Morgunblaðið - 19.06.1947, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 19.06.1947, Blaðsíða 12
VEÐURÚTLITIÐ: Faxaflói: Þ J OÐHATIÐ ARRÆÐ A for-. Atistan- eða SA-gola, Smá- skúrir síðdegis, annars úr- komulaust. „Egill Skalla- grímsson ‘ kom ígær FJÓRÐI nýsköpunartogarinn sem byggður er í Bretlandi sigldi fánum skreyttur inn á ytri höfn milli klukkan sex og sjö í gærkveldi. Þessi togari heitir Egill Skallagrímsson RE 105 og er eign h.f. Kveldúlfur. Egill Skallagrímsson er byggður eftir sömu teikningu og hinir fyrri nýsköpunartog- arar sem komnir eru. Innrjett- ing skipsins er þó nokkuð öðru- vísi en hinna togaranna m. a. er neðri lúkarinn þrefaldur í stað þess að vera einfaldur. Hvítur eru fyrir 42 skipverja. Egill Skallagrímsson lagði af stað frá Hull s. 1. laugardag en kom við í Shields til þess að taka oiíu, en þaðan var hann 84 klst. til Reykjavíkur. Skipstjóri á Agli Skallagríms syni verður hinn þjóðkunni sjó sóknarmaður Kolbeinn Sigurðs son. Hann hefir verið skipstjóri á Kveldúlfstogaranum Þórólfur frá því að fjelagið keypti skip- ið. Fyrsti stýrimaður verður Eyjólfur Ólafsson og fyrsti vjel- stjóri Jóhann Jónsson. *■ ■' - -.. ■■ - ———— + [ Afurðasalan Lúðvík Jósefsson al- j þingismaður birtir í j Þjóðviljanum s I. þriðju j dag mjög villandi frá- j sögn um sölu íslenskra j afurða. Lætur hann t. d. j svo sem nær aliur hrað- j frysti fiskurinn sje seld j ur, en þegir um, að sala j hans er skilyrði bundin, j þannig að ekkert verð- j ur úr henni, nema unt j sje að afhenda síldarlýsi j með. Veit þessvegna enginn fyrr en að síld- arvertíð lokinni, hversu mikið raunverulega er selt. Þá segir hann mjög villandi frá sölu á salt- fiski, en af honum hef- ir enn ekki selst nema ■jþriðjungur framleiðslu og langt undir ábyrgð- arverði. Alrangt er sagt frá ísfiskmarkaðinum og svona mætti lengi telja. Loks er þess að geta, að enn er ekki bú- ið að undirrita við- skiptasamninga nema við Breta eina, þó að vonir standi til, að fleiri samningar verði undir- ritaðir þessa dagana. Jafnskjótt og sjeð er fyrir endan á þeirri samningagerð mun birt verða heildarskýrsla um þessi mál og mun þá því miður koma á daginn, að útlitið er langt frá því að vera eins gott um þau og j Þjóðviljinn vill nú vera 134. tbl. — Fimmttidagur 19. júní 1947 Fjallkonan Frú Alda Möller er var Fjallkonan á þjóðhátíðardeginum. Myndin er tekin í Aiþingishússgarði. Frásögn af Iiátíðarhöld- unum er á 5. síðu. (Ljósm. Morgunblaðsins). Synodus hefs! í dag KLUKKAN eitt eftir hádegi í dag hefst hin árlega presta- stefna íslands, hjer í Reykja- vík, með guðsþjónustu í Dóm- kirkjunni. Sjera Björn Magn- ússon docent þjónar fyrir altari, en sr. Eiríkur J. Eiríksson á Mýri í Dýrafirði stígur í stól. Klukkan 4 í dag hefst svo prestastefnan í kapellu Há- skólans. Að því loknu mun biskupinn yfir Islandi ávarpa prestana og flytja skýrslu um störf kirkjunnar á liðnu syno- ári. í kvöld flytur sr. Sigurður Guðmundsson prestur á Grenj- aðastað erindi fyrir almenning í Dómkirkjunni, en erindið nefnir hann Lúthersk játning og eining kirkjunnar. 32,006 fonna hval- veiðiskíp BRETAR eiga nú í smíðum hvalveiðiskip, sem verður um leið fljótandi verksmiðja, sú stærsta af þeirri gerð, er nokkru sinni hefir verið byggð í heim- inum. Verður skipið 32.000 tonn og er ráðgert að gera skipið út frá Argentínu, en veiðar mun það stunda í Suðurhöfum. 3 Ferðaskrtfsfofu ferðir ÞÓRSMERKURFERÐ hefst kl. 3 e. h. á laugardag. Ekið í Húsadal í Þórsmörk. Tjaldað þar. Á sunnudag gengið um mörkina. Farið í Stórenda og gengið á Valahnúk. Á heim- leiðinni verður Stakkholtsgjá skoðuð. Komið heim á sunnu- dagskvöld. í sambandi við bif- reiðaferðir inn á Þórsmörk skal þess getið að leiðangur var gerður út 17. þ. m. til þess að athuga möguleikana á því, hvort hægt væri að komast með góðu móti leiðina inn á Þórsmörk í bifreiðum. Kom það í ljós að á sterkbyggðum, háum bifreið- um með drifi á fram- og aftur- hjólum er vel / mögulegt að komast þessa leið. Og hefur Ferðaskrifstofan þar með á- kveðið að efna til helga- og sumarleyfisferða inn á Þórs- mörk í sumar. I-Iekluferð hefst einnig á laug ardag kl. 3 e. h. Ekið að Næfur- holti. Gengið síðan að eldstöð- unum. Komið til baka á sunnu- dagskvöld. Þriðja íerðin sem Ferðaskrif- stofan efnir til um þessa helgi er Kleifarvatns- og Krísuvíkur- ferð. Farið á stað á laugardag kl. 2 e. h. 1 Ungur maður íerst aí voðaskoti Húsavík, miðvikudag. Frá frjettaritara vorum. Á MÁNUDAGSKVÖLD vildi það hörmulega slys til hjer í Húsavík, að ungur maður varð fyrir voðaskoti og beið hann samstundis bana af. Maður þessi hjet Karl Parmes son til heimilis hjer í bænum. Hafði Karl farið út á sjó ásamt tveim unglingum og höfðu þeir meðferðis byssu. Byssan var hlaðin er þeir lögðu hana frá sjer í bátinn. Er þeir komu að landi reið skotið af og fór í gegnum höfðu Karls og beið hann þegar bana af. Fullu nafni hjert hann Karl Valdimar. Foreldrar hans voru hjónin Parmes Sigurjónsson og Helga Karlsdóttir er lengi bjuggu að Ketilstöðum á Tjör- nesi, en þau eru nú flutt hing- að til Húsavíkur. Eldur í háspennu- sföð UM helgina kom upp eldur í háspennustöð fyrir skálahverf- ið í Knox Kamp og urðu mikl- ar skemdir í stöðinni af völdum eldsins. Þegar slökkviliðsmenn komu þangað vestur eftir var skáli sá er háspennustöðin er til húsa í, alelda. Ætluðu slökkviliðs- menn þegar að ganga til verks, því láðst hefir að setja einhver merki á skála þennan er gefa til kynna að hættulegt sje að fara þangað inn. Fólk í skálum þarna í kring vakti athygli slökkviliðsmanna á þessu og töfðust þeir því við starf sitt. Lífshættulegt var fyrir þá að dæla vatni þangað inn meðan hvorki meira nje minna en 6000 volta spenna ljek þar um alla rafmagnskapla. Lögleg presfkosn ing í Grímsey LAUGARDAGINN 7. júní fór fram prestkosning í Gríms- eyjarsókn í Eyjafjarðar-pró- fastsdæmi. Umsækjandi var einn^ sjera Robert Jack. Atkvæði hafa nú verið talin á biskupsstofunni í Reykjavík. Á kjörskrá voru samtals 50 kjósendur og af þeim greiddu 36 atkvæði. Var kosningin því lögieg. _ Minni smjörskamtur í Danmörku K.höfn í gær. Einkaskeyti til Mbl. STJÓRNARBLAÐIÐ „Köben havn“ spáir því, að danska stjórnin neyðist til að lækka smjörskammtinn úr 36 í 30 gr. j á dag. Þá getur og verið, að minka verði sykurskammtinn. seta íslands er á 7. síðu blaðs- ins. Bæjarsfjórnarkosn- ing á Sauðárkrók 6. júlí Frá frjettaritara vorum FYRSTU bæjarstjórnarkosn- ingar á Sauðárkróki fara fram þann 6. júlí n.k. — Fram hafa komið fjórir listar. Efstu menn listanna eru: A-listi, listi Alþýðuflokksins, þeir Magnús Bjarnason, Krist- inn Gunnlaugsson og Erlendur Hansen. B-listi, listi Framsókn- arflokksins, á honum eru: Guð- mundur Sveinsson, Friðrik Han sen og Þórður Sighvats. C-listi, listi Sósíalista: Skafti Magnús- son, Hólmar Magnússon og Hólmfríður Jónsdóttir. Listi Sjálfstæðismanna verður D-list- inn og eru framboðsmenn hans: Eysteinn Bjarnason, Guðjón Sigurðsson og Sigurður Þ. Jónsson. Hreppsnefnd var skipuð tveim Alþýðuflokksmönnum, einum Framsóknarmanni, einum Sósíal ista og þrem Sjálfstæðismönn- um. Heillaóskaskeyli 17. júní FORSETA ÍSLANDS bárust á þjóðhátíðardaginn, 17. júní, eftirfarandi heillaóskaskeyti: Frá Shvernik, forseta æðsta ráðs Ráðstjórnarríkjanna: ,,í tilefni af hátíðisdegi þess- um, sem haldinn er til minn- ingar um stofnun frjáls lýðveld- is á íslandi, móttakið herra íor- seti hinar einlægustu árnaðar- óskir mínar. Shvernik, forseti Æðsta ráðs Ráðstjórnarríkjanna". Frá forseta Bandaríkjanna: „Á þessu minningardegi stofn unar íslenska lýðveldisins, er mjer ánægja að senda yðar há- göfgi og íslensku þjóðinni bestu óskir mínar og árnaðaróskir Bandaríkjaþjóðarinnar. Harry S. Truman“. Frá forseta Frakklands: „Á þjóðhátíðardegi Islands sendi jeg yðar hágöfgi mínar bestu óskir um velgengni lands yðar og heill íslensku þjóðar- innar. Vincent Auriol“. Forseti íslands hefur þakkað kveðjur þessar. +----—--------------------* íslandsmel í lOOm.hlaupi A 17. júní mótinu setti Finnbjöm Þorvaldsson, ÍR, nýtt Islandsmet í 100 m. hlaupi. Hljóp á 10,7 sek., og hefir enginn Evrópu- maður náð betri tíma en það í ár. Þetta var einnig besta afrek 17. júní móts- ins og hlaut Finnbjörn fyrir það „Konungsbikar- inn“. Þá setti boðhlaupssveit ÍR nýtt íslandsmet í 1000 m. boðhlaupi á 2.02,5 mín. Nánari frásögn af mót- inu verður að bíða vegna þrengsla í blaðinu. , ».—■■■ - - - ■ M

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.