Morgunblaðið - 02.03.1947, Qupperneq 2
MORGUNBLAfllt)
Sunnudagur 2. mars 1947
l»ETTA er ein af aðalgötunum í Bukarest, höfuðborg Rúnieníu.
Þ-ykir sú borg vera cin af fegurstu borgum Balkanlan'da og
liomst svo að segja óskemd út úr stríðinu.
Frá Búkarest
forseli og forsælis-
"áðherra senda
Kýtl mel í langflugi
orusfuflugvjela
Þjóðræknisjiingi
r
V.-lsl. kveðjur
TUTTUGASTA o,g áttunda
þjóðræknisþing Vestur-ís
lendinga var háldið dagana
24.—26. f(íbrúar, að við-
Kjtöddu fjölmenni. Á kvöld-
síimkomum töluðu þessir
tiæeðumenn: Valdimar Bjöi-ns
son, Carl Freeman og Ric-
hard Beck.
i Frá forseta íslands barst
Jíveðjuskeyti, og vai- forseta
etent þakkarskeyti, þar sem
honum og íslensku þjóðinni
var árnað allra heilla. Stefán
Jóhann Stefánsson, forsætis-
r-áðherra, se.ndi þinginu svo-
fellt ávarp í skeyti:
? ;,! nafni ríkisstjórnar Is-
liánds sendi jeg þjóðræknis-
þingi Vestur-íslendinga alúð
fftkveðjur. Þótt á íslandi
skipti um stjórnir og stjórn-
málaflokka við völd, þá er
vináttan í garð frændanna
fyrir vestan haf engum
breytjngum háð“.
Kveðjunum var tekið með
iniklum fögnuði.
Helstu mál, sem rætt var
úm, voru viðhaid íslenskrar
tungu, stofnun kennarastóls í
íslenskum fræðufn við Mani-
tpba háskólann og samvinna
við ísland. Var ákveðið’ að
ráða útbreiðslu- og fræðslu
ihálastjóra.
A þinginu voru þessir
menn kjörnir heiðurfjel-agar:
Sigurður Þórðarson, söng-
Btjóri, Heigi Bricm, aðalræð,-
ismaður, og Richartl Beck
prófessor.
Jón Bíldfell var kjörinn
zíýr meðlimur stjórnarnefnd-
iff.;—
(Frá ríkisstjórninni,
, frjettatilkynning).
New York í gærkvöld.
TILKYNT var í kvöld, að
bandarísk orustuflugvjel hefði
slegið riýlt met í langflugi, án
þess að lenda. Tilkynninjfín
var birt strax eftir að herflug-
vjelin „Betty Jo“ — skírð í
höfuðið á konu flugmannsins
— hafði lent á La Guardia flug
velli, New York, eftir fjórtán
og hálfrar klukkustundar flug
frá Hickam flugvelli, Honolulu.
Vegalengdin milli þessara
staða er 7565 kílómetrar.
Kona flugmannsins beið á
La Guardia flugvelli meðan á
fluginu stóð. Skömmu áður en
vjelin lenti, sagði hún við
blaðamenn: „Jeg efast ekki um
að honum takist þetta. Hann
verður að gera það — gifting-
ardagurinn okkar er á mánu-
dag“. — Reuter.
Madridbúar heimla
konung
Madrid í gær.
MIKILL mannfjöldi safnaðist
safnan fyrir framan kirkju í
Madrid í dag, þar sem minn-
ingarguðsþjónusta fór fram í til
efni af því að sex ár eru liðin
síðan Alfonso XIV. Spánarkon-
ungur ljest, en hann var faðir
Don Juans, sem nú gerir kröfur
til konungstignar á Spáni.
Mannfjöldinn hrópaði: „Við
viljum konung“, en á móti var
þá hrópað af minnihluta í hópn
um: „Franco, Franco, Franco“.
Ekki skifti lögreglan sjer af
þessum hrópum. Síðan hjelt
mannfjöldinn til „Þjóðhallar-
innar“, sem er áðalbækistöð
Francos í Madrid og þá voru
það "fleiri, sem tóku þátt í hróp -
um með Franco. Eftir stutta
stund dreifðist mannfjöldinn,
án þess að til frekari tíðinda
drægi. — Reuter.
í Höfn bíða húsmæður klst.
snmon til nð iú einn mófötu
ÞAÐ kemur fyrir í Kaup-
mannahöfn um þessar mund
ir, að húsmæður leggi á sig
að bíða klukkustundum sam
! an til að fá mó í eina fötu
Itil að geta yljað upp híbýli
| sín, þótt ekki sje nema í einn
! eða tvo klukkutíma. Það
kemur einnig fyrir, að fólk
| standi í biðröðum alt að því
14 klukkustundir til þess eins
! að fá leyfi til kola, eða elds-
neytiskaupa, en þegar það er
fengið er alveg óvíst, að
nokkuð fáist út á levfin.
| Frú Anna la Cour, dóttir dr.
Gunnlaugs Classen, sem er bú-
sett í Kaupmannahöfn, er ný-
komin hingað til bæjarins með
tvö ung börn sín. Hún kemur
hingað í hiýjuna, fyrst og
fremst. Ætlaði hún ekki að
koma í heimsókn til ættfólks
síns fyr en að sumri, en sök-
um kuldanna og vegna barn-
anna færði hún heimferð sína
I
fram.
Ekki allir eldsneytislausir.
Frú la Cour sagði í viðtali
við Morgunblaðið í gær, að ekki
væru .öll heimili í Danmörku
jafn illa stödd hvað eldsneyti
snerti. Þeir sem hafi haft fram-
sýni og getu til að birgja heim-
ili sín af mó í haust þurfi ekki
að kvarta yfir eldsneytisskorti.
En mó geymsla taki mikið rúm,
sem ) ekki sje allstaðar fyrir
hendi í íbúðum almennings.
Því miður muni það því vera
svo, að þeir sjeu fleiri, sem
búi við eldsneytisskort, en hin-
ir, sem geta hitað upp hja sjer
í Odense muni % íbúanna vera
algjörlega eldsneytislausir.
Víða frost í íbúðum.
Skömmu áður en frú Anna
fór frá Höfn var venjulegur
hiti í íbúð hennar um 7 stig
að morgni og alt upp í 14 stig í
stofum þegar leið á daginn. En
þess er vert að geta, að íbúð
hennar var hituð upp að
nokkru. Hjá hinum, sem ekkert
eldsneyti hafa er oft frost inni
í íbúðunum.
Gas og rafmagn er af skorn-
um skamti. Amerísku kolin,
sem Danir fengu reyndust ekki
nógú góð til þess að gasstöðv-
arnar gætu notað þau til gas-
framleiðslu. Þótt það sje bann-
að, hafa margir gripið til þess
ráðs að hita upp eldhúsin hjá
sjer með gaseldi og hefst þá
fjölskyldan við í eldhúsinu Það
stóð til að láta hvert heimili fá
25 1. af steinoliu, og mun það
eitthvað hjálpa. .
Rafmagn er ekki skamtað
ennþá í Kaupmannahöfn, en
ætlast er. til að menn spari það
eftir föngum. Verslunarglugg-
ar eru ekki upplýstir að kvöldi
til. Það hefir bjargað, að raf-
stöðvarnar hafa getað brent mó.
Fyrir nokkru var leyft að nota
rafmagn til uphitunar að ein-
hverju leyti en það eru mjög
fáir sem eiga rafmagnsofna.
Kjöt og fiskskortur í Höfn.
Allmiklir örðugleikár hafa
verið á matvælaöflun til heim-
ila í Kaupmannahöfn í vetur.
Islensk kona segir frá
erfiðleikum vegna elds-
neytis og matvælaskorts
Kjöt er af skornum skamti og
stafar það aðallega af flutn-
ingaörðugleikumyvegna ísalaga
á sundunum. Var um tíma ekki
hægt að fá annað kjöt í Kaup-
mannahöfn en hrossakjöt. Fisk
ur fæst heldur ekki, þar sem
sjómenn geta ekki farið til
veiða vegna ísa.
Það erú slátrararnir, sem á-
kveða hvað hver fjölskylda fær
mikinn kjötskamt, en kjöt er
ekki skamtað með seðlum.
Mun kröfuganga húsmæðra í
Kaupmannahöfn, sem getið var
frá í frjettum á dögunum vafa-
laúst standa í sambandi við þá
skömtunaraðferð, sem oft kem-
ur órjettiátt niður.
Skortur á mjólk og feitmeti.
í Kaupmannahöfn hefir
mjólkurskortur gert vart við
sig í vetur. Er .það enn að
kenna flutningaörðugleikum,
þar sem Kaupmannahöfn fær
mikið að neyslumjólk sinni frá
Jótlandi, eða eyjunum og sam-
göngur allar erfiðleikum bundn
ar.
Smjör er skamtað í Dan-
mörku og fær hver éinstakling-
ur, sem svarar % pundi smjörs
á viku. Sápa er einnig skömt-
uð. Ekki fæst smjörlíki nema
út á smjörseðlana, svínafeiti
alls ekki og yfirleitt ekkert feit-
meti nema smjörskamturinn, þó
geta menn valið hvort þeir vilja
smjör eða sama magn af smjör
líki út á smjörseðlana.
Kornmatur og kaffi, te og
sykur er og skamtað og skort-
ur er á ýmsum vörum, sem áð-
ur fengust alstaðar, en vöru-
þurðin mest af gjaldeyriserfið-
leikum Dana.
Frú Anna la Cour var fegin
að koma heim í hlýjuna og
góða veðrið hjer og svo myndi
fleiri íslendingar, sem ættu
þess kost að komast heim frá
Evrópulöndunum um þessar
mundir. í. G.
Svíaráttu 4 fyrstu
menn í 18 km. göngu
í Holmenkollen
ÁTJÁN KM. GANGAN Á
Holmenkollen-mótinu fór
fram í gær. Áttu Svíar fjóra
fyrstu menn, en Finnar 5. og
6. — I flokki þeirra,- sem
einnig keppa í stökki, áttu
Norðmenn 1., 3. og 5. mann,
en Svíar 2. og 4.
Fyrstu átta mcnn í göng-
unni voi'u: 1. Nisse Karisson,
Svíþjóð, 1 klst. 2 1 mín., 2.
Herrdin, Svíþjóg, 1,03,37, 3.
Forsberg, Svíþjóð, 1,04,03, 4.
Gunnar Karlsson, Svíþjóð, 1,
04,08, 5. Lahde, Finnland, 1,
04,51, 6. Silvennoinen, Finn-
iand, 1,05,29 og 7.—8. Nyborg,
Noregi og Dufseth, Noregi,
1,05,50.
I flokki þeirra, er einnig
keppa í stökki, urðu þessir
fyrstir: 1. Dufseth, Noregi, 1,
05,50, 2. Israelsson, Svíþjóð,
1,06,20, 3. Hermansen, Nor-
egi, 1,06,34, 4. Rogström, Sví-
þjóð, 1,06,46 og 5. Odden,
Noregi, 1,07,45.
Það er ekki gott að segja
um, hvef vinnur tvíkeppn-
ina en ef til vill eru það Her-
mansen eða Odden, sem hafa
mestar líkurnar.
— Gunnar Akselsson.
Úlfar á ferðinni.
RÓMABORG: — Hópar af
úlfum hafa sjest í nágrenni við
bóndabæi í námunda við
ítölsku hafnarborgina Ancona.
Kuldinn á þessum slpðupa mun
hafa neytt úlfana til að flýja
hæli sín í fjöllunum.
Heddy Lamarr
eignasl dreng
Hoilywood í gær.
Kvikmyndaleikkonan víð-
kunna Heddy Lamarr fæddi
í dag sveinbarn o,g var gerð-
ur keisaraskurður við fæð-
inguna. Maður hennar, John
Loder, skýrði blaðamönnum
frá því, að barninu og móð-
ur þess liði ágætlega.
Heddy Lamarr er tjekk-
nesk að uppruna, en maður;
hennar er breskur. Þau giftni
sig fyrir fjórum árum. Þau
eiga tveggja ára telpu, Den-
ise að nafni. Heddy á 17 ára
son frá fyrsta hjónabnndi. —*
Hún var áður gift FritS
Mandl, austurríska vopna-
framleiðandanum og einnig
var hún gift Gene Markey,
kvikmyndafrámleiðanda.
— Reuter.
Norðmenn vinna
skíðaslökkkeppni í
Bandaríkjunum
FJÓRIR Norðmenn eru nú
í Bandaríkjunum og tóku þar
þátt í alþjóðaskíðastökk-
keppni á föstudaginn.
Norðmaðurinn Korxgsgaard’
varð nr. 1, stökk 73 og 70 m,
Annar varð Noi’ðmaðurinn
Baklie. Hinir tveir Norð-
mennirnir náðu einnig ágæt ■
um sætum. Keppt var í hinnl
svonefndu „Sjálfsmorð?
stökkbrekku". — G.A.