Morgunblaðið - 19.04.1947, Síða 1

Morgunblaðið - 19.04.1947, Síða 1
16 síður HILL DEILIR Á BRETASTJÓRN Var nofað við Helgoiaiutoprengínguna Eldar enn í Texas P (ity Washington í gærkvöldi. f DAG loguðu enn eldar á nokkrum stöðum í' Texas City, en sýnt var, að þeir voru orðnir viðráðanlegir. Ekkert hefur enn verið á- kveðið um eignatjón, en vit- að er nú með vissu, að að minsta kosti 800 manns hafi farist og 3000 særst. Sagt er að 300 lík sjeu enn undir rústum efnaverksmiðj unnar sem brann til grunna fyrsta daginn. — Reuter. Ræðir einnig Wallace og afstöðu Breta til umheimsins LONDON í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. WINSTON Churchill, leiðtogi íhaldsflokksins breska og fyrr- verandi forsætisráðherra, flutti í dag ræðu um afstöðu flokks hans til verklýðsstjórnarinnax og alþjóðasamvinnu. — Deildi Churchill hart á stjórnina fyrir eyðslusemi, auk þess sem hann veittist nokkuð að Henry Wallace fyrir ræður hans að undan- förnu og framkomu hans gagnvart Bandaríkjunum. Forsætis- ráðherrann fyrrverandi flutti ræðu sína á flokksfundi í London cg voru áheyrendur 10.000. Var honum vel fagnað. Hjer á myndinni sjest þýskur lögregluþjónn á verSi við hluta af sprengiefni því, sem notað var til að sprengja virkin á Helgo- land í loft upp í gær. Að atomsprengjunum fráskyldum, var Helgolandsprengingin stærsta sprenging veraldarsögunnar. London í gærkvöldi. Einkaskeyti til Mbl. frá Reuter. SIR STAFFORD CRIPPS tilkynnti í dag, að stjórnin hygðist hefja nýja herferð, til þess að auka framleiðslu Breta og með því útflut.ningsgetu þeirra. Ilið opinbera heiti herferðarinnar verður „Starf eða skortur“. <s----------------------------- óþægilegar staðreyndir. Cripps sagði blaðamönnum að breska þjóðin ætti við mikla erfiðleika að etja. Sagði hann þjóðina verða að horf- ast í augu við harðar og ó- þægilegar efnahagslegar stað reyndir. preng- ógurleg ir endilangri eynni LONDON í gærkveldi. Einkaskeyti til Morgunbl. frá Reuter. BRESKIR blaðamenn, sem flogið hafa yfir Helgoland í dag, segja, að engu sje líkara en lögun eyjarinnar hafi breyttst eftir sprenginguna í morgun, en þá voru sprengd í loft upp öll her- virki á eynni, meðal annars kafbátastöðvar og geysilöng og rammbyggileg neðanjarðargöng. Hver heildaráhrif sprenging- arinnar hafa orðið, er þó lítið hægt um að segja, en fyrst V^rður gengið á land á eynni á morgun (laugardag). i,—,—„ Auglýsingaherferö. í hinni nýju herferð verður auglýsingum beitt til hins ýtrasta. Verður auglýsinga- spjöldum meðal annars kom- ið fyrir á 13,000 stöðum.víðs vegar um landið, auk 90,000 verksmiðja og annara vinnu- staða. í haust verður svo haldin í London mikil sýning á kolaiðn aðinum breska. fylgisf með þyí sem gerisi Kaupmannahöfn í gær. Einkaskeyti til Mbl. í OPINBERRI tilkynningu um líðan konungs segir, að hann sje mjög máttlaus en að kongur hafi fulla rænu. Maður,' sem nákominn er konungsættinni, hefir sagt í viðtali við stjómarblaðið ,,Köbenhavn“, *að konungur íylgist enn vel með öllu, sem gerist í kringum hann og ræði um það af áhuga. Þrótturinn er furðanlega mikill, en samt er lítil lífs- von. — Páll. u Hollands HOLLENSKA skáksam- bandið hefir boðið Guð- mundi S. Guðmundssyni til þátttöku í skákmeist- aramóti, sem fram mun fara í Amsterdam dagana 9. til 15. maí. Guðmundur hefir tekið þessu boði. Meðal þeirra er taka þátt í mótinu eru: Tarta- kower, Ungverjinn Mar- ovzy, Rússinn Znosko Bor ovsky, skákmeistari Sviss lands, Grod, B. H. Wood og Golombek, Pomar, skákmeistari Spánar, hann er 14 eða 15 ára og skák- meistari Hollands Prince. Það var Prince sem skrif- aði undir boðsbrjefið til Guðmundar, en Hollands- meisíarinn tók þátt í skák mótinu í Hastings. Geysistór réykjarstrókur. Sjö smálestir af sprengiefni voru notaðar 1 sprenginguna. — Gaus upp reykjarstrókur, sem var um mílu á lengd og 8000 feta hár. Steinaregn. Sjónarvottar segja, að er sprengingin varð, hafi verið eins og eldar gysu upp úr eynni endilangri. Steinar á borð við lítil hús þeyttust mílu á sjó út, en smásteinaregnir var svo mikið, að allur sjórinn um- hverfis eyna var hvít-flyksótt- ur. — Vel undirbúið. Eyðilegging hernaðarmann- virkja á Helgolandi hefur ver- ið lengi í undirbúningi. Fjöldi vísindamanna fylgdist með gang sprengingarinnar úr skip- um, sem lágu undan eynni og í það mikilli fjarlægð, að þau voru óhult. f Hrun framundan. Churchill hjelt því fram í ræðu sinni, að stefna verklýðs stjórnarinnar mundi geta haft í för með sjer algert hrun Bret- lands. Sagði hann að breska heimsveldið væri ekki síður í hættu. Óhófseyðsla. Um lántöku stjórnarinnar í Bandaríkjunum sagði Chur- chill, að lánsupphæðinni væri eytt af hinu mesta óhófi, en þrátt fyrir það væri nú svo komið, að aðstaða landsins væri í dag að ýmsu leyti verri en á sumum stríðsárunum. Wallace. Henry Wallace, sagði Chur- chill að tilheyrði smá komm- únistabroti, sem starfaði gegn utanríkisstefnu Bandaríkjanna. En, sagði Churchill, við ættum ekki að leyfa það, að Bretlandi og Bandaríkjunum yrði stíað sundur. Bretland og umheimurinn. Churchill hafði það að segja um afstöðu Breta til annara þjóða, að enda þótt breska þjóðin mundi keppa að því að starfa innan alþjóðasamtaka, ætti breska heimsveldið að vera efst í huga manna. Hann sagði Breta óska þess af alhug, að þeir mættu sjá Evrópu sigrast á þjáningum sínum. Loks kvað hann Breta óska rússnesku þjóðinni alls velfarn aðar en vinátta þessara tveggja þjóða ætti að byggjast á heiðri og styrkleika. NY VOPN TEKIN I NOTKUN WASHINTON — Vandergrift hershöfðingi, yfirmaður strand- varnaliðs Bandaríkjanna, hefur tilkynnt að strandvarnaliðið verði endurskipulagt „með atomstyrjöld fyrir augum“. STASSEN TIL NORÐUR- LANDA LONDON: — Útvarpið í Moskva hefur tilkynt, að Stass en, fyrverandi ríkisstjóri í Minnesota, sje nú á leið til Norðurlanda. Hann hefur að undanförnu verið í kynnisför í Rússlandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.