Morgunblaðið - 19.04.1947, Síða 14

Morgunblaðið - 19.04.1947, Síða 14
MORGUNBLAÐIÐ Laugardagrur 19. apríl 1947 1« Á HEIMILI ANNARAR q. a erhart 38. dagur „Við sjáum nú hvað setur“, sagði Sam. „En við skulum ekki hrapa að neinu. Alice . hefir orðið fyrir þungu áfalli, og bað verður að gefa henni tíma til þess að jafna sig“. Gefa henni tíma, hugsaði Myra, tíma til þess að vinna Richard, tíma til þess að búa um sig í sínu eigin húsi. Tíma til------- Sam var sýnilega sannfærð- ur um það, að alt mundi jafn- ast með tímanum. Hann var svo öruggur, að hann gekk til Myru og sagði: „Mjer þykir fyrir þessu, Myra. En þegar þjer hafið hugsað yður vel um, þá munuð þjer sjá hvað rjett er, bæði gagnvart yður sjálfri og eins gagnvart þeim Richard og Alice“. Já„ hann var á bandi Alice, eins og hann háfði áður sagt. Richard greip fram í: „Þjer er óhætt að trúa mjer, Sam. Jeg elska Myru og Myra elskar mig og ekkert getur breytt því“._ „En þú ætlar nú samt að bíða. Þú lofar mjer því að rasa ekki fyrir ráð fram“, sagði Sam. „Við skulum bíða, það er ekki nema svo sem sjálfsagt“, sagði Richard. Það hýrnaði yfir Sam. Það var auðsjeð að honum fanst að þau Alice hefði sigrað. Hann sagði við Myru: „Jeg veit að Alice hefir á rjettu að standa og j~g býst við því að þjer vit- ið það líka“. Svo sneri hann sjer að Richard: Nú ætla jeg að fara upp á loft. Láttu vekja mig, _ef sakadómarinn kemur“. Svo gekk hann rösklega út og upp stigann. Richard horfði á eftir .hon- um, brosti lítið eitt og sagði: „Hann er svo góður lögfræð- ingur að hann veit að óþarft er að tefja ef hann hefir unnið. En hann hefir ekki unnið, Myra“. Hvað gat Richard vitað um það_ Þau Alice og Sam ætluðu að láta tímann vinna fyrir sig. Eftir nokkra stund sagði Ric hard. hugsandi: „Alice mun fallast á þetta. Jeg get ekki neytt hana til þess að gefa eft- ir skjlnað, en hún mun sjá að ekki er um annað að gera. Það er best að gefa henni tíma til að átta sig á því“. Svo gekk hann til Myru og lagði handlegginn um mitti hennar: „Sakamáladómarinn er á leið hingað — það er að segja, hann er á leið til lög- reglustöðvarinnar. Hann er í bíl. Jeg þarf að athuga ýmis- legt áður en hann kemur. Viltu bíða mín hjerna á meðan. Jeg kem bráðum aftur“. Og svo rauk hann á stað og ^iljÓD fram ganginn. Þar greip hann yfirhöfn sína. Og svo heyrði hún að hann lokaði úti- dyrahurðinni. Það varð ógurlega tómlegt í kring um hana þegar hann var íarinn. Það var eins og Kupido glotti hæðnisléga að henni. Það var eins og alt þarna inni ásak- aði hana fyrir það að hafa troð ið sjer inn á þetta heimili — heimili Alice. Hún settist í hægindastól Richards og horfði inn í eld- inn. Niður heyrðist af regninu, sem fjell á veröndina. Hvað var Richard að fara? Hvað var það, sem hann þurfti að gera áður en sakadómarinn kom? Jæja, það er svo sem sama, hugsaði hún, því að nú er hann ekki í neinni hættu út af morðmálinu. Það hefði svo sem ekkert gert til nú, þótt þeir hefði fundið byssuna hans. En þeir höfðu ekki fundið hana. Hvernig stóð á því? Það var mjög hljótt í hús- inu, þar heyrðist ekkert nema regnniðurinn og snark í eldin- um. Og henni fanst niðurinn og snarkið taka undir spurn- inguna. Hvernig stóð á því? Morð hafði verið framið í þessu herbergi og alt sem þar var inni geymdi minninguna um það og gleymdi því ekki. Hjer við fætur hennar hafði dauður maður legið. Mildred hafði skotið hann. Og Mildred var dáin. Nú var því kominn tími til þess fyrir húsið að gleyma þessu. Það sem þarna var inni þurfti ekki lengur að vara við nýrri hættu. Hættu? Það var áreiðanlega engin hætta á ferðum. Samt sem áður spratt hún á fætur, hleraði og skygndist um herbergið eins og hún ætti von á því að þar væri einhverjir ó- vinir í felum. En auðvitað var þar enginn. Þá fór hún að hugsa um byss una. Byssa var hættulegt vopn. Fimm kúlum hafði verið skotið á mann þarna inni í herberg- inu svo að hann dó samstundis. Og Myru fanst þessi atburður liggja þar enn í loftinu og vera eins og mara á húsinu. Hún hljóp út og inn í herbergið, þar sem Mildred dó, til þess að leita að byssunni. XVIII. KAFLI. Sejustofan var opin og ljós loguðu þar enn og birta þeirra þeirra endurkastaðist úr stóra speglinum. Ekkert minti á hinn sorglega atburð er þar hafði gerst fyrir skemstu, nema hvað ekki var alt þar í sömu reglu éins og vant var að vera. Hún gekk yfir blettinn þar sem Mildred hafði legið og inn í herbergið. Hún lokaði dyrun- um á eftir sjer og fór að leita. Stólarnir höfðu færst úr venjulegum skorðum og vindl- ingaaska hafði farið niður á gólfteppið. Myndin af Alice horfði yfir þetta dökkum, blíð- legum augum eins og henni kæmi ekkert við hvað gerst hafði þarna. Byssan var hvergi sjáanleg, og bó átti hún að vera þarna. Enginn nema Mildred hafði getað tekið hana úr felustaðn- um. Enginn hafði getað falið hana nema Mildred, máske ekki hið örlagaríka júníkvöld fyrir tveimur árum, því að þá mundi henni ekki hafa gefist tími til þess, heldur seinna. Hún hafði sjálfsagt falið vopn- ið í handriðssúlunni eftir að Alice var kærð fyrir morð. í þeirri von að lögreglan mundi finna það. í þeirri von að það mundi vera til þess að full- komna líkurnar gegn Alice. Eða þá til þess að koma grun- inum á Richard. Enginn gat grunað Mildred. Hún hafði auðvitað gert ráð fyrir því að lögreglan mundi hugsa sem svo að hún hefði ekki farið að fela byssuna þarna, hún mundi auð vitað hafa falið hana annars- staðar, ef hún hefði átt sök á morðinu. En þarna sæist það — Alice hafði verið í fangelsi og þess vegna hefði hún ekki getað forðað byssunni. En ef þeir hefði grunað Richard, þá hefði þeir auðvitað talið að hann hefði álitið þennan íelu- stað öruggan. Þannig hafði Mildred sennilega hugsað. Eða másLe hún hafi falið byssuna þarna í hugsunarleysi? Myra leitaði alls staðar, í samskeytunum á legubekkn- um, í skúffunum í skrifborð- inu, sem Mildred sat við þegar hún skrifaði seinasta brjef sitt. Hún rannsakaði allar hirslur og á bak við dyratjöld og gluggatjöld. Einn glugginn var var opinn og regnið hafði sett vætublett í silkitjöldin. Regnið skall á rúðunum og ljósin spegluðust í ýmsum gljáandi munum og það var eins og log- andi glyrnur störðu á hana. Hún lokaði glugganum. Og svo hóf hún aðra umferð og leitaði í öllum þeim stöðum, þar sem hún hafði áður leitað. Hún var æst og það var eitthvert fum á henv*. Og svo fór hún þriðju hrineferðina um alt herbergið, leitaði nú meira að segja í stól- unum, en fann ekkert og hætti leitinni. Bvssan var algerlega horfin og hún agt ekki gert sjer neina grein fyrir því. hvað Mildred mur^i hafa gert af henni. Það gat verið að hún hefði falið hana úti. Hún hafði nægan tíma til þess áður en Alice kom niður. Það gat líka verið, úr því að hún komst inn í húsið, að hún hefði tekið byssuna og falið hana áður en hún vakti Alice. Og þá voru litlar líkur til þess að hún mundi finnast. Ekki var heldur loku fyrir það skotið að lögreglan hefði fundið byssuna og farið með hana, án þess að geta um það við neinn mann, og ætlaði sjer að nota hana sem sönnunar- gagn síðar. Myra slökti ljósin í stofunni og gekk fram í anddyrið. Ric- hard var ekki kominn og eng- inn maður var í lesstofunni. Þangað hjelt Myra. Klukan sló eitt högg — það var alveg kom ið að dögun. Þó var enn myrkt vegna þess hvað dimt var í lofti. Hún var að hugsa um að ( læsa verandarhurðinni, þó það væri aldrei gert. En í sama bili sá hún að einhver hafði verið í herberginu á meðan hún var í burtu. Myndin af Kupido lá mölbrotin á arinhellunni, eins og henni hefgi verið fleygt þar á með miklu afli. Myndin, sem Alice þótti svo vænt um, lá nú þarna í ótal molum og litlu fingurnir bentu ankanalega út í loftið. I . i Það kom hik á Myru. Þessi brotna mynd vákti í henni nýj- an geig, henni fanst eins og þarna hefði verið framið morð. Æfintýrið um llúða Manga Eftir BEAU BLACKHAM. j 12. Dýrin fyrir framan lestina byrjuðu að toga og toga, trúðarnir æptu og hrópuðu og áður en Mangi vissi af, var hann kominn af stað, og eftir örskamma stund var komið til Staðar, einmitt þegar stöðvarstjórinn var byrj- aður að velta því fyrir sjer, hvað orðið hefði um lestina. Eftir að allur farangur hringleikahússins hafði verið tek inn úr lestinni, var Móði Mangi dreginn inn á verkstæði, og daginn eftir kom járnsmiður og gerði við gatið á gufu- katlinum og setti nýtt hjól á flutningavagninn, og ekki ieið á löngu þar til Mangi var orðinn eins og nýr. Móði Mangi og Surtur sjóræningi. Móði Mangi hjelt áfram ferð sinni eftir járnbrautartein- runum- Það var sólarlaust þennan dag, himininn var skýj- aður og kaldir vindar næddu gegnum merg og bein á mönnum. Jafnvel Manga var hálf kalt, þrátt fyrir eldinn undir gufukatlinum hans. En hin furðulegustu ævintýri áttu eftir að koma fyrir HAFNARFJÖRÐUR Ungling vantar Morgunblaðinu til blaðburðar í Hafnarfirði. Upplýsingar hjá afgreiðslu blaðsins, Austurgötu 31, Hafnarfirði. UNGLINGA Vantar okkur til að bera Morgunblaðið til kaupAnda. Bráðræðisholf Laugav. Efri Við sendum blöðin heim til barnanna. Talið strax við afgreiðsluna, sími 1600. j j

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.