Morgunblaðið - 23.03.1947, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐlö
Sunnudagur 23. mars 1947
r
JHwgnstirlftfeffe
Útg.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Framkv.stj.: Sigfús Jónsson
Ritstjórar; Jón Kjartansson,
Valtýr Stefánsson (ábyrgSarm.)
Frjettaritstjóri: ívar Guðmundsson
Auglýsingar: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla,
Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald kr. 10,00 á mánuði innanlands.
kr. 12,00 utanlands.
t lausasölu 50 aura eintakið, 60 aura með Lesbók.
Virðingin fyrir fánanum
FYRSTU LÖGIN, sem Alþingi samþykti eftir lýðveldis-
tökuna voru fánalögin nýju. Það er vel til fallið, að þau
lög, sem mæla fyrir um meðferð og vernd þjóðfánans
skyldu hafa verið fyrsta verk á löggjafarsamkomu hins
unga lýðveldis.
Þjóðfáninn er heilagt merki, sem ekki má falla á blett-
ur nje hrukka. Móðgun við fánann, er móðgun við þjóð-
ina. Lítilsvirðing sýnd þjóðfánanum er lítilsvirðing sýnd
hinu íslenska lýðveldi. Um það leyti, sem lýðveldisstofn-
unin fór fram, hafði þjóðin mikinn skilning á þýðingu
fánans. Allir vildu eignast fána og fánastöng við hús sitt
og það þótti prýði í hverri stofu, að hafa íslenskan fána
á borðfánastöng. Nábúar höfðu gætur á hver öðrum um
það að fánalögunum væri hlýtt. Og þannig átti það að
vera.
En nú, tæplega þremur árum eftir að lýðveldið var
stofnað, virðist sem menn sjeu orðnir kærulausir í þess-
um efnum. Víða við hús má sjá fánastengur þar sem fána-
linan er slitin. Aðrir hafa fengið leið á því að flagga og
setja ekki upp fána á hátíðisdögum þjóðarinnar. Þeir,
sem drógu fána að hún, gleyma að taka hann niður í tæka
tíð að kveldi og margskonar annað kæruleysi ríkir í með-
ferð þjóðarmerkisins.
★
En verst af öllu er að opinberir starfsmenn lýðveldisins
eru einnig haldnir þessu kæru- og skeytingarleysi fyrir
fánanum. Nýlega skeði það hneyksli, að íslenskri ríkis-
fáninn var hengdur upp á spítu við komu innlendra og
erlendra manna, sem voru að koma í heimsókn við merki-
legt tækifæri. Ljósmyndin í Morgunblaðinu í gærmorgun
af fánanum á Keflavíkurbragganum segir sína sögu. —
Sögu, sem ekki má endurtaka sig.
í næri sjö aldir börðust íslendingar fyrir frelsi sínu
og sjálfstæði. Þeir unnu sigur, og fengu sinn eigin fána,
sem merki þess, að þeir væru sjálfstæð þjóð. Þjóðirnar,
sem þekkja ánauð og kúgun hafa fórnað sínum bestu
sonum til að geta dregið fána sinn að hún, sem merki
um sjálfstæði sitt og frelsi. Látum það aldrei koma fyrir
að við berum ekki fulla virðingu fyrir hinu dýrmæta
merki, sem ávalt á að minna okkur á það dýrmætasta,
sem við eigum, — frelsi og sjálfstæði þjóðarinnar.
Engin tilviljun
zuerji ilznfar:
ÚR DAGLEGA
LÍFINU
Óvenjulegir
hljómleikar.
UNGFRÚ ENGEL LUND er
komin ,,heim“ eftir langa úti-
vist. Síðan hún var hjer síðast
hefir hún sungið í flestum lönd
um Evrópu og Ameríku. Heim-
sókn Göggu Lund, eins og hún
oftast er kölluð er jafnmikill
stórviðburður í lífi New York
og Vín og litlu höfuðborgar-
innar norður við íshaf, Reykja
víkur. Gagga er enginn venju-
leg listakona. sem bara syngur
fyrir fólk, tekur saman nótur
sínar, kveður og fer. Söngur
Göggu Lund hljómar í sálum
fólks löngu eftir að hún er far-
in, jafnvel enn fegurra.
•
Hin sanna list.
GAGGA LUND ber svip
hinnar sönnu listakonu. Hlut-
verk raddarinnar, sem virðist
vera ákaflega vel þjálfuð, og
djúp er að fullnægja kröfum
hins innra, túlka tilfinningar,
sál þess sem sungið er. Þetta
sýnist raunar vera svo sjálf-
sagt, að ekki sje umtalsvert,
en því miður er algengara að
söngvarar leggi kapp á að
breiða út rödd sína og sýna þol
sitt og kunnáttu, en að snúa
sjer að anda þess, sem flutt er
og leyfa röddinni að þjóna sín-
um rjetta húsbónda. Gagga
Lund er fyrst og fremst túlk-
ari. Á efnisskránni skiftast á
lög frá ýmsum löndum, hvert
með sínum þjóðlega blæ; þar
eru hermannasöngvar og ást-
arsöngvar, trúarljóð og gam-
ansöm krakkalög. En Gagga
blæs í alla hluti lífi og list, hún
fær hverju ljóði sína eigin sál,
sitt rjetta þjóðerni og tilfinn-
ingu.
•
Oll fögur lög eru þjóð-
leg og þessvegna al-
þjóðleg list.
SÖNGKONAN hefir geysi-
lega tungumálakunnáttu. Hún
hefir ekki lært tungumálin á
veniulegum skólabekkjum.
Hún hefir numið þau hvert fyr
ir sig í þeirra rjetta umhverfi.
Hún hefir fundið sál hverrar
tungu, vegna þess að hún veit
hvar á að leita hennar. Hún
hefir sogið inn í sig þrótt og
innileika hinna frumstæðu þjóð
laga, og skilar þeim aftur í
hinni upprunalegu mynd flutt
af listrænni kunnáttu.
Það er kanske síst ástæða til
þess með Göggu Lund af hafa
langan formála er rætt er um
list hennar. List hennar er vit-
anlega fyrst og fremst hennar
persónulega eign, guðs gjöf,
sem enginn mannlegur máttur
getur tekið frá henni. Hún gæti
jafnvel haldið áfram að syngja
sig inn í sál fólks eftir að hún
hefði mist röddina. Allt lát-
bragð listakonunnar, fram-
burður, jafnvel þó nokkuð
skorti á að hún tali nú orðið
sæmilega íslensku, túlkunin
talar beint til hjartans, þó
bregður aldrei fyrir óþægilegri
tilfinningasemi. Hið gullvæga
meðalhóf er hennar aðals-
merki.
•
Sleppi engu tækifæri.
Á HLJÓMLEIK Göggu í
fyrradag vakti negrasöngurinn
mesta hrifningu. Mun mörgum
þá stundina hafa komið í hug
hin mikla söngkona negranna,
Marion Anderson, svo stórfeng
leg og áhrifamikil var meðferð
hennar á þessu undursamlega
lagi.
Einn hinna mörgu hrifnu á-
heyrenda Göggu komst svo að
orði eftir hljómleikinn: ,,Jeg
var rjett í þann veginn að
hætta við að fara á hljómleik-
inn vegna þess hve veðrið var
vont. hvernig átti mjer að geta
dottið í hug að nokkur mann-
eskja gæti sungið svona guð-
dómlega og að til væru svona
falleg þjóðlög. Þó hún ætti eft-
ir að syngja hjer 10 sinnum
mun jeg engum hljómleikanna
sleppa. Svona munu flestir
hafa hugsað, sem voru á hljóm
leik Göggu Lund í Tripoli“.
•
Ekki luxus.
í LÖNGU BRJEF um einka-
bíla og mannfl. yfirleitt, sem
skrifað er í sambandi við þann
orðróm, sem í bænum gengur
um, að í ráði sje að setja lúxus-
skatt á einkabíla, varpar borg-
ari fram þeirri spurningu,
„hvort það sje luxus að eiga
fólksbíl til eigin afnota á ís-
landi“.
Það er ekki hlaupið að því að
svar.a þessari spurningu, því
svarið getur verið bæði já og
nei, en hitt er óhætt að full-
yrða, að það er ekki rjett, að
skoða algeng lífsþægindi og
tækni, sem tekin er í þjónustu
mannsins sem luxus.
Það er ekki luxus að eiga
bíl, þvottavjel, ísskáp, hræri-
vjel, eða rafmagnseldavjel.
Þetta eru þægindi, sem gera
mönnum lífið ljettara og það
ætti að stefna að því að sem
allra flestir borgarar þjóðfje-
lagsins, hvar í stjett. sem þeir
standa geta eignast tæki til að
auka lífsþægindin.
•
Gerðu sjer rangar
hugmyndir.
Á ÞAÐ VAR LAUSLEGA
drepið hjer í dálkunum í gær,
að amerísku blaðamönnunum
list vel á sig á Islandi. Það er
ekki ofmælt, sem betur fer.
Nokkrir þeirra voru á dansleik
„Lorelei“-klúbbsins í Sjálf-
stæðishúsinu í fyrrakvöld og
Mr. Kilgallen frá International
New Service hjelt stutta ræðu,
þar sem hann þakkaði fyrir
þær móttökur, sem þeir fjelag-
ar hafa fengið hjer og lýsti þvi,
hvernig ýmsar rangar hug-
myndir, sem þeir hefðu haft
um landið og þjóðina hefðu nú
breyst.
Að koma í Sjálfstæðishúsið
væri eins og að vera á bestu
veitingastöðum í New York og
stúlkurnar myndu sóma sjer
hvar sem væri og hafa betur,
innan um fegurstu blómaósir
heimsins.
•
Á fjöll í dag.
ÁHUGAMENN í skíðaíþrótt
voru farnir að örvænta um að
hægt myndi að halda Skíða-
landsmótið hjer í nágrenninu,
eins og ákveðið hafði verið,
sökum snjóleysis. í fyrradag
átti það samt að hefjast, en þá
brá svo við að það varð að
fresta mótinu vegna of mikilla
snjóa!
Það vill fara svo, að það er
ýmist of eða van. En þeir, sem
staðist hafa freistingu heið-
skírra sunnud. til þessa í vet-
ur munu hafa farið að huga að
skíðatækjum sínum og fötum í
gærdagi þegar sólin skein á
mjöllina. Það má búast við að
straumurinn liggi upp í fjöllin
í dag, ef veðurfarið helst líkt
og það var í gær. Og víst er það
hressandi og holt, jafnt fyrif
unga, sem gamla. Það er bara
að klæða sig vel, gleyma ekki
sólgleraugunum og fara var-
lega. Þá getur þetta orðið
skemtilegur sunnudagur hjá
Reykvíkingum.
„ÞAÐ verður ekki annað sjeð, en að kommúnista-
flokkarnir um allan heim sjeu undir sterkum aga og vinni
náið saman og það kemur ekki til nokkurra mála, að það
sje tilviljun ein“. Á þessa leið fórust Dean Acheson, að-
stoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna orð í fulltrúa-
deild Bandaríkjaþings í fyrradag.
Acheson er ekki neinn stjórnmálablaðrari, eða áróðurs-
maður. Hann veit hvað hann segir. Á orð hans er hlustað
um allan heim, og þeir, sem ekki eru því blindaðri af
ofstæki og hatri vita, að þessi maður fer ekki með neitt
fleipur, heldur satt mál.
Það þurfti ekki Acheson til að segja þessi orð. Þeir,
sem fylgjast með í heimsmálunum hafa lengi veitt því
athygli, að kommúnistar um allan heim starfa eftir „línu“.
Það er engin tilviljun, að áróðursefni kommúnista norður
á íslandi og suður í Kína er það sama. Kommúnistablað
í Napoli á Ítalíu flytur orðrjett sama áróðurinn og kom-
múnistablað á Akureyri, eða í Reykjavík. Það er engin
tilviljuri heldur, að kommúnistablöðin hjer þegja stund-
um í nokkra daga og neita sjer um að segja sitt álit á
vandasömum málum, sem skyndilega eða óvænt ber á
góma, þar til þeir hafa fengið „línuna“. Og línudansinn
verður ávalt sá sami hvar, sem er í heiminum, því komm-
arnir dansa eftir einni flautu. Það er bóndinn í Kreml,
sem færir upp dansinn þann.
MEÐAL ANNARA ORÐA . . . .
------—---—------
Á öðru ári friðarins: 11 milj. manna undir vopnum
Á ÖÐRU ári friðarins er
áætlað, að að minsta kosti 11
miljónir karla og kvenna sjeu
í herjum veraldar. Samkvæmt
áætlun Hal. D. Steward liðs-
foringja frá E1 Paso, Texas,
mun rússneski herinn mann-
flestur með um þrjár miljónir
manna, þar næst kemur Kína
með um 2.700.000 mann (hjer
er kínverski kommúnistaher-
inn ekki reiknaður með, en í
honum er ætlað að sje að
minsta kosti ein milj. manna).
Þriðja stærstan herstyrk telur
Steward að Bretar hafi (IV2
miljón), en fjórðu í röðinni eru
Bandaríkin með um 1.300.000
manna her.
í grein, sem Steward hefir
ritað um þessi mál í „Armour-
ed Cavalry Journal“, tekur
hann fram, að ekki megi gera
ráð fyrir því, að þessar tölur
standi algerlega heima, þar
sem sum herveldi gera sjer far
um að halda leyndum her-
mannafjölda sínum.
Stórvcldin.
Samanlagður herstyrkur stór
veldanna fimm — Bandaríkj-
anna, Bretlands, Rússlands,
Frakklands og Kína — er áætl
aður 8,650.000 manns.
Ekkert bendir til þess, að
nokkuð land í veröldinni hafi í
dag nálægt því þann herafla,
sem það hafði meðan á styrj-
öldinni stóð. Tilkynt er, að
Rússar hafi styrjaldarárin haft
20 miljónir manna undir vopn
um, Bandaríkin 8.300.000 og
Kína um 6.000.000.
Steward segir í grein sinni,
að af smáríkjunum hafi Júgó-
slavar langsamlega stærsta
herinn, jafnvel meiri herstyrk
en Frakkar. Er stríðinu lauk,
voru 750.000 manns í franska
landhernum, 100.000 í flotan-
um og flughernum. Júgóslavar
munu hins vegar hafa um
800.000 hermenn, þar af um
10% konur.
Ekki er hægt að treysta um
of tölum um herstyrk spönsku
stjórnarinnar. Ætlað er þó að
hún hafi um 300.000 manns
undir vopnum.
Suður-Ameríka.
Brasilía, sem var eina landið
Framh. á bls. 8