Morgunblaðið - 19.06.1947, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Fimmtudagur 19. júní 19471
Þjéðhátíðin á
Akureyri
17. JÚNÍ hátíðahöldin hjer
hófust kl. 2 e. h. Þá ljek Lúðra-
sveit Akureyrar nokkur lög,
undir stjórn Axels Jónssonar,
á Ráðhústorginu. Laust eftir
kl. 2 hófst skrúðganga bæjar-
búa að hátíðasvæðinu, sem var
á túni fyrir sunnan sundlaug-
ina. Þar fór fram fánahylling
skáta. Þá stje í ræðustól Steinn
Steinsen bæjarstjóri og setti
hann hátíðina með ræðu. Þá
flutti sóknarpresturinn Pjetur
Sigurgeirsson guðsþjónustu, en
að henni lokinni flutti forseti
bæjarstjórnar Þorsteinn M.
Jónsson lýðveldisræðu, en
Kantötukórinn söng undir
stjórn Björgvins Guðmunds-
sonar. Einn hinna nýbraut-
skráðu stúdenta, Kristján
Róbertsson flutti ræðu, en að
lokum var þjóðsöngurinn sung-
inn.
Kl. 4 hófst fimleikasýning.
50 stúlkur úr Gagnfræðaskól-
anum sýndu. Karlakórinn Geys
ir söng undir stjórn Ingimund-
ar Árnasonar. Nú hófst keppni
í fimmtaþraut voru keppendur
allir innan IBA. Keppt var í
100 m. hlaupi og hástökki.
Fyrstu verðlaun hlaut Harald-
ur Sigurðsson 2807 stig. Önnur
hlaut Marteinn Friðriksson
2622 stig.
Um kvöldið söng Karlakór
Akureyrar undir stjórn Axels
Jónssonar og Lúðrasveitin ljek.
Mikill fjöldi bæjarbúa tók þátt
í hátíðahöldunum en þeim
lauk með dansi í samkomuhús-
inu.
Hátíðinni stjórnaði Ármann
Dalmansson.
—H. Vald.
Palestínunefndin
skoSar helga sfaði
Jerúsalem í gærkveldi.
PALESTÍNUNEFND samein-
uðu þjóðanna heimsótti í dag
ýmsa helga staði í Jerúsalem og
Betlehem.
Á morgun (fimmtudag) er í
ráði að nefndin fari í kynnisför
til Jafa og Gyðingaborgarinnar
Tel Aviv.
Stern flokkurinn hefir nú til-
kynnt, að hann mundi fús til að
leggja niður vopn, meðan á störf
um rannsóknarnefndarinnar
stendur í Palestínu, ef Bretar
hætti að hafa afskipti af flutn-
ingi flóttamanna til landsins.
—Reuter.
Palesfíminelndin
heldur fyrsfa fund
sinn.
Jerúsalem í gærkvöldi.
PALESTÍNUNEFND sam-
einuðu þjóðanna kom saman til
fyrsta fundar síns í Jerúsalem
í dag. Formaður nefndarinnar,
sem er sænskur, flutti útvarps-
ræðu við það tækifæri, og fór
fram á samstarf allra Palestínu
búa. Sagði hann, að nefndin
væri komin til landsins til þess
að kynna sjer allar hliða'r Pale-
stínumálsins og vildi hún því
hafa sem nánast samband við
landsbúa. — Reuter.
Kommúnistar bera úbyrgð ú nii-
urgreiislu 40 vísitölustiga
UM FÁTT hefir kommúnist-
um orðið tíðræddara en þá reg-
inheimsku, að halda dýrtíðinni
niðri með greiðslum úr ríkis-
sjóði. Þjóðviljinn hefir ekki
einu sinni átt orð til að lýsa
þessari fjarstæðu, og hefir þess
vegna fengið sjerstakan teikn-
ara í lið með sjer til að útmála
hana enn þá átakanlegar.
Kommúnistar eiga mestan hlut
að því, sem þcir ávíta harðast
Að svo vöxnu máli er þess-
vegna ekki furða þó að mörgum
þeim, er trúa kommúnistum,
hafi komið á óvart skýrsla sú,
sem viðskiftamálaráðuneytið
nýlega birti um þessi efni.
Samkvæmt skýrslu ráðuneyt
isins sannaðist, að núverandi
ríkisstjórn hefir að vísu aukið
niðurgreiðslur á vöruverði svo,
að nemur 16 vísitölustigum.
Þ. e. a. s. vísitalan mundi nú
vera 326 í stað 310 stiga, ef
þessar aðgerðir núverandi
stjórnar hefðu eigi komið til. —
En auk þessara 16 stiga er vöru
verð borgað niður sem nemur
40 vísitölustigum. Þær niður-
borganir áttu sjer stað áður en
núverandi ríkisstjórn tók við
völdum, og voru þess vegna
gerðar af fyrverandi stjórn, þar
sem kommúnistar áttu sæti.
Kommúnistar bera þess-
vegna samskonar ábyrgð á
niðurborgun á vöruverðinu,
sem svarar þessum 40 vísitölu-
stigum, eins og núverandi
stjórnarflokkar bera ábyrgð á
þeim niðurgreiðslum, er hafa
átt sjer stað frá því að þeir
tóku við völdum.
Er skynsamleg ástæða fyrir
snúningi kommúnista?
En hvernig stendur á því, að
kommúnistar töldu ekkert at-
hugavert, þó að vísitölunni væri
með greiðslum haldið niðri
um 40 stig? Þeir ljetu sjer ekki
nægja, að telja þetta ekkert at-
hugavert, heldur studdu þeir
með veru sinni í fyrrverandi
stjórn beinlínis að því, að þess-
ar stórkostlegu niðurgreiðslur
ættu sjer stað. En nú ætla þeir
að tryllast yfir að bætt er við
þeirra eigin 40 stiga niður-
greiðslur svo að nemur 16 stig-
um.
Venjulegum dauðlegum mönn
um er óskiljanlegt, að slík-
ur skilsmunur verði einmitt við
töluna 40. Að hagsmunir verka-
lýðs og alþjóðar krefjist þess,
að borgað sje niður upp að
þeirri tölu, en síðan gangi land-
ráðum næst og algerum svikum
við almenning, ef greidd eru
niður nokkur stig þar fram yfir.
Óþarft er að leita nokkurar
skynsamlegrar skýringar á þess
ari hugarfarsbreytingu komm-
únista. Hún er ekki til.
Niðurgreiðslur
neyðarúrræði.
Ástæðan er einfaldlega sú, að
meðan kommúnistar voru við
völd, þótti þeim ekki henta, að
atvinnurekstur landsmanna
stöðvaðist sannanlega fyrir
þeirra tilverknað.
En nú þegar þeir hafa tekið
upp hatramma og lúalega
Ærast yfir, að 16 stig-
um er bætt við
stjórnarandstöðu, eru slík hug-
tök eins og ábyrgðartilfinning,
ekki að þvælast fyrir þeim. Nú
stefna þeir víss vitandi að sem
víðtækastri atvinnustöðvun.
Hitt er annað mál, að niður-
greiðslur dýrtíðarinnar, er mik
ið neyðarúrræði. Þær eru að-
eins nauðvörn til að forðast
annað ennþá verra.
Utgerðin stöðvast ef ekki
borgað niður.
Fyrrverandi ríkisstjórn var
samt síður en svo ámælisverð,
þótt hún á þenna veg borgaði
dýrtíðina niður. Ef það hefði
ekki verið gert mundi vísitalan
þegar núverandi stjórn tók við
völdum, í upphafi febrúarmán-
aðar, hafa numið 350 stigum í
stað 310. Fiskábvrgðarverðið
handa bátaútvegsmönnum var
miðað við, að vísitala hjeldist
300 stigum. Með vísitölunni
’310 telja þeir mikla örðugleika
á útgerð sinni, þrátt fyrir alla
ríkisábyrgð.
Margsannað er, að hvort held
ur miðað er við vísitölu 300 eða
310, er framleiðslukostnaður á
fiskiafurðum íslendinga, öðrum
en síldarafurðum, svo gífurleg-
ur, að langt fer fram úr heims-
— Póliand
Framh. af bls. 1
—Sanok—Przemysl—Hrubies-
zow.
í Zamose var krökkt af her-
mönnum, sem voru búnir pólsk
um einkennisbúningum og sum
ir þeirrá töluðú prýðilega rússn
esku, en slælega pólsku.
Rússar cg Tjekkar með.
Bardagar þessir hafa staðið
yfir síðan skæruliðarnir drápu
Swiervzewsky, hershöfðingja,
vara landvarnamálaráðherra
Póllands við Sanok þ. 20. mars
s. 1.
Það er vitað, að Sovjetstjórn-
in og tjekkneska stjórnin hafa
samvinnu við pólsku stjórnina
í þessum aðgerðum.
Óstaðfestar frjettir herma, að
þúsundir fjölskyldna hafi verið
fluttar nauðugar úr suðaustur
hluta Póllands til norðlægari og
vestlægari hjeraða.
-----» ♦ ♦ ...-
Neifa að segja upp
samningum
Þórshöfn, miðvíkudag.
Frá frjettaritara vorum.
Á FUNDI í Verkalýðsfjelagi
Þórshafnar er halöinn var 13.
þ. m. var að viðhöfðu nafna-
kalli neitað að segja upp kaup-
samningum fjelagsins.
Gegn uppsögn samninganna
greiddu atkvæði 41, en méð
uppsögninni 4.
markaðsverði. Ef engar vörur
hefði verið greiddar niður, svo
að hin sanna vísitala hefði kom
ið í ljós, þ. e. a. s. 350 stig,
er þessvegna mjög hætt við,
að lítið hefði orðið úr útgerð
landsmanna á þessu ári enn sem
komið er. Og því fremur mundi
stöðvun útgerðarinnar leiða af
vísitölu 366.
Alvaran hulin.
Þegar á þetta er litið er skilj-
anlegt, að reynt hefir verið allt
frá árinu 1943, að standa á móti
gengdarlausum vexti dýrtíðar-
innar með niðurgreiðslum á
vöruverði úr ríkissjóði. En auð-
vitað er þetta neyðarúrræði.
Þetta er aðeins gert á meðan
önnur úrræði finnast ekki.
Aðalgallinn á þessu bráða-
birgðaúl.’ræ'íi er pá, aP með
þessu er dulið hið raunveru-
lega ástand dýrtíðarmálanna
fyrir almenningi. Menn ætla í
fljótu bragði, að verðbólgan sje
miklum mun minni en hún raun
verulega er. Þegar af þeirri á-
stæðu er skýrsla viðskiptamála-
ráðuneytisins nú mjög þakkar-
verð og mun áreiðanlega verða
til að vekja marga til umhugs-
unar um þessi mál.
KR vann Víking
með 2:1
ÞRIÐJI leikur Knattspyrnu-
mót Islands fór fram í gær á
milli KR og Víkings. Vann KR
með 2:1.
Strax á fyrstu mínútu leiks-
ins skoruðu Víkingar mark.
Vilberg Skarphjeðinsson gerði
það með góðu skoti eftir ágætt
upphlaup. Síðan gerðu KR-
ingar allharða hríð að marki
Víkinga, sem litlu síðar hófu
ákafa sókn og sýndu þá oft
ágætan leik. En svo nokkru
eftir miðjan hálfleikinn tókst
vinstra innherja KR að
„kvitta“ og tæpum tíu mínút-
um síðar skoraði Óli B. annað
mark KR-inga.
Síðari hálfleikurinn stóð
þeim fyrri langt að baki. Leik-
urinn var oft harður og heldur
leiðinlegur og lítið um góðan
samleik. Enda tókst hvorugu
liðinu að skora. Lá yfirleitt
meira á Víking, en markmaður
þeirra varði með ágætum og
virtist mun öruggari en Anton
í KR-markinu. En hann mætti
losa sig betur við knöttinn.
í hálfleik fóru nokkrir ung-
lingar að leika sjer á vellinum
og virtúst kunna því illa að fá
ekki að vera þar óáreittir. Það
væri fróðlegt að vita í hvaða
menningarlandi slíkt gæti skeð
í aðal knattspyrnukepni lands-
ins — öðru en íslandi.
— Þorhjörn.
Svíar unnu Dani
með 4:1 I
Kaupmannahöfn í gær.
Frá frjettaritara vorum,
FJÖRUTÍU þúsund áhorfend
ur voru á knattspyrnulandsleikn
um milli Dana og Svía, sem fór
fram hjer í Kaupmannahöfn í
gær. Svíar unnu leikinn með 4:1.
í fyrri hálfleik 3:0, en 1:1 í
síðari. Er langt síðan Danir’
hafa beðið annan eins ósigur.
Dönsku blöðin viðurkenna
öll yfirburði Svíanna, og segir
Socialdemokraten, að sænska
landsliðið hafi leikið eins og
bestu atvinnumenn. Karl Aage
Hansen skoraði mark Dananna,
Nýft leynivepn
Auckland í gær.
BRETAR eru búnir að finna
upp nýtt leynivopn, sem taliði
er nálgast atómsprengjuna,
hvað kraft snertir. Tilraurárnar
hafa farið fram um þetta í
Nýja Sjálandi, Bretlandi og
Bandaríkjunum.
Svo mikil leynd hvílir yfip
öllum framkvæmdum, að hin-<
um 170 starfsmönnum, sem að
þessu vinna, hefur ekki verið
skýrt frá neinum smáatriðurrj
viðvíkjandi þessu. — Tilraunir
þessar byrjuðu á stríðstímanum,
en eru nú fyrst að komast á
hæsta stig.
Tilraununm stjórnar próf,
Leech, sem kennir verkfræði
við háskólann í Auckland.
Kemsley.
Orðuveitingar
17. júní
FORSETI ÍSLANDS he.fur þ,
17. júní sæmt eftirgreinda máls
metandi og landskunna menn
og konur riddarakrossi fálkaorði
unnar:
Forseta sameinaðs Alþingis,
Jón Pálmason frá Akri, rithöf-
und frú Ingunni Jónsdóttur frá
Kornsá, fríkirkjuprest Árna
Sigurðsson, skipstjóra Jónas
Jónasson, yfirdýralækni Sigurði
E. Hlíðar, óperusöngvara Einar
Kristjánsson og fyrrverandi al-
þingismann Hákon Kristófers-
son í Haga.
Þá hefur forseti íslands
einnig í dag sæmt eftirgreinda
menn og konur fálkaorðunni,
svo sem hjer segir:
Prófessor John Hellström 2
Stokkhólmi og dr. Henry Godd-
ard Leach, heiðursforseta AmerS
can-Scandinavian Foundation,
stórriddarakrossi og sendiherra
frú Laura Finsen og rektor
Walter E. Holmstedt við Stock-
holms Tekniska Institut ridd-
arakrossi.
Prófessor Hellström veitti
forseta íslands fulla heilsubót,
en orðuveitingin til prófessors-
ins er jafnframt viðurkenning;
við sænsku læknastjettina. Dr,
H. Goddard Leach hefur sýnt
íslenskum fræðum og málefn-
um mikinn áhuga í áratugi. —»
Sendiherrafrú Laura Finseni
hefur verið við hlið manns síns
í starfi hans að utanríkismál-
um landsins, í meira en áratug,
Rektor Walter E. Holmstedt'
hefur greitt mjög götu ís-
lenskra námsmanna í Svíþjóð,
(Frjettatilkynning frá orðurit-
ara). ,