Morgunblaðið - 07.01.1947, Qupperneq 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói:
BREYTILEG ÁTT og hæg-
viðri. — Dálítil snjókoma öSru
hvoru.
Þriðjudagur 7. janúar 1947
DRYKKJUMÖNNUM MÁ
BJARGA. — EftirtektarverS
grein á bls. 7.________________
Indverjar stofna heimavamalíð
Indverjar hafa stofnað sitt eigið heimavarnalið. Því er þó ekki ætlað að berjast gegn utanað-
komandi óvinum, heldur koma á friði og spekt í landrnu sjálfu, en eins og kunnugt er af
frjettum liefir verið róstursamt í Indlandi í haust og vetur. Á miðri myndinni sjest Morarji
Desai, scm er dómsmálaráðherra í indversku stjórninni.
lolkiÍiriiisíM
tii bræðslu
ú Sigiuiirii ?
Á FUNDI er haldinn var í gær hjá Landssambandi ís-
lenskra útvegsmanna, var samþykt að athuga möguleika
á því, að flytja síld þá er nú veiðist í Kollafirði, norður
til Siglufjarðar til bræðslu.
<s>--------;-----------------
Er fyrirhugað að síld sú, er
bátarnir veiða verði veitt mót-
taka í sjerstök flutningaskip,
sem hvert um sig bera frá 700
til 1000 mál síldar. Síldin yrði
mæld um borð í flutningaskipin
hjer í Reykjavík, eða á veiði-
staðnum, en síðan flutt norður gerðin á háspennulínunni að
á Siglufjörð, og lögð upp hjá Reykjum tók langan tíma í
Lokað íyrir alfan
bæinn
VEGNA þess hver.su ’við-
Síldarverksmiðjum ríkisins.
gær, varð Hitaveitan að loka
Stjórn Síldarverksmiðja rík- alveg fyrir heita vatnið til
isins hefur þegar fengið þetta., bæjarins í nótt. Viðgerðin tók
mál' til athugunar, svo og at-
vinnumálaráðuneytið.
Mikil síid í Sundunum.
Agæt veiði var í Kollafirði í
gær. Þá telja menn að talsvert
muni vera um síld inni í Sund-
um og upp í Hvalfirði.
hefjasf á nýídag
FUNDIR Alþingis hefjast að
nýju í dag, eftir jólaleyfið. —
Verður fundur í sameinuðu
þingi kl. 1M> miðdegis í dag og
eru á dagskrá nokkrar þings-
ályktunartijiögur. Nokrrir þing
menn utan af landi voru ekki
komnir til þings í gærkvöldi.
tæpar 5 klst.
Hitaveitustjóri sagði í gær-
kvöldi að nægjanlegt vatn
yrði í dag.
Bruni í Miðnes-
hreppi
Frá frjettaritara vorum í
Sandgerði, mánudagskvöld.
HÚSIÐ Laufás í Miðnes-
hreppi brann til kaldra kola
kl. 21,15 í gærkveldi. í hús-
inu bjó Jón Bjarnason og
varð hann fyrir mjög tilfinn
anlegu tjóni, því litlu var
bjargða af innanstokksmun-
um, er. voru óvátrygðir, en
húsið mjög lágt virt.
Þjófar dæmdir
í GÆR var í Aukarjeetti
Reykjavíkui' kveðinn upp
dómur yfir fjó>-um ungum
mönnum er frömdu hjer í
bænum 20 innbrotsþ.jófnaði í
vetur. Að þjófnuðum þessum
.stóðu ýmist einn þeirra eða
fleiri samarí.
Tveir þeirra Björgvin Ósk-
arsson og Ólafur Þórir Han-
sen voru dæmdir í eins árs
fangelsi. Sigurður Þorkell Þor
láksson frá Siglufirði var
dæmdur í 8 mánaða fangelsi.
Þessir þrír fengu óskilorðs-
bundinn dóm. Fjórði Ingvar
Alfreð Georgsson var dæmd-
ur í 6 mánaða fangelsi skilorðs
bundið. Allir eru menn þessir
hjeðan úr Reykjavík að Sig-
urði ,Þ. Þorlákssyni undan-
skyldum. Þrír hinna dæmdu
hafa áður verið dæmdir til
refsinga fyrir þjófnaði. Þeir
eru á aldrinum 16 til 23 ára.
Verða að fá leyfi
Viðskiffaráðs
ÞAÐ er alveg útilokað fyrir
stofnanir eða einstaka menn
i að ráða hingað til lands er-
lenda listamenn, án þess að
(hafa tryggt sjer leyfi Við-
skiftaráðs fyrir þeim gjald-
eyri, sem nauðsynlegur kann
að vera.
| Þá er og tilgangslaust fyrir
raenn að stofna til hópferða
til útlanda, án þess að hafa
Tengið íyrirfram loforð Við-
skiftaráðs um gjaldeyri til
Iferðarinnar.
Iveir menn sleynir í rot
ofj sprengju varpað á samkonu
á Skagastrðnd
TIL MIKILLA ærsla og óláta kom á Skagaströnd á
gamlárskvöld. Tveir menn voru slegnir í rot og lá annai
þeirra í öngviti í hálfa klukkustund. Sprengju var varpað
inn í samkomuhús og hefði hún hæglega getað kveikt í
samkomuhúsinu. Einnig var varpað sprengju í bragga,
þar sem ljósastöð síldarverksmiðjanna er. Kviknaði þar
í, en vaktmanni tókst að slökkva áður en slys hafði hlot-
ist af. Guðbrandur ísberg sýslumaður skýrði Morgunblað-
inu svo frá í gærkvöldi, að hann hefði undanfarið haldið
i jettarhöld í þessum málum og tekið 20—30 manns til yfir-
heyrslu.
Sprengjum varpað í samkomu-
hús.
Nokkrir menn höfðu tekið sig
saman um að hafa kaffidrykkju
í bragga, sem notaður hefir ver
ið sem matsalur verksmiðju-
fólksins, á gamlárskvöld. — A
samkomu þessari voru 15 pör,
flest gift fólk og starfsmenn í
verksmiðjunni og 10 einstak-
lingar. Klukkan 11,30 var kaffi
drykkju lokið og skyldi þá hefj
ast dans. Um það leyti var varp
að sprengju inn í gang sam-
komunnar og varð af mikill
hvellur og eldur gaus upp.
Náðst hefir í mann þann, er
varpaði sprengjunni. — Hann
hafði búið hana til sjálfur úr
púðri, pappa og loks va’fði hann
utan um allt saman olíublaut-
um tvisti. Hefði vafalaust ver-
ið hægt að kveikja í braggan-
um, ef menn hefðu ekki kom-
ið að, er sprengjan sprakk og
slökkt eldinn. Ekki sakaði neinn
mann við þenna ljóta og hættu-
lega leik.
Götuljósin slökkt.
En það voru einkum tveir
menn, sem stóðu fyrir ofbeldi
og slagsmálum á Skagaströnd
þetta kvöld. Annar var báts-
formaður, ættaður af Suðurnesj
um, Guðmundur Karlsson, að
nafni. Hann og fjelagi hans,
Birgir Arnason, rjeðust að frið-
sömum mönnum og efndu til
slagsmála.
Þeir fjelagar byrjuðu með því
að brjóta ljósaperur í götuljós-
um, þannig, að þorpið var í
myrkri.
Þeir komu á samkomuna og
efndu þar til slagsmála. í þeim
slagsmálum fengu tveir menn
rothögg. Annara þessara manna
hafði tvívegis komið Guðmundi
undir sig, en fjelagar Guðmund
ar komu honum jafnan til
hjálpar.
Auk rothöggsins brotnuðu
tvö rifbein í manninum, þann
áverka hefir hann annað hvort
fengið með því, að kastað hefir
verið í hann grjóti, eða sparkað
hefir verið í hann.
Hinn maðurinn, sem rothögg
hlaut, lá lengi í öngviti. Margir
skrámuðust í andliti, en meiðsl
þeirra eru ekki talin eins alvar-
leg og þeirra tveggja sem fyr
getur.
Sprengja í aflstöðinni.
Sprengju var varpað inn í
aflstöðina, eins og fyr segir. —•
Var það gert á meðan vaktmað-
ur hennar, unglingspiltur brá
sjer frá. Þegar hann kom að var
kviknað út frá sprengjunni, en
honum tókst að slökkva áður
en tjón hlaust af. í aflstöðinni
var auk bensínsins önnur eld-
fim efni, svo sem vjelaolíur o.fl.
Ekki hefir tekist að hafa upp
á þeim, sem sprengjunni varp-
aði í ljósastöðina.
Sýslumaður heldur rannsókn
þessa máls áfram.
Maður grýthir á
Sauðárkrók
MJÖG róstusamt var á Sauð
árkrók á gamlárskvöld. Ungl-
ingar mölvuðu rúður í húsum,
eyðilögðu báta og grýttu grjóti
að vegfarendum. Einn maður
slasaðist í óspektum þessum.
Sýslum. á Sauðárkrók, Sig.
Sigurðsson, skýrði Mbl. svo
frá að þetta kvöld hefði ungl-
ingaskríll haft sig mjög í
frammi. Skríll gerði árásir á
hús manna og brutu í þeim rúð
ur. Þá voru bátar stórskemdir
eða eyðilagðir og ýmsu laus-
legu var stolið og hlaðið upp
á götunum. Þá gerðu unglingar
þessir mikla grjóthríð að fólki
er var á ferð um bæinn, en
enginn mun hafa slasast af
þessu tiltæki unglinganna. Hjá
húsi mjólkurbússtjórans var
bátur geymdur og reyndi ungl-
ingaskríll þessi að ræna bátn-
um. Mjólkurbússtjórinn ætlaði
að koma í veg fyrir þetta, en
þá var hann grýttur. Steinn
kom rjett hjá auganu og hlaut
hann skurð mikinn.
Ekki er vitað hvort hann
heldur sjón á auganu.
Sýslumaður ljet mjög illa yf
ir framferði unglinganna í
þorpinu. Sagði hann það hafa
hríðversnað síðan að lög-
regluþjónn hætti þar eftirlits-
störfum árið 1944. Sem dæmi
up á þetta sagði hann að um
jólin hefðu verið brotna'r milli
10 og 20 rúður í mjólkursam-
laginu.
Kynnisför til Austurríkis
LONDON: — Sex breskir
þingmenn fóru í kynnisför til
Austurríkis um jólahátíðina.
/