmálastjóra, komst hann m. a. að orði á þessa leið: Það er flugmálastjórnin, sem á að skera úr því, hve flugvöll- urinn hjer í Rvík á að vera stór, en flugmálastjórnin er flugmálastjóri. flugmálaráð- herra og að sjálfsögðu Alþingi. Kostnaðurinn við flugvöllinn og þá einnig stækkun hans, ef til kæmi, yrði að sjáifsögðu greidd úr ríkissjóði. Þar . sem hjer er um að ræða ailstóra landspildu sem yrði óbyggileg, ef ráðist væri í stækkun vall- arins, er það að sjálfsögðu á- ríðandi fyrir bæinn, að bóta- skyldan lenti á ríkissjóði. Það er ekki bæjarstjórnar, heldur flugmálastjórnarinnar, að ákveða hve völlurinn hjer á að vera stór. En jeg mun aldrei fallast á að hann verði stækkaður að svo miklu leyti, sem til míns atkvæðis kemur. Annað mál er það, að jeg hefi aldrei lagt það Ml, að hætt yrði að starfrækja hann. Tillögur um að hann yrði algerlega lagð ur niður, get jeg ekki aðhylst, fyr'ri en eitthvað annað kemur fram í þessu máli. Eins og máiið liggur nú fyr- ir, tel jeg eðlilegt sagði borg- arstjóri, að Reykjavíkurflug- völlurinn verði notaður fyrir innanlan dsflugið, og stærð hans og rekstur miðaður við það. Sigfús Sigurhjartarson mint- ist á þetta mál. Sagði hann að álit sjerfræðinga hefði engin áhrif á álit sitt í þessu máli. Því hann teldi það ekki koma til mála að stækka Reykjavík- urflugvöllinn og gera úr hon- um millilandaflugvöll, úr því annar flugvöllur væri í landinu, sem nota mætti sem millilanda flugvöll. Borgarstjóri gaf-Sigfúsi góð- ar vonir um að þeir myndu geta orðið sammála um stærð og rekstur Reykjavíkurflugvallar- ins. En ef flugmálastjórnin ákvæði eitthvað í þessu efni, ætlaði hann ekki að gera bylt- ing í þjóðfjelaginu gegn þeim ákvörðunum. LONDON. Fyrir skömmu lögðu 1200 enskar konur, sem giftst hafa Kanadahermönnum,' af stað vestur um haf til sinna nýju heimkynna. Þjóðverjar hreyknir yíir endalokum hans London í gærkvöldi. — Einkaskeyti til Morg- unblaðsins frá Reuter. ANDREWS herforingi, yfirmaður bandarísku örvggis- iögregunnar í Núrnberg gaf yfirlýsingu í dag í tilefni af sjálfsmorði Hermanns Göring. Sagði hann að óskiljanlegt væri, hvar Göring hefði fengið eitrið, og geymt það, þar sem leitað hefði verið á föngunum þrisvar í viku. Bresku blöðin gera endalok Görings að umræðuefni í dag og mörg þeirra gera þetta mál aðalatriði í frjettum sínum. Eru blöðin yfirleitt mjög gröm vegna þessa at- burðar og segir t. d. „Daily Mail“, eftir frjettaritara sín- um í Þýskalandi, að Þjóðverjar sjeu almennt hreyknir yfir endalokum Görings og líti á hann sem þjóðhetju. Lík Görings og hinna hengdu hafa verið brennd og ösk- unni dreyft á laun. efln assæra Spánverjí New York' í gærkveldi. BELGISKA stjórnin hefir í dag sent bandalagi hinna sam einuðu þjóða brjef, þar sem hún ákærir spönsku stjórnina fyrir að „vera samsek í því að hindra að belgiski fasista-i leiðtoginn Léon Degrelle hafi verið handtekinn“, en Belgíu menn langar til þess að ná í hann og hafá ákært hann fyr- ir landráð. Biðja Belgíumenn allsherj- arþing sameinuðu þjóðanna að taka á dagskrá öll Spánar- málin, þótt kvartanir Pól- lands á hendur Spánverjum liggi enn fyrir Öryggisráðinu. Belgíumenn hafa sent spönsku stjórninni orðsend- ingu um þetta mál, en Spán- verjar neituðu að skipta sjer nokkuð af því, og einnig neit- aði spánska stjórnin að láta nokkuð uppi um það, hvar Degrelle væri nú niður kom- inn, og líka neitaði stjórnin að segja nokkuð um það, hvar hann hefði farið burt af Spáni. Telja Belgíumenn því spönsku stjórnina samseka Degrelle, og fasistaleiðtog- ann sjálfann „líklegan til þess að gera uppseyt í Evrópu“, .eins og stjórnin orðar það. — Reuter. SIFELDAR IIANDTOKUR LONDON: — Ýmsir kunnir þýskir viðskifta- og verslunar- menn hafa nýlega verið hand- teknir á franska hernámssvæð- inu í Þýskala-ndi, þar á meðal tengdasonur von Papens. Ekki er vitað um orsakir þessa. Rannsóknin í Núrnberg. Andrews herforingi sagði m. a., að fyrir þrem mánuðum síð- an hafi vörður einn sjeð Gör- ing stinga málmflís nokkurri í veski sitt, og hafi hann tekið þetta af honum, þar sem hann hafi haldið að fanginn hafi ætl- að að nota þetta tæki til þess að opna sjer æð. — Enn- fremur kvaðst Andrews ómögu lega geta "skilið, hvar Göring hafi geymt eitrið. hafi hann haft það í lengri tíma, þar sem leitað var í fötum fanganna og klefum þeirra þrisvar í viku og sjerstaklega nákvæmlega tvisvar í viku, þegar þeir fóru í bað. Enginn hefir verið hand- tekinn vegna þessa máls og bjóst Andrews ekki við neinum handtökum. Hæðnishlátrar Þjóðverja. Frjettaritari „Daily Mail“ í Þýskalandi segir, að hvarvetna ' meðal Þjóðverja megi nú heyra hæðnishlátra, er þeir ganga fram hjá mönnum frá hernáms veldunum, og geri Þjóðverjar óspart gys að því, að þau hafi látið Göring sleppa úr greipum sjer á síðustu stundu. Heldur blaðið því fram að afar óheppi- lega hafi tekist til að Göring skyldi geta fyrirfarið sjer. —• „News Chronicle“ segir, að það hljóti að draga mjög úr áliti manna á rjettarhöldunum öll— um, að svona tókst til. Verst að það var Göring. Blaðið segir það ennfremur, að það hafi verið verst af öllu, að það skyldi hafa verið Gör- ing, sem fjekk framið siálfs- morð og hefði ekki verið eins slæmt er einhver hinna hefði getað það. Krefst blgðið þess, að þeir, sem beri ábyrgðina á þessum mistökum verði dregn- ir fyrir döm og þeim refsað, þar sem hjer sje um mjög al- Framh. á 2 siðu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.