Morgunblaðið - 22.01.1947, Síða 8

Morgunblaðið - 22.01.1947, Síða 8
8 Miðvikudagur 22. jan. 1947 fiak hvalur síldina í I Kollafjörð! STÓRAR hvalatorfur hafa af öllum líkindum rekið síld þá |er nú veiðist í Kollafirði, inn Faxaflóa og upp á grunnsævið í Kollafirði í óvanalega þjettum torfur. Að morgni þann 3. des. s. 1. .sáust gufustrókar miklir við sjóndeildarhring í suðvestri frá Akranesi, er menn fóru að at- huga þennan blástur, kom í ljós að hann stafaði frá hvalatorf- um, er óðu inn flóann í stefnu á Kollafjörð og Hvalfjörð, voru umbrotin og gufustrókarnir svo miklir að það minti á íjóor- ustu. Jeg undirritaður fór þá upp í hinn nýbygða Akranesvita með góðan sjónauka til þess að athuga hvalatorfur þessar nán- ar, og sá, að þarna fóru fleiri hundruð hvalir af ýmsum stærð um og að mjer virtist tegund- um. Mest virtist af háhyrning- trm. Hvalatorfur þessar voru á breiðu svæði, eða allt frá Akra nesi að Gróttutöngum og fylgdi þeim mikið fuglagei;. Þar sem flestir fiskibátar hjer á Akranesi voru í naustum, voru engar tilraunir gerðar til að reka hvalina á land. Nokkru síðar fóru Reykvík- ingar að veiða síldina í Kolla- firði. Hinn 18. des. er þess get- ið í Morgunblaðinu að aðfara- nótt þess 17. des. hafi margir hvalir, þar á meðal stórhveli (steypireiður, síldreki) sjest í Kollafirði, þegar síldveiðarnar Voru að byrja þar. Jeg læt þessa getið vegna við fals frjettaritara Morgunblaðs- ins við Arna Friðriksson 15. þ. ’m., sem telur að síldin í Kolla- firði hafi borist þangað fyrir sjávarstraumum. Þegar athugað er hve mikil hvalamergð var á þessum slóð- um rjett áður og um það leyti, sem síldveiðin byrjaði telja margir það líklegra, að síldin hafi leitað þangað á flótta sín- um undan hvalatorfunum, svo sem mörg dæmi eru til áður um síldargöngur inn á firði og vík- ur hjer við land. • Akranesi 16. janúar 1947. Júlíus Þórðarson. BEST AÐ AUGLÝSA í MORGUNBLAÐINU I Minningarorð um Eyjólf Kolbeins bónda í Bygggarði í DAG verður Eyjólfur Eyjólfsson Kolbeins, bóndi að Bygggarði á Seltjarnar- nesi borinn til síns hinsta hvílurúms. Eyjólfur átti heima á Sel- tjarnarnesi í 35 ár eða öil sín manndómsár og átti því þar og hjer í Reykjavík fjölda vina, því allir sem kyntust honum fundu brátt að hann var gæddur þeim góðu eigin- ieikum er honum virðast hafa verið í blóð bornir, að vilja hvers manns böl bæta. Bónbetri mann en hann munu fáir hafa þekt. Eyjóifur var fæddur að Staðarbakka í Miðfirði 24. janúar 1894. Foreldrar hans voru sjera Eyjólfur Kolbeins Eyjólfsson, prestur að Stað- arbakka og síðar að Melstað, sonur Eyjólfs prests í Árnesi á Ströndum, Jónssonar Þórð- arsonar frá Kjarna og kona hans, Þórey Bjarnadóttir dóttir þeirra merkishjóna Bjarna Þórðarsonar og Þór- eyjar Pálsdóttur, er lengi bjuggu á Reykhólum í Barða strandarsýslu, með mikilli; rausn. Það má því segja að Eyjóifur hafi verið af góðu bergi brotinn í báðar ættir. Snemma hneigðist hugur hans að búskap og var strax sem barn mjög gefinn fyrir skepnuhirðingu og þótti vænt um dýrin. Faðir hans mun jafnvel hafa óskað þess að hann gengi mentaveginn, eins og bróðir hans, sjera Halldór, sem nú er sóknar- prestur í Yestmannaeyjum, en það aftók Eyjólfur með öllu, en sótti fast að fá að fara á búnaðarskóia og fór hann á búnaðarskólann á Hólum þegar hann var 14 ára gamall og þurfti að fá undan- þágu fyrir að hann svo ung- ur fengi inntöku í skólann. Að loknu búnaðarnámi fór hann svo aftur heim til for- eldra sinna og tók þá strax við allri skepnuhirðingu á búi þeirra og verkstjóm, -og fórst honum hvort tveggja prýði- lega úr hendi. Árið 1912 þegar Ey.jólfur er 18 ára að aldri deyr faðir hans frá sínum stóra barna- hóp, 10 að tölu og var Eyjólf- ur næst elsta barnið. Faðir hans var þá nýbúinn að byggja upp prestsetrið og hafði sú bygging kostað mun meira fje en það sem ríkið iagði til byggingarinnar. Við fráfall sjera Eyjólfs var bú hans tekið til gjaldþrota- skifta. Móðir Eyjólfs varð því að bregða búi, en fyrir áeggj- an foreldra sinna og systkina fluttist fjölskyldan öll að Lambastöðum á Seltjarnar- nesi og þá um leið tók Eyjólf- ur við öllum búsforráðum með móður sinni, og sýndi þann frábaara dugnað að reka búið á þann hátt að honum tókst ekki eingöngu að framfæra fjölskyldunni þannjg að öll systkini hans hafa orðið að nýtum borgur- um, flest hjer heima, en tveir bræður hans í Ameríku, en auk þess blómgaðist búið ár frá ári. Við þetta óx hann strax í áliti, meðal sveitunga sinna og rúmlega tvítugur var hann settur hreppstjóri í hreppnum og hreppsnefndar- störfum gegndi hann í mörg ár. Þegar börnin voru upp- komin flutti hann og móðir hans búferlum að Bygggarði, sem er kirkjueign og þar tek- ur hann algjörlega við öllum búforráðum.Hann kvæntist 29. júní 1926 eftirlifandi konu sinn, Ástu Helga- dóttur og eignuðust þau 5 börn, 4 dætur og 1 son, sem öll eru mjög mannvænleg og eru nú aðalstoð móður sinn- ar. Áður en Eyjólfur fluttist frá Lambastöðum hafði hann gjört samning við eiganda jarðarinnar um að hann fengi óræktarflóa, sem lá undir jörðina, til ræktunar. Var það alment talið óráð mesta og ekki viðlit að takast mætti að gjöra þann flóa að rækt- uðu landi, en þetta tókst honum svo vel að undrun sætti. í þessu landi bygði hann vandað íbúðarhúí, fjós og hlöðu og rak þar stórbú í mörg ár með miklum dugn- aði. Rak þá líka sveitaversl- un í húsi sínu. Með samninga lipurð tókst honum að kom- ast í samband við Vatnsveitu og rafmagnsveitu Reykj avík I urbæjar og þannig að leiða vatn og rafmagn inn í hús sín. Framtakssemi Eyjólfs og áræðni hans í jarðrækt mun seint gleymast, og verður til fyrirmyndar meðal sveitunga hans. Auk sveitarstarfanna lagði Eyjólfur mörgum öðrum framfara- og fjelagsmálum lið sitt. Bindindismaður var hann alla tíð og hafði megna óbeit á allri áfengisnautn, enda sást áfengi aldrei á hans heimili. Sem húsbóndi og faðir var hann sönn fyrirmynd og var hans góða kona honum mjög samhent í því að viðhalda fyrirmyndar heimilisbrag og börn þeirra bera þess glögg merki að þau hafi átt gott hei.mili. iNú ert þú að hafa vista- skifti, vinur minn, til þess meira að starfa guðs í geim. Jeg sakna þín vinur, en árna þjer allra heilla í nýju vistinni. Þökk sje þjer fyrir ótal ánægjustundir, sem við höf- um átt sameiginlegar, og fyrir óbrigðula vináttu og trygð. Blessuð sje minning þín. Vinur. BEST AÐ AUGLÝSA f MORGUNBLAÐIPÍU Fimm mínúlna krossgátan SKÝRINGAR: Lárjett: — 1 Spræna — 6 Víntegund — 8 Karlmannsnafn — 10 Lík — 12 Ljet.frá sjer — 14 Fangamark — 15 Greinir — 16 Gruna — 18 Snyrti. Lóörjett: —- 2 Skip — 3 Fangamark — 4 Elska — 5 Brim — 7 Ýtti — 9 Eind ■— 11 Hvíldi — 13 Ólæti — 16 Fæddi — 17 Tveir eins. Lausn á síðustu krossgátu: Lárjett: — 1 þungi — 6 tea — 8 Una — 10 duo — 12 nefndur — 14 dt — 15 ug — 16 afa — 18 neðstur. Lóðrjett: — 2 útaf — 3 N.E. — 4 gadd — 5 bundin — 7 sorgar — 9 net— 11 uuu — 13 nefs — 16 að — 17 at. Skákþlngið ÞRIÐJA umferð á skák- þingi Reykjavíkur var telfd í fyrrakvöld að Þórscafé. Úrslit í meistaraflokki urðu þau að Magnús G. Jónsson vann Jón Þorsteinsson, _Guð- jón M. Sigurðsson vann Ben óný Benediktsson, Gunnar Ólafsson vann Aðalstein Hall dórsson. Jafnteíli carð milli Lárusar Johnsen og Eggerts Gilfer og Sturlu Pjeturssonar og Jóns Ágústssonar. Guð- mundur Pálmason og Pjetur Guðmundsson eiga biðskák. í fyrsta flokki vann Sigur- jón Gíslason Eyjólf Guð- brandsson og Eirjkur Bergs- son vann Böðvar Pjetursson. Jafntefli varð milli Skarp- hjeðins Pálmasonar og Ingi- mundar Guðmundssonar. Bið skák hjá Ólafi Einarssyni og Hafsteini Ólafssyni og Guð- mundi Guðmundssyni og ■Þórði Þórðarsyni. Biðskákir verða telfdar á föstudagskvöldið á Hverfisg. 21, en fjórða umferð hefst á sunnudaginn kl. 1Ý2 að Þórs- café. X-9 a a & & & Eflir Roberl Storm ^ B’INð, 'ÍOUR BI6 ^ BROTHER'5 RECORD I\f& 4LWAV$ BEEN T0P5, MERE AT THE BUREAU — BUT CRAZIER TMIN60 MAVE . , HAPPENED ! vzvx-Á 'fT PERMAP5 I 6>M0ULDN'T T05£ ANOTHER C0RRI6AN INTO TM|$ TAN6LE, BUT ■ VOU HAVE A 6TAKE IN Tl4l$ PEAL...I WANT *1 YOU TO LOCATE 1 , SHEPRV KRATER/ M k THE KILLER! AM ^ YOU 0MOULD LOOK Að UNLIKE J l'll BRIN6 PNIL'6 BROTMER A6 P055IBLE! / IN TME KRATER 6R0W A MU5TACME -DVE VOUR / BIDPIE, IF IT'$> HAIR....JU6T IN CA5-E PHlL TME LA5T v Bing: En þú held j. Siiercy samsekur? . ágætlega hierna hj ekki að, Phíl mundi gerast .íil hefir altaf staðið sig — en eins og þú veist, getur allur skollinn komið fyrir. Ef til vill ætti ur að breyta útliti þínu eins vel og þú getur. Láttu jeg ekki að fara fram á þetta við þig, en jeg vil að þjer vaxa yfirskegg ogTitaðu á þjer hárið. þú takir að þjer að finna Sherry Krater. Þú verð-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.