Morgunblaðið - 03.06.1947, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 03.06.1947, Qupperneq 12
MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 3. júní 1947 r 12 Heigi Sigurgeirsson gullsmiour IVIinningarorð er—™' '***> '•s I DAG barst mjer til eyrna lát Helga Sigurgeirssonar gull- smiðs á ísafirði. Þegar slíkar fregnir berast, þá verður mörg um samferðamönnum á, að staldra við og líta um öxl og athuga hvað hefur skeð. Það, sem fyrst og fremst hefur skeð er, að áttatíu og þriggja ára gamall maður er hættur að vera með á nafnskrá hinna lif- andi og við það vakna ótal spurningar. — Hvernig hefur þessi maður vafið lífi sínu og hvaða minningar skilur hann eftir, og hvaða fordæmi hefur hann gefið samtíð sinni og kyn slóðinni, sem tekur við. Það eru spurningar, sem mig langar til að leitast við að svara. , Helgi Jóhannes Sigurgeirs- son var fæddur að Grænhól á Barðaströnd 20. des. 1853. For- eldrar hans voru þau Björg Jónsdóttir og Sigurgeir Sig- urðsson. Þau fluttu til Vestur- heims og ljetust þar í hárri elli, eftir að hafa öðlast þar meiri hamingju, en þau áttu kost á að verða aðnjótandi hjer heima á Fróni, því það er alkunnugt að lífsmöguleikar voru af skorn um skamti um það árabil, er mestu fólksflutningar voru hjeð an af íslandi til Vesturheims. Fólk af alþýðustjett átti ekki margs úrkosta og hafði ekki frá miklu að hverfa. Þá var það svo með þessa fjölskyldu frá Grænhól, að hún skiftist nokk- uð. Þau munu hafa verið 13 systkinin hans Helga, fjögur þeirra ílengdust hjer á landi, en hin fóru vestur, sum á undan foreldrum sínum, önnur seinna. Hvort hjer hefur vgpið um ftjálst val að ræða eða ekki, skal ekki um sagt, en Helgi hafði óbilandi trú á landið og þá möguleika, er það hafði að .bjóða og varð að trú sinni, bar gæfu til þess að sjá og fylgjast með og vera raunverulegur þátt takandi í því, er hjer hefur gerst, að þjóðin hefur losnað við erlenda áþján og öðlast sjálfstjórn á lýðræðislegan hátt og gengið þann erfiða veg, sem liggur frá örbyrgð til velmeg- unar. Ungur að árum nam Helgi gullsmíði hjá Einari Skúlasyni að Tannstaðabakka í Húna- /vatnssýslu og reyndist þá þeg- ar bæði hagur og listfengur. — Eftir að hafa lokið námi settist hann að á ísafirði og þar hefur heimili hans verið síðan. Heim- ili Helga var sjerstakt að allra dómi, er til þektu. Þar hvíldi yfir öllum hlutum einhver list- ræn ró og friður, sem enginn gat komist hjá að verða snort- inn af. Þar hafði hver hlutur sínar minningar að geyma og sína sögu að segja sem vonlegt var, eins og nú skal lítillega minst á. Helgi var tvíkvæntur. Eru báðar konur hans nú látnar. — Með fyrri konu sinni, Sigurrósu Sveinsdóttur, eignaðist hann sex börn, eru nú þrjú þeirra á lífi, þau eru, Þórarinn rafvirki á ísafirði og Guðrún og Sigur- rós, báðar á ísafirði. Með seinni konu sinni, Sess- elju Kristjánsdóttur, eignaðist Helgi átta börn, þar af eru nú tveir synir á lífi, báðir í Ame- ííku, auk þess ein fósturdóttir, ‘-einnig í Ameríku. Eins og af framanskráðu má sjá, hefur Helgi ekki alltaf ver- ið sólarmegin í lífinu, þar sem sorg og söknuður voru svo tíðir gestir á héimili hans. Enginn skyldi halda að Helgi hefði látið bugast í öllu þessu mótlæti og öllum þessum tíðu sorgar- atburðum, sama karlmannlega róin hvíldi yfir hinni fríðu á- sjónu hans, en ekki er mjer grunlaust um, að vinnustund- irnar á verkstæði hans hafi stundum verið ótaldar. Altaf var hann tilbúinn að veita gleð inni lið, margir voru þeir, er komu inn á vinnustofu hans til að rabba við 'hann um viðhorf dagsins, misjafnlega skemtileg eins og gengur, en allir munu hafa farið ánægðir út frá hon- um, en þeir komu, hann lagði altaf gott til allra mála. Hann var landskunnur fyrir leturgröft sinn og ýmsa lista- smíði, bæði af gulli og silfri og' hefur gefið þjóðinni marga kjör gripi, sem síðar eiga eftir að halda minningu hans á lofti og bera vitni meðal ókominna kyn- slóða :um handbragð og list- hneigð þeirrar kynslóðar er nú er að kveðja. Hann var traust- ur f jelagi í þeim f jelagsskap, er hann tók þátt í, aðallega mun það hafa verið Iðnaðarmanna- fjelag Isafjarðar, er mest naut fjelagslegra krafta hans. Einn þáttur í æfistarfi hans og ekki sá ómerkasti, var síld- veiði, mun hann hafa verið með þeim fyrstu á Vestfjörðum, er stjórnaði slíkum veiðiskap. — Þessi veiði var aðallega stund- uð á vorin og var veitt með landnót og síldin mestmegnis seld til beitu bæði innlendum og erlendum skipum og gat verið nokkuð ábatasöm stundum. — Fóru Helga þessi störf vel úr hendi, var bæði fengsæll og heppinn. Þessar vornæturveiðar munu hafa haft góð áhrif á Helga" bæði andlega og líkamlega, því það hljóta allir að verða betri menn, er ganga einslega á hönd hinni hvítu og kyrru vestfirsku vornótt og listamanni eru slík- ar stundir dýrmætar. Jeg átti því láni að fagna að koma dft á heimili Helga og síðast fýrir tveim árum síðan og eru mjer þær stundir ógleym anlegar. Þar talaði hver hlutur sínu máli minninganna, hver mynd minti á heila æfisögu. Alt bar svip hógværar listar og snyrtimensku, þarna voru fá- sjéðir munir, er ýmist voru gjaf ir frá honum til ástvinanna eða gjafir frá ástvinunum til hans. Á vinnustofu hans mátti sjá handföng verkfæranna notuð af hinni starfsömu hönd. Þarna átti Helgi heima. Þarna bar hver hlutur einhvern helgan svip minninganna. Mjer finnst að æfi og starf Helga hafi verið til fyrirmynd- ar. Hann á þakklæti skilið sam- tíðar sinnar og samborgara og hann var góður þjóðf jelagsþegn og' í alla staði hinn merkasti maður. Hip síðustu ár æfi sinnar naut hann sjerstakrar umönn- unar Guðrúnar dóttur sinnar, er vakti yfir hverri hans þörf og gjörði alt er í mannlegu valdi stóð til að gjöra honum hinar síðustu stundir sem ljett- bærastar og eins ánægjulegar og kostur var. Helgi hafði fer- ilvist til síðasta dags að heita má, hafði óskerta sálarkrafta, góða sjón, en heyrn var farin að dofna. Það verður ekki ann- að sagt en að hann hafi gengið til góðs og er hann nú kært kvaddur með þakklæti og sökn- uði allra er til hans þektu. 26. maí 1947. F. J. Fimm mínúfna krossgáfan SKÝRINGAR: Lárjett: — 1 tóbaki — 6 á fati — 8 bar — 10 ferðast — 12 kaupstaður — 14 fljót — 15 ellefu — 16 verslun í Rvík — 18 snyrtan. Lóðrjett: — 2 hestur — 3 guð — 4 niður — 5 býr til — 7 veikur •— 9 kvikmyndafjelag — 11 káffibraut — 13 ólfa — 16 fangamark — 17 ósamstæð- ir. — Lausn á seinustu krossgátu: Lárjett — 1 óvita — eir — 8 orð — 10 úða — l^magnaðu — 14mf — 15 ðð — 16 oss — 18 rakkana. Lóðrjett: — 2 vegg — 3 ii — 4 trúa — 5 tommur — 7 rauðka — 9 raf — 11 ððð — 13 nösk — 16 ok — 17 S. A. —Marfin Barlels Framh. af bls. 5 mensku í íslendingafjelagi, en hann baðst undan endurkosn- ingu þar árið 1945, hefur hann beitt sjer fyrir því, að komið yrði upp samkomuhúsi fyrir ís- lendinga í Höfn og yrði í hús- inu hægt a.ð hafa íbúðir bæði fyrir námsfólk og aðra landa. Hefur nokkur undirbúningur verið gerður til þess að hrinda því máli áleiðis. Martin Bartels og frú hans verða hjer um kyrt fram yfir miðjan júní. Hefur hann hug á því, að nota tímann hjer til þess að vinna að þessu áhugamáli sínu, að vekja áhuga Reykvík- inga fyrir því, að í Höfn véfði, fyrr en síðar, rei^st íslendinga- hús. — Meða! annara orða... Framh. af bls. 3 árásina. Það væri hin aftur- haldssama æska og óvinveitta sovjetríkjunum> sem hjer hefði látið til sín taka. Hjer væri um að ræða þjóðarvoða. — Stemma þyrfti stigu fyrir því, að slík óvingan og hatur, sem hjer kæmi fram í garð Sovjet, fengi að festa rætur með þjóðinni. Því vissulega vissu Finnar það, hverju megin þeir ættu að vera í næstu heimsstyrjöld. — Þeir ættu hvergi annarsstaðar að vera en við hlið Rússa. Þótti mönnum sem ráðherrann hefði gert sjer mikinn mat úr þessu atviki, sem kannske var ekki annað en að kveikt hafði verið á eldspýtu. En af því spanst fyrirskipun um það, hverju megin Finnar ættu að vera í næstu styrjöld. Þeir reyna nýjar leiðir. Allar þessar aðfarir verða skiljanlegar frá hendi kommún ista, þegar tekið er tillit þess að kommúnistar hafa tapað mjög fylgi^ í Finnlandi síðustu mánuði. Með alls konar brögð- um, komu þeir því til leiðar, að þeir höfðu ráðin innan stjórnar verkalýðsfjelagannaa, eftir stjórnarkosnnguna í fyrra. En þar eru þeir eftir síðustu kosn- ingar alveg komnir út úr spil- inu. Augljóst varð við kosning- arnar til sambandsþingsins, að verkalýðufinn hefir fengið nóg af þeim, þar í landi. Það hefir ekki vantað, að kommúnistar í Finnlandi hafa þóttst vinna að því sem þeir hafa kallað kjarabætur fyrir verkalýðinn. Þeir hafa viðhald ið verkföllum og glundroða í at vinnulífinu, hvar sem þeir hafa höndum undir komist. En síðan Finnar urðu að hefja skaða- bótagreiðslur til Rússa, hafa þeir þurft á öllu sínu að halda, til þess að geta borgað allar bæt urnar á rjettum tíma. Rússar heimtuðu að þau ákvæði yrði í samningnum, að ekkert tillit yrði tekið til þess. þó verkföll tefðu fyrir afhendingu á þeim vörum sem Finnar eiga að inna af hendi. Þetta ákvæði samningsins notuðu kommúnistar sjer ó- spart. Settu á stað verkföll, í þeim beina tilgangi, að stefna skilsemi þjóðarinnar í voða. — Þannig hafa þeir getað haldið stjórn landsins í hinni mestu úlfakreppu. En nú hafa þeir fengið að kenna á því, að verkalýður landsins er búinn að fá nóg af þeim. A sambandsþinginu eiga 300 fulltrúar sæti. — Þar hafði demokrataflokkurinn 40 atkv. meirihJLuta. En var valda- laus í fyrra á þeirri samkundu. Þegar svo er komlð fyrir hinum finsku kommúnistum, geta menn ímyndað sjer, að þeir hugsi sjer að koma ár sinni þannig fyrir borð, að efna til gerfiárása á Rússa, eins og þarna á uppstigningardag. Og koma því til leiðar á þann hátt að Rússar gerist afskiftasamari um málefni Finnlands, / og hjálpi hinum finsku kommún- istum að efla áhrif sín á þann hátt, eftir að almenningur er alvarlega farinn að snúa baki við þeim flokki. — Sjómanna- dagurínn Framh. af bls. 9 leiðslunnar, í stað þess að vera notað að nokkru leyti til óarð- bærra starfa. Loks flutti fulltrúi sjómanna ávarp sítt. Það var Böðvar Stein þórsson matsveinn sem hafði orð fyrir sjómönnum. Hann komst m. a. svo að orði í ræðu sinni: Sjómennirnir sem löng- um hafa lifað eins og útlagar með þjóð sinni, og sem oft á tíð um hafa verið eins og gestir á sínum eigin heimilum, hafa fyrir 10 árum vaknað til sam- starfs um ýms velferðarmál sín og menningarmál sín. Öll starf- semi Sjómannadagsins hefir ætíð verið og á ætíð að vera til vegsauka fyrir sjómannastjett- ina. Verkefni það sem Sjó- mannadagurinn er nú að vinna að, er að reisa hvíldarheimli fyrir vinnulúna uppgjafa sjó- menn. Afhending verðlauna. Þessu næst fór fram afhend- ing verðlauna til,þeirra er þátt höfðu tekið í íþróttum dagsins. Fyrst var kallaður fram á sval- ir Alþingishússins Jón Kjartans son, er unnið hafði bæði björg- unar og stakkasundskeppnina. Var honum afhentir verðlauna- gripirnir, en mannfjöldinn hylti Jón. Þá fór fram afhending á bikar veiðarfæraverslana í Reykjavík fyrir unna keppni í reipdrætti. Formaður bátsins tók við bikarnum fyrir hönd skipshafnarinnar á Fagrakletti. 'Helgi Ársælssor^ var nú kallað- ur fram og honum afhentur Fiskimaður Morgunblaðsins fyr ir unninn sigur í kappróðri, en eins og fyr segir unnu Skutuls- menn. En jafnframt var Skutuls mönnum afhentur lárviðar- krans Sjómannadagsins, en hann skal draga að hún í for- mastri. Að lokum var June Munktell bikarinn afhentur Guðjóni Illugasyni, sem var for maður á bát þeim er sigraði í keppninni við Norðmenn. Að lokum voru keppendur heiðraðir með þreföldu húrra hrópi Þessari samkomu lauk með því að Lúðrasveitin ljek þjóð- sönginn. Hóf í samkomuhúsum. I hófi, sem haldið var um kvöldið að Hótel Borg fluttu þar ræður Jóhann Þ. Jósefsson siglingamálaráðherra og Gunn- ar Thoroddsen borgarstjóri. Dansleikir voru í öllum sam komuhúsum bæjarins um kvöld ið. Ný kvikmyndahús. MONTREAL: — J. Arthur Rank, breski kvikmyndafram- leiðandinn, hefir ákveðið að byggja 56 ný kvikmyndahús í Kanada. Sýningarhúsin munu kosta 75Ö.000 sterlingspund. I

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.