Morgunblaðið - 04.07.1947, Qupperneq 12
VEÐURUTLITIÐ: Faxaflói:
Hægvirðri. Sumstaðar skúrir.
AF SJONARHOH SVEITA-
MANNS. — Grein á bls. 7.
Vlót lorræna-
fjelagsins í
sumar
FULLTRUAFUNDUR Nor-
rænu fjelaganna á öllum Norð-
urlöndum verður að þessu ninni
haldinn í höllinni Hindsgavl,
aðsetursstað danska Norræna
fjelagsins, og verður fundurinn
haldinn dagana 31. ág. til 2.
sept. Fulltrúarnir verða gestir
danska Norræna fjelagsins með
an fundurinn stendur.
Himmelbjergsmót gengst
Norræna fjelagsdeiidin í Silke-
borg fyrir sunnud. 13. júlí ræðu
menn á móti þessu verða for-
sætisráðherra Danmerkur og
Svíþjóðar, þeir Knud Kristen-
sen og Tage Erlander, fjelags-
málaráðherra Norðmanna Osc-
ar Torp og aðalbankastjóri
danska þjóðbankans Bramsnæs.
Um kvöldið verður leikið í úti-
leikhúsinu Der var engang eftir
Drachmann. Þátttakendum er
boðið frá öllum Norðurlöndun-
um.
Æskulýðsleiðtogamót verður
haldið í Borgá í Finnlandi 3.—
9. ágúst. Meðal ræðumanna á
móti þessu verða ýmsir þekkt-
ustu forystumenn Finna á sviði
vísinda, fjelagsmála óg stjórn-
mála. í sambandi við mótið
verða farnar ýmsar ferðir um
Finnland.
Kennaramót verður í Gud-
brandsdalens Folkehögskole
dagana 24. júlí til 3. ágúst.
Fluttir verða fyrirlestrar um
fjölmörg efni og umræður fara
fram um fjölmörg áhugamál
norrænna kennara. Skólinn er
á einum fegursta stað í Nor-
egi og í sambandi við mótið
verða farnar ýmsar ferðir um
nágrennið. Uppihald og ferðir
kostar kr. n. 130.00.
Umsóknir um mót þessi verða
að vera komnar fyrir 15. júlí
til Norræna fjelagsins hjer skrif
stofunnar í Garðastr. 6, sem
veitir nánari upplýsingar.
Norræna fjelagið í Svíþjóð
býður 7 íslenskum nemendum
ókeypis skólavist næsta vetur
á sænskum lýðháskólum. Nem-
endurnir skulu hafa verið einn
vetur á íslenskum hjeraðsskóla
og hafa meðmæli skólastjóra.
Umsóknir sendist ritara Nor-
ræna fjel. Guðl. Rosinkranz
fyrir 1. sept. á skrifst. fjelags-
ins Garðastr. 6. Danska Nor-
ræna fjelagið býður einnig ó-
keypis skólavist á dönskum
lýðskólum gegn jafn mörgum
ókeypisplássum hjer á landi.
Fyrir skömmu barst Norræna
fjelaginu að gjöf stórt fagurt
málverk eftir listamanninn
David Lundberg, en hann kom
hingað til íslands fyrir mörg-
um árum og sendir Norræna
fjelaginu þetta málverk eftir sig
sem þakklætisvott fyrir ánægju
lega dvöl hjer á landi.
London: — Montgomery
marskálkur er nú staddur í
kynnisferð í Ástralíu, og hefúr
honum verið þar margvíslegur
sómi sýndur.
147. tbl. — Föstudagur 4. júlí 1947
Eins og kunnugt er, var nýlega efnt til samkeppni um mynda
skylti handa Sameinuðu þjóðunum. Islendingar tóku þátt í
þessari samkeppni, en tillöguteikningar þeirra bafa ekki
Verið birtar. Hjer á myndinni eru bins vegar þrjár danskar
tillögur. —
»'11 ©
sild sjesl
Norðurltant
Frá frjettaritara vorum á Siglufirði.
SKIPVERJAR á Birninum frá Keflavík, sem kom til Siglu-
fjarðar í kvöld, (fimmtudag), segja frá-því að þeir hafi sjeð
mikla síld er þeir voru urn 25 sjómílur austur af Horni. Á
klukkustundar siglingu töldu þeir 10 stórar síldartorfur og
aldrei nema eina í einu.
Björninn fór fram hjá Jökli'
og voru skipverjar á honum að
háfa síld eftir kast, en hvort
um piikinn afla var að ræða
vissu þeir ekki. Skip er á leið
til Siglufjarðar í kvöld ^með
síld, en skipverjar sögðu fátt
um það í talstöðinni hve mik-
inn afla þeir væru með.
Engar frjettir hafa borist af
skipunum, sem voru á veiðum 4iðin 171 ár frá því, ,er frelsis-
yfirlýsing þeirra var birt, en
hún hefir verið máttarstólpi
stjórnarfyrirkomulags Banda-
ríkjanna síðan. Og lýðræðis-
hugsjónirnar, sem þar eru sett-
ar fram hafa fest djúpar rætur
meðal þjcðarinnar, enda hafa
þær ævarandi gildi.
Bandaríkjanna
ídag
í DAG, 4. júlí, er þjóðhátíð-
ardagur Bandaríkjanna. Eru nú
í Húnaflóa í gær, og voru þar
í mikilli síld. Þau hafa ekki
komið til Siglufjarðar með afla
sinn.
Vlðurfcenntng á rjeífi
London í gærkveldi.
Á FUNDI í neðri málstofu
breska þingsins í dag tilkynnti
Clement Attlee forsætisráð-
herra, að ákveðið hefði verið
að breyta nafni ráðherra og
ráðuneytis, sem fer með mál,
sem snerta samskipti bresku
samveldisríkjanna. Mál þau,
sem ráðuneytið-fer með, hafa
hingað til verið kölluð „sjálf-
stjórnarnýlendumál11, en verða
hjer eftir kölluð „mál, sem
snerta samskipti bresku sam-
veldislandanna“. Sagði Attlee,
að gamla nafnið hefði valdið
misskilningi ókunnugra í þá
átt, að samveldislönd Breta
væru að einhverju leyti rjett-
lægri aðiljar en sjálft Bretland,
en hið nýja nafn slægi óvje-
fengjanlega föstu því ástandi,
sem ríkt hefir, nefnilega full-
komnum rjetti samveldisland-
anna. — Af hálfu stjórnarand-
stæðinga úr hópi íhaldsmanna
var þessari ráðagerð vel tekið.
Forsætisráðherrar Kanada,
Nýja Sjálands og Suður-Af-
ríku hafa einnig lýst ánægju
Forsefinn móðir hsns
gir“ fer til Bergen
að sækja styttu
Snorra
RÍKISSTJÓRNIN hefur bjargað því, að ekki verði úr meira
hneyksli, en orðið er, i sambandi við styttu Snorra Sturlusonar.
Hefur hún ákveðið að senda varðskipið Ægi til Bergen eftir
styttunni. Var skipið fyrir Austurlandi er þetta var ákveðið
og er það þegar lagt af stað til Noregs.
* Kemur í miSri nwstu viku.
Ægir er með það mikinn
ganghraða, að hann ætti að geta
farið fram og til baka milli
íslands og Bergen á 5—6 dögum
en það mun taka stund, að
flytja styttuna milli skipa í
Bergen. Er búist við, að Ægir
geti verið kominn hingað aft-
ur um eða uppúr miðri næstu
viku.
Trygging mun fyrir því, að A1
þýðusambandið láti þetta mál
afskiftalaust úr þessu, enda bú-
ið að gera nóg.
Snorrahátíðin haldin á
rjetlum tíma.
Framkvæmdastjóri Snorra-
nefndarinnar íslensku átti í gær
símtal við Shetelig prófessor í
Bergen og spurði hann hvort
ekki myndi verða af Norð-
manna hálfu haldin áætlun með
Snorrahátíðina, ef varðskipið
yrði sent eftir styttunni. Sagði
Shetelig að svo mundi verða,
ef ekki yrði frekari ófriður út
af landsetningu styttunnar og
var þá fengið vilyrði Alþýðu-
sambandsins fyrir, að það
myndi ekki gera frekari ráð-
stafanir til að hindra landsetn-
ingu styttunnar.
Fáránleg „skýring“.
Kommúnistablaðið reyndi í
gærmorgun af veikum mætíi, að
klóra yfir hneyksli komrnún-
ista í þessu máli með því, að
segja, að ríkisstjórnin bæri á-
byrgð á því, að styttan kom
ekki í land!!
Eins og margoft hefir verið
frá skýrt í blöðum í vor var
það ákveðið í Bergen í mars-
mánuði s. 1. að Lyra kæmi til
Reykjavíkur með Snorrastytt-
una í lok júní-mánaðar. Var það
að sjálfsögðu löngu áður en ríkis
stjórnin, eða nokkur annar —•
nema ef vera skyldi kommúnist-
ar sjálfir — vissi af því, að
Dagsbrúnarverkfall yrði hjer
um það leyti.
kvenna heldur
r
l
HANDKNATTLEIKSMÓT
kvenna heldur áfram á íþrótta-
vellinum í kvöld kl. 8,30.
Ármann keppir þá við Tý úr
Vestmannaeyjum, en hvorugt
þessara liða hafa áður tapað
leik í mótinu. Þá fer og fram
leikur á milli ÍR og FH.
í sambandi við leikina í dag
fara fram undanrásir í 80 m.
hlaupi drengjamóts Ármanns.
Frumvarp að heil-
brlgðissamhykkf
fyrir Reykfavík
lagt fram
FRUMVARP að heilbrigðis-
samþykkt fyrir Reykjavík var
til fyrstu umræðu á bæjarstjórn
arfundi í gær. Hefur Magnús
Pjetursson, hjeraðslæknir, sam-
ið frumvarp þetta.
Borgarstjóri kvað hjer vera
um mjög þýðingarmikið mál að
ræða, sem þyrfti náinnar íhug-
unar við, þar sem mikilvægt
væri fyrir bæjarbúa að til heil-
brigðissamþykktarinnar væri
sem best vandað.
Var frumvarpinu vísað sam-
hljóða til annarrar umræðu.
Peron vill aukna
velvild
London í gærkveldi.
SENDIRÁÐ Argentínu í Lon-
don tilkynnti í dag, að Juan de
Peron hershöfðingi, forseti Arg-
entínu, myndi á sunnudaginn
kemur kl. 20 eftir íslenskum
j tíma flytja í útvarpið í Buenos
Aires ávarp til þjóða heimsins
' og stjórnvalda um að efla vel-
vild og samúð í samskiptum
sínum. Peron mun flytja ávarp-
| ið á spönsku, en því næst verð-
ur það lesið á ensku, portú-
gölsku, frönsku, rússnesku og
ítölsku. — Reuter.
Móöir Trumans forseta, hcfur
veriö veik aö undanförnu og
dvaldi forsetinn hjá henni um
tíma. Gamla kpnan er nú oröin
9j ára, og sjest hjer á myndinni
vera aö hvísla einhverju aö syni
sinni yfir henni. — Reuter. sínum.
Bombay: — Samtök Hindúa
í Bombay stofnuðu í dag til all-
mikilla óeirða í Bombay í dag
til þess að mótmæla stofnun
sjerstaks ríkis Múhamedstrúar-
manna í Indlandi. — Nokkrir
menn voru drepnir, en all-
margir særðir. Umferðarbann
hefur verið sett á í borginni.
Heimsókn kvenna úr
Húnavalnssýslu
MIKIÐ er af ferðafólki utan
af landi hjer í höfuðstaðnum
þessa dagana og veldur þar
mestu um Landbúnaðarsýning-
in, sem þegar hefir fengið mik-
ið orð á sig. í gærkveldi komu
70 konur úr Austur-Húnavatns
sýslu í hópferðalagi um Suð-
urland. Húnvetningafjelagið
mun halda þessum konum sam-
sæti í Breiðfirðingabúð kl. 9 |
kvöld.