Morgunblaðið - 22.10.1946, Blaðsíða 11
Þriðjudagur 22. okt. 1946
MOKGUNBLAÐIÐ
11
Fjelagslíf
SKEMTIFUND
heldur KR í kvöld,
kl. 8,30 í Tjarnar-
café, uppi, fyrir þá, sem að-
stoðuðu við hlutaveltuna. —
Einnig eru allar nefndir fje-
lagsins boðnar á fundinn.
Áríðandi að mæta.
Stjórn K.R.
ÁRMENNINGAR!
Spilað í kvöld kl.
9,30 á Þórsgötu 1.
Nú mæti 2. flokkur karla og
kvenna, glímumenn og hand-
knattleiksstúlkur. Mætið nú
öll. Hafið spil með.
— 9—10 ísl. glíma.
Kl. 7—8 II. fl. karla.
— 8—9 handbolti
stúlkna.
FRAMARAR!
Handknattleiks-
æfingar verða í
kvöld í ÍBR, sem
hjer segir: — M.fl. og II. fl.
kvenna kl. 8,30—9,30. M.fl.
karla kl. 9,30—10,30.
UMFP
ÍÞRÓTTAFÓLK
Ungmennafjelags Reykjavík-
ur er beðið að mæta í fim-
leikasal Mentaskólans, kl. 7,30
eftir hádegi í dag.
Stjórnin.
ÍÞRÓTTAFJELAG KVENNA
Ieikfimi byrjar á fimtudag,
24. þ. m., kl. 7,40 í Austurbæj-
ai'skólanum. Fylgist með frá
byrjun. Uppl. í síma 4087. —
Stjórnin.
^^•••* ••♦♦♦♦♦♦•<&♦♦♦♦♦♦♦«
Kaup-Sala
NOTUÐ „Juno“ eldavjel til
sölu á Garðaveg 2, Hafnar-
firði.
SAMBAND óskast í niður-
suðuvörur til útflutnings. Til-
boð sendist Box 1074.
Mjög ódýrir lindarpennar
frá 2—6 shilling, frönsk fram-
leiðsla. Greiðsla fari fram í
pundum. Prufur fyrirliggjandi.
Góðir afgreiðslumöguleikar.
Karlo Randrup, 41 Webster-
gardens London W 5.
ÞAÐ ER ÓDÝRARA
að lita heima. Litina ’elur Hjört
ur Hjartarson, Bræðraborgarst.
1. Sími 4256.
NOTUÐ HÍISGÖGN
keypt ávalt hæsta verði. — Sótt
heim. — StaSgieiðsla. — Sími
»691. — Fornverslunin Grettis-
Kötti 4».
EFNI keypt í Tískunni fást
sniðin á sama stað.
K J ÓL ASKRAUT
og margskonar kjólatillegg.
TÍSKAN, Laugaveg 17.
*>♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦-$>♦♦<$>♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Tapað
LÍTIÐ karlmannsarmbands
úr hefur tapast. Uppl. í síma
2748. —
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
Fæði
FAST FÆÐI selur Matsal-
an, Bergstaðastræti 2.
2)a
295. dagur ársins.
Árdegisflæði kl. 5,25.
Síðdegisflæði kl. 17,40.
Næturiæknir er í læknavarð-
stofunni, sími 5030.
Næturvörður er í Lyfjabúð-
inni Iðunni, sími 1911.
Ljósatími ökutækja er frá kl.
18,15 til kl. 8,10.
Klukkan 8 í kvöld er spila-
kvöld Bridgefjelaga í Fjelags-
heimili verslunarmanna.
I.O.O.F. Rb.st. 1. Bþ.
9610228% I.
Söfnin. 1 Safnahúsinu eru
eftirtöld söfn epin almenningi
sem hjer segir: Náttúrugripa-
safn: sunnudaga 1%—3 e. h.
og á þriðjudögum og fimtudög-
um kl. 2—3. Þjóðminjasafnið
opið sömu daga kl. 1—3. Skjala
safnið er opið alla virka daga
kl. 2—7 og Landsbókasafnið
alla virka daga kl. 10—10. -r-
Bókasafn Hafnarfjarðar er op-
ið kl. 4—7 alla virka adaga og
frá 8—9 e. h., mánudaga, mið-
vikudaga og föstudaga.
Silfurbrúðkaup. Hjónin Þóra
Gísladóttir og Sigurjón Jó-
hansson, Kirkjuveg 18, Hafnar-
firði, eiga í dag 25 ára hjú-
skaparafmæli.
Hjúskapur. Síðastl. laugar-
dag voru gefin saman í hjóna-
band af sjera Bjarna Jónssyni
frk. Guðríður Kristjánsdóttir
Breiðdal, Túngötu 39, og Bjarni
Helgason frá Þyrli. Heimili
ungu hjónanna er Sigtún 57.
Hjónaefni. Laugardaginn 19.
þ. m. oninberuðu trúlofun sína
Anna Árnadóttir frá Akureyri
og Jón Tómasson stúdent frá
Sauðárkróki.
"TögT"
VERÐANDl
Fundur í kvöld kl. 8. Endur-
upptaka og inntaka. 3. flokkur
br. Steinberg.
1) Ingjaldur ísaksson:
ferðasaga.
2) Upplestur: Steinberg.
3) Dans.
(Veitingar niðri).
Embættismenn og fjelagar
mætið stundvíslega. — Æ.T.
ÍÞAKA, nr. 194
Fundur í kvöld kl. 8,30. —
Kaffi og spilakvöll.
BKRIFSTOFA
8TÓRSTÚKUNNAR
rrQdrkjuveg 11 (Templara-
liöllinni). Stórtemplar til við-
tals kl. 5-6,30 alla þriðju-
i«<m oir föstudaera
UPPLYSINGA- og
HJÁLPARSTÖÐ
Þingstúku Reykjavíkur er op-
in á mánudögum, miðvikudög
um og föstudögum, frá kl. 2—
3,30 e. h. í Templarahöllinni
við Fríkirkjuveg.
Aðstoð og hjálp verður
veitt, eftir því sem föng eru
á, öllum þeim, sem í erfiðleik
um eiga vegna áfengisneyslu
sín eða sinna. — Með öll mál
er farið sem einkamál.
Tilkynning
KFUK
AÐALDÍBIDIN
Fundur í kvöld kl. 8,30 í húsi
fjelagsins, Amtmannsstíg 2B.
Sr. Magnús Runólsson talar.
Utanfjelagskonur velkomnar.
Hjónaband. S. 1. laugardag
voru gefin saman í hjónaband
af sr. Árelíusi Nielssyni Aðal-
heiður Sigríður Guðmundsdótt-
ir og Kristján Georg Jósteins-
son rennismiður í Vjelsmiðj-
unni Hjeðni. Heimili ungu
hjónanna er á Njálsgötu 86.
Farþegar með síðustu ferð
leiguflugvjelar Flugfjelags ís-
lands frá Kaupmannahöfn
voru: Björn Sigurðsson, lækn-
ir, Jón M. Jónasson, verslun-
armaður, frú Ólína Ólafsdóttir,
Erla S. Jórmundsdóttir, Hauk-
ur Herbertsson, prentari, Sören
Sörensen, framkvstj., frú Agla
Þ. Egilsdóttir, Marteinn G. B.
Jónasson og nokkrir útlending-
ar. — Með sömu flugvjel til
Prestwick á sunnudag voru
meðal farþega Eva Sigurðar-
dóttir, Geir Borg og Pjetur
Eggerz.
Breiðfirðingafjelagið hefir
fjelagsvist og dans í Breiðfirð-
ingabúð í kvöld kl. 8,30.
Mr. G. McHarg er á meðal
gesta hjer í bænum um þessar
mundir. Hann er framkvæmda-
stjóri og eigandi McHarg & Co.,
Ltd., sem eru velþektar hessi-
an-verksmiðjur í Dundee og
Glasgow. Verksmiðjurnar hafa
sent vörur til Islands frá því
uppúr síðustu aldamótum og er
Mr. McHarg mörgum útgerð-
armönnum að góðu kunnur.
Umboðsmenn verksmiðjanna
hjer á landi eru Ólafur Gísla-
son & Co., h.f.
-----♦ ♦ •»---
— Ræða Vanden-
bergs
Frh. af bls. 1
MISSKILNINGUR
„Kannske við skiljum ekki
Rússa“, hjelt Vandenberg
áfram. „Að minstakosti er.víst
að Rússar misskilja okkur.
Jeg viðurkenni að þeir verða
að vita að við höfum ekki
neitt illt í hyggju gagnvart
þeim, og jeg kalla Guð til
vitnis um að ekkert slíkt hef-
ur hvarflað að okkur. Við
verðum allir að reyna að ná
skilningi og samstarfi“. —
Vandenberg sagði að það væri
heimskulegt að segja, að
heimsveldisstefna fælist í ut-
anríkisstefnu Bandaríkja-
manna, og drap á það að lok-
um, ð Sovjetríkin hefðu stækk
að um 250.000 fermílur eftir
stríðið. Síðast sagði Vanden-
berg, að hver árásarþjóð
skyldi barin niður, sem kynni
að skjóta upp kollinum.
♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦3
Leiga
í Aðalstræti 12 er skemti-
legur salur fyrir veizlur ogj
fundi eða spilakvöld og kaffi-
kvöld. Sími 2973.
^►♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦^
Vinna
Tökur aftur að okkur hrein-
gerningar o. fl. sími 4129
Óskar & Óli.
Tökum að okkur
HREINGERNINGAR,
sími 5113, Kristján Guðmunds
sön.
tJvarpsvlðgerðastof*
Otto B. Arnar, Klapparstlg 16,
sírai 2799. Lagfæring á útvarps
tækjum og loftnetum. Sækjum.
Jeg þakka hjartanlega vinum og vandamönnum, svo
og fyrrverandi samstarfsmönnum mínum fyrir auð-
sýnda vináttu á 80 ára afmæli mínu, 17. okt. s.l.
Sigurbjarni Jóhannesson.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, er glöddu mig á 70
ára afmæli, 5. þ. m., með heimsóknum, gjöfum og
skeytum. — Guð blessi ykkur öll!
Ráðhildur Ólafsdóttir,
Selvogsgötu 9, Hafnarfirði.
Innilegt þakklæti til allra þeirra, sem.glöddu okkur,
með gjöfum, blómum, skeytum og heimsóknum á silf-
urbrúðkaups afmæli okkar. — Guð blessi ykkur öll!
Ingibjörg Magnúsdóttir, Guðm. V. Einarsson,
Vesturbraut 15, Hafnarfirði.
Ölium þeim vinum og vandamönnum, sem heiðr-
uðu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og heilla-
óskum á 65 ára afmæli mínu 14. þ.m. færi jeg mínar
bestu þakkir. Guð og gæfan fylgi ykkur öllum.
Sigurður Kristjánsson
Austurstræti 1, Hafnarfirði.
Hjartans þskkir fyrir sýnda vináttu á fimmtugs-
afmæli mínu 20. þ.m. .
Málfríður Bjarnadóttir
Nönnugötu 30, Akranesi.
Þakka innilega auðsýnda vinsemd á fimmtugsaf-
mæli mínu 8. þessa mánaðar.
Salvör Guðmundsdóttir
Akranesi.
Hjartanlega þakka jeg vinum mínum og vandamönn-
um, sem glöddu mig á 95 ára afmæli mínu 17. okt. sl.
með heimsókn, gjöfum og skeytum.
Guð blessi ykkur öll.
Friðsemd Eiríksdóttir
F1 agb j arnarholti.
Það tilkynnist hjer með vinum og vandamönnum,
að faðir okkar og tengdafaðir,
EINAR ÁGÚST EINARSSON,
andaðist að heimili sínu, Lágholti, að kvöldi hins 20.
þessa mánaðar.
Börn og tengdabörn.
Hjer með tilkynnist að móðir okkar,
VILBORG ÁSGRÍMSDÓTTIR,
Norður-Götum, Mýrdal, andaðist sunnudag 20. okt.
Dætur hinnar látnu.
Faðir okkar og tengdafaðir,
GUÐMUNDUR EINARSSON
frá Eyði, Sandvík, andaðist að Elliheimilinu Grund
19. þessa mánaðar.
Börn og tengdabörn.
Faðir og tengdafaðir okkar
SÍMON SÍMONARSON
verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni, fimtudaginn
24. þ.m. Húskveðjan hefst að heimili hins látna Sól-
vallagötu 7A. kl. 1,30 e.h. Kirkjuathöfninni verður
útvarpað.
Börn og tengdabörn.