Morgunblaðið - 04.07.1947, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 04.07.1947, Blaðsíða 8
r MORGUNBLAÐIB Föstudagur 4-, j il' 1947 Finsm mínútna krossgátan SKYRINGAR Lárjett: — 1 verkfærið — 6 fugl — 8 tvíhljóði — 10 dýra- máli — 11 ávítur — 12 hvað — ,13 alþingismaður — 14 tóm •— 16 guma. Lóðrjett: — 2 tveir eins — 3 vondur — 4 greinir — 5 ílát — 7 vernda — 9 bættu við — 10 fornafn — 14 orðflokkur — 15 tveir ósamstæðir. Lausn á síðustu krossgátu: Lárjett: — 1 manar — 6 lot .— 8 ýo — 10 ás — 11 skreytt — 12 is — 13 A. I. — 14 Rut .— 16 forin. Lóðrjett: — 2 al — 3 Noreg- ur — 4 at — 5 lýsið — 7 ástin — 9 oks — 10 áta — 14 R. O. — 15 ti. Brjef: Hvar eru stúdentarnir? Þýskt kommúnista- blað bannað London í gærkvöldi. BRESKA hernámsstjórnin hefur sett þýska kommúnista- blaðið „West Deutsches Volks- echo“, sem gefið er út í Dort- mund, í eins mánaðar útgáfu- bann, vegna „ranglátrar og ein- hliða gagnrýni á bresku og bndarísku herstjórnina og stjórn arvöld Þjóðverja". Er þetta í fyrsta sinn, sem breska her- stjórnin setur útgáfubann á blað. -— Áður en útgáfa blaðs- ins var bönnuð, hafði herstjórn- in nokkrum sinnum varað kommúnista við óhæfilegum á- róðri í ræðu og riti. Hr. ritstjóri: SÁ FURÐULEGI atburður hefir gerst undir forustu komm únista í voru landi, að högg- myndinni af Snorra Sturlusyni, þeirri sem norska þjóðin af vel- vild og skilningi á bókmennta- afrekum Snorra í þágu íslenskr ar og norskrar menningar hafa látið gera og sendu hingað 'neim sem gjöf til íslensku þjóðarinn- ar, fjekk ekki landvistarleyfi hjer, en var í þess stað endur- send eins og einhver ófönguður. í þessum verknaði fer saman stór móðgun við eina af okkar skyldustu og vinsamlegustu nágrannaþjóðum og skortur á sómatilfinningu og þjóðarmetn aði fyrir Islands hönd. Þetta er svo gróf-gerð og and styggileg móðgun við sómatil- finningu íslendinga að slíkt er óþolandi, enda sennilega for- dæmalaust nema þar sem skræl ingjahugsunarháttur ræður at- höfnum manna, sem gjörsneidd ir eru allri háttvísi í framkomu sinni fyrir hönd þjóðar sinn- ar. En hvar eru nú stúdentarnir, þeir sem hæst lætur í á port- fundum og í blaðaskrifum og telja sig brjóstvörn íslenskrar menningar og sjálfstæðishug- sjóna. Þessar aðfarir láta þeir óá- taldar, ekki er þó ástæðan hjá þeim öllum sú, að norska Þjóð- in sje ekki nógu austarlega til að þykkjast fyrir hennar hönd. Er nú ekki íslenskur þjóðar- metnaður þeim betur runninn í blóð og merg en svo, að þeim svíði ekkert undan svona frek- legri móðgun við ærlegt stolt sinnar þjóðar. Er ástæðan kannske sú, að þeir líti svo á, að við íslendingar verðum að venjast því og þá best sem fyrst, að kommúnistar fótum troði og forsmái metnað okkar, menningarverðmæti og mann- gildi. Jeg skil ekki og hefi þó aldrei álitið kommúnismann góðann, að hann skuli geta leitt menn út í svona blygðunarlaust at- hæfi, og móðgandi tilræði við sinn þjóðarsóma. Nú svo slæm áhrif sem jeg veit að komm- únisminn hefir á sína fylgjend- ur virðast þau þó í reyndinni enn verri en jeg hefi áætlað fyrir fram. Engum er hægt að telja trú um, að þó undanþága frá verk- fallinu hefði verið veitt til þess að koma Snorrastyttunni í land hefði haft nokkur skaðleg á- hrif fyrir verkfallsmenn eða orðið nokkur plús fyrir and- stæðinga þess. Það er ekkert til sem rjett- lætir þennan verknað. Hann er ekkert annað en andstyggileg tilraun kommúnista til að ein- skisvirða íslensk menningar- jverðmæti og sýna fyrirlitningu sína á íslenskum þjóðarsóma. Þeir láta sjálfa sig ekki án vitnisburðar þessir piltar. Reykjavík, 2. júlí 1947. Sig A. Björnsson, frá Veðramðti. Höfum fyrirliggjandi T E í Ya og % Ibs. pk. Mjög góð tegund. (Jcjcjert ~J<\riitjánó5oyi &T* (Jo. h.fi \ I i I FORfl 1947 Ford-bifreið, 6 manna, 1947 til sölu og sýnis við S_helltankinn, Vesturgötu 5, kl. 2—4 í dag. »1111111111111111iiiiiiiiiii■11111111111111111111 Daglega nýsoðin Svið @g sláfur Kjötverslanir HJALTA LÝÐSSONAR Grettisgötu 64 og Hofsvallagötu 16. Minningarorð um i í Stefán Sn i^rrason ÞAÐ var mild vornótt ís- ienskrar náttúru aðfaranótt fyrsta júní. Jeg fylgdi með aug- unum æfingavjel ykkar? er þið fjelagarnir fluguð af stað inn í blámóðu þessa eftirminnilega kvölds. Veðrið var fagurt, mild vorangan steig úr jörðu. Þið renduð ykkur yfir fjöll og dali, ár og vötn og fyrir neðan var móðurjörð kær, land hinna feg- urstu litbrigða og stórhrikalegr- ar landlagsfegurðar, baðað í kvöldsólarskini. Hvílík æsku- gleði. Það tvent fer vel saman. En dagur var að kvöldi og líf þitt, þrungið lífsþrótti, von og trú á framtíðina, entist ei leng- ur en fram á þá nótt. Helfrjett- in setti okkur hljóð. Eigi var lengur hjalað um fánýta hluti. Slíkt missir gildi sitt frammi fyrir dauðanum. Hugljúfar end- urminningar um góða drengi sóttu að af margföldum þunga. Stefán heitinn var fæddur 6. september, 1922, sonur Snorra Jónssonar verslunarmanns og Stefaníu Stefánsdóttur konu hans. Stefán var efnismaður, frá barnæsku áhugasamur hug- sjónamaður um flugmál og starf aði að þeim málum undanfarna mánuði hjá h.f. Loftleiðum. Af fjelögum sínum var hann vel liðinn og hrókur alls fagnaðar í vinahóp. í framkomu var hann háttprúður,. glaðlyndur og skemtinn, vinafastur, tryggur þar sem hann tók því og raun- góður, en flíkaði eigi tilfinning- um sínum. Hann var kjarkmaður og sást sjaldan bregða. Okkur vinum hans er því slysið lítt skiljan- legt. Minningarnar um vini, búna svo ágætum mannkostum eru bjartar og ein af dýrmætum gjöfum lífsins að eignast slíka vini. Karlmennskulund þín, vinur, brást eigi á hinum sársauka- fulla banabeði. Umhyggjan fyr- ír f jelaga þínum, Ólafi, sem með þjer fórst, og sem þú þrautum þjáður, stöðugt spurðir um, lýs- ir karlmensku og sönnu dreng- lyndi. Söknuður þinna ástríku for- eldra og systkina er sár og þung ur harmur kveðinn að heimili 1 þínu. Þeim sendi jeg samúð mína. En að muna þig í lifenda lífi, svo ágætan dreng, veitir huggun í harmi og mildar trega þeirra, er unnu þjer mest og þektu þig best. Guð blessi minningu þína. Vinur. — Af sjónarftóli... Framh. af bls. 7 kaupstaðabúar njóta nú, virðist ekkert annað duga en breyta bú skaparháttum, stækka búin — fjölga fólkinu. Þá verða hend- urnar fleirj — verkin ljettari. Þá getur heimilisfólkið skipst á um að fara í frí. ★ FYRIR nokkrum árum kom bóndi á miðjum túnaslætti í heimsókn í Gróðrarstöðina hjá Akureyri. Hann varð meira en lítið hissa þegar hann sá engan mann að heyverkum og „bóndinn" Ólaf- ur skáld sjálfur í sumarfríi suð- ur í Ódáðahrauni. Hvernig stóð á þessu? Var þetta óstjórn og ómenska? Nei, síður en svo, að mínum dómi. Fyrra slætti var lokið, og fólkið fjekk orlof með- an háin var að spretta. Svona á það að vera. Þetta er það sem koma skal. Allstór bú — full- komin ræktun -— margt vinn- andi fólk, sem getur leyft sjer að taka sjer frí eins og aðrar atvinnustjettir í landinu. Það er enginn ríkisstyrkur, engin öl- musa heldur eðlileg rjettindi frjálsra og vel vinnandi manna. — Parísarráðsfeínan Framh. af bls. 1 Viðrœdur Bidaults og Bevins. Þeir Bevin og Molotov fóru flugleiðis frá París í dag. Áður átti Bevin all-langar viðræður við Bidault, og tilkynnt hefur verið, að Bidault muni í næstu viku koma til London til við- ræðna við Bevin og aðra stjórn- málaléiðtoga Breta. — Bevin mun gefa breska ráðuneytinu skýrslu um Parísarfundinn mjög bráðlega, en að því búnu mun hann flytja ræðu um fund- inn í neðri málsstofu breska þingsins. ; Bing: Phil, jeg verð að láta lögregluna hjerna hafa þig í haldi fyrst um sinn. En jeg veit að þú drapst ekki Pleed. — Hálfri klukkustund seinna er Bing kominn í heimsókn til ókunnu stúlkunnar. Hann segir: Afsakið ónæðið, fröken Frale. Jeg er leynilögreglumaður. Vinnuveitandinn yðar, Pleed, var myrtur í kvöld í skrifstofunni sinni. — Frale: Þetta er voðalegt. Eruð þjer viss um þetta. ■— Bing: Ekki er hann að halda niðri í sjer andanum .... Hafið þjer verið heima í allt kvöld? — Frale: Auð- vitað. Jeg var steinsofandi, þegar þjer hringduð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.